Morgunblaðið - 01.09.2002, Síða 26

Morgunblaðið - 01.09.2002, Síða 26
LISTIR 26 SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju fagnar 20 ára afmæli sínu, en hann var stofnaður 7. september árið 1982. Viðburðaríkur vetur er framundan og hefst með afmælistónleikum annað kvöld í Hallgrímskirkju kl. 20. Í des- ember flytur kórinn Jólaóratóríu Bachs með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands og Elía eftir Mendelssohn á Kirkjulistahátíð í maí 2003. Þá munu afmælisrit og geisladiskar með fjöl- breyttu efni líta dagsins ljós. „Kórnum var hóað saman með stuttum fyrirvara til að syngja lítinn sálm í Bachkantötu á tónleikum með ungum þýskum barítonsöngvara, Andreasi Schmidt að nafni og á und- anförnum tveimur áratugum hefur Mótettukórinn fetað heillastigu og er löngu kominn í röð fremstu kóra á Ís- landi,“ segir Halldór Hauksson einn af kórfélögunum. „Kórfélagar og stjórnandi þeirra, Hörður Áskelsson, hafa ákveðið að halda veglega upp á tímamótin og því hefur komandi starfsár á sér mikinn hátíðarblæ,“ segir Halldór. Óttusöngvar á vori á afmælistónleikum Fyrsti viðburður vetrarins eru sér- stakir afmælistónleikar á sunnudags- kvöld, sem eru um leið lokatónleikar Sumarkvölda við orgelið að þessu sinni. Flutt verður tónlist sem hefur komið mikið við sögu Mótettukórsins í gegnum árin. Meginverkið á efnis- skránni eru Óttusöngvar á vori eftir Jón Nordal, en þeir hljómuðu fyrst í flutningi félaga úr Mótettukórnum í Skálholtskirkju sumarið 1993. Í Óttu- söngvunum stíga einsöngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir og Sverrir Guðjónsson á svið með kórnum ásamt organistanum Douglas A. Brotchie, Ingu Rós Ingólfsdóttur sellóleikara og Eggerti Pálssyni slagverksleikara. „Önnur verk á tónleikunum eru Kvöldbænir Þorkels Sigurbjörnsson- ar, sem voru samdar fyrir Mótettu- kórinn, og sálmarnir Víst ertu, Jesú, kóngur klár, Dýrð, vald, virðing og Svo stór synd engin er. Texti allra þessara verka er eftir Hallgrím Pét- ursson, sem er til marks um þann sess sem höfundur Passíusálmanna skipar í íslenskri trúarmenningu og í efnis- skrá Mótettukórsins,“ segir Halldór. „Mótettukórinn mun flytja tvö af stórvirkjum kórbókmenntanna með Sinfóníuhljómsveit Íslands í vetur, annars vegar Jólaóratóríu Johanns Sebastians Bachs á aðventutónleikum SÍ í byrjun desember, og hins vegar óratóríuna Elía eftir Felix Mendels- sohn á Kirkjulistahátíð í lok maí 2003. Á síðarnefndu tónleikunum fær kór- inn gamla kórfélaga til liðs við sig og er vonast til að söngvararnir verði á annað hundrað talsins. Íslenskir og erlendir einsöngvarar koma fram við bæði tækifærin og er sérlega ánægju- legt að hinn gamli og góði vinur kórs- ins, Andreas Schmidt, sem nú er í fremstu röð söngvara í heiminum, skuli verða með í báðum verkunum.“ Tónlist Bachs hefur ætíð verið fyr- irferðarmikil á efnisskrám Mótettu- kórsins og á því verður ekki gerð nein undantekning á afmælisárinu. „Auk Jólaóratóríunnar mun kórinn flytja allar mótettur meistarans á lokatón- leikum Kirkjulistahá- tíðar næsta vor. Mót- ettukórinn hefur glímt við þessi vand- fluttu og sígildu verk frá fyrstu tíð og hefur einu sinni áður flutt þau öll á tónleikum. Að þessu sinni mun nýsamin tónlist tengja mótetturnar og mynda einskonar tónlistarbrýr á milli þeirra. Að loknum tónleikunum á Kirkjulistahátíð er stefnt að því að flytja þessa efnisskrá á Bachslóðum í Saxlandi og í Prag, höf- uðborg Tékklands.