Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Arn-
arfell og Goðafoss koma
í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss kom í gær til
Straumsvíkur.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun
þriðjudaga kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Sam-
söngur í dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.30 dans, kl.
9.30–10.30 Íslandsbanki
á staðnum, kl. 13–16.30
opnar handavinnu og
smíðastofur, kl. 10–16
pútt.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10–11.30 sund,
kl. 13–16 leirlist, kl. 14–
15 dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið er
opið mánu- og fimmtu-
daga. Mánud: Kl. 16
leikfimi. Fimmtud: Kl.
13 tréskurður, kl. 14
bókasafnið, kl. 15–16
bókaspjall, kl. 17–19 æf-
ing kór eldri borgara í
Damos. Laugard: Kl.
10–12 bókband, kl. 11
línudans. Uppl. í síma
586 8014 e.h.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–14 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 10–11 samverustund,
kl. 14 félagsvist.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–16
vefnaður, kl. 10–13 opin
verslunin, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið Furugerði
1. Dansleikur í kvöld kl.
19.30, hljómsveitin Í
góðum gír leikur fyrir
dansi. Veitingar. Allir
velkomnir.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, tré-
skurður, kl. 10 leikfimi,
kl. 12.40 verslunarferð í
Bónus, kl. 13.15–13.45
bókabíllinn, hárgreiðslu-
stofan opin kl. 9–14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagar úr
Akranesfélaginu koma í
heimsókn í Lionshúsið,
Auðbrekku 25–27 laug-
ard. 26. okt. Kvöldverð-
ur og skemmtiatriði.
Veislustjóri sr. Gunnar
Sigurjónsson, Ásgeir
Jóhannesson segir frá,
Vinabandið, Happ-
drætti, dans o.fl. Húsið
opnað kl 19. Þátttak-
endur skrái sig sem
fyrst á þátttökulista sem
eru í félagsheimilunum.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Vetrarfagn-
aðurinn verður í Tónlist-
arskólanum í Garðabæ
24. október kl. 20. Kl. 9
glervinnsla, kl. 10.30
boccia, kl. 11.40 leikfimi
karla, kl. 13 málun, kl.
13.30 tréskurður. Mið-
viku: kl. 9.30, 10.15 og
11.10 leikfimi, kl. 13.30
trésmíði nýtt og notað,
kl. 14 handavinnuhornið
kynning á þrívídd-
armyndum (klippimynd-
um). Fimmtud: kl. 10.30
boccia, kl. 13 leikfimi
karla, málun og búta-
saumur. Föstud: kl. 11
námskeið í skyndihjálp,
kl. 14.15 spænska.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Handa-
vinna kl. 13.30, brids kl.
30 pútt á Hrafnistuvelli
kl. 14–16. Á morgun
miðvikudag tréskurður
kl. 9, myndlist kl. 10–14,
línudans kl. 11, gler-
skurður kl. 13, pílukast
kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Félagið hefur
opnað heimasíðu
www.feb.is . Kaffistofan
er lokuð vegna breyt-
inga í Glæsibæ. Mánud:
Brids kl. 13, dans-
kennsla framhald kl. 19,
byrjendur kl. 20.30.
Þriðjud: Skák kl. 13, al-
kort spilað kl. 13.30.
Miðvikud: Göngu-
hrólfar fara í göngu kl.
10 frá Ásgarði. Söng-
félag FEB kóræfing kl.
17, Línudanskennsla kl.
19.15, söngvaka kl. 20.45
Heilsa og hamingja Ás-
garði laugard. 26.okt. kl.
13. Erindi flytja: Tómas
Helgason skýrir frá
rannsókn sinni um sam-
band heilsu og lífsgæða
á efri árum og Júlíus
Björnsson sálfræðingur
um svefnþörf og svefn-
truflanir aldraðs fólks.
Silfurlínan er opin á
mánu- og miðvikudögum
kl. 10–12. Skrifstofa fé-
lagsins er flutt að Faxa-
feni 12 s. 588 2111. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, m.a. perlusaumur
frá hádegi spilasalur op-
inn, kl. 13 boccia. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575 7720.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga,
handavinnustofan opin
kl. 13–16, leiðbeinandi á
staðnum, kl. 17 línu-
dans, kl. 19 gömlu dans-
arnir.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 glerlist, handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum kl.
10–17, kl. 14 þriðjudags-
ganga og boccia, kl.
17.15 kínversk leikfimi.
