Morgunblaðið - 26.09.2002, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 26.09.2002, Qupperneq 36
MINNINGAR 36 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Elsku afi, þú hefur alltaf átt svo stóran hluta af mér og munt alltaf eiga. Þegar ég hugsa til baka minnist ég allra Skorradalsferðanna okkar, þegar þú keyrðir fjallajeppann þinn út úr bænum með ömmu í framsæt- inu og mig aftur í, alsæla af tilhugsun um Skorraskjól. Við settum niður kartöflur, lögðum netin, slógum grasið og kveiktum upp í kamínunni. Svo spilaðir þú við mig heilu kvöldin og ég vann alltaf af einhverri ástæðu. Þegar við mamma og Gummi bróðir bjuggum hjá þér og ömmu í nokkur ár varst þú alltaf löngu vakn- aður áður en ég komst á lappir. Allt- af tilbúinn með egg og beikon eða hafragrautinn góða á morgnana og reiðubúinn að gera allt fyrir mig. Ég er svo þakklát fyrir allt sem þú hefur kennt mér og allar góðu stundirnar sem þú hefur gefið mér. Það er mér svo minnisstætt þegar við sátum saman í hægindastólnum þínum fyr- ir framan arininn og sungum saman upp úr söngbókinni svo tímum skipti. Ég mun halda áfram að syngja fyrir þig eins oft og ég get því ég veit þú heyrir til mín. Mér verður alltaf hugsað til þín þegar ég heyri þau lög sem við sungum saman. Það var alltaf svo gaman þegar þú sýndir mér myndir á tjaldinu þínu, myndir af mömmu þegar hún var lítil og ykk- ur ömmu, myndir frá því að þið vor- uð ung. Þið amma fóruð með mig til Sví- þjóðar, í mína fyrstu ferð til útlanda. Þeirri ferð mun ég aldrei gleyma. Við amma tíndum snigla, blóm og alls konar hluti á meðan að þú varst önnum kafinn úti í bæ við heimilda- söfnun. Afi, ég mun alltaf líta upp til þín fyrir allt sem þú hefur gert og fyrir þann metnað sem einkenndi þig. Í hvert skipti sem ég fékk einkunnir úr prófum vildi ég alltaf sýna þér sem fyrst. Mig hefur alltaf langað að standa mig fyrir þig, gera þig stoltan og ég mun reyna að gera það áfram af bestu getu. Elsku afi minn, takk fyrir að leyfa mér að eiga svona yndislegar minn- ingar. Núna ertu farinn héðan en ég veit að þú munt alltaf vera hjá mér þegar ég þarfnast. Þín dótturdóttir, Valgerður. Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld … Hann var sex árum yngri en ég, svo að með dauða hans er nú rétt tímaröð atburða tekin að riðlast. Þegar hann kom til náms í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands hafði ég lokið þar sams konar námi og þóttist mörgu geta miðlað þessum unga vini mínum, í palladómum um prófessora og ýmsum öðrum fróðleik. Síðan lágu leiðir okkar saman með marg- víslegum hætti í meir en hálfa öld, við nátengd störf og mannfagnað á góðum stundum. Og þó hittumst við sjaldnar en skyldi, eins og verða vill þegar brauðstritið tekur sinn tíma og við bætist skyld umhyggja fyrir vaxandi niðjafjöld. Sveinn var gáfaður maður og auk þess eljusamur með afbrigðum með- an heilsa entist. Þegar hann hafði lokið námi við háskólann okkar vildi hann víkka sjónhring sinn og lánað- ist það einkar vel. Hann stundaði eitt ár nám í dönskum bókmenntum í Kaupmannahöfn – líklega þá þegar með Gunnar Gunnarsson í huga, og SVEINN SKORRI HÖSKULDSSON ✝ Sveinn SkorriHöskuldsson prófessor fæddist á Sigríðarstöðum í Hálshreppi í Suður- Þingeyjarsýslu 19. apríl árið 1930. Hann lést á Landspítalan- um – Borgarspítala 7. september síðast- liðinn og var útför hans gerð frá Hall- grímskirkju 23. sept- ember. síðan annað ár í ensk- um bókmenntum í Winnipeg. En mest skurkið gerði hann þegar hann var lektor í íslensku við háskólann í Uppsölum 1962–68. Þar stundaði hann jafn- framt kennslunni mikið nám í almennum