Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. SAMNINGAVIÐRÆÐUR Samson- ar eignarhaldsfélags ehf. og fram- kvæmdanefndar um einkavæðingu um kaup félagsins á 45,8% hlut rík- isins í Landsbanka Íslands voru strangar. Þetta kom fram á blaða- mannafundi sem eigendur Samson- ar eignarhaldsfélags boðuðu til í gær. Þeir sögðu að félagið hefði teygt sig til hins ýtrasta til að koma til móts við ríkið varðandi kaupverð og fleira og að endanlegt kaupverð væri töluvert hærra en upphaflegar hugmyndir félagsins gerðu ráð fyr- ir. Þeir telja þó að báðir aðilar eigi að geta verið sáttir við niðurstöð- una. Eigendur Samsonar eignarhalds- félags eru feðgarnir Björgólfur Guð- mundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson og Magnús Þorsteins- son. Þeir sögðust á blaðamanna- fundinum í gær ekki eiga von á því að starfsfólki Landsbankans eða úti- búa yrði fækkað í kjölfar kaupa fé- lagsins á 45,8% hlut ríkisins í bank- anum. Hagræðingaraðgerðir bank- ans á undanförnum árum hefðu að þeirra mati skilað góðum árangri og að ekki væri hægt að gera miklu meira í þeim efnum. Samson eignarhaldsfélag stefnir að því að efla þjónustu Landsbanka Íslands og fjölga viðskiptavinum bankans, jafnt hér á landi sem er- lendis. Eigendur félagsins telja að bankinn eigi ýmis sóknartækifæri. Kaup bankans á Heritable bankan- um í London séu skýrt dæmi þar um og áhugi sé fyrir því að leita að fleiri slíkum tækifærum. Ný stjórn fyrir áramót Samson eignarhaldsfélag og framkvæmdanefnd um einkavæð- ingu náðu samkomulagi um kaup fé- lagsins á hlut ríkisins í Lands- bankanum síðastliðinn laugardag. Stefnt er að því að skrifað verði undir kaupsamning í desember næstkomandi en kaupverðið er rúm- ir 12,3 milljarðar króna. Í fram- haldinu verði boðað til hluthafa- fundar og ný stjórn bankans verði kjörin á hluthafafundi fyrir áramót. Björgólfur Thor sagði að þeir væru ákaflega stoltir og ánægðir með að hafa verið valdir í það hlut- verk að kaupa mestan hluta ríkisins í Landsbankanum. Þeir gerðu sér ljóst að þessu fylgdi mikil ábyrgð. Framundan væru spennandi tímar við það verkefni að fjölga viðskipta- vinum bankans og þróa og bæta þjónustu hans. Landsbankinn hefði verið banki allra landsmanna til þessa og hann yrði það áfram um ókomin ár. Það væri verkefni Sam- sonar að tryggja að svo yrði. Samson eignarhaldsfélag segir kaupverðið á Landsbankanum í hærri mörkum Hafa ekki áform um að fækka starfsfólki  Ný stjórn/30  Almenn/20 RAGNAR Stefánsson jarðeðlisfræð- ingur segir enga ástæðu til að ætla að skjálftahrinan í Öræfajökli sé fyrirboði eldhræringa á svæðinu. Skjálftahrinan sem hófst fyrir helgi er sú mesta í 10 ár og voru sterkustu skjálftarnir á bilinu 3–3,2 stig á Richter. Sá fyrsti reið yfir um klukkan þrjú aðfaranótt mánudags og í gær urðu tveir með um mínútu millibili, klukkan 17.22 og 17.23. Upptök allra skjálftanna eru undir Vatnajökli, skammt vestan Esju- fjalla. Ragnar segir skjálftasvæðið nátengt eldstöðvakerfi Öræfajök- uls. Á sögulegum tíma hefur Öræfa- jökull gosið árin 1362 og 1722. ,--  %'   &.  % /' %  0 ' %%                  1 ''%%    2 % 3&  Skjálftahrina norðan Öræfajökuls STÖÐ 2 hefur undanfarna tíu daga gert tilraunir með sjón- varpssendingar um gervi- tungl sem ná til alls landsins. Til greina kemur að dreifa sjónvarpsefni Stöðvar 2 með þessum hætti í framtíðinni, ef niðurstöður mælinga lofa góðu, sem næði til allra byggða á landinu, samkvæmt upplýsingum Sigurðar G. Guðjónssonar, forstjóra Norðurljósa. Fyrirtækið er í samstarfi við erlenda gervihnatta- eigendur um þetta verkefni og að sögn Sigurðar er til- gangurinn sá að skoða þá kosti sem eru í boði til að dreifa sjónvarpsdagskrá Norðurljósa á Íslandi á sem ódýrastan hátt. „Ein leiðin er sú að fara upp í gervihnött frá Íslandi og niður aftur og þar með nær sendingin yfir allt landið samkvæmt okkar mælingum. Það er búið að gera mælingar á Vestfjörðum, sem hafa verið erfiðastir vegna legu þeirra hnatta sem sveima hér í kringum jörðina,“ segir hann. Stafræn útsending innan skamms „Þetta er enn á fyrstu stigum en það er alveg ljóst að Norðurljós munu innan ekki mjög langs tíma taka upp stafrænar útsendingar (digital). Það verðum við að gera til þess að fylgja tækninni. Analog-tækni er að hverfa í sjónvarpi og öll okk- ar uppbygging á síðustu árum hefur miðast við að það verði tekin upp stafræn útsending innan ekki langs tíma,“ segir Sigurður G. Guðjónsson, for- stjóri Norðurljósa. Stöð 2 reynir sjónvarps- sendingar um gervi- tungl GRÍÐARLEGT tjón varð í einum mesta húsbruna hérlendis í áratugi þegar eldur kviknaði í húsum við Laugaveg 40 á laugardagskvöld. Tal- ið er að tjónið geti hlaupið á hundr- uðum milljóna króna en verið er að meta það. Íbúðir og verslanir auk vörulagera eyðilögðust í brunanum, en bjarga tókst talsverðum verðmæt- um frá eyðileggingu. Karlmaður á fimmtugsaldri situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa lagt eld að húsunum. Tvö þeirra eru ónýt auk skemmda á fleirum. Lög- reglan handtók manninn skammt frá byggingunum um klukkustund eftir að eldsins varð vart. Hörður Jóhann- esson yfirlögregluþjónn segir að mað- urinn sé ekki íbúi í húsunum, en lög- reglan hyggst skoða skýringar sem hann hefur gefið á ferðum sínum í nánd við byggingarnar. Umræddur maður hefur margoft komið við sögu lögreglunnar. Í húsunum voru bæði íbúðir og verslanir og þykir mesta mildi að ekki skyldi hljótast af manntjón í brunan- um. Allt að 80 slökkviliðsmenn börð- ust við eldinn klukkustundum saman aðfaranótt sunnudags og tókst að ráða niðurlögum hans snemma á sunnudagsmorgun. Þá höfðu fimm íbúðir skemmst verulega í eldinum. Lengi var óttast að hann dreifðist í nærliggjandi hús en slökkviliðsmönn- um tókst að halda honum í skefjum. Flókin húsaskipan Slökkviliðsmenn áttu í erfiðleikum með að átta sig á húsaskipan og full- vissa sig um að enginn væri innan- dyra og olli það þeim miklum áhyggj- um. Unnið var að því að fá yfirlit yfir vettvanginn með því að safna saman upplýsingum frá reykköfurum, lög- reglu og íbúum sem bjargast höfðu út. „Við töldum okkur vera búna að fá upplýsingar um að það væri enginn þarna inni en höfðum samt áhyggjur af því að svo gæti verið. Við vorum í þeirri stöðu að það var orðið ljóst að ef einhver hefði verið þarna inni í bak- húsunum hefði ekki verið hægt að bjarga viðkomandi. Við gerðum okk- ur grein fyrir þeirri stöðu og þetta hvíldi þungt á mönnum þarna um nóttina,“ sagði Birgir Finnsson, fram- kvæmdastjóri útkallsdeildar SHS. Þrettán íbúar húsanna fengu áfallahjálp í gær í Hallgrímskirkju, en áfallahjálp var mjög tilviljanakennd á vettvangi þegar ógnin af eldinum var sem mest. Tveir íbúar vou heima við þegar eldurinn blossaði upp og tókst þeim að flýja út úr brennandi húsun- um. Karlmaður í gæsluvarðhaldi grunaður um íkveikju við Laugaveg Tjónið talið hlaupa á hundruðum milljóna Morgunblaðið/Júlíus Brunasérfræðingar tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík rannsökuðu vettvang á Laugavegi síðdegis á sunnudag til að reyna að finna orsakir brunans.  Eldsvoði/6, 14–15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.