Morgunblaðið - 26.07.2002, Síða 21

Morgunblaðið - 26.07.2002, Síða 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2002 21 Sími 525 3000 • www.husa.is 20-40% Útimálning á stein, þak og timbur afsláttur FULLTRÚADEILD bandaríska þingsins hefur samþykkt með yfir- gnæfandi meirihluta að reka James Traficant af þingi. Þingmaðurinn var í apríl síðastliðnum dæmdur sekur fyrir mútuþægni og spillingu og sögðu samstarfsmenn hans í þinginu honum ekki stætt á öðru en að segja af sér. Traficant neitaði því, enda hefur hann ætíð haldið fram sakleysi sínu, og sagðist frekar mundu fara í fangelsi en að segja af sér og við- urkenna afbrot sem hann hefði ekki framið. Traficant barðist fram í rauðan dauðann gegn brottvikningunni og hélt 48 mínútna ræðu sér til varnar. Þótti hún, eins og margar ræður hans, æði skrautleg og þurfti fund- arstjóri að áminna hann fyrir óvand- að orðbragð. Hélt Traficant því fram að hann væri fórnarlamb samsæris og ofsókna af hendi dóms- og lög- regluyfirvalda, sem og skattheimt- unnar. „Stjórnin hefur fleiri upptök- ur af mér en CNN,“ sagði hann. Fullyrti Traficant að Janet Reno, fyrrverandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, stæði á bak við of- sóknirnar á hendur honum og hét því að gera allt sem í sínu valdi stæði til að koma í veg fyrir að hún næði kjöri í ríkisstjórakosningum í Flórída. „Ég skal sjá til þess að hún verði ekki kosinn í neitt fjandans emb- ætti,“ sagði hann og hlaut að launum ávítur fundarstjóra. Flestir þingmannanna, sem hlýddu á málflutning hans, gerðu svo í hljóði þótt öðru hverju mætti heyra hlátur þegar Traficant gerði grín að útliti sínu. „Innst inni viljið þið ganga í útvíðum buxum, en skortir sjálfsöryggið sem til þarf,“ sagði hann. Meðal séreinkenna þing- mannsins fyrrverandi eru einmitt gerviefnajakkaföt með úreltu sniði auk hárgreiðslu sem helst minnir á Elvis heitinn Presley. Látnir moka flórinn Meðlimir siðanefndar þingsins lögðu á það áherslu að óverjandi væri að Traficant héldi þingsæti sínu miðað við þau sönnunargögn sem komið hafa fram á hendur honum. Fyrrverandi samstarfsmenn hans báru því vitni að hann hefði tekið við mútum og að hann hefði notað op- inbert fé og mannafla til eigin þarfa. Lét hann til dæmis starfsmenn skrif- stofu sinnar moka flórinn á býli sínu í Ohio. Alls greiddu 420 þingmenn at- kvæði með því að Traficant væri vik- ið frá, en aðeins Gary Condit, þing- maður demókrata frá Kalíforníu, greiddi atkvæði gegn því. Condit hefur sjálfur átt undir högg að sækja eftir hvarf aðstoðarkonu sinnar, Chöndru Levy, en lík hennar fannst nýlega í almenningsgarði í Wash- ington. Fjórtán þingmenn sátu hjá eða greiddu ekki atkvæði. Traficant reitti marga félaga sína í demókrataflokknum til reiði í fyrra þegar hann greiddi repúblikananum Dennis Hastert atkvæði sitt til emb- ættis forseta þingsins í stað leiðtoga minnihlutans Dick Gephardt, og þótt Traficant segði ekki skilið við demó- krata neitaði flokksforystan að skipa hann í þingnefndir eftir það. Traficant, sem er annar þingmað- urinn sem vikið hefur verið úr emb- ætti frá árinu 1861, er þekktur fyrir skrautlega framkomu, jafnt innan þings sem utan. Hann vitnaði gjarn- an í sjónvarpsþættina Stjörnuferð (Star Trek) í ræðum sínum. Hann var fyrst kjörinn á þing árið 1984 sem þingmaður fyrir Ohio-ríki, en hafði áður gegnt embætti lögreglu- stjóra í heimabæ sínum. Var hann á þeim tíma ákærður fyrir að hafa tek- ið við mútum frá skipulögðum glæpasamtökum að upphæð 163.000 dollurum, eða um fjórtán milljónum íslenskra króna. Hann sagði sjálfur að hann hefði tekið við peningunum þegar hann var að leiða glæpamenn- ina í gildru og var sýknaður fyrir dómi, en var látinn greiða myndar- lega