Í tilefni alþjóðaviku í
Kópavogi verður fjöl-
þjóðlegur dansdagur í
Gjábakka, Fannborg 8,
24. okt. og hefst með
dagskrá kl. 14. Sýndir
verða ýmsir dansar. Er-
indi um dansinn í tímans
rás flytur Ingibjörg
Björnsdóttir. Dagskráin
er án endurgjalds, allir
velkomnir, Íslenskt
kaffihlaðborð.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun og gler-
skurður, kl. 10 boccia,
kl. 11, leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð, kl. 13
myndlist og hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og boccia, kl. 13
handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaaðgerð-
ir, hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmud: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 10–11
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 14–15 jóga.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9. 15–16
bútasaumur og postu-
línsmálun. kl. 9.15–15.30
alm. handavinna, kl. 13–
16 frjáls spil, brids tví-
menningur. Opið hús
föstud. 25. okt. Dag-
skráin kynnt kl. 14.30,
m.a. sýnd brot úr döns-
um, og unnið að hand-
verki. Frá kl. 13 verður
handverkssala. Veislu-
kaffi, allir velkomnir.
Þriðjud. 29. okt. kl.
13.30 verður Sigrún
Ingvarsdóttir fé-
lagsráðgjafi með
fræðslufund. Nýtt heim-
ili – húsnæði fyrir eldri
borgara. Fyrirspurnum
svarað, kaffiveitingar,
allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl. 13
handmennt, m.a. mós-
aík, kl. 14 félagsvist.
Háteigskirkja eldri
borgara á morgun mið-
vikudag, kl. 11 samvera,
fyrirbænastund og stutt
messa í kirkjunni, allir
velkomnir, súpa í Setr-
inu kl. 12, spil kl. 13.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl. 11.
Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra, Hátúni 12, Opið
hús kl. 20.
Karlakórinn Kátir karl-
ar, æfingar á þriðjud. kl.
13 í Félags- og þjón-
ustumiðstöðinni Árskóg-
um.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í s. 552 6644 á fund-
artíma.
Í dag er þriðjudagur 22. október,
295. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Prédika þú orðið, gef þig að því í
tíma og ótíma. Vanda um, ávíta,
áminn með öllu langlyndi og fræðslu.
(2.Tím. 4)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 lífakkeri, 8 augabragð,
9 starfið, 10 skaut, 11
bardúsa, 13 sjófugl, 15
minnis, 18 gamansemi, 21
blekking, 22 þvo gólf, 23
guð, 24 bandóða.
LÓÐRÉTT:
: 2 báran, 3 ljóð, 4 kúskur,
5 hannyrðir, 6 tak, 7 elsk-
aði, 12 blett, 14 reyfi, 15
vatnsfall, 16 blíða, 17
stöðvun, 18 skíma, 19 í
vafa, 20 bráðum.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 nepja, 4 sauðs, 7 rella, 8 útlát, 9 rám, 11 apar,
13 angi, 14 ýrótt, 15 þarf, 17 akur, 20 sal, 22 elska, 23
jússa, 24 Arnar, 25 neiti.
Lóðrétt: 1 norpa, 2 pilta, 3 agar, 4 skúm, 5 uglan, 6 setti,
10 ámóta, 12 rýf, 13 ata, 15 þrefa, 16 rósin, 18 kassi, 19
róaði, 20 saur, 21 ljón.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
ÞJÓNUSTA og viðmót fyrirtækjavið viðskiptavini er líklega mik-
ilvægara en flest annað. Víkverji hall-
ast að því að í sumum tilvikum geti
þjónustulundin verið mikilvægari en
sú vara sem fyrirtæki hafa á boðstól-
um. Það getur til dæmis átt við þegar
nokkur fyrirtæki bjóða til sölu vörur,
sem eru að flestu leyti sambærilegar
hvað gæði og verð varðar. Fyrri
reynsla af samskiptum við viðkom-
andi fyrirtæki gæti ráðið úrslitum í
slíku tilviki.
Ástæða þess að Víkverji veltir
þessu fyrir sér er að hann hefur upp á
síðkastið fengið mjög góða þjónustu
hjá nokkrum fyrirtækjum.
Þurrkari á heimili Víkverja bilaði á
dögunum og varð ekki hjá því komist
að hafa samband við þjónustuverk-
stæði viðkomandi fyrirtækis til að
reyna að kippa því í lag. Víkverji kveið
nokkuð öllu því veseni sem útrétting-
ar af þessu tagi krefjast stundum,
ekki síst þar sem þurrkarinn myndi
vart rúmast í fjölskyldubílnum. Hann
sá því fram á að þurfa að panta sendi-
bíl, vera á staðnum þegar bíllinn
kæmi og fylgja honum síðan á verk-
stæðið til að geta gert upp við bílstjór-
ann og rætt við menn á verkstæðinu.
Það sama myndi svo væntanlega taka
við þegar verkstæðið hefði loks lagað
tækið.
Þegar Víkverji hringdi á verkstæð-
ið var hann fyrst beðinn um að lýsa
því sem væri að og síðan spurður
hvort hann hefði tök á að koma þurrk-
aranum á staðinn. Víkverji sagði að
það gæti nú orðið flókið og var þá
spurður hvort hann vildi ekki að
þurrkarinn yrði sóttur og hvenær
myndi henta að láta sækja hann. Bíl-
stjóri á vegum fyrirtækisins kom síð-
an á staðinn, tók þurrkarann og flutti
á brott. Nokkrum dögum síðar var
hringt í Víkverja, sagt að þurrkarinn
væri tilbúinn úr viðgerð og hvort að
það myndi henta að fá hann sendan
heim á tilteknum tíma.