“ Afmælisrit og geisladiskur Ný tónlist verður einnig á dagskrá EBU-tónleika sem Ríkisútvarpið sendir út til fjölmargra landa í desem- ber. Þá munu Mótettukórinn og Schola cantorum endurflytja Jóla- óratóríu Johns A. Speights ásamt ein- söngvurum og Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. Verkið var frumflutt í fyrra. „Auk þessa viðamikla tónleika- halds og messusöngs í Hallgríms- kirkju, sem er mikilvægur þáttur í starfinu, mun Mótettukórinn láta til sín taka á útgáfusviðinu á afmælis- árinu. Gefið verður út afmælisrit sem rekur sögu kórsins og út koma geisla- diskar með söng kórsins. Þar ber ef til vill hæst Passíu eftir Hafliða Hall- grímsson, sem Mótettukórinn flytur ásamt kammersveit og einsöngvurun- um Mary Nessinger og Garðari Thór Cortes. Diskurinn verður gefinn út á heimsvísu af hinu þekkta finnska út- gáfufyrirtæki Ondine í byrjun næsta árs.“ Mótettukórinn er að leita að nokkr- um nýjum söngvurum nú í byrjun vetrarstarfsins og verða inntökupróf á miðvikudag og á föstudasg kl. 17– 19. Áhugasamir skrái sig í Hallgríms- kirkju. Mótettukór Hallgrímskirkju Tvær orator- íur og mótett- ur Bachs á afmælisári Morgunblaðið/Sigurður Jökull Mótettukór Hallgrímskirkju fagnar tuttugu ára afmæli með hátíðartónleikum í dag. Jón Nordal Andreas Schmidt „KLASSÍSK verk hafa skipað veglegan sess á verkefnaskrá leikhússins undanfarin ár. Nú verður nokkur breyting þar á því lögð er áhersla á leikrit sem sprottin eru úr samtímanum, bæði ný erlend og íslensk verk og verða sex ný spennandi íslensk leikrit væntanlega frumsýnd í vetur“ segir Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri. „Óvenju mörg íslensk verk sem flest hver gerast í íslenskum samtíma. Þau taka dálít- ið hressilega á samskiptum fólks á okkar dögum. Úti í Evrópu eru yngri höfundar að skrifa um þennan hráa veruleika samtím- ans. Nú þurfum við ekki að flytja inn þessi verk þar sem við erum að fá verk frá okk- ar eigin höfundum um þetta efni.“ Á stóra sviðinu verður fyrsta frumsýning á Lífið þrisvar sinnum eftir Yasminu Reza. „Þetta er nýtt verk eftir eitt vinsælasta leikskáld samtímans, höfund Listaverksins sem Þjóðleikhúsið sýndi við frábærar und- irtektir fyrir fáum árum.“ Leikstjóri er Viðar Eggertsson Halti Billi eftir Martin McDonagh gerist á afskekktri eyju á vest- urströnd Írlands. Þar telst til stórtíðinda þegar gæs bítur í rófuna á ketti. Billi, „bæklaði strákurinn sem starir á kýr“, læt- ur sig dreyma um að komast burt. Skyndi- lega býðst óvænt tækifæri til að kynnast hinum stóra heimi. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. Með fullri reisn eftir Terrence McNally og David Yazbek er nýr banda- rískur söngleikur, byggður á hinni geysi- vinsælu kvikmynd The Full Monty. Jerry er atvinnulaus og fráskilinn og ef honum tekst ekki að afla fjár til að borga meðlagið verður honum meinað að umgangast son sinn. Þá fær hann fáránlega, geggjaða… og frábæra hugmynd. Leikstjóri er Kenn Old- field. Rauða spjaldið er nýtt leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og Sigríði Margréti Guðmundsdóttur. „Á ég að gæta bróður míns eða á hann að gera það sjálfur?