Morgunblaðið - 26.07.2002, Qupperneq 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
MÉR þykir af og frá að fá
meindýraeyði til að fækka
kanínunum í Fossvogs-
kirkjugarði. Kanínur eru
ljúf og yndisleg dýr en ekki
meindýr og gera Öskjuhlíð-
ina og svæðið þar í kring
viðkunnanlegra. Ef nauð-
synlegt þykir að losna við
kanínurnar væri nær að
fanga þær og flytja t.a.m. í
Heiðmörk þar sem þær
gætu verið til yndisauka.
Mér þætti leitt að sjá
endurtaka sig á kanínunum
þá helför sem Reykjavíkur-
borg stóð fyrir gegn kött-
unum á sínum tíma.
Vilhjálmur Sigurðsson.
Loðna ógnin
ÉG HEF orðið fyrir tjóni
með blóm sem ég gróður-
setti á fimm leiði í Foss-
vogskirkjugarði og er mjög
sár. Reykjavík getur eins
veitt kanínurnar eins og
kettina sem hún fór mikinn
í að ná. Það verður að út-
rýma kanínunum úr Öskju-
hlíðinni og gengur ekki að
láta þessi skaðræðisdýr
vaða uppi í garðinum. Ekki
er nóg að þær éti blómin
heldur grafa þær holur út
um allt. Í burtu með kan-
ínurnar og það strax.
Ein sár.
Tapað/fundið
Peningabudda týndist
LÍTIL brún peningabudda
týndist, sennilega við Virku
í Mörkinni eða á því svæði.
Sá sem kann að hafa fundið
hana vinsamlega hringi í
síma 863 1922.
Sandali á
Sprengisandi
TEVA-útivistarsandali í
kvenstærð tapaðist sunnu-
daginn 14. júlí á Sprengi-
sandsleið, nánar tiltekið á
bílastæðinu við Eyvindar-
kofaver. Sandalinn er vín-
rauður og brúnn að lit. Skil-
vís finnandi vinsamlega
hafi samband við Gyðu í
síma 562 2885 eða 895 6646.
Belti af rykfrakka
saknað
LJÓST belti með fallegri
spennu glataðist af nýjum
rykfrakka á höfuðborgar-
svæðinu 22. júní sl. Skilvís
finnandi er beðinn að hafa
samband við Jóhönnu í
síma 554 1199.
Dúkka týnd
BIRTA Björk saknar sáran
„Baby born“-dúkkunnar
sinnar sem hún týndi í
Hagkaupum í Kringlunni
sl. föstudag. Dúkkan var
klædd í rauð og blá prjóna-
föt og er hennar mjög sárt
saknað. Finnandi er vin-
samlega beðinn að hringja í
síma 567 9880 eða 692 1226.
Gleraugu glötuðust
Karlmannsgleraugu í
nettri umgjörð týndust á
ferðalagi um Vestfirði 15.
til 19. júlí sl. í ferð eldri
borgara í Kópavogi. Þeir
sem kunna að vita um gler-
augun hafi samband í síma
564 1829 eða 866 1096.
Gleraugu í hulstri
GLERAUGU í svörtu
hulstri týndust á leiðinni
frá Mosfellsbæ að skipti-
stöðinni Ártúni á strætóleið
25 eða frá Ártúni að Grjót-
hálsi á strætóleið 7. Finn-
andi vinsamlega hringi í
síma 664 4377.
Dýrahald
Kettlingur í óskilum
UNDANFARNAR vikur
hefur lítill ljósbrúnn og
rauðleitur fressköttur með
bláa hálsól sest að hjá fólki
við Lækjarkinn í Hafnar-
firði. Hann er afskaplega
mikið „krútt“ og eflaust
sárt saknað af eigendum
sínum. Þeir sem kannast
við kauða eru vinsamlega
beðnir að hafa samband í
síma 565 4847.
Birtu vantar
gott heimili
FIMM ára grá og hvít læða
er að leita sér að nýju heim-
ili vegna flutnings eiganda.