bók- mennta- og skáldskap- arfræðum og lauk prófi í þessum greinum til viðbótar því sem hann hafði áður numið við Háskóla Íslands. Árið 1968 hvarf Sveinn Skorri heim til Íslands með fjölskyldu sinni og gerðist lektor í ís- lenskum bókmenntum við Háskól- ann, en sú staða þróaðist eftir tvö ár í stöðu prófessors sem hann gegndi til sjötugs eða í þrjá áratugi. Ég er hreykinn og ánægður yfir því að hafa átt nokkurn þátt í þessari ráða- breytni, hún varð til hamingju bæði fyrir Svein sjálfan og þá stofnun sem hann þjónaði. Segja má að með Sveini Skorra hafi nútíminn hafið innreið sína í bókmenntarannsóknir og bókmenntakennslu við Háskóla Íslands. Síðan hafa að sjálfsögðu margir „nútímamenn“ bæst í hópinn, en Sveinn kom þeirra fyrstur. Frá stofnun Heimspekideildar Háskól- ans 1911 og fram til þessa hafði bók- menntakennslan mestmegnis verið fólgin í fyrirlestrum sem mótuðust af fílólógíu 19. aldar, og af þeirri aðferð sem stundum er kölluð „bíógrafísk“, það er að segja fræðslu um ævi og verk þeirra skálda og rithöfunda sem hæst þykja gnæfa. Þessi stefna hafði haldist hér lengur en víðast í grannlöndunum af því ferðinni réðu miklir garpar og snjallir fræðarar sem stóðu föstum fótum í eldri tíma. En „nú kom þessi nýi forkur“ og ruddi nýjar brautir. Með lestri fjöl- þættra erlendra rita og með nútíma- legum aðferðum lærimeistara sinna í Vesturheimi og á Norðurlöndum tók Sveinn að fræða stúdentana um strauma og stefnur bókmenntanna á hverjum tíma, fremur en þylja ævi- atriði úrvalinna höfunda. Og síðan hefur hver nýjungin rekið aðra í bók- menntakennslunni, svo að gömlum svokölluðum bókmenntamönnum þykir nóg um og gengur erfiðlega að fylgjast með í þeim flugastraumi. En þetta er nútíminn, þetta er framtíð- in, og sé horft yfir sviðið um alda- mótin 2000 þá er Sveinn Skorri fyrsti nútímamaðurinn við kennslu í ís- lenskri bókmenntafræði. En ævisöguaðferðin hefur einnig margt til síns ágætis, og hún hefur ekki liðið undir lok í rannsóknum sagnfræði og bókmennta á tuttug- ustu öld, öðru nær. Menn skynja enn, vitandi eða óvitandi, að „allt hið mesta er af einum gert“. Og það er býsna dæmigert að Sveinn Skorri, brautryðjandi nýrra aðferða og stefnumiða í bókmenntafræði, samdi öll aðalverk sín sem ævisögur ein- stakra afreksmanna. Ungur tók hann að rannsaka ævi og verk Gests Pálssonar, forystumanns raunsæis- stefnunnar á Íslandi, gaf síðar út mikið rit um Gest og bjó ritverk hans til prentunar. Þegar hann hóf að kanna menningarstrauma og sam- vinnuhreyfingu í átthögum sínum í Þingeyjarþingi, þá gerði hann það í formi ævisögu aðal-foringjans, Benedikts á Auðnum. Og þriðja stór- virki Sveins var enn helgað ein- stökum afreksmanni, en það er ævi- saga Gunnars Gunnarssonar skálds. Til þess verks hafði hann með hléum varið mörgum árum ævi sinnar, með gaumgæfilegum rannsóknum hér heima og erlendis. Hygg ég að því verki hafi verið nálega fulllokið þeg- ar hann féll frá. Nú kemur það í hlut nemenda Sveins og niðja og annarra hollvina Gunnars skálds að leiða þetta verk til lykta og koma því út á prent. Þótt Sveinn Skorri væri eljumikill maður og athafnasamur, þá var hann jafnframt gleðimaður og hrókur alls mannfagnaðar þegar tilefni og færi gafst. Hann hafði hljómmikla rödd og og ágæta frásagnargáfu og var fús að láta aðra njóta hennar á góð- um stundum. Mér er í minni frásögn sem hann flutti eitt sinn á heimili okkar hjónanna um fyrstu kynni sín af bókasafni Benedikts frá Auðnum á Húsavík, og um heimsókn sína í Gautlönd, hið forna vígi samvinnu- hreyfingar og þingeyskrar menning- ar. Sá skáldlegi fyrirlestur verður með