“ er meginspurning verksins. „Þetta er áleitið og nærgöngult spennuleikrit um knattspyrnukappa, sjón- varpsstjörnur og lífið á bak við glans- myndir fjölmiðlanna. Beint úr íslenskum samtíma.“ Leikstjóri er Kjartan Ragn- arsson. Allir á svið! er breskur farsi eftir Michael Frayn sem frumsýndur verður eftir áramót. Fimm ný íslensk verk á litlu sviðunum Stefán segir að í vetur verði sérstök áhersla lögð á flutning nýrra íslenskra verka. Þau eru Laugavegur brennur eftir Bjarna Jónsson. Þar er fjallað um íslenskt nútímafólk sem er staðráðið í að búa sem best í haginn fyrir sjálft sig og framkvæmir með hugsunina eina að vopni en veit ekki fyrr en tilfinningarnar skella í bakið á því. Og þeir sem ekki halda haus, þeir fara í kaf… Viðar Eggertsson leikstýrir. Viktoría og Georg er nýtt leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson sem frumsýnt verð- ur nú í september. Verkið byggist á ástarsambandi sænsku skáldkonunnar Viktoríu Benedictsson og danska bókmenntajöfursins Georgs Brand- esar. Árið 1888 framdi Viktoría sjálfsmorð á hótelherbergi í Kaupmannahöfn. Hver var orsök þessa harmleiks? „Þetta er sterkt verk um átök kynjanna.“ Leikstjóri er Hlín Agnarsdóttir Rakstur er leikrit eftir Ólaf Jóhann Ólafsson sem gerist árið 1969 á lít- illi rakarastofu í miðbæ Reykjavíkur. Fyrstu mennirnir eru að lenda á tunglinu, hárið að síkka og pilsin að styttast! Ver- öldin breytist á ógnarhraða og breyting- arnar bjóða sumum upp á ný tækifæri en ógna öðrum. „Nýtt og seiðmagnað verk sem kemur á óvart.“ Pabbastrákur heitir nýtt leikrit eftir Hávar Sigurjónsson. Þar segir frá föður sem á erfitt með að sætta sig við þá staðreynd að sonur hans er sam- kynhneigður. „Þetta er ögrandi og óvenju- legt verk um fordóma og ást í ýmsum myndum. Leikstjóri er Hilmar Jónsson. Frá fyrra leikári verða teknar upp fjórar sýn- ingar. Veislan eftir Thomas Vinterberg og Mogens Rukov, Með fulla vasa af grjóti eft- ir Marie Jones, Jón Oddur og Jón Bjarni eftir Guðrúnu Helgadóttur og Karíus og Baktus eftir Thorbjörn Egner. Frumsýningar í leiksmiðju „Þá er ótalin starfsemi Leiksmiðju Þjóð- leikhússins sem er ætlað að vera vett- vangur framsækinnar leiklistar og tilrauna af ýmsu tagi. Í vetur erum við að uppskera frá starfi leiksmiðjunnar á síðasta ári þar sem aðaláherslan var lögð á höfundana og hlutverk þeirra í leikhúsinu. Afrakstur þess má sjá með ýmsum hætti í leikhúsinu í vet- ur. Nú eru fjórir höfundar á starfslaunum, Birgir Sigurðsson, Karl Ágúst Úlfsson, Linda Vilhjálmsdóttir og Páll Baldvin Bald- vinsson. Þá höfum við keypt verk í smíðum af Hrafnhildi Hagalín og Kristjáni Þórði Hrafnssyni. Í leiksmiðjunni verður boðið upp á ýmsar óvæntar sýningar og uppá- komur, jafnt innan leikhússins sem utan. Meðal verkefna er óvenjulegt en snjallt verk eftir hið unga efnilega skáld Sigtrygg Magnason, leikrit bresku skáldkonunnar Söru Kane, leikverk eftir tvo unga argent- ínska höfunda og ítalski einleikurinn Nítjánhundruð eftir Allessandro Baricco,“ segir Stefán Baldursson að lokum. Starfsár Þjóðleikhússins að hefjast Íslensk og erlend samtímaverk Morgunblaðið/Arnaldur Leikendur, höfundur og aðstandendur fyrstu tveggja sýninganna í Þjóðleikhúsinu í haust.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.