Morgunblaðið - 30.07.2002, Qupperneq 16
NEYTENDUR
16 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EF fólk ætlar að hlaupa eða
skokka er lykilatriði að fjárfesta í
góðum hlaupaskóm sem passa við-
komandi vel, að sögn Kolbeins
Gíslasonar stoðtækjafræðings hjá
Stoðtækni. „Hlaup eru gríðarlega
góð og holl
hreyfing og
ódýr líka, al-
mennilegir
skór eru svo til
hið eina sem
þarf að borga
fyrir. Hinir
dýrustu eru þó
ekki endilega
bestir heldur
þarf að velja
réttu skóna fyr-
ir hvern og
einn.“
Til eru þrjár
gerðir af hlau-
paskóm, venju-
legir, skór með
innanfót-
arstuðningi eða
utanfótarstuðn-
ingi, og segir
Kolbeinn afar
mismunandi
hvaða gerð
hentar hverjum
og einum. „Ég
ráðlegg fólki
sem ætlar að
byrja að hlaupa
að taka sjálft
sig upp á mynd-
band og skoða hvort það þurfi ut-
anfótar- eða innanfótarstuðning
þegar það lendir. Einnig er gott að
fá fagfólk til að meta það.“
Hann bendir á að líka geti verið
fróðlegt að skoða gömlu hlaupa-
skóna. „Hægt er að sjá hvort þörf
sé á innan- eða utanfótarstuðningi
með því að skoða hvar þeir eru
skakkir eða skældir. Ef gat er á
stórutánni hafa þeir til dæmis ver-
ið of litlir.“
Góðir sokkar hafa einnig mikið
að segja upp á fjöðrunina, að sögn
Kolbeins. Þeir eiga að vera þykkir
og úr bómull en slíkir sokkar veita
besta dempun og ef menn eru
gjarnir á að fá blöðrur getur verið
ráð að klæðast
tvennum sokk-
um. Þá er nauð-
synlegt þegar
hlaupaskór eru
mátaðir í verslun
að vera í sams-
konar sokkum og
hlaupið er í.
Beinhimnu-
bólga algeng-
asta álags-
einkennið
Þegar hlaupið
er kemur mikið
álag á líkamann
og er verst að
hlaupa hægt og
lengi en best að
fara stutta vega-
lengd og til-
tölulega hratt,
segir Kolbeinn
en sjálfur hljóp
hann upp á hvern
dag þegar hann
var yngri og æfði
íþróttir. Nú seg-
ist hann hins veg-
ar hafa minnkað
hlaupin. „Ég
mæli með því að
fólk skoði hlaupastíl hjá atvinnu-
hlaupurum í sjónvarpinu, það má
margt læra af þeim. Lendingin á
að vera á hælnum, best er að taka
löng skref og svífa aðeins, ekki
skella niður. Helst eiga engir
dynkir að heyrast þegar hlaup-
arinn lendir.“
Hann segir beinhimnubólgu
vera algengustu álagseinkennin
hjá þeim sem eru að byrja að
hlaupa en algengasta orsök henn-
ar sé að fólk halli sér of mikið fram
þegar það hleypur. Gott sé að fá
einhvern með sér til að skoða stíl-
inn og sjá hvort maður geri rétt.
„Til dæmis getur verið sniðugt að
ganga í hlaupaklúbb þar sem fólk
getur sagt hvað öðru til, en þeir
eru margir víðs vegar á landinu.
Þar er líka góður félagsskapur
sem hvetur mann áfram.“
Hann leggur áherslu á að fólk
megi alls ekki byrja of geyst og ef
óþægindi geri vart við sig verði að
fara hægar í sakirnar, aldrei megi
pína sig áfram. „Sumir halda að
sársauki sé eðlilegur í byrjun, bara
þurfi að sigrast á honum, en svo er
ekki, við verðum að hlusta á líkam-
ann og veita því athygli ef eitthvað
gæti verið að.“
Kolbeinn bendir á að ef óþæg-
indi geri enn vart við sig þrátt fyr-
ir að viðkomandi hafi valið réttu
skóna sé yfirleitt hægt að bæta úr
og jafnvægisstilla fæturna með
innleggjum.
Mesta álagið þegar
hlaupið er á malbiki
„Algengasta tognunin hjá
hlaupurum er á ytri ökklahnyðj-
unni sem er kúlan á utanverðum
ökklanum. Margir þurfa því skó
með stuðningi um ökklann,“ segir
Gunnar Brynjólfur Gunnarsson
bæklunarlæknir á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi.
Hann segir mesta álagið á fæt-
urna vera þegar hlaupið sé á mal-
biki, minna á malarstígum en þar
sé hins vegar meiri hætta á að fólk
hrasi og snúi sig. Grasið sé einna
mýkst að hlaupa á og sæmilegt að
fóta sig á því ef það er ekki blautt.
