Morgunblaðið - 11.09.2002, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 11.09.2002, Qupperneq 42
DAGBÓK 42 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Brú- arfoss og Goðafoss koma og fara í dag. Björn RE kemur í dag. Baldvin og Knorr fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ontika kom í gær, Lóm- ur fer í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Sól- vallagötu 48. Skrifstofa s. 551 4349, opin mið- vikudag kl. 14–17. Flóa- markaður, fataútlutun og fatamóttaka, s. 552 5277 opin annan og fjórða hvern miðvikudag kl. 14–17. Mannamót Árskógum 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofa, kl. 13– 16.30 opin smíða- og handavinnustofa, kl. 13 spilað, kl. 10–16 pútt- völlurinn. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 glerlist, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–10.30 Bún- aðarbankinn, kl. 13–16.30 spiladagur brids/vist, kl. 13–16 glerlist. Þriðjudaginn 17. september Haust- litaferð í Skorradalinn. Skráning og greiðsla í síðasta lagi í dag. Uppl. í s. 568 5052. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið er á mánu- og fimmtudögum. Mánud: Kl. 16 leikfimi. Laugard: kl. 10–12 bók- bandsnámskeið, línu- dans, byrjar 5. okt. kl. 11. Fimmtud: kl. 13 tréskurðarnámskeið, kl. 14 bækur frá bóka- safninu til útláns, kl. 15– 16 bókaspjall. Kór eldri borgara Vor- boðar: kóræfing í DAMOS kl. 17–19. Námskeið í postulíns- málun byrjar 18. nóv. Uppl. og skráningar á námskeið hjá Svanhildi, s. 586 8014 e.h. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–14 aðstoð við böðun, kl. 10–10.45 leikfimi kl.14.30–15 bankaþjónusta, kl. 14.40 ferð í Bónus. Félag eldri borgara, Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka kl. 15–16. Skrifstofan í Gullsmára 9 opin kl 16.30–18. Opið hús verður laugardag 14. sept. kl. 14 í Gjá- bakka. Dagskrá: Hljóð- færaleikur, upplestur og fleira. Kaffi og meðlæti. Félagsstarf Furugerði 1. Kl. 9 aðstoð við böð- un, bókband, kl. 13 leik- fimi og sagan. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9.30 hjúkrunarfræð- ingur á staðnum, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Garðabæ. Ferð á Akra- nes laugardag 14. sept. kl. 11.30 frá Hleinum, kl. 12 frá Kirkjuhvoli. Heimsókn til Félags eldri borgara á Akra- nesi, kaupstaðurinn skoðaður með leiðsögn Bjarnfríðar Leósdóttur. Uppl. gefur Arndís Magnúsdóttir, s. 565 7826 eða 895 7826. Garðakórinn, kór eldri borgara í Garðabæ, er að hefja starfsemi sína, kóræfingar mánudaga kl. 17 í Kirkjuhvoli. Uppl. gefur Hólmfríður Guðmundsdóttir, s. 565 6424. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Línudans kl. 11, gler- skurður kl. 13, pílukast kl 13.30. Myndlistarfólk, fundur kl. 13.30 um skipulag námskeiða í vetur. Biljardstofan opin virka daga frá kl. 13.30– 16 skráning í Hraunseli, s. 555 0142. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Miðvikud: Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10. Söng- félag FEB kóræfing kl. 17. Línudanskennsla fellur niður. Söngvaka kl. 20.45. Fimmtud: Bridsfélag FEB 10 ára. Af því tilefni verður spil- aður einmenningur kl. 13. Réttarferð í Þver- árrétt 15. sept. Einnig verður komið í Reykholt og að Deildartunguhver. Selt verður réttarkaffi. Brottför frá Ásgarði kl. 12. Upplýsingar á skrif- stofu FEB, s. 588 2111. