Morgunblaðið - 30.07.2002, Síða 29

Morgunblaðið - 30.07.2002, Síða 29
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2002 29 1. Um bréf fimm- menninganna 26/7 til stofnfjáreigenda Gerð kaupsamninga um stofnfé, söfnun um- boða og aðrar aðgerðir fimmmenninganna eru á því byggðar, að Fjár- málaeftirlitið hafi sam- þykkt samning þeirra og Búnaðarbankans frá 25/6. Hér er um grundvallaratriði og mistúlkun á því að ræða – Fjármálaeftir- litið hefur ekki fallist á samninginn eins og hann liggur fyrir og mun ekki gera það – eins og Páll Gunnar Pálsson, forstöðumaður Fjármálaeftirlitsins, hefur tekið skýrt fram. Ef þessi viðskipti fá staðist eru fyrir hendi hagkvæmari kostir en felast í tilboði Búnaðarbankans, bæði fyrir stofnfjáreigendur og fyrir SPRON. Er það í samræmi við yf- irlýsingu, sem stjórn SPRON sendi frá sér 26. júní. Stjórn SPRON hef- ur aldrei lýst því yfir, að hún muni ekki samþykkja framsal sé það gert á grundvelli samnings, sem Fjár- málaeftirlitið hefur samþykkt. 2. Um vantrauststillöguna Ástæðan fyrir flutningi van- trauststillögunnar er sögð sú, að stjórn SPRON „hyggist ekki sam- þykkja viðskiptasamninga með stofnfé í sparisjóðnum, sem gerðir verða á grundvelli samnings okkar fimm stofnfjáreigenda við Búnaðarbanka Ís- lands hf.“ Því þurfi að víkja núverandi stjórn frá og kjósa aðra stjórn sem „sem ekki hefur þá fyrirfram afstöðu til viðskipta á þessum grundvelli, sem núver- andi stjórn hefur lýst sig hafa, heldur verður reiðubúin til að hlíta meirihluta stofnfjár- eigenda“. Í niðurstöðu grein- argerðar Fjármálaeft- irlitsins frá 19. júlí seg- ir m.a., að stjórn SPRON „beri við ákvörðun um framsal á stofnfjárhlutum að gæta hagsmuna sparisjóðsins umfram hagsmuni stofnfjáreigenda. Meðal annars beri stjórn að hafna framsali á stofnfjárhlutum ef ekki er sýnt fram á að sparisjóðurinn, þ.e. sá hluti hans sem ekki er stofnfjáreign, muni njóta þeirrar verðmætisaukn- ingar sem í áformunum felst“. Fyrr í greinargerðinni segir um tilboð Búnaðarbankans: „Í framkomnum áformum hefur ekki verið sýnt fram á hlutdeild sjálfseignarstofnunar- innar í verðmætisaukningu spari- sjóðsins.“ Niðurstaða álitsgerðar Sigurðar Líndal lagaprófessors um heimildir stjórnarinnar er þessi: „Það verður því ekki séð að stjórninni sé heimilt að samþykkja framsöl á stofnfjár- bréfum samkvæmt tilboði umsækj- enda, enda beri henni að gæta þess í hvívetna að lögum sé fylgt og þá jafnframt hagsmuna sparisjóðsins.“ Af þessum tilvitnunum geta allir séð, að stjórn SPRON gerði sig seka um lögbrot, ef hún samþykkir fram- söl á stofnfjárbréfum á grundvelli yfirtökutilboðs Búnaðarbankans. Vantrauststillagan er því flutt vegna þess að stjórnin hefur lýst því yfir að hún vilji ekki fremja lögbrot. Til þess verði að fá aðra menn úr hópi stofnfjáreigenda. Allt er þetta gert með vitund og vilja og á kostnað Búnaðarbankans. Er það sæmandi að Búnaðarbank- inn, sem er í meirihlutaeign ríkisins, standi fyrir því að víkja þeim frá sem vilja fara að lögum, en fá aðra í stað- inn til að brjóta lög? Er þessu við- bætandi við hróður bankans að und- anförnu sem trausts viðskiptaaðila? 