Morgunblaðið - 11.09.2002, Side 19

Morgunblaðið - 11.09.2002, Side 19
ÁR LIÐIÐ FRÁ HRYÐJUVERKUNUM Í BANDARÍKJUNUM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 19 Vika símenntunar í Rafiðnaðarskólanum Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · www.raf.is Fyrir þá sem vilja ná árangri Við tökum virkan þátt í eflingu símenntunar og verðum þátttakendur í Viku símenntunar vikuna 8. - 14. september. Á Degi símenntunar, fimmtudaginn 12. september, verður Opið hús í Rafiðnaðarskólanum. Verið velkomin í kaffi, vöfflur og fróðleik. Það verður eitthvað að gerast allan daginn frá kl. 10:00 til 18:00 m.a. ókeypis námskeið og kynningar.    DAGSKRÁ Á OPNU HÚSI 10:00 – 12:00 SharePoint Team Services, best varðveitta leyndarmálið í Office. Öryggismál í Windows 2000, tæknilegar nýjungar í öryggismálum W2K. Mismunandi gagnaflutningur, hver er munurinn á ISDN, ADSL o.s.frv. 12:00 – 13:00 Kynning á námsframboði skólans. Kynning á sérfræðinámi og alþjóðlegum vottunum. Kynning á meistaraskóla og réttindum rafiðnaðarmanna. 14:00 – 16: 00 Prófaðu Office XP, hvað er nýtt, hvað er gagnlegt? Vafrað um vefinn, Internetið fyrir byrjendur. Sigrastu á tölvufælninni, námskeið fyrir alvöru byrjendur. 16:00 – 18:00 Brellur og brögð í Office, vinnusparandi leiðir og faldir möguleikar. Öryggismál í Windows 2000, tæknilegar nýjungar í öryggismálum W2K. Mismunandi gagnaflutningur, hver er munurinn á ISDN, ADSL o.s.frv. Virkjaðu þátttakendur ...á fundinum, í hópnum eða í kennslustofunni.    Tryggið ykkur sæti á ókeypis námskeið í síma 568 5010. Einnig er hægt að mæta á staðinn og taka þátt í þeim námskeiðum sem eru í gangi. Gestum okkar á Opnu húsi og á Fræðsluhátíð í Smáralind laugardaginn 14. september bjóðast mjög hagstæð tilboð. LO G I HJÓLSÖG 5604R 0 = 165 mm, 950 W TILBOÐSVERÐ 15.000.00 GRIPIÐ hefur verið til mikilla ör- yggisráðstafana í Bandaríkjunum af ótta við, að hryðjuverkamenn láti til skarar skríða nú þegar ár er liðið frá hryðjuverkunum í New York og Washington. Frá því á föstudag hafa orrustuþotur verið á flugi yfir öllum helstu borgum landsins og lögreglu- mönnum á vakt hefur verið fjölgað. Er gæsla við kjarnorkuver, flugvelli, brýr, minnismerki, verslunarmið- stöðvar og opinberar byggingar miklu meiri en venjulega. Bandaríkjaher kom á mánudag fyrir Avenger-loftvarnaflaugum við Pentagon, bandaríska varnarmála- ráðuneytið, í Washington og frá því í fyrradag hafa F-16-orrustuþotur og E-3 Awacs-eftirlitsflugvélar verið á lofti yfir höfuðborginni og öðrum helstu borgum. Er aðgerðin kölluð „Heiðskír himinn“ og koma um 300 manns að beinni stjórn hennar. Takmarkanir á almennu flugi Almennt flug hefur verið tak- markað verulega yfir Washington, New York og Somerset í Pennsylv- aníu en þessir þrír staðir voru vett- vangur hryðjuverkanna fyrir ári. Eru takmarkanirnar í 55 km radíus frá stöðunum fyrir flugvélar, sem fljúga í minna en 18.000 feta hæð. Í áætlunarflugvélum eiga farþeg- ar að sitja kyrrir í sætum sínum í hálftíma fyrir flugtak og eftir lend- ingu en sú regla hefur gilt á Reagan- flugvellinum nálægt miðborg Wash- ington frá því í október síðastliðn- um. Þótt ekki sé um að ræða neinar sérstakar vísbendingar um yfirvof- andi hryðjuverkaárás vilja yfirvöld