Morgunblaðið - 18.10.2002, Side 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 21
HELGA Helena Sturlaugsdóttir
var fyrir skömmu sett inn í emb-
ætti sóknarprests í Setbergs-
prestakalli vegna eins ár leyfis
séra Karls V. Matthíassonar al-
þingismanns. Athöfnin fór fram í
Grundarfjarðarkirkju. Það var
prófastur Snæfells- og Dalapró-
fastsdæmis, séra Ingibergur
Hannesson, sem setti séra Helgu
inn í embættið en að því búnu
predikaði hún og þjónaði fyrir
altari til messuloka. Að athöfn
lokinni var öllum kirkjugestum
boðið upp á súpu og brauð í safn-
aðarheimili Grundarfjarð-
arkirkju. Séra Helga, sem ættuð
er frá Efri-Brunná í Dalasýslu, er
gift Eiríki Rúnari Eiríkssyni
húsasmíðameistara. Hún útskrif-
aðist úr guðfræðideild Háskóla
Íslands árið 1999 og var vígð til
embættis í dómkirkjunni af bisk-
upi Íslands hinn 8. september sl.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Ingibergur Hannesson, prófastur Snæfells- og Dalaprófastsdæmis, setti
Helgu Helenu Sturlaugsdóttur inn í embættið.
Nýr sóknarprest-
ur í Grundarfirði
Grundarfjörður
HREINDÝRARÁÐ hefur óskað eft-
ir því að umhverfisráðuneytið heimili
ráðinu að láta fella 24 hreinkýr á
veiðisvæði 9; Mýrum og Suðursveit í
nóvember og desember. Þetta eru
dýr sem ekki náðist að fella á hefð-
bundnum veiðitíma sem lauk 15.
september. Aðeins náðist að veiða
sex af þeim 30 kúm sem heimilt var
að fella á svæðinu. Veiðar á hrein-
törfum gengu hins vegar vel og náð-
ist að fella 21 af 25 tarfa kvóta. Bæj-
arráð Hornafjarðar hefur einnig
beint þeim tilmælum til ráðuneytis-
ins að heimild fáist til þess að fella öll
hreindýr sem ganga vestan Kol-
grímu utan veiðitíma og minnka með
því hættuna á að dýrin beri með sér
búfjársjúkdóma inn á ósýkt svæði.
Karen Erla Erlingsdóttir, starfs-
maður hreindýraráðs, segir að síð-
ustu ár hafi ekki náðst að veiða kvót-
ann á svæðinu, m.a. vegna þess að
nokkrir landeigendur á Mýrum hafi
bannað hreindýraveiðar á jörðum
sínum. Hreindýrum hefur því fjölgað
mikið á þessu veiðisvæði og segir
Karen Erla að dýrin séu farin að
leita vestar en áður. Mikilvægt sé að
halda stofnstærð í skefjum og því sé
leitað heimildar til að klára kvótann í
nóvember og desember.
Hún segir það einnig vera hags-
munamál fyrir landeigendur að
veiðikvótinn náist því þeir hafi bein-
an arð af þeim dýrum sem felld eru á
þeirra landi og arður reiknist eftir
ágangi, landstærð og fasteignamati.
Ef ekki tekst á veiðitímanum að
veiða nægilega mörg dýr til þess að
stofnstærð verði innan fyrirhugaðra
marka getur umhverfisráðherra
heimilað hreindýraráði veiðar í nóv-
ember og desember. Arður af þeim
veiðum rennur til hreindýraráðs.
Vilja
halda
hrein-
dýrastofn-
inum í
skefjum
Hornafjörður
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
Meðgöngufatnaður
meðgöngubelti - brjóstahöld
Þumalína, Skólavörðustíg 41
17
Nýtt kortatímabil
hefst í dag
20 50%til
afsláttur af
nýjum vörum
fimmtudagur
október 2002
18
föstudagur
19
laugardagur
sunnudagur
20
10.00 til 21.00
10.00 til 19.00
10.00 til 18.00
13.00 til 17.00
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
R
I
19
03
1
1
0/
20
02
www.kringlan.is upplýsingasími 588 7788 skrifstofusími 568 9200
sunnudaginn
20. okt. kl. 14.30
Eftirfarandi verslanir taka þátt í uppboðinu:
UPPBOÐ
Aha
BT
Gallerí Fold
Hagkaup
Hans Petersen
Íslandssími
Stjórnandi uppboðsins verður Jón Gnarr, skemmtikraftur.
Knickerbox
Konfektbúðin
Krista
Oasis
Penninn
Quest
Rhodium
Tal
Tekk vöruhús
Tékk Kristall