Morgunblaðið - 26.09.2002, Side 38
MINNINGAR
38 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Á unglingsárum
mínum, þegar ég var
nemandi í Menntaskól-
anum á Akureyri,
mætti ég stundum
stúlku á aldur við mig,
sem gekk um göturnar
með léttum öruggum hreyfingum og
reisn. Ég vissi, að hún var kölluð
Kidda, var dóttir Jónasar Þór, verk-
smiðjustjóra hjá Gefjun og systir
Þórarins Þór, sem þá var ein aðal-
stjarnan í leikfélagi menntaskólans.
Um það bil hálfum öðrum áratug
seinna mættumst við að nýju á öðr-
um stað og við ólíkar aðstæður. Ég
hafði þá í nokkur ár annast safn-
vörslu í Listasafni Einars Jónssonar
ásamt fleirum. Ólafur Kvaran, sem
var nýlega orðinn forstjóri safnsins,
auglýsti eftir safnverði, sem yrði
starfsfélagi minn. Ég beið þess því
með eftirvæntingu hver yrði ráðinn.
Ólafur var laginn við að velja gott
starfsfólk. Það var hann einkum, er
GUÐLAUG
KRISTÍN ÞÓR
✝ Guðlaug KristínÞór fæddist á
Akureyri 19. septem-
ber 1924. Hún lést í
Hafnarfirði 28. júlí
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Hafnarfjarðar-
kirkju 6. ágúst.
hann réð Guðlaugu
Kristínu Þór úr hópi
umsækjenda. Ég sjálf
var mjög lánsöm. Á fá-
mennum vinnustað
skiptir miklu máli að
samvinna sé góð, svo
að öllum líði vel. Betri
vinnufélaga en Krist-
ínu var varla hægt að
fá. Nálægt hálfum öðr-
um áratug unnum við
saman ásamt fleira
góðu fólki. Þar bar
aldrei skugga á. Vin-
áttubönd hnýttust og
urðu traustari er árin
liðu.
Kristín Þór var yndisleg kona,
hjartahlý, bráðgreind, afar listræn
og tilfinningarík. Hún var elskuleg í
umgengni og hafði gott vald á er-
lendum tungumálum, sem var mik-
ilvægt þar sem fjöldi útlendinga
kom á safnið og spurði um margt.
Þegar Kristín hóf störf í listasafninu
var hún að ná kröftum eftir veikindi.
Það bætti án efa heilsu hennar að
kynnast hinum fögru listaverkum
Einars Jónssonar. Boðskapur þeirra
snerti strengi í listrænu eðli hennar,
svo að henni leið vel á vinnustaðn-
um. Hún naut þess að sökkva sér
niður í djúp þeirrar speki, sem verk-
in höfðu að geyma.
Ævi Kristínar var ekki alltaf auð-
veld. Þegar hún var barn andaðist
móðir hennar. Sá missir hefur verið
sár fyrir listræna og viðkvæma sál.
Þó að faðirinn og aðrir, einkum
systkinin, væru henni góð er erfitt
að fylla skarð elskulegrar móður.
Um líkt leyti og hún lauk hjúkr-
unarnámi missti hún síðan kæran
föður sinn. Fleiri áföll bættust við,
sem ýfðu upp sárin eftir föðurmiss-
inn í fíngerðu og viðkvæmu hjarta
hennar. Á þessum erfiðu tímum
reyndust systkin Kristínar henni
mjög vel, enda hafði þeim móður-
lausum lærst frá bernsku- og ung-
lingsárum að standa saman í blíðu
og stríðu.
Kristín dvaldist erlendis í nokkur
ár. Hér heima stundaði hún hjúkrun
og fleiri störf. Um tíma vann hún á
Sólheimum í Grímsnesi. Þar naut
meðfædd hjartahlýja og hæfileikar
hennar sín vel í samskiptum við
heimilisfólkið. Hún æfði með því
bæði leikþætti og söng og gladdist
yfir að geta glatt hina minnstu
bræður og systur á staðnum.
Mesti gleðigjafinn í lífi hennar var
þó dóttirin Helga, sem bæði á björt-
um og dimmum dögum reyndist
móður sinni afar vel og hefur á síð-
ari árum verið sá bakhjarl, sem hún
treysti á og aldrei brást. Hún mat
tengdason sinn líka mikils og var
þakklát honum og dótturdætrunum
fyrir aðstoð og hlýju þeirra. Krist-
indómurinn, sem birtist skýrt í lista-
verkum Einars Jónssonar, átti
hljómgrunn í hjarta Kristínar. Hún
nefndi eitt sinn, að starfsár sín í
listasafninu hefðu haft mikla þýð-
ingu fyrir trúarlíf sitt. Enda veit ég
að hún lagði sig sjálfa og ástvini sína
í Guðs hendur og treysti á náð hans
og kærleika.