Birta er afskaplega indæl
og „pen“ og biður góðhjart-
aða dýravini sem vilja taka
hana að sér að hringja í
síma 552 8612 eða 866 4056.
Kanína fæst
gefins
EINS árs kanína fæst gef-
ins með búri og öllu. Þeir
sem hafa áhuga hafi sam-
band við Sólveigu í síma
698 3502 eða 554 3448.
Arnljótur Gellini
er týndur
HANN Arnljótur hljópst á
brott úr pössun á Hellis-
götu í Hafnarfirði í síðustu
viku. Sést hef-
ur til hans í
nánd við
miðbæinn.
Hann er stór,
loðinn, með ól
en ekki merktur. Hann er
afar gæfur og finnst mjög
gott að láta klóra sér. Þeir
sem vita af ferðum hans eru
vinsamlega beðnir að láta
vita í síma 869 5429.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Kanínur eru
yndisleg dýr
Víkverji skrifar...
ÞAÐ komst illa upp um fjöl-skylduföðurinn Víkverja á dög-
unum. Hann var á ferð í bílnum
sínum með lítilli dóttur sinni þegar
barnið spyr hvað þessi mynd af
lúðri á stýrinu eigi að þýða. Vík-
verji útskýrði föðurlega að lúðurinn
gæfi til kynna að þarna ætti að ýta
til að flauta og þeytti svo bílflaut-
una til nánari útskýringar. „Ég skil
– þetta er til að flauta. Og koma þá
mömmurnar út?“ sagði dóttir Vík-
verja. Eitt augnablik skildi skrifari
ekkert hvað hún var að fara, en átt-
aði sig svo á því að barnið hafði
aldrei heyrt bílflautuna þeytta
nema við þær kringumstæður að
Víkverji og börnin hans sitja í bíln-
um utan við heimili fjölskyldunnar
og Víkverji liggur á flautunni til að
reyna að reka á eftir konunni sinni
sem er inni að hafa sig til. Svo kem-
ur hún út og spyr með þjósti hvort
Víkverji haldi að það sé eitthvað
auðveldara að mála sig með gjall-
anda bílflautunnar í eyrunum. Samt
heldur Víkverji nú áfram að flauta.
x x x
KONUR taka ekkert mark á bíl-flauti pirraðra eiginmanna og
lái þeim það hver sem vill. Þær
hafa líka allt aðra sýn á gagnsemi
farsíma en karlmenn. Reynsla Vík-
verja er sú að konur vilji gjarnan
eiga farsíma – til þess að geta
hringt í fjölskyldu og vini þegar og
þar sem þeim hentar. Þeim finnst
hins vegar ekkert aðalatriði að
fjölskylda og vinir nái í þær hve-
nær og hvar sem er í þennan sama
farsíma. A.m.k. hafa þær símann
sjaldnast á sér, heldur liggur hann
alla jafna í handtöskunni þar sem
heyrist ekki í honum. Víkverji hef-
ur stundum alveg verið að fara á
límingunum, eins og sagt er, þegar
honum hefur legið á að ná í konuna
sína og fær bara að tala við talhólf-
ið. Stundum hefur hann hótað að
festa símann við eyrað á henni með
límbandi á morgnana en reyndar
aldrei gert alvöru úr því. Kona Vík-
verja hefur líka útskýrt fyrir hon-
um að kvenföt séu einfaldlega
þannig hönnuð að konur geti ekki
gengið með farsíma á sér nema í
einhvers konar veski. Vasar á kven-
fötum séu ekki hugsaðir til að hafa
neitt í þeim og ekki gangi að hafa
símann í beltinu, enda sé t.d. ekk-
ert belti á mörgum kjólum og pils-
um. Víkverji skorar á farsímahönn-
uði að útbúa dömuleg farsímaveski
sem ekki þykir púkó að láta sjá sig
með. Annars bíðum við bara eftir
að tækninni fleygi fram og fram-
leiddur verði farsími fyrir konur
sem kemst fyrir í smekklegum
eyrnalokki.