Þótt að sjálfsögðu hafi þurft að
greiða fyrir flutninginn gerði þetta
viðmót fyrirtækisins í garð viðskipta-
vinarins að verkum að Víkverji mun
vafalítið leita þangað aftur næst þeg-
ar þarf að kaupa einhver heimilistæki.
x x x
EITT þeirra „heimilistækja“ semyfirleitt þarf að sinna reglulega
og fara með á verkstæði er heimilis-
bíllinn. Þótt hann bili ekki þarf að láta
skoða hann, skipta um olíu, dekk og
ýmislegt annað. Flestir þekkja vænt-
anlega hversu óþægilegt og erfitt get-
ur verið að fella slíka hluti inn í vinnu-
daginn, ekki síst þar sem maður
verður að sjá af ökutækinu á meðan
og oftar en ekki eru bifreiðaverkstæði
í úthverfum borgarinnar.
Nú fyrir skömmu var nýleg bifreið
Víkverja komin upp að ákveðnum
kílómetramörkum og þurfti því að
fara með hana í þjónustueftirlit, en
það er skilyrði ef ábyrgð bifreiðarinn-
ar á að haldast í gildi. Víkverji var
mættur snemma um morguninn og
var spurður hvort hann vildi hinkra á
meðan, þetta ætti ekki að taka nema
um hálftíma eða svo. Þar sem Víkverji
varð að mæta á fund varð hann hins
vegar að halda á skrifstofuna með
leigubíl og sagðist því koma aftur inn-
an skamms. Þegar aftur var komið á
verkstæðið um tveimur klukkustund-
um síðar reyndist bifreiðin ekki vera
tilbúin. Umsvifalust var hann hins
vegar beðinn velvirðingar og afhentir
lyklar að annarri bifreið í eigu um-
boðsins og tjáð að hann gæti notað
hana yfir daginn og komið aftur þegar
hann vildi. Þetta gerði að verkum að
Víkverji var ekkert að pirra sig á því
að bifreiðin var ekki tilbúin og upp úr
stendur þessi þjónustulund starfs-
manna umboðsins.
Í SÍÐUSTU viku í þættin-
um Ísland í bítið á Stöð 2 var
Jóhannes í Bónus fenginn til
þess að ræða um matvöru-
verð.
Umræðan byrjaði mjög
vel og á rólegu nótunum,
þar til Jóhanna fór að halda
því fram að það væri ekki
ódýrt að versla í Bónus.
Ég verð að segja, að mað-
ur trúði ekki sínum eigin
augum. Ég á móður sem er
83 ára og tengdamóður sem
er 76 ára og ég fer vikulega
með þær í Bónus eingöngu
vegna þess að þar er, og það
vita allir, ódýrast að versla.
Málið hjá Jóhönnu snerist
um verð á ananas. Hvað
með það þótt ananas sé dýr-
ari í Bónus en í öðrum versl-
unum, við höfum farið víðar
til að athuga með verð, en
alltaf endað í Bónus. Það
væri gaman að vita hvar Jó-
hanna fær ódýrari ananas,
og hvar hún verslar yfirleitt.
Þvílíkan dónaskap og van-
þekkingu sér maður ekki í
sjónvarpi. Persónulega ætti
hún að biðja þetta gamla
fólk afsökunar, sem er með
46–75 þúsund kr. á mánuði
til að lifa af. Bónus er og hef-
ur verið ódýrastur hér á
markaðnum síðan fyrirtæk-
ið tók til starfa.
Af hverju vildi enginn tala
við mig á Stöð 2 þegar ég
hafði samband við þá og
nefndi erindið? Það var bara
skellt á mig. Ég skildi eftir
skilaboð, en það var ekki
tekið mark á því.
Svo er annað, hvað kemur
ykkur Jóhönnu og Þórhalli
við hvað Bónusmenn gera
við sinn gróða? Þeir hafa
verið að styrkja einstak-
linga, en það er ekki minnst
á það. Jóhannes, þakka þér
fyrir það sem þú hefur gert
til að lækka og halda vöru-
verði í lágmarki, hafðu þús-
und þakkir fyrir. Jóhanna,
ég er tilbúin að fara með þér
að versla, en verð að taka
það skýrt fram að ég hef
ekki úr miklu að moða.
Að lokum vil ég segja eitt,
og það er til sjónvarpsstjóra
Stöðvar 2: Þú skellir ekki
símanum á fólk ef þú getur
ekki svarað, það er helber
dónaskapur. Ég greiði
áskrift og hef fullan rétt á að
láta ykkur vita ef mér mis-
líkar eitthvað. Það væri
kannski ágætt að Jóhanna
svaraði þessari gagnrýni.
Kt. 190952-4019.
Tapað/fundið
Akureyringar
athugið
FRÁ Giljaskóla hvarf hjól.