Morgunblaðið - 01.09.2002, Síða 10

Morgunblaðið - 01.09.2002, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á LEIÐTOGAFUNDIESB í Gautaborg í júní ífyrra var ákveðið, aðstefnt skyldi að því aðljúka fyrir árslok 2002 aðildarviðræðum við þau umsóknar- ríki, sem uppfyllt hefðu aðildarskil- yrðin og treystu sér til að ganga í sambandið í ársbyrjun 2004, og þar með tímanlega til að hinar nýju aðild- arþjóðir geti tekið þátt í að kjósa nýtt Evrópuþing. Næstu kosningar til þess fara fram um mitt ár 2004. Þetta markmið var ítrekað á leiðtogafund- inum í Laeken í Belgíu í desember. Þar sem gera má ráð fyrir að stað- festingarferli aðildarsamninganna taki um eitt ár þurfa þeir því að vera frágengnir ekki seinna en snemma árs 2003. Ef þetta gengur eftir yrði klofningur kalda stríðsins í álfunni endanlega yfirunninn – á fimmtánda árinu frá því Berlínarmúrinn féll. Hið „sameiginlega evrópska hús“, títt til- vitnuð draumsýn Mikhaíls Gorbat- sjovs fyrrverandi sovétleiðtoga verð- ur þá loks orðið fokhelt. Mikið í húfi Samninganefndir ESB og hinna til- vonandi nýju aðildarríkja eru því undir miklu álagi þessa dagana. Hvert einasta atriði sem samið er um getur haft bein áhrif á líf milljóna manna og sett stjórnvöldum bæði í hinum tilvonandi sem og núverandi aðildarríkjum sambandsins nýja regl- uramma sem þau þurfa að taka tillit til um ókomna tíð. Það er mikið í húfi. Í þeim tíu ríkj- um, sem stefna að því að ljúka aðild- arviðræðum í ár – Eistlandi, Lett- landi, Litháen, Póllandi, Tékklandi, Slóvakíu, Ungverjalandi, Slóveníu, Kýpur og Möltu – búa um 75 milljónir manna samtals, sem með inngöng- unni í ESB munu jafnframt verða hluti af Evrópska efnahagssvæðinu, EES. Það mun stækka úr 382 millj- óna manna markaðssvæði (þar af búa 4,8 milljónir í EFTA-ríkjunum í EES; Íslandi, Noregi og Liechtenstein) í 457 milljóna manna markaðssvæði, þar sem ríkja munu frjálsir flutningar á vinnuafli, fjármagni, vörum og þjón- ustu. Þar við eiga svo síðar eftir að bæt- ast Rúmenía og Búlgaría, með sam- tals rétt rúmlega 30 milljónir íbúa. Það er hins vegar stærri spurning, hvort nokkurn tímann mun koma til þess að Tyrkland fái fulla aðild, þrátt fyrir að leiðtogar ESB hafi á árinu 2000 lýst landið tilvonandi aðildarríki og tyrknesk stjórnvöld hafi sýnt að þeim er full alvara með að hrinda í framkvæmd þeim umbótum sem þeim eiga að duga til að fallizt verði á að hefja aðildarviðræður. Í Tyrklandi búa nú um 66 milljónir manna og fer íbúafjöldinn – ólíkt því sem gerist víð- ast hvar annars staðar í Evrópu – allört vaxandi. Vanmáttugt efnahagslíf Þessar tölur fá þó lítið eitt aðra merkingu þegar litið er til upplýsinga um efnahagslíf núverandi og tilvon- andi aðildarríkja. Þjóðarframleiðsla allra 12 tilvonandi aðildarríkjanna (þ.e. án Tyrklands), mæld í evrum, samsvarar þjóðarframleiðslu Hol- lands (miðað við tölur frá 1999 og 2000). Mælt með kaupmáttarstuðli (PPS) voru þjóðartekjur á mann á árinu 2000 í mið- og austur-evrópsku umsóknarríkjunum tíu um 39% af meðaltali þjóðartekna á mann í nú- verandi 15 ESB-ríkjum. Það er ljóst að það mun taka hin fátæku fyrrver- andi kommúnistaríki Mið- og Austur- Evrópu áratugi að komast á sama vel- megunarstig og vesturhluti álfunnar. En þau binda einmitt vonir við að ESB-aðildin flýti fyrir þessari þróun. Hagspár gera flestar ráð fyrir að á næstu árum og áratugum verði hag- vöxtur í nýju aðildarríkjunum að jafn- aði mun meiri en í þeim gömlu. Það muni þó taka nýju aðildarríkin allt að 40 ár eða jafnvel lengur að ná sömu meðalþjóðartekjum á mann og íbúar núverandi 15 aðildarríkja njóta. En fyrir því að slík jöfnun velmegunar í álfunni muni nást er heldur engin trygging, sbr. þá staðreynd að þjóð- artekjur á mann í Grikklandi eru nú jafn fjarri ESB-meðaltalinu og þegar landið gekk í sambandið fyrir rúmum 20 árum. Lítil