x x x
REYNDAR heldur eiginkonaVíkverja dagsins því fram að
hann og aðrir karlmenn séu sjúk-
lega uppteknir af farsímunum sín-
um og ævinlega að leika sér með þá
og bera saman leikföngin sín. Því
hefur verið haldið fram – gott ef
það var ekki í sænskri bíómynd –
að farsíminn hafi markað þau tíma-
mót að nú séu karlmenn farnir að
metast um hver sé með þann
minnsta – þ.e. minnsta símann, en
ekki stærsta jeppann, stærsta gas-
grillið o.s.frv. Víkverja finnst ekki
fallegt þegar gert er grín með þess-
um hætti að mönnum, sem eru bara
áhugasamir um samskiptabylt-
inguna og umhugað um að nýta sér
kosti hennar til hins ýtrasta, m.a.
til að hafa meiri samskipti við kon-
urnar sínar.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 afdrep, 4 handarhald, 7
þýtur, 8 æri af drykkju, 9
guð, 11 óhreinka, 13
borðuð, 14 tóg, 15 hörfa,
17 óþétt, 20 knæpa, 22
málmblendingur, 23 sjúk-
dómi, 24 korns, 25 skart-
gripurinn.
LÓÐRÉTT:
1 reyksúlu, 2 bættum við,
3 numið, 4 sverð, 5 ófag-
urt, 6 forfaðirinn, 10 úf-
inn, 12 keyra, 13 bókstaf-
ur, 15 dylja, 16 hænan, 18
ökumaður, 19 fyrirboði,
20 þvingar, 21 tunnan.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 Reykjanes, 8 sulli, 9 aflar, 10 nær, 11 iðrun, 13
nýrun, 15 gjóla, 18 salur, 21 gát, 22 lamin, 23 urtan, 24
smíðatóls.
Lóðrétt: 2 eðlur, 3 Káinn, 4 akarn, 5 eflir, 6 usli, 7 hrun,
12 ull, 14 ýsa, 15 gull, 16 ólmum, 17 agnið, 18 stutt, 19 lít-
il, 20 röng.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Stella
Pollux kemur í dag.
Skandia Lagarfoss og
Mánafoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Stella Pollux og Flor-
inda fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, kl. 14 bingó.
Árskógar 4. Bingó verð-
ur næst spilað 9. ágúst
kl. 13.30. Púttvöllurinn
er opinn kl. 10–16 alla
daga. Allar upplýsingar
í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
frjálst að spila í sal.
Verslunarferð annan
hvern föstudag kl. 10–
11.30.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarfið Lönguhlíð
3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
„opið hús“, spilað á spil.
Félag eldri borgara
íHafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Púttað á
Hrafnistuvelli kl. 14–16.
Á morgun morg-
ungangan kl. 10 frá
Hraunseli. Rúta frá
Firðinum kl. 9.50. Fé-
lagsheimilið Hraunsel
verður lokað vegna sum-
arleyfis starfsfólks til
11. ágúst. Orlofsferðir
að Hrafnagili við Eyja-
fjörð 19.–23. ágúst,
greiða þarf gíróseðlana
sem fyrst. Orlofsferð að
Höfðabrekku 10.–13.
sept. Skráning og upp-
lýsingar milli kl. 19 og
21, s. 555 1703, 555 2484
eða 555 3220.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði í
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Félagið
hefur opnað heimasíðu,
www.feb.is.Hringferð
um Norðausturland 17.–
24. ágúst. Uppselt.
Farið verður í Land-
mannalaugar 6. ágúst.
Ekið inn Dómadal niður
hjá Signu. Leið-
sögumaður Tómas Ein-
arsson. Skráning hafin.
Fyrirhugaðar eru ferðir
til Portúgals 10. sept-
ember í þrjár vikur og
til Tyrklands 1. október
í tíu daga fyrir fé-
lagsmenn FEB, tak-
markaður fjöldi. Skrán-
ing hafin á skrifstofunni
í síma 588 2111.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
í s. 588 2111. Skrifstofa
félagsins er flutt í Faxa-
fen 12, sama símanúmer
og áður. Félagsstarfið
er áfram í Ásgarði í
Glæsibæ. Upplýsingar
á skrifstofu FEB.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
brids.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sum-
arleyfa, opnað aftur
þriðjudaginn 13. ágúst.