vissu ógleymanlegur öllum þeim er á hann hlýddu. Margir rannsakendur bókmennta taka sér fyrir hendur að setja sjálfir saman skáldskaparverk af ýmsu tagi, og ná stundum svo góðum ár- angri að þessi verk yfirskyggja ann- að sem þeir hafa látið frá sér fara. Af slíkum toga er síðasta rit Sveins Skorra sem hann nefndi Svipþing. Þetta er einskonar „skáldævisaga“ eða öllu heldur „skáldættarsaga“, fjallar um þá tvo ættstofna sem að honum stóðu, annan borgfirskan og hinn þingeyskan. Í þessari litlu bók nýtur sín vel hin ágæta frásagnar- gáfa Sveins og hið látlausa en þó svipmikla tungutak. Menn tóku bók- inni með miklum áhuga og lásu hana með áfergju, bæði sunnan og norðan heiða. Flestir voru hrifnir, en heyrt hef ég að sumum kunnugum hafi nokkuð misþóknast, enda hlýtur svo jafnan að fara ef eitthvað er birt ann- að en eintómt skjall og skrum. Ég þekki nokkuð til hins þingeyska stofnsins og þeirra atburða sem ger- ast fyrir norðan, og mitt mat er það að Sveini hafi tekist afbragðsvel að lýsa eftirminnilegum mönnum og frásagnarverðum atburðum, án þess að særa nokkurn eða afhjúpa nokkuð það sem best mundi að láta þögnina varðveita. Okkur vinum og vandamönnum Sveins Skorra þykir hann nú horfinn á braut óvænt og helst til snemma. En við það skal huggast að hann hafði lifað hamingjuríka ævi og skil- að miklu og góðu æviverki. Hann kvæntist ungur náinni frændkonu sinni, þau hjónin voru mjög svo sam- valin og oftast samstiga, eignuðust fjögur myndarleg og dugandi börn og mörg barnabörn. Við Sigríður sendum Vigdísi og niðjum þeirra og öðrum vandamönnum hlýjar samúð- arkveðjur og biðjum þeim blessunar Guðs. Jónas Kristjánsson. Það fylgir því að eldast, að menn sjá sífellt á eftir fleiri samferða- mönnum sínum yfir landamæri lífs og dauða. Laugardaginn 7. septem- ber s.l. lést Sveinn Skorri Höskulds- son, gamall kunningi og vinur, og hafði vinátta okkar staðið í röska hálfa öld eða frá árinu 1950. Ástæða fyrstu funda okkar var sú, að við höfðum báðir gengið til liðs við sam- tök ungra framsóknarmanna og nut- um þar nokkurs trúnaðar um skeið. Á þeim árum, sem á eftir komu, bjuggust margir við því, að Sveinn Skorri mundi láta stjórnmál mikið til sín taka enda maðurinn bæði mælsk- ur og ritfær í besta lagi en vísinda- störfin heilluðu hann meira en stjórnmálin. Hins vegar hafði hann alla tíð áhuga á stjórnmálum og ræddum við þau oft frá ýmsum hlið- um og skipti þá ekki máli þótt vík væri milli vina. Þar komu síminn og pósturinn til hjálpar, en sem kunn- ugt er, var hann oft langdvölum er- lendis við nám og störf. Sveinn Skorri var vandvirkur við þau störf sem hann tók sér fyrir hendur og eru rit hans orðin mikil að vöxtum en mest þeirra rit um Gest Pálsson í tveimur bindum og kom út 1965 og Benedikt á Auðnum sem kom út 1993 en ég ætla ekki að leggja dóm á æviverk hans, það munu þar til hæfir menn gera. En eina bók get ég þó ekki stillt mig um að nefna sem er af öðrum toga en flest annað, sem hann fjallaði um, og á ég þar við bók sem hann gaf út 1998 og nefndi Svipþing, minninga- þættir og er æskuminningar hans sjálfs. En því nefni ég þessa bók að í henni telja margir að komi ef til vill skýrar fram listrænir hæfileikar höf- undarins en í öðrum ritum hans. Hann hefði sómt sér vel í hópi þeirra listamanna, sem hann fjallaði um í verkum sínum. Að lokum flyt ég vini mínum Sveini Skorra innilegustu þakkir fyr- ir samfylgdina á langri vegferð og óska honum velfarnaðar á ókunnum stigum. Ég mun lengi sakna hans og þó að ekki sé langur tími liðinn frá andláti hans, hafa komið upp mörg mál, sem ég hefði haft gaman af að ræða við