viðskipti við Ísland Vöruviðskipti Íslands við þessi lönd eru enn lítil. Á árunum 1998-2000 var verðmæti innflutnings frá mið- og austur-evrópsku umsóknarríkjunum tíu á bilinu fimm til sjö milljarðar króna á ári, eða á bilinu 2,8 til 3,5% af heildarinnflutningi til landsins. Út- flutningur er enn minni; á sama tíma- bili var hann á bilinu 0,8 til 1,1 millj- arður króna, sem samsvarar á bilinu 0,54 til 0,7% heildarútflutnings. Þó hafa um árabil verið í gildi fríverzl- unarsamningar við þessi ríki, sem EFTA gerði við þau. Nokkur íslenzk fyrirtæki hafa farið út í nokkrar fjárfestingar í þessum löndum, einkum í Eystrasaltslöndun- um þar sem norrænir fjárfestar eru mjög áberandi, en þær eru þó hverf- andi sem hlutfall af heild erlendra fjárfestinga í umræddum löndum. Hvers vegna stækkun? Rétt er, áður en lengra er haldið, að rifja upp aðalröksemdirnar fyrir því að Evrópusambandið opni raðir sínar fyrir fyrrverandi kommúnistaríkjun- um í Mið- og Austur-Evrópu. Í kjölfar falls Berlínarmúrsins og hruns „austurblokkarinnar“ eins og áhrifasvæði Sovétríkjanna í austur- hluta Evrópu var gjarnan kallað, komust leiðtogar ESB að þeirri nið- urstöðu að það væri bæði beinlínis siðferðileg skylda Evrópuþjóða og jafnframt nauðsynlegt fyrir stöðug- leikann í álfunni að yfirvinna hinn sögulega klofning kalda stríðsins með varanlegum hætti. Bezta leiðin til þess væri að opna raðir Evrópusam- bandsins fyrir hinum nýju lýðræðis- ríkjum í austurhluta álfunnar. Þannig var markið sett á að færa út svæði friðar, stöðugleika og velmegunar í álfunni, öllum Evrópuþjóðum til hagsbóta. Þá eru líka tínd til efnahagsleg rök. Verulegs efnahagslegs ávinnings sé vænzt af stækkuninni, strax frá fyrsta degi aðildar fyrir tilvonandi nýju aðildarríkin, sem þar með fá að njóta til fullnustu kosta innri mark- aðarins sem og stuðningsáætlana sambandsins við atvinnuþróun og uppbyggingu, en meira til lengri tíma litið fyrir hin eldri. Áþreifanlegasti ávinningur hinna síðarnefndu er stærri „heimamarkaður“ fyrir fram- leiðsluvörur þeirra og þjónustu og þannig aukinn hagvöxtur og fjölgun starfa. Loks muni stækkunin augljós- lega auka áhrif ESB í alþjóðakerfinu, sem á tímum hnattvæðingar komi öll- um aðildarríkjunum vel. Þessar rök- semdir er þarft að hafa í huga við hvers konar skoðun stækkunarferlis- ins. Efasemdum um að stækkunin til austurs sé fýsileg svara formælendur hennar gjarnan með því að benda á hverjar afleiðingarnar yrðu af því að hætta við allt saman, þ.e. að halda Mið- og Austur-Evrópuríkjunum ut- an við sambandið. Íslenzk stjórnvöld hafa ítrekað lýst stuðningi sínum við stækkunarferli Evrópusambandsins. Nýjasta dæmið um það eru ummæli Halldórs Ás- grímssonar utanríkisráðherra á ráð- herrafundi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna þriggja sem Lokaspretturinn hafinn að samningum um stækkun Evrópusambandsins til austurs Morgunblaðið/Auðunn Séð yfir Prag Stefnt er að því að um 75 milljónir Mið- og Austur-Evrópubúa bætist í hóp borgara Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins á árinu 2004. Fjölgar þá aðildarríkjum ESB úr 15 í 25. Stefnt er að því að ljúka fyrir lok þessa árs samn- ingaviðræðum um Evr- ópusambandsaðild átta ríkja í Mið- og Austur- Evrópu, auk Miðjarð- arhafseyríkjanna Möltu og Kýpur. Nú á loka- spretti viðræðnanna er tekizt á um viðkvæmustu og erfiðustu úrlausnarefnin. Af þessu tilefni hefur Auðunn Arnórsson heimsótt höfuðborgir flestra umsóknarríkjanna og tekið saman greinaflokk um stækkun ESB til austurs. Í þessari upphafsgrein lýsir hann aðildarviðræðunum almennt. Í grein- unum sem á eftir fylgja verður sjónum beint að fyrrverandi austantjaldsríkjunum sem bíða að- ildar, frá Eistlandi í norðri til Slóveníu í suðri.    Stökkbreyting á skipulagi Evrópu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.