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, mosaik, gifs og ísl. steinar, nám- skeið í postulínsmálun, hárgreiðslu- og fótaað- gerðarstofur opnar. Í tilefni af 10 ára afmæli stöðvarinnar verður opnuð sýning á mynd- listarverkum Gerðar Sigfúsdóttur fimmtu- dag12. sept. Kynning á dagskrá vetrarins verð- ur kl. 13.30, þá mun Jó- hanna Þórhallsdóttir segja frá aðdraganda og opnun stöðvarinnar. Börn frá leikskólanum Jörva koma og taka lag- ið og síðan verður harm- onikkuspil kakó og rjómaterta verður á boðstólum frá kl. 14.30. Félag eldri borgara, Suðurnesjum. Selið Vallarbraut 4, Njarðvík, kl. 14 félagsvist alla mið- vikudaga. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spila- salur opinn, vist og brids. Síðustu sýningar Huga Jóhannessonar myndlistarmanns. Allar upplýsingar á staðnum og í s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10–17, kl. 9. 05 og kl. 9. 55 leikfimi, kl. 10. 45 hæg leikfimi, kl. 13 félagsvist, kl. 15–16 við- talstími FEBK, kl. 17 bobb. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið virka daga kl. 9–17. Í tilefni af áttatíu ára afmæli sínu opnaði Guðrún Jóhannesdóttir, myndlistarsýningu í fé- lagsheimilinu Gullsmára í september. Sýningin er opin á opnunartíma félagsheimilisins kl. 9– 17 virka daga. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður, hárgreiðsla og fótaað- gerð, kl. 13 brids, búta- saumur, harðangur og klaustur. Haustlitaferð verður farin miðvikudag 18. sept. kl. 13.30. Ekið verður um Nesjavalla- veg og Grafning. Kaffi drukkið í Valhöll á Þing- völlum. Skráning á skrifstofu og í s. 587 2888. Fræðslu og kynningarfundur verður föstudag 13. sept. kl. 14. Dagskrá: Lyf og inntaka þeirra. Beinþynning. Lyfjafræðingur og hjúkrunarfræðingur annast fræðsluna. Eftir fræðsluna verður boðið upp á beinþéttnimæli. Kaffi og meðlæti verður á boðstólum. Allir vel- komnir. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 9 böð- un og föndur, kl. 15 teiknun og málun. Fóta- aðgerð, hársnyrting. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10–11 samverustund með Júlíönu, kl. 9–16 fótaaðgerðir, kl. 13– 13.30 banki, kl. 14 fé- lagsvist, kaffi – verð- laun. Vesturgata 7. Kl. 8.25 sund, kl. 9–16 fótaað- gerð og hárgreiðsla, kl. 13–14 spurt og spjallað. Verslunarferð í Bónus kl. 12.15. Leikfimi- kennsla byrjar þriðju- dag 17. sept. kl.11–12, einnig verður kennt á fimmtudag kl. 13–14. Miðvikudag18. sept. kl. 13–16 byjar fyrsti tré- skurðartími vetrarins, skráning hafin. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerðir, morg- unstund, bókband, búta- saumur, kl. 13 hand- mennt, kl. 13.30 bókband, kl. 13 kóræf- ing, kl. 14.10 versl- unarferð. Vetrardag- skráin komin. Laus pláss í eftirtöldum nám- skeiðum: bókbandi, myndlist, leirmótun, körfugerð, mósaik og smiðju. Uppl. í s. 561 0300. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Kl. 19. 30 félagsvist ITC deildin Melkorka, fundur í Borgartúni 22, 3. hæð. Fundurinn er öllum opinn. Uppl. veitir Hulda Gísladóttir, s. 587 1712. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Pútt- mót í Laugardal í dag kl. 13.30. Leikfimiæf- ingar hefjast í Bláa salnnum þriðjudag 17. sept. kl. 11, kennari Margrét Bjarnadóttir. Leikfimin verður á þriðju- og föstudag kl. 11 í vetur. Í dag er miðvikudagur 11. sept- ember, 254. dagur ársins 2002. Orð dagsins: En nú, með því að þér eruð leystir frá syndinni, en eruð orðnir þjónar Guðs, þá hafið þér ávöxt yðar til helgunar og eilíft líf að lokum. (Róm. 6, 22.) 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 drottningu, 8 tertan, 9 náin, 10 megna, 11 glat- aði, 13 óhreinkaði 15 korntegundar, 18 ísbrú, 21 blóm, 22 siðprúð, 23 kjánar, 24 einvígi. LÓÐRÉTT: 2 tréð, 3 gleypi, 4 reka í gegn, 5 borða, 6 afkimi, 7 sögustaður, 12 atorku, 14 knöpp, 15 kvennamaður, 16 jafnaðargeð, 17 tott- uðum, 18 vísa, 19 sterk, 20 gleðikona. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 rusla, 4 fegin, 7 kopps, 8 ölæði, 9 aur, 11 alin, 13 óaði, 14 ýfing, 15 skýr, 17 nekt, 20 und, 22 rausn, 23 ísing, 24 klaga, 25 linan. Lóðrétt: 1 rekja, 2 seppi, 3 ausa, 4 fjör, 5 glæða, 6 neiti, 10 urinn, 12 nýr, 13 ógn, 15 skrök, 16 ýsuna, 18 efinn, 19 tigin, 20 unna, 21 díll. Víkverji skrifar... VÍKVERJI telur sig vera á hál-um ís með því að gera 11. sept- ember í fyrra að umræðuefni. Er hann þar að bera í algjörlega bakka- fullan lækinn. En samt – bara stutt – af því að í dag er 11. september. Fátt hefur eflaust breytt eins mörgu í daglegu lífi og hugsun eins margra og hryðjuverkin í Banda- ríkjunum þennan dag. Allt er í end- urskoðun, hvort sem það viðkemur öryggismálum eða viðhorfum í al- þjóðamálum og allt þar á milli. Þess- ir viðburðir sýndu hversu allt er í raun og veru berskjaldað þegar út- hugsuð voðaverk eru annars vegar. Af því hafa menn dregið lærdóm og eru vitanlega enn meira á varðbergi og er það vel. En þetta var dýru verði keypt og vonandi nóg komið af slíku. x x x SYFJAÐIR ökumenn geta valdiðsjálfum sér og öðrum í umferð- inni hættu. Hvaða ökumaður hefur ekki lent í því að verða svo syfjaður við stýrið að hann verður hreinlega að stöðva bílinn, fara út og teygja sig og skvetta framan í sig köldu vatni. (Er ekki vatnsflaska alltaf við höndina í langferðum?) Eða taka sér hreinlega nokkurra mínútna blund. En það er svosem ekki víst að við bregðumst svo rétt við þegar svefn- inn sækir stíft á okkur. Við viljum nefnilega helst halda áfram. Fyrir nokkru mátti lesa hér í blaðinu frétt um að fáanlegt væri tæki sem fylgdist með augnhreyf- ingum ökumanna. Af þeim getur tækið skynjað þegar árvekni öku- manns er að minnka og gefið honum viðvörun. Það þarf nefnilega ekki nema örsvefn til að eitthvað fari úr- skeiðis á 90 km hraða eins og menn geta ímyndað sér. Víkverja hefur verið bent á frétt á vef BBC um rannsóknir og þróun á slíku tæki í Ástralíu. Þar sé mönn- um vandi á höndum vegna syfju ökumanna, ekki síst atvinnubíl- stjóra á langleiðum, í landi þar sem getur tekið 10 tíma eða meira að aka milli borga. Í fréttinni segir líka að þreyta sé orsök um 30% hinna 700 þúsund dauðsfalla umferðarinnar í heimsbyggðinni. Ástralska tækið er nú í prófun. Það er ennþá óheyrilega dýrt en bú- ist við að verðið gæti verið komið niður í um 20 þúsund krónur þegar það kemur á markað. Búast má við að þeir sem stunda akstur á lang- leiðum muni fyrstir notfæra sér tæki sem þetta en síðan er talið að það verði jafnalgengt í nútímabílum og líknarbelgurinn er orðinn. Með þessari tækni er reyndar líka verið að þróa búnað sem fáanlegur er í bíla, skynjari sem metur hvort öku- maður er óhæfur til aksturs vegna áhrifa af lyfjum, áfengi eða af öðrum orsökum. Fer þá að verða þannig komið fyr- ir okkur að tæknin tekur í sífellt auknum mæli af okkur völdin – og kannski er það bara vel og full ástæða til í þessu tilliti. x x x PISTILLINN hófst á umfjöllunum dagsetninguna 11. septem- ber sem þýðir að næst kemur 12. september! (Eins og það hafi nú ekki legið í augum uppi.) Er ekki rétt að ríkisútvarpið spili 12. sept- ember lag eftir Tólfta september sem síðasta lag fyrir fréttir? Vík- verji telur sig hafa heyrt þetta gert af og til í gegnum árin en ekki í fyrra. Er ekki rétt að halda þessum kæk áfram í ár? Ástand rjúpnastofnsins ÁSTAND rjúpnastofnsins hefur verið til umræðu