Mér þótti leitt að geta ekki verið
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
við Nýbýlaveg, Kópavogi
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN GÍSLASON
bóndi á Innri-Skeljabrekku,
Borgarfirði,
lést mánudaginn 23. september.
Jarðsungið verður frá Hvanneyrarkirkju laugar-
daginn 28. september kl. 14.00.
Gísli Jónsson, Oddbjörg Leifsdóttir,
Pétur Jónsson, Svava Kristjánsdóttir,
Þorvaldur Jónsson, Dagný Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg systurdóttir mín og frænka okkar,
SIGRÚN ANNA MOLANDER,
Laugateigi 6,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 27. september kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknar-
stofnanir.
Fyrir hönd annarra ættingja,
Magna Sigfúsdóttir, Ingimundur Pétursson,
Guðrún, Sigurbjörg, Þóra
og Hildur Björk Ingimundardætur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURBERG MAGNÚS SIGURÐSSON,
Digranesvegi 72a,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánu-
daginn 30. september kl. 13.30.
Jónína María Baldursdóttir,
Þóranna M. Sigurbergsdóttir, Steingrímur Á. Jónsson,
Borghildur Sigurbergsdóttir, Sigurður Baldursson,
Helena Sigurbergsdóttir, Þorgeir Egilsson
og barnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÁRMANN BRYNJÓLFSSON
vélstjóri,
lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn
24. september.
Ármann Brynjar Ármannsson, Chuan Thongkham,
Ingólfur Arnar Ármannsson, Jóhanna Eyþórsdóttir,
Sigurbjörg Lóa Ármannsdóttir, Steinþór Grímsson
og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN VALDIMAR BJÖRNSSON,
Grund,
Ólafsvík,
sem lést laugardaginn 21. september, verður
jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn
28. september kl. 14.00.
Jarðsett verður að Búðum.
Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 10.00.
Björg V. Guðmundsdóttir,
Björn Sigurður Jónsson, Steinunn Þórisdóttir,
Kristín Stachura, George Stachura,
Guðmundur Ómar Jónsson, Jónína Kristjánsdóttir,
Sigurlaug Jónsdóttir, Ingólfur Aðalbjörnsson,
Reynir Jónsson, Margrét Ingimundardóttir,
barnabörn og langafabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
JENNÝ LIND (LILLA) ÁRNADÓTTIR,
Vallarbarði 3,
Hafnarfirði,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 21. september, verður jarðsung-
in frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 27. sept-
ember kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Hjartavernd.
Þorleifur Jónsson,
Jón Þorleifsson, Sigrún Pálsdóttir,
Gunnar Árni Þorleifsson, Theódóra Sif Pétursdóttir,
Sigurður Unnar Þorleifsson, Ingibjörg Aðalsteinsdóttir,
Kolbrún Þorleifsdóttir, Harrý Samúel Herlufsen,
Símon Þorleifsson, Dorthe Møller Thorleifsson,
Harpa Þorleifsdóttir, Gestur Már Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar og tengdamóðir,
ANNA JÓNSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Reykjavík,
áður til heimilis í Fellsmúla 18,
Reykjavík,
andaðist föstudaginn 20. september.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Við þökkum starfsfólki Hrafnistu umönnun í erfiðum veikindum.
Fyrir hönd ættingja og venslafólks,
Elva Ólafsdóttir, Birgir Hermannsson,
Sigurjón H. Ólafsson, Kristín Briem.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir og
amma,
SIGRÚN MARÍA
SIGURÐARDÓTTIR ARASON,
lést föstudaginn 13. september sl., í Kristkirkju
Sjúkrahúsinu, (Christchurch), Nýja Sjálandi.
Minningarathöfn hefur farið fram á Nýja Sjá-
landi.
Jarðsungið verður frá Ytri Njarðvíkurkirkju föstudaginn 27. september
kl. 14.00. Jarðsett verður í Innri Njarðvíkurkirkjugarði.
Jóhannes Arason,
Matthildur Hjartardóttir Arason,
Þórhildur Sylvía,
Magnúsdóttir Robinson, Robert James Robinson,
Magnús N. Þóroddsson,
Jóhannes Andrew Robinson,
James Robert Robinson,
Ari Jóhannesson, Merry Elat,
Ari Brynjar Arason,
Ásgerður Jóhannesdóttir,
Óðinn Víglundsson,
Ingvar Þór Jóhannesson, Van Jóhannesson.