Morgunblaðið - 26.09.2002, Page 50
Undirtónar sex ára
Mínus gátu sig hvergi hamið fremur en venjulega.
Matti og Liv
létu sig ekki vanta.
Nýr bassaleikari, Þröstur,
er genginn til liðs við Mínus
(til hægri).
„Það á
afmæli …“
TÓNLISTAR- og dæg-
urmenningarritið Und-
irtónar fagnaði sex ára af-
mæli sínu síðastliðinn
laugardag á Gauki á
Stöng. Margt var um
manninn en hljómsveit-
irnar Mínus, Vínyll, Day-
sleeper og Jet Black Joe
léku fyrir afmælisbarnið.
Morgunblaðið/Sverrir
50 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 14. Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.
HJ Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6. með ísl. tali.
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Sýnd kl. 6 og 8.
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
HL Mbl
Sýnd kl. 8.
The Sweetest Thing
Sexý og Single i l
miðaverð aðeins 350 kr!
STUTTMYND HJ Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 4.
Sýnd með íslensku tali.
Sýnd kl. 5.15, 8, 9 og 10.40 B.i. 14.
Yfir 17.000 MANNS
Sýnd kl. 5, 8 og 10. B.i. 12 ára.
kl. 4.45, 7.30 og 10.10.
Kvikmyndir .com
DV
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Ný Tegund Töffara
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
Skráning er í síma 565-9500
Síðustu hraðlestrarnámskeiðin..
Viltu margfalda afköst í námi?
Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð?
Síðustu hraðlestrarnámskeið ársins hefjast
þriðjudaginn 1. október, mánudaginn 7. október
og fimmtudaginn 24. október. Skráðu þig strax.
HRAÐLESTRARSKÓLINN
w w w. h . i s
GENGIÐ hefur ver-
ið frá sölu á sýning-
arrétti Hafsins í
Bandaríkjunum og
Bretlandi. Sam-
kvæmt fréttatil-
kynningu frá að-
standendum mynd-
arinnar festi dreif-
ingarfyrirtækið
Palm Pictures kaup
á sýningarréttinum í
San Sebastian fyrr í
vikunni þar sem
myndin tekur þátt í
aðalkeppni hinnar
kunnu kvikmyndahátíðar sem þar er
haldin árlega.
Í samtali við Morgunblaðið sagðist
Baltasar Kormákur leikstjóri mynd-
arinnar að vonum ánægður með
samninginn. „Þetta er klárlega
stærsti dreifingarsamningur sem
gerður hefur verið vegna einnar ís-
lenskrar myndar, verðið sem greitt
var fyrir réttinn er allavega hærra
en dæmi eru um fyrir íslenska kvik-
mynd.“
Baltasar segir að þetta góða sölu-
verð tryggi jafnframt góða almenna
dreifingu myndarinnar í Bandaríkj-
unum og Bretlandi, að þeir hjá Palm
Pictures veðji greinilega á að mynd-
in geti gengið vel.
Einn aðaleigandi Palm Pictures er
Chris Blackwell en hann er kunnari
fyrir afskipti sín af tónlistarútgáfu.
Hann er stofnandi Island hljóm-
plötufyrirtækisins sem m.a. hefur
gefið út hljómplötur Bobs Marleys
og U2. Palm Pictures er kvikmynda-
deild Blackwells sem hefur verið
starfrækt meira og minna í rúma tvo
áratugi og framleitt myndir á borð
við Stop Making Sense, tónlistar-
mynd Talking Heads sem Jonathan
Demme gerði og á síðasta ári dreifði
Palm Pictures um Bandaríkin og
Bretland einni vinsælustu spænsku
myndinni á síðasta ári Lucía y el
sexo en hún var ein vinsælasta mynd
Spánar á síðasta ári.
Samkvæmt síðustu mælingum
hafa tæplega 20.000 manns séð Hafið
á Íslandi.
Baltasar segir viðtökurnar á kvik-
myndahátíðinni í San Sebastian, þar
sem myndin hefur þegar verið sýnd
á fjórum sýningum, hafa verið góðar
og fólk hafi klappað aðstandendum
lof í lófa á frumsýningu. Hann segir
að vissulega hafi harkalegustu atrið-
in gengið fram af einhverjum en þó
hafi einnig verið hlegið mikið.
Tilkynnt verður um sigurvegar-
ann í aðalkeppninni um Gullskelina,
sem Hafið tekur þátt í, á sunnudag
en Baltasar kemur einnig til álita í
flokki nýrra leikstjóra þar sem veitt
verða vegleg peningaverðlaun.
Hafið selt til
Bandaríkjanna
og Bretlands
Frá tökum á Hafinu: Baltasar Kormákur kemur
til álita á San Sebastian sem besti nýi leikstjórinn.
Morgunblaðið/Golli
ÞANN 24. október mun Filmundur
forsýna myndina Porn Star: The
Legend of Ron Jeremy í Háskólabíói.
Fjallar hún um téðan Jeremy sem er
einhver frægasti klámmyndaleikari
sem uppi hefur verið. Kemur leikar-
inn sérstaklega til landsins vegna
þessa og verður viðstaddur sýn-
inguna. Í lok myndar mun Jeremy
svo svara spurningum úr sal, bæði frá
fjölmiðlum og almenningi.
Um heimildarmynd er að ræða og
er skyggnst inn í sálarlíf Jeremys en
hann hefur leikið í um
4000 „bláum“ myndum.
Velgengni Jeremy þyk-
ir ekki síður merkileg í
ljósi þess að hann
myndi seint teljast
smáfríður maður;
búlduleitur kubbur
með forláta yfirvara-
skegg.
Morgunblaðið setti
sig í samband við Ron
og innti hann stuttlega
álits vegna heimsókn-
arinnar.
„Ef satt skal segja er
ég ekki mikið fyrir að
ferðast,“ segir leikkar-
inn. „En þeir sem
standa að myndinni
hafa í hyggju að auglýsa
hana vel og rækilega.
Þannig að ég féllst á að
taka þátt í því. Mér
fannst því kjörið að
heimsækja Ísland þar
sem ég hef aldrei komið
til landsins. Ég hef
heyrt frábæra hluti um
það og er bæði forvitinn
og spenntur.“
Þess má geta að for-
sala aðgöngumiða er
þegar hafin á myndina í
Háskólabíói og Sambíó-
unum. Meira síðar...
Filmundur sýnir Porn Star: The Legend of Ron Jeremy
Ron Jeremy á leið til landsins
Ron Jeremy