Á vegum Íþrótta- og
tómstundaráðs eru
sund- og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug
kl. 9.30 mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga.
Umsjón Brynjólfur
Björnsson íþróttakenn-
ari.
Gjábakki. Hárgreiðslu-
stofan er lokuð til 6.
ágúst.
Hraunbær 105. Kl. 9–
12 baðþjónusta, kl. 9–
12.30 bútasaumur, kl.
9–17 hárgreiðsla, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 13–14
pútt.
Hvassaleiti 56–58.
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofur lokaðar fram í
ágúst. Hárgreiðsla lok-
uð vegna sumarleyfa
frá 16. júlí til 13. ágúst.
Ganga kl. 10.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 14.30 kaffi:
Karl Jónatansson
harmónikkuleikari leik-
ur fyrir dansi.
Góðar kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9.30
morgunstund, kl. 13.30
bingó.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur á
morgun kl. 21 í Konna-
koti á Hverfisgötu 105,
nýir félagar velkomnir.
Munið gönguna mánu-
og fimmtudaga.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (um
16–25 ára) að mæta með
börnin sín á laugard. kl.
15–17 á Geysi, Kakóbar,
Aðalstræti 2 (gengið inn
Vesturgötumegin). Op-
ið hús og kaffi á könn-
unni, djús, leikföng og
dýnur fyrir börnin.
Minningarkort
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31, s.
562-1581, hjá Kristínu
Gísladóttur, s. 551-7193
og Elínu Snorradóttur,
s. 561-5622.
Minningarkort Sjúkra-
liðafélags Íslands eru
send frá skrifstofunni,
Grensásvegi 16, Reykja-
vík. Opið virka daga kl.
9–17. S. 553-9494.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Breið-
firðingafélagsins eru til
sölu hjá Sveini Sig-
urjónssyni s. 555-0383
eða 899-1161.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arsjóður í vörslu kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði.
Minningarkortin fást nú
í Lyfjum og heilsu í
verslunarmiðstöðinni
Firði í Hafnarfirði.
Kortið kostar 500 kr.
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar eru
afgreidd á bæjarskrif-
stofu Seltjarnarness hjá
Ingibjörgu.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir sem
hafa áhuga á að kaupa
minningarkort vinsam-
legast hringi í síma 552-
4994 eða síma 553-6697,
minningarkortin fást
líka í Háteigskirkju við
Háteigsveg.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju,
s. 520-1300, og í blóma-
búðinni Holtablóminu,
Langholtsvegi 126.
Gíróþjónusta er í kirkj-
unni.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju,
sími 520 1300, og í
blómabúðinni Holta-
blóminu, Langholtsvegi
126. Gíróþjónusta er í
kirkjunni.
Minningarkort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67, og í
Kirkjuhúsinu v/
Kirkjutorg.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í blóma-
búðinni Burkna, hjá
Sjöfn, s. 555 0104, og hjá
Ernu, s. 565 0152 (gíró-
þjónusta).
Minningarkort ABC-
hjálparstarfs eru af-
greidd á skrifstofu
ABC-hjálparstarfs í Sól-
túni 3, Reykjavík, í síma
561-6117. Minning-
argjafir greiðast með
gíróseðli eða greiðslu-
korti.
Allur ágóði fer til hjálp-
ar nauðstöddum börn-
um.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum barna fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hringsins.
Upplýsingar um minn-
ingarkort Barnaspít-
alasjóðs Hringsins fást
hjá Kvenfélagi Hrings-
ins í síma 551-4080.
Kortin fást í flestum
apótekum á
höfuðborgarsvæðinu.
Í dag er föstudagur 26. júlí, 207.
dagur ársins 2002. Orð dagsins: Guð
sé oss náðugur og blessi oss, hann
láti ásjónu sína lýsa meðal vor.
(Sálm. 67, 2.)