Morgunblaðið - 18.10.2002, Page 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 27
TVÆR sprengjur, sem sprungu í
borginni Zamboanga á sunnanverð-
um Filippseyjum í fyrradag, urðu
fimm manns að bana og særðu að
minnsta kosti 144 manns. Grunur
leikur á, að hryðjuverkasamtök
múslíma beri ábyrgð á ódæðunum.
Í Zamboanga búa um 600.000
manns, aðallega kristnir, en borgin
er í miðju héraði, sem byggt er
múslímum. Rollo Golez, öryggis-
ráðgjafi Gloríu Arroyo, forseta Fil-
ippseyja, vildi ekki geta sér til um
hverjir hefðu staðið að ódæðisverk-
inu en flesta grunar, að múslímsku
hryðjuverkasamtökin Abu Sayyaf
hafi verið að verki. Talið er víst, að
þau hafi samstarf við al-Qaeda,
hryðjuverkasamtök Osama bin
Ladens, og hafa þau áður staðið að
sprengjutilræðum. Hugsanlegt er
hins vegar einnig að samtökin
Jemaah Islamiah hafi staðið fyrir
ódæðunum en þau hafa einnig ver-
ið nefnd til sögunnar í tengslum
við hryðjuverk á Balí sl. laugardag,
sem kostaði um 200 manns lífið.
Hryðjuverkin á Filippseyjum
komu aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir að nýr yfirmaður,
Narciso Abaya, tók við stjórn
stjórnarhersins í suðurhluta Fil-
ippseyja en Abaya hét því að ráða
niðurlögum múslimsku uppreisnar-
mannanna.
Sprengjurnar sprungu í tveimur
samliggjandi verslunum og höfðu
verið skildar eftir á borði þar sem
fólk geymir ýmislegt meðan það
kaupir inn. Gerðist þetta í hádeg-
inu þegar jafnan er margt um
manninn í verslununum.
Mikil ringulreið ríkti eftir
sprengingarnar eins og líklegt er
enda lá látið fólk og slasað innan
um allt brakið úr húsunum. Við all-
ar opinberar byggingar og stór-
verslanir á Filippseyjum eru jafn-
an öryggisverðir með málmleitar-
tæki en Mario Yanga, lögreglu-
stjóri í Zamboanga, sagði, að oft
sinntu þeir ekki starfinu sem
skyldi þótt stöðugt væri verið að
áminna þá.
Öfgasamtök múslima talin bera
ábyrgð á hryðjuverki á Filippseyjum
Fimm létust og tugir slösuðust
Zamboanga. AFP.
FINNSKA lögreglan sleppti í
fyrradag 17 ára dreng, sem
grunaður var um að hafa
hjálpað Petri Gerdt, 19 ára
námsmanni,
sem varð
sjö manns
að bana og
slasaði 80
með
sprengju í
verslana-
miðstöð. Í
tilkynningu
lögreglunn-
ar sagði, að ekkert benti til,
að ungi maðurinn hefði tekið
þátt í að búa til sprengjuna,
þótt ljóst væri, að hann og
Gerdt hefðu rætt saman um
sprengjugerð á Netinu.
Þrír aðrir menn voru yf-
irheyrðir um tengsl sín við
Gerdt en sleppt að því búnu.
Svo virðist því sem Gerdt hafi
verið einn að verki en lög-
reglan hefur birt mynd af
honum og skorað á fólk að
láta vita hafi það einhverjar
sérstakar upplýsingar um
hann.
Viðurkenna
loks hryðju-
verk
YFIRVÖLD í Jemen viður-
kenndu loks formlega í fyrra-
dag það, sem Frakkar og
Bandaríkjamenn hafa haldið
fram, að sprengingin í
frönsku olíuskipi 6. þessa
mánaðar hafi verið hryðju-
verk.
Rashad al-Eleimi, innanrík-
isráðherra Jemens, sagði
einnig, að ótiltekinn fjöldi
manna hefði verið handtekinn
og fundist hefði húsið þar
sem sprengjan var útbúin.
Var henni komið fyrir í bát,
sem síðan var siglt á skipið.
Varð sprengingin einum
manni að bana en ekki er
ljóst hvort um var að ræða
sjálfsmorðsárás eða hvort
bátnum var fjarstýrt.
STUTT
Finnskum
unglingi
sleppt
Petri Gerdt
debenhams
S M Á R A L I N D
debenhams
klæ›ir flig betur
Morgunbla›i›
26. september 2002