vera við öllu búin og um 200 banda- rískum sendiráðum og ræðismanns- skrifstofum um allan heim hefur verið skipað að gæta fyllsta öryggis. Ari Fleischer, talsmaður Hvíta húss- ins, sagði í fyrradag, að það eitt, að ár er liðið frá hryðjuverkunum, gæti verið nægt tilefni fyrir nýja árás og því sé allur varinn góður. Hafa al- mennir borgarar verið hvattir til að hafa augun opin og láta umsvifalaust vita ef þeir verða varir við eitthvað, sem þeim finnst grunsamlegt. Í sérstakri tilkynningu frá FBI, bandarísku alríkislögreglunni, á net- inu segir, að stöðugt berist alls kon- ar hótanir um hryðjuverk, stundum með tilvísan til 11. september, New York og Washington. Þótt þær séu flestar ekkert annað en hótanir, þá megi enginn sofna á verðinum. Bandarísk heilbrigðisyfirvöld hafa líka verið að búa sig undir það versta og þá einkanlega hvað varðar efna-, lífefna- eða kjarnorkuárás. Orrustuvélar á lofti yfir helstu borgum Washington. AFP. Reuters Vegfarendur í Brooklyn-hverfi í New York horfa yfir til Manhattan- eyjar í gær, á myndinni til vinstri sést skýjakljúfaþyrpingin eins og hún var fyrir hryðjuverkaárásirnar í september í fyrra. ÁRÁSIN á Bandaríkin fyrir ná- kvæmlega ári mun óhjákvæmilega setja svip sinn á líf fólks þar vestra í dag, 11. september. Fórnarlamba árásanna verður minnst með ýms- um hætti og þá hafa allar helstu sjónvarpsstöðvar í Bandaríkjunum tilkynnt að dagskrá þeirra verði til- einkuð árásinni, fórnarlömbum hennar og þeim sem sluppu lifandi. Endanleg tala fórnarlamba árás- anna á Bandaríkin er nú sögð 3.034. Þeirra verður minnst með ýmsum hætti víðsvegar um Bandaríkin og raunar annars staðar í heiminum einnig. Hæst ber þó athafnir í New York, Washington og Pennsylv- aníu. Fyrsta árásin á þessum ör- lagaríka degi fyrir ári átti sér stað kl. 8.46 að staðartíma (12.46 að ísl. tíma) en þá flugu hryðjuverka- mennirnir fyrri farþegaflugvélinni á annan af tveimur turnum World Trade Center í New York. Á þess- ari stundu í dag er áætlað að minn- ingargöngur, sem skipulagðar eru frá öllum hverfum New York, verði komnar á vettvang ódæðisins. Verður þá fórnarlambanna minnst með stundarþögn. Síðan mun George Pataki, ríkisstjóri í New York, flytja Gettysborgar-ávarpið og í kjölfarið byrjar Rudolph Giul- iani, fyrrverandi borgarstjóri, að lesa upp nöfn þeirra næstum þrjú þúsund manna sem fórust í New York. En þó að minningarathöfnin sjálf fari fram á því svæði þar sem World Trade Center stóð áður mun fólk ekki fara varhluta af því hvaða dag- ur er upp runninn, þó að það sé statt annars staðar í New York. Nánast allar menningarstofnanir í borginni standa fyrir einhverjum uppákomum og í öllum guðshúsum borgarinnar munu bænagjörðir miðast við atburðina fyrir ári. Jafn- vel verslanir í borginni fara í sorg- arbúning – gluggar Saks-versl- unarinnar á fimmta breiðstræti verða t.d. auðir ef frá eru skilin spjöld sem á stendur: „við gleymum ekki“. Tutu predikar í Washington Hápunktur minningarathafn- arinnar í New York verður þó væntanlega þegar George W. Bush Bandaríkjaforseti og eiginkona hans, Laura, heimsækja World Trade Center og leggja þar blóm í minningu fórnarlambanna. Í kjöl- farið flytur forsetinn ávarp sem sjónvarpað verður um öll Bandarík- in. Bush