Morgunblaðið - 01.09.2002, Page 33

Morgunblaðið - 01.09.2002, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2002 33 sé að bola honum frá völdum. Hvort og hvenær kemur að því á að ráðast af allsherjar forgangs- röðun okkar í þjóðaröryggismálum. Helsta for- gangsverkefni okkar sem stendur, líkt og forset- inn hefur ítrekað lagt áherslu á, er baráttan gegn hryðjuverkum. Sem stendur myndi árás á Írak stefna þeirri alþjóðlegu baráttu sem við höf- um hafið gegn hryðjuverkum í hættu og jafnvel gera út af við hana.“ Scowcroft bendir á að stríðsrekstur myndi verða þungur baggi á bandarísku efnahagslífi og raunar heimsins alls. Þá sé ekki hægt að útiloka að Saddam beiti gjöreyðingarvopnum sínum. Hugsanlegt sé að hann muni ráðast gegn Ísrael er gæti kallað á ísraelska gagnárás, jafnvel með kjarnavopnum. Þá megi ekki gleyma að líklega tæki langt og umfangsmikið hernám við af stríð- inu. Langalvarlegust séu þó áhrifin á baráttuna gegn hryðjuverkum og á stöðu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. James A. Baker ritar grein í The New York Times um síðustu helgi. Hann dregur ekki í efa að rétt sé að stuðla að stjórnarskiptum í Írak og segir að líklega sé eina leiðin til þess að beita herafli. Hins vegar leggur hann áherslu á að það verði að gera með réttum hætti. Baker segir m.a.: „Þótt Bandaríkin munu örugglega ná markmiðum sínum verðum við að leggja áherslu á að við stöndum ekki ein í þessari baráttu og forsetinn á að hafna ráðgjöf þeirra er leggja slíkt til. Kostnaðurinn yrði meiri á öllum sviðum og það sama á við um hina pólitísku áhættu, jafnt innanlands sem utan, ef við stöndum ein uppi að lokum eða þá ásamt einum til tveimur ríkjum.“ Baker leggur til að Bandaríkin berjist fyrir því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykki stutta og hnitmiðaða ályktun þar sem þess er krafist að Íraksstjórn leyfi umfangsmikið vopna- eftirlit hvar sem er, hvenær sem er og án nokk- urra undantekninga og að leyft verði að beita öll- um tiltækum meðulum til að ná fram þessu markmiði. Baker heldur áfram: „Þótt tæknilega séð hafi Sameinuðu þjóðirnar nú þegar lagalegt vald til að grípa til aðgerða gegn Írak hefur það dregið úr því valdi að ekki var gripið til aðgerða um leið og Saddam henti vopnaeftirlitsmönnun- um út. Að fara fram á nýtt leyfi er nauðsynlegt, jafnt pólitískt sem í reynd, og mun auðvelda okk- ur að afla alþjóðlegs stuðnings.“ Baker rifjar upp að árið 1990 hafi því einnig verið haldið fram að það væri hættulegt að fara fram á leyfi Sameinuðu þjóðanna og eiga á hættu að beiðninni yrði hafnað. Hann segir að með því að fara þessa leið nái Bandaríkin siðferðilegum undirtökum í umræðunni og þau ríki sem kjósa að greiða atkvæði gegn slíkri ályktun verði að gera grein fyrir því, hvers vegna þau styðji út- lagastjórn og útbreiðslu gjöreyðingarvopna. Og jafnvel þótt ályktun af þessu tagi yrði ekki sam- þykkt gæti Bandaríkjastjórn, á grundvelli 51. greinar stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem tryggir rétt ríkja til að beita sjálfsvörn, vegið kosti og galla þess að grípa til aðgerða upp á eig- in spýtur. Hann segir einnig að ekki megi horfa fram hjá því að það, hvernig stefna Bandaríkjanna í deilu Ísraela og Palestínumanna hafi verið túlkuð víðs vegar um heim, auðveldi ekki málin. Það megi ekki gerast að sú deila verði tengd við málefni Írak. Því verði Bandaríkin að þrýsta rækilega á um breytingar í anda þeirrar ræðu er Bush flutti í júní síðastliðnum. Andstaða í Evrópu Þrátt fyrir að Banda- ríkjastjórn virðist staðráðin í því að stuðla að stjórnar- skiptum hefur henni orðið lítið ágengt í að afla sér stuðnings meðal helstu bandamanna sinna. Jafnvel breska stjórnin, sem yfirleitt hefur stað- ið við hlið Bandaríkjastjórnar í málum sem þess- um, er vægast sagt tvístígandi í stuðningi sínum. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, hefur lýst sig andvígan hernaðaraðgerðum en Edmund Stoiber, kanslaraefni CDU/CSU í kosningunum í haust, hefur ekki viljað útiloka þann kost. Þá hef- ur Jacques Chirac Frakklandsforseti lýst því yf- ir að hann telji að öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna verði að fjalla um málið. Enginn stuðningur virðist heldur vera við að- gerðir meðal arabaríkja. Sádí-Arabía hefur lýst því yfir að ekki verði fallist á að Bandaríkin noti herstöðvar sínar þar í hernaði gegn Írak. Egypt- ar, sem hafa sömuleiðis verið einn helsti banda- maður Bandaríkjanna í þessum heimshluta, hafa lýst yfir andstöðu við áform Bandaríkjastjórnar. Þá má heldur ekki gleyma því að í Bandaríkj- unum sjálfum á sér nú stað mikil umræða um málið. Jafnvel í Repúblikanaflokknum eru mjög skiptar skoðanir um hvað beri að gera, líkt og greinar Bakers og Scowcrofts eru til marks um. Þótt George W. Bush og áhrifamenn í stjórn hans séu sannfærðir um réttmæti þess að hefja árásir á Írak hefur þeim ekki tekist að sannfæra þá bandamenn sem þeir verða að hafa sér við hlið ef til átaka kemur. Skoðanakannanir í Bandaríkjunum sýna sömuleiðis fram á að dreg- ið hafi úr stuðningi við aðgerðir meðal almenn- ings. Það væri vægast sagt varhugavert ef Banda- ríkin myndu ráðast gegn Írak án þess að um það ríkti sæmileg sátt. Slíkt hefði hættulegt fordæm- isgildi í heimsmálum. Væntanlega myndu önnur ríki vísa til þessa í framtíðinni ef þau telja sér stafa ógn af nágrannaríki. Væri til dæmis rétt- lætanlegt að Indland myndi stuðla að stjórn- arskiptum í Pakistan með herafli? Í sjálfu sér dregur enginn í efa að Bandaríkin muni hafa sigur í slíkri baráttu. Hins vegar gæti stríð kostað miklar fórnir. Þótt sumir ráðgjafa Bush hafi haldið því fram síðastliðið ár að hægt verði að sigra Saddam Hussein með tiltölulega litlum tilkostnaði væri hættulegt að treysta á slíkt. Mun líklegra er að senda verði hundruð þúsunda hermanna til Persaflóa og að þúsundir muni falla. Líkt og Scowcroft bendir á er ekki hægt að útiloka að Hussein muni beita gjöreyð- ingarvopnum. Og hvað á að taka við að stríðinu loknu? Hyggjast Bandaríkin ein og óstudd her- nema og byggja upp Írak á nýjan leik? Saddam Hussein er vissulega meðal hættuleg- ustu leiðtoga veraldar. Árum saman hefur hann virt ályktanir Sameinuðu þjóðanna að vettugi. Hann hefur beitt efnavopnum gegn sinni eigin þjóð. Sú tilhugsun að hann ráði yfir kjarnorku- vopnum er skelfileg. Bandarískur einleikur gæti hins vegar ekki síður haft alvarlegar afleiðingar. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Við Lakagíga Yfirlýsingar síðustu daga eru þess eðlis að erfitt er að sjá hvernig hægt verð- ur að breyta um stefnu nema til komi stórkostlegar til- slakanir af hálfu íraska leiðtogans eða þá að atburðir annars staðar í heiminum geri að verkum að fresta verði herförinni gegn Saddam Hussein. Laugardagur 31. ágúst

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.