Hann segir umdeilt hversu mik-
ið gagn loftpúðar geri en að öllum
líkindum minnki þeir álag á fæt-
urna, sérstaklega hjá þeim sem
eru með hæl- eða hásinarvanda-
mál.
Hjá flestum ber að leggja
áherslu á að hafa góðan stuðning
undir holfætinum, innanvert undir
ilinni, nema hjá þeim sem eru mjög
óstöðugir. Þá má botninn ekki
vera of þykkur því þá er meiri
hætta á að fólk snúi sig, að sögn
Gunnars. „Þeir sem eru verulega
óstöðugir og gjarnir á að snúa sig
og togna geta síðan fengið skó
með stífu efni í hliðunum. Slíkir
skór geta þó verið nokkuð dýrir.“
Algeng mistök við val á hlaupa-
skóm er að fólk fær sér of litla skó,
sem er afar slæmt fyrir fæturna,
að sögn Gunnars. „Mikilvægt er að
þeir séu ekki of þröngir en liggi þó
þétt að. Alltof oft sér maður fætur
þar sem tær eru farnar að bogna
og bein að skekkjast og greinilegt
er að skór hafa verið of þröngir.
Allir ættu að hafa í huga að skórn-
ir eiga að laga sig að fætinum en
ekki öfugt og gildir það reyndar
um alla skó.“
Mikilvægt er að vanda valið þegar hlaupaskór eru keyptir
Dýrustu skórnir
ekki endilega bestir
Margir nota góða veðrið á sumrin og haustin til
að hefja hlaup og skokk en þá skiptir miklu
máli að vera í góðum hlaupaskóm. Þannig
minnka líkurnar á álagsóþægindum og tognun.
Morgunblaðið/Arnaldur
Hlaup eru holl og góð útivist sem ekki þarf að eyða miklum fjár-
munum í, nauðsynlegt er þó að kaupa góða hlaupaskó.
KARLAR í Evrópu verða sífellt feit-
ari og meira „perulaga“ í vextinum
en síður „eplalaga“ eins og hingað til
hefur verið og er þar um að kenna
miklu skyndibitaáti, samkvæmt
breskri rannsókn á heilsu og lífsstíl
evrópskra karla sem sagt er frá í
sænska dagblaðinu Aftonbladet.
Þegar karlar fitna er fitan nú farin að
setjast í meira mæli en áður á rass,
bak og mjaðmir, í stað þess að safn-
ast öll að framan eins og verið hefur
einkenni fitusöfnunar hjá körlum.
Þannig fer mjaðmamál karla stækk-
andi og er það nú að meðaltali 107
cm.
Karlar virðast vera farnir að hafa
talsvert meiri áhyggjur af því að
verða feitir en áður en tíu prósent
þeirra sem tóku þátt í rannsókninni
sögðust skammast sín það mikið fyrir
vaxtarlag sitt að þeir vildu ekki vera
naktir fyrir framan maka sína.
Aðstandendur rannsóknarinnar
telja fullvíst að mikið skyndibitaát og
skortur á hreyfingu sé orsökin fyrir
þessu, en yfir helmingur karla í rann-
sókninni sögðu að a.m.k. 50% fæð-
unnar sem þeir innbyrtu væru ann-
aðhvort tilbúinn heitur matur
keyptur í stórmörkuðum eða skyndi-
bitamatur.
Hreyfingarleysi er talin önnur
meginorsökin en þrátt fyrir mikinn
íþróttaáhuga virðast karlarnir ekki
fá næga hreyfingu. Einn af hverjum
sex sagðist horfa á íþróttir í sjónvarpi
meira en sjö klukkustundir á viku en
þriðji hver sagðist aldrei stunda
neina hreyfingu sér til heilsubótar.
Reuters
Mikið skyndibitaát er talið
vera orsökin fyrir því að evr-
ópskir karlar eru að fitna.
Evrópskir
karlar fá sí-
fellt kvenlegra
vaxtarlag
Gott að hafa í
huga þegar velja
á hlaupaskó
– Fara í verslun þar sem
hægt er að fá næga aðstoð og
starfsfólkið getur gefið ráð-
leggingar um vöruna
– Taka með þægilega gamla
hlaupaskó, þeir geta sagt heil-
mikið til um lögun fótanna og
hægt er að bera þá saman við
skóna sem mátaðir eru
– Kaupa skó síðla dags, þá
eru fæturnir oft þrútnari en á
morgnana og minni hætta á að
keyptir séu of litlir skór
– Hafa íþróttasokka með og
máta í þeim margar ólíkar
gerðir af skóm
– Á milli lengstu táarinnar og
fram í enda á að vera að
minnsta kosti hálfur sentimetri
– Hjá sumum geta fæturnir
verið mislangir og munað allt
að 1 cm. Þá skal kaupa skó
sem passar á stærri fótinn og
nota innlegg í hinn skóinn
Dömustærðir:
42-44
Herrastærðir:
47-50
www.storirskor.is
10
67
/T
A
K
TI
K