upphæð til skattayfirvalda þeg- ar hann gat ekki gert grein fyrir því hvert peningarnir fóru. Traficant rekinn af Bandaríkjaþingi Lét starfslið þingskrifstof- unnar moka flórinn á býli sínu Washington. AP, Washington Post. Traficant flytur varnarræðu sína fyrir Bandaríkjaþingi. AÐ MINNSTA kosti 25 manns hafa farist í flóðum og aurskriðum í norðurhluta Tyrklands síðustu daga, að sögn tyrknesku frétta- stofunnar Anatolia í gær. Alls hafa 25 lík fundist, þar af átján í þorpinu Selamat í Rize- héraði við Svartahaf. Mesut Yil- maz, aðstoðarforsætisráðherra Tyrklands, sagði að óttast væri að tólf manns til viðbótar hefðu farist. Flóðin hafa kostað að minnsta kosti sjö manns lífið í héruðum í grennd við Rize og má á myndinni sjá hvar björgunarfólk er að störf- um í bænum en þar varð mikil aur- skriða. Úrhelli hefur verið á svæð- inu frá því á mánudag og veðurfræðingar spá því að rign- ingunni sloti ekki næstu tvo daga. Björgunarmenn hafa ekki kom- ist til nokkurra þorpa, sem hafa einangrast vegna flóða og aur- skriðna. Um tuttugu byggingar hafa eyðilagst og yfir 200 fjöl- skyldur hafa þurft að flýja heimili sín. Að sögn tyrkneskra embættis- manna hafa 96 vegir lokast og 25 þorp eru án rafmagns. AP Tugir manna farast í flóðum í Tyrklandi Ankara. AFP. RICHARD Parsons, aðalfram- kvæmdastjóri AOL Time Warner, stærstu fjölmiðlasamsteypu heims, staðfesti í fyrradag að Viðskiptaeft- irlitsnefnd Bandaríkjanna, SEC, hefði hafið rannsókn á reikningsskil- um America Online, netdeildar fjöl- miðlarisans. Eftirlitsnefndin greindi einnig frá því að hún hefði hafið rannsókn á alls tólf fjárfestingar- bönkum á Wall Street vegna „hugs- anlegra lögbrota“. Rannsóknin á America Online (AOL), stærsta netfyrirtæki heims, hófst eftir að The Washington Post skýrði frá því á fimmtudaginn var að fyrirtækið hefði aukið tekjur sínar af auglýsingum á Netinu með ýms- um „óhefðbundnum“ samningum á árunum 2000–2002, fyrir og eftir samruna AOL og Time Warner í janúar 2001. Að sögn blaðsins beitti America Online ýmsum vafasömum aðferðum til að láta líta út fyrir að tekjurnar af auglýsingum á Netinu hefðu aukist, meðal annars með til- færslum á tekjum milli deilda. Parsons staðfesti rannsóknina eftir að kauphöllinni í New York var lokað í fyrradag og áréttaði að allar færslur America Online væru í sam- ræmi við viðurkenndar reiknings- skilavenjur. Fyrirtækið segir að færslurnar, sem The Washington Post fjallaði um, nái yfir tæp 2% tekjum America Online á umræddu tímabili. AOL Time Warner skýrði enn- fremur frá því í fyrradag að tekj- urnar af auglýsingum á Netinu hefðu minnkað á öðrum fjórðungi ársins. Rekstur fjölmiðlarisans hefði skilað hagnaði að andvirði 394 millj- óna dala (34 milljarða kr.) á þessu tímabili, en á sama tíma í fyrra var samsteypan rekin með tapi að and- virði 734 milljóna dala (63 milljarða kr). Athyglin beinist að bönkunum Stephen Cutler, framkvæmda- stjóri Viðskiptaeftirlitsnefndar Bandaríkjanna, skýrði frá því að hún hefði hafið rannsókn á hugs- anlegum lögbrotum tólf fjárfesting- arbanka á Wall Street, meðal ann- ars Merrill Lynch, Citigroup, Morgan Stanley og Goldman Sachs. Cutler vildi ekki skýra frá því hvers konar lögbrot bankarnir væru grun- aðir um. Athygli bandarískra fjölmiðla beindist að bönkunum á þriðjudag þegar greint var frá því að Citigroup og JP Morgan Chase hefðu hjálpað bandaríska miðlunarfyrirtækinu Enron að fela versnandi fjárhag þess með því að veita því lán að and- virði að minnsta kosti átta milljarða dala, andvirði 688 milljarða króna. Rannsókn á reikningsskilum America Online Hugsanleg lögbrot tólf banka rannsökuð New York. AFP, The Washington Post.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.