að undanförnu. Fram hafa komið tillögur um leiðir til að vernda stofninn sem í sjálfu sér er góðra gjalda vert. Sem rjúpnaveiðimað- ur til margra ára vekur það þó athygli mína að ekki skuli fjallað meira um notk- un vélknúinna farartækja, einkum fjórhjóla og snjó- sleða, við veiðarnar. Í 9. gr. laga nr. 64/1994, sem fjallar um veiðar af þessu tagi, segir m.a. „Vélknúin farartæki á landi má nota til að flytja veiði- menn til og frá veiðilendum og þá eingöngu á vegum eða merktum vegslóðum. Skotvopn skulu vera óhlað- in meðan á akstri stendur. Þau skulu einnig vera óhlaðin nær vélknúnu far- artæki á landi en 250 m.“ Allir sem nálægt rjúpna- veiði koma vita að því fer víðs fjarri að þetta laga- ákvæði sé virt. Þannig not- ar fjöldi veiðimanna fjór- hjól og vélsleða gagngert til að elta uppi bráðina. Veiði- maður á vélsleða fer mjög hratt yfir og er fljótur að finna út hvar fuglinn heldur sig. Þegar hann er fundinn er það undir hælinn lagt hvort veiðimaðurinn stígur af sleðanum meðan skotið er eða ekki. Fljúgi fugl upp er hann eltur á farartæk- inu. Þannig getur slíkur veiðimaður á einum degi hreinsað upp stærra svæði en tugur fótgangandi veiði- manna kæmist yfir á sama tíma. Ekki þreytir burður- inn á bráðinni veiðimann- inn þar sem aflinn er látinn á sleðann. Engin leið er til að fram- fylgja áðurnefndu laga- ákvæði eins og það er úr garði gert. Því tel ég nauð- synlegt að banna með öllu notkun farartækja, s.s. vél- sleða og fjórhjóla, við veið- ar á rjúpu. Miðað við þann fjölda slíkra farartækja, sem gagngert eru notuð við rjúpnaveiðar, myndi bann- ið hafa mun meiri áhrif til styrkingar stofninum en stytting veiðitímans. Rjúpnaveiðimaður. Þakkir fyrir góða þjónustu ÉG VAR að leita að lítilli legu á fræsaratönn og bú- inn að fara bæinn á enda og endaði hjá Ísól í Ármúla 17 þar sem ég fékk frábæra þjónustu og allt var fyrir mig gert. Þeir vísuðu mér á renni- smið hjá Vélsmiðju Krist- jáns í Borgarfirði sem bjargaði mér. Vil ég senda þeim kærar þakkir fyrir liðlegheitin. Sigmundur Hansen. Tapað/fundið Jakki týndist HEFUR einhver séð þenn- an jakka sem lítil fjögurra ára stúlka týndi í Smáran- um sunnudaginn 8. sept. Í vasanum voru tvö barna- ilmvötn með bleikum og grænum töppum. Hún saknar jakkans sárt en hún fékk hann í afmælisgjöf frá frænda sínum í Kanada. Skilvís finnandi hringi í síma 562 6482 eða skili hon- um á þjónustuborð Smár- ans. Blár jakki – rauð húfa TAPAST hefur á mismun- andi stöðum á mismunandi tímum í sumar annars veg- ar þunnur blár kvenmanns- jakki með hettu og hins vegar rauð húfa með lama- dýrum á. Skilvís finnandi hafi samband í síma 847 4943. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is MIG langar að taka und- ir með þeim sem skrif- aði pistilinn „Sóðar“ í Mbl. fyrir stuttu síðan. Ástæðan var allt ruslið eftir menningarnóttina. Það er greinilegt að það eru allt of margir sem ekki vita til hvers ruslafötur eru. Ég þekki svolítið til þar sem íþróttaleikir eru innandyra og þegar áhorfendur eru farnir er gólfið oft eins og ruslahaugur og þó eru ruslafötur út um allt. Eins þegar svokölluð fjölliðamót eru haldin eru búningsklefar oft ansi skrautlegir og ruslaföturnar svo til tómar. Þarna held ég að þjálfarar og umsjón- armenn geti komið til sögunnar. Eins og alltaf eru margir til fyrir- myndar, en því miður ber alltaf meira á hin- um. Kenna ekki allir for- eldrar börnum sínum að henda sælgætisbréfum og öðru rusli í ruslaföt- urnar? Kristín. Ruslafötur og sóðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.