3. Vilji stjórnmálaflokka Forystumenn fjögurra stjórn- málaflokka af fimm hafa lýst því, að þeir telji yfirtökutilraun Búnaðar- bankans stangast á við vilja löggjaf- ans og þá löggjöf, sem sparisjóðirnir hafa byggt starf sitt á. Af orðum við- skiptaráðherra verður ekki annað ráðið en að hún hafi haft vilja til að stöðva framgang Búnaðarbankans í málinu, enda var ekkert samráð haft við hana þegar bankinn ákvað að leggja til atlögunnar. Til þess hefur ráðherra sýnilega talið sig þurfa samþykki samstarfsflokksins í rík- isstjórn. Forystumenn Sjálfstæðisflokks- ins hafa ekki tjáð sig um þetta efni – að fráskildum þó Birni Bjarnasyni, sem sagði í Morgunblaðsgrein 7. júlí, að stjórnendur Búnaðarbank- ans hefðu átt að tryggja, að skýrar lagalegar forsendur væru fyrir hendi, áður en lagt var til atlögu af því tagi, sem hér um ræðir. Og Vil- hjálmur Egilsson, formaður við- skipta- og efnahagsnefndar Alþing- is, sagði í blaðaviðtali, að eigið fé sparisjóðanna hefði safnast upp um- fram stofnfé og stofnfjáreigendur ættu það ekki. Hann hefði engin rök séð fyrir því, að tilboð Búnaðarbank- ans gæti gengið upp. Margir aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa tjáð sig með svipuðum hætti – en einn þeirra sker sig úr og hefur leitt hóp þeirra, sem vilja að Búnaðar- bankanum takist að sölsa SPRON undir sig. Takist það eiga hann og félagar hans von á allt að 35 millj. kr. þóknun til skiptanna auk yfirverðs- ins sem bankinn býður fyrir stofn- fjárbréfin í eigu þeirra og fjöl- skyldna þeirra. Í forystugrein Morgunblaðsins 27. júní, undir fyrirsögninni „Nýr gjafakvóti?“, sagði m.a., að með yf- irtökutilboðinu væri gengið gegn skýru markmiði laga um sparisjóði og að hluta væri „verið að bjóða stofnfjáreigendum að selja það sem þeir hefðu aldrei keypt“. Um þetta efni hefur ekkert heyrst frá forystu Sjálfstæðisflokksins. Er það hennar vilji að Búnaðarbankinn gangi gegn skýru markmiði löggjaf- ans og að stofnfjáreigendur fái and- virði fyrir eign sem þeir hafa aldrei keypt? Stofnandi og fyrsti formaður SPRON var Jón Þorláksson. Hann var einnig forystumaður um stofnun Sjálfstæðisflokksins og fyrsti for- maður hans. Jón Þorláksson vann eftir kjörorðinu „Gjör rétt – þol ei órétt“. Eftir hvaða kjörorði starfar forysta Sjálfstæðisflokksins í dag? Vill Sjálfstæðisflokkurinn ganga af sparisjóðakefinu dauðu og stuðla beint eða óbeint að því að þeim sé bolað úr stjórnum sparisjóða, sem vilja fara að lögum, og aðrir settir í staðinn, sem eru reiðubúnir gegn greiðslu að afhenda verðmæti, sem þeir hafa aldrei keypt? Þessu vil ég ekki trúa, en þá þurfa að koma skýr skilaboð frá forystu Sjálfstæðis- flokksins um annað. Um aðför Búnaðar- bankans að SPRON Jón G. Tómasson SPRON Er það vilji forystu Sjálfstæðisflokksins, spyr Jón G. Tómasson, að Búnaðarbankinn gangi gegn skýru mark- miði löggjafans og að stofnfjáreigendur fái andvirði fyrir eign sem þeir hafa aldrei keypt? Höfundur er formaður stjórnar SPRON. Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.