mun reyndar byrja daginn í Washington en þar verður haldin minningarathöfn um þá sem fórust er hryðjuverkamennirnir flugu far- þegaflugvél á Pentagon-bygg- inguna, höfuðstöðvar bandaríska varnarmálaráðuneytisins. Sérstök hátíðarmessa fer fram í þjóð- arkirkju Bandaríkjanna um morg- uninn og mun Desmond Tutu, erki- biskup frá Suður-Afríku og handhafi friðarverðlauna Nóbels, fara fyrir messugjörð allra trúar- bragða. Við Pentagon-bygginguna er áætlað að um tólf þúsund manns safnist saman, þeirra á meðal Bush forseti og ýmsir sem voru í bygg- ingunni og sluppu lifandi, auk ætt- menna fólks sem beið bana. Fórn- arlambanna þar verður minnst með stundarþögn kl. 9.39 að staðartíma en þá flugu hryðjuverkamennirnir farþegaflugvél á bygginguna. Síðast en ekki síst er búist við því að allt að 50 þúsund manns muni koma saman í Pennsylvaníu en þar hrapaði flugvél í flugi 93 til jarðar eftir að farþegarnir, sem haft höfðu fréttir af árásunum á New York og Washington, réðust gegn flugræn- ingjunum. Líklegt þykir að hryðju- verkamennirnir hafi ætlað að fljúga vélinni á þinghúsið í Wash- ington. Engar auglýsingar í sjónvarpi Fjölmiðlar vestra munu ekki láta sitt eftir liggja í dag og fátt annað kemst að í dagskrá þeirra. Bendir flest til að dagskráin muni sam- anstanda annars vegar af myndefni af atburðunum fyrir ári og um- ræðum um þá og hins vegar af bein- um útsendingum frá minning- arathöfnum, auk viðtala við fólk sem slapp lifandi og aðstandendur fórnarlamba. Dagblöð og tímarit fylgja svip- aðri formúlu; gefa út sérblöð þar sem minnst verður atburðanna 11. september í fyrra. Forsvarsmenn stóru sjónvarps- stöðvanna ABC, NBC og CBS hafa tilkynnt að reynt verði að sýna nær- gætni í allri umfjöllun en ljóst er að margir munu eiga erfitt með að þurfa að upplifa atburðina hræði- legu á nýjan leik. Ljóst er þó að hjá því komast menn varla, horfi þeir á annað borð á sjónvarp. Lítið verður um sjónvarpsauglýs- ingar en í staðinn hafa stöðvarnar brugðið á það ráð að fá auglýs- endur til að kosta það dagskrárefni sem á boðstólum verður. Er þetta gert þar sem menn eru sér meðvit- andi um að ekki sé við hæfi að sjón- varpa myndum af glöðu og ham- ingjusömu fólki (sem gjarnan einkennir sjónvarpsauglýsingar) á þessum degi. Minningarathafnir haldnar víða um heim Fórnarlamba árásanna verður minnst sérstaklega í fjármálafyr- irtækjum víða um heim en flest fórnarlamba árásarinnar á World Trade Center störfuðu í þeim geira. Einnig verður árásanna minnst um gervalla Evrópu, svo dæmi sé tekið. Meðal annars má nefna að nokkrar minningarathafnir verða haldnar í París. Verður Jacques Chirac, forseti landsins, viðstaddur minningarathöfn í bandaríska sendiráðinu. Í London mun Karl Bretaprins sækja sérstaka athöfn ásamt Tony Blair forsætisráðherra, sendiherra Bandaríkjanna og fjöl- skyldum breskra fórnarlamba árás- irnnar. Þá verður árásanna minnst með athöfn í Brussel, sem fulltrúar Evr- ópusambandsins mæta á. Í Þýska- landi mæta helstu ráðamenn til messu í Berlín. Fórnarlamba minnst með ýmsum hætti Helstu sjónvarps- stöðvarnar heita að sýna ættingj- um nærgætni í umfjöllun sinni um atburðina Washington, New York. Los Angeles Times, AFP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.