hann. Ég og fjölskylda mín vottum Vigdísi og aðstandendum þeirra Sveins okkar dýpstu samúð og biðjum þeim allrar blessunar á ókomnum tímum. Einar Sverrisson. Það var dálítið spennandi að vera í fyrsta hópnum sem Skorri kenndi þegar hann kom heim frá Svíþjóð og hóf að kenna við Háskóla Íslands, nýorðinn lektor. Okkur nemendun- um fannst hann ungur, þótt við vær- um þá á þeim aldri þegar manni finnst að allir séu eldgamlir sem eru 10–15 árum eldri en maður sjálfur. Það kom líka með honum ferskur og framandlegur andblær, sænskur, sögðu sumir, enda lét hann okkur lesa Romanens formvärld eftir Staff- an Björck. Samt er manni minnis- stæðara að hafa lesið mikið af skáld- sögum, smásögum og kvæðum undir handleiðslu hans en að hafa verið að kafa djúpt í einhverjar kenningar að baki þeim. Maður fann að kennarinn naut þessara bókmennta sjálfur; hann horfði stundum út um gluggann á litlu stofunni á íþrótta- húsloftinu, út í snjómugguna, og einu sinni gleymdi hann sér í umræðum um eitthvert álitamál og sagði ann- ars hugar á sænsku: „Kan hända.“ Samt var hann allra manna áhuga- samastur um fagurt íslenskt mál og talaði stundum eins og bók. Seinna fengu sum okkar að kynn- ast honum sem starfsfélaga sem sagði skemmtilegar frá en aðrir. Og þegar dvalið var annars staðar um skeið saknaði maður þess hvað mest að hafa ekkert sem komst í hálfkvisti við frásagnir Skorra í matar- og kaffitímum. Eftir að hann varð fyrir áfalli fyrir rúmum tveim árum kom dálítið tímabil þar sem þessar frá- sagnir lágu niðri, neistinn vildi ekki kvikna, en núna í sumar og haust var hann kominn aftur, glampinn var að koma í dökk augun og við vorum far- in að hlakka til matartímanna. Það var hlýleiki á bakvið glettnina í mörgum þessara frásagna og þeir sem vilja kynnast þeirri hlið á Skorra að honum látnum ættu að lesa bók hans Svipþing. Hún er áreiðanlega með því besta sem hefur verið skrifað á íslensku af þeirri gerð bóka. Manni finnst eiginlega að svona eigi að skrifa slíkar bækur, betur verði ekki gert. Sumum þótti Skorri geta verið harður og óvæginn í baráttu fyrir sínum málstað á opinberum vett- vangi. Þess getur líka stundum verið þörf. En það var gott og þægilegt að vinna með honum í nefndum af ýmsu tagi, til dæmis stjórn Móðurmáls- sjóðs Björns Jónssonar og ýmsum nefndum innan íslenskuskorar. Skorri var þeirrar gerðar að manni þótti alltaf vænna um hann eftir því sem árin liðu. Og það var gaman að fá að koma í Skorraskjólið hans í Skorradal, sjá hluta af sögu- sviðinu í Svipþingi, fara með honum á vatnið að vitja um net og taka þátt í því með Vigdísi að slægja silunginn, tína sveppi og njóta matar og drykkjar í skógarkyrrðinni. Að leiðarlokum þökkum við sam- fylgdina. Um leið og við vottum Vig- dísi, börnum og öðrum aðstandend- um samúð reynum við að rifja upp nokkrar sögur og frásagnir okkur til hugarhægðar. Höskuldur og Sigríður. Það mun hafa verið einhvern fyrstu haustdagana árð 1950 að tveir Norðlendingar kvöddu dyra hjá hús- ráðendum Nýja Garðs, frú Elísabetu og Meyvant. Í höndum höfðu þeir bevis upp á húsnæðisvist þar um vet- urinn. Þeim var tekið af alúð en jafn- framt sagt að vegna þrengsla og hús- næðiseklu yrðu þeir að deila eins manns herbergi, a.m.k. fram yfir áramót og svo varð úr. Mér hefur síðan oft komið í hug að ef þessi „ekla“ hefði ekki átt í hlut hefði ég sennilega misst af einlægri vináttu og glöðum samskiptum við Svein Skorra sem vöruðu óslitið í meir en hálfa öld. Svona geta örlögin snúist að jafnvel „eklan“ verður manni hið mesta happ í hendi. Það sakar ekki að geta þess, eins og Brynleifi Tobiassyni latínukenn- ara var tamt að segja, að kjallara- dvölin gerði okkur Svein Skorra mjög vinsæla einkum og sér í lagi þegar Garðsböll voru haldin en þau voru toppurinn á tilverunni á þessum árum. Báðum Stúdentagörðunum var þá lokað skömmu eftir miðnætti sem augljóslega tafði seinfara menn mjög frá allri skemmtun. En flestir vissu hvar við Skorri bjuggum enda varð kjallaragluggi okkar að eins- konar paradísarhliði þegar halla tók frá miðnætti. Höfum við Sveinn í seinni tíð stundum velt því fyrir okk- ur hvernig í ósköpunum sumar þær ungu og spengilegu stúlkur, sem nú eru orðnar svo virðulegar júfertur, hafi getað vippað sér svo snarlega inn um þröngan gluggann. En slíkt eru raunar fánýtar bollaleggingar því margt breytist á hálfri öld fleira en þyngdaraflið eitt og sér! Mér varð snemma ljóst þennan vetur hvern mann Sveinn Skorri hafði að geyma. Hér var hin sanni ungi sveitamað- ur Göthes lifandi kominn sem elskaði land sitt heitu hjarta, mold þess og gróður og var einnig ríkulega bjart- sýnn á framtíð Íslands ef vel væri á spöðunum haldið. Að vísu var hann um tíma nokkuð hallur undir skoð- anir Hriflu-Jónasar eins og margir ungir menn en afhallaðist þegar frá leið. Sinnaskipti í stjórnmálum höfðu engin áhrif á vináttu okkar enda allt af setningi slegið. Ég mat að verð- leikum gáfur hans, hreinskiptni og bráðsnjalla gagnrýni þegar honum þótti ég fara offörum um menn eða málefni. Kom þá einmitt vel í ljós hve launfyndinn hann var og og átti sér spaugilegt auga umfram flesta sam- ferðamenn. Á þessari stundu vil ég flytja frú Vigdísi og börnum þeirra fjórum mínar dýpstu samúðarkveðjur en minningin mun verða þeim huggun harmi gegn. Nú dimmir að, menn búa hesta sína því langferð er í vændum. Sú ferð bíður okkar allra. Við þig minn kæri vin segi ég að leiðarlokum: Hafðu heila þökk fyrir samfylgdina. Við sjáumst aftur handan fjallsins eina. Gunnar G. Schram. Sveinn Skorri lagði fyrir sig bók- menntir og bókmenntasögu af réttri ástæðu. Hann unni orðlistinni, vel hugsuðum og vel orðuðum ljóðum og sögum, skráðum eða óskráðum. Sjálfur hafði hann hvort tveggja á valdi sínu, ritlist og lifandi frásagn- arlist. Skarpskyggni hans á bók- menntir og viðbrögð við þeim lifir í greinum og bókarköflum, og frá- sagnarlist hans á sér frábæran minnisvarða í minninga- og ættar- sögunni Svipþingi. Sveinn Skorri mótaðist sem fræðimaður á tímum þegar nokkuð breitt bil var milli fræðanna um höfundana og bók- menntirnar, bókmenntasögunnar, og hrifnæmrar túlkunar einstakra verka. Sagnfræðin var undirstaða rannsókna hans. Hann vildi hvar- vetna leita til frumheimilda, gera á þeim svo tæmandi könnun sem unnt væri og segja á þeim grunni ræki- lega og samfellda sögu. Í slíkum rannsóknum slakaði hann ekki á hörðustu kröfum til nákvæmni og heimildarýni. Þetta er seinleg aðferð og kallar á löng verk. Miklir hlutar af tveggja binda riti Sveins Skorra um Gest Pálsson frá 1965 eru af þessu sagnfræðilega tagi, þótt þar sé líka ágæt bókmenntarýni. Af þessu sögu- lega tagi er hin merka ævisaga Benedikts á Auðnum 1993, og þann- ig var grunnur lagður að meginverki hans um Gunnar Gunnarsson. Slík aðferð, þar sem allstaðar er grafið niður á fast áður en bygging rís er seinleg. Sveinn Skorri sá manna best sjálfur þá annmarka sem rannsókn- araðferð hans hafði í för með sér, en mat meira kosti hennar. Hann dró saman óhemjumikið efni um ævi Gunnars Gunnarssonar og sparaði enga fyrirhöfn. Honum var ljós sú hætta að stórvirki hans yrði ekki lok- ið, einkum eftir þá lykkju sem hann lagði á leið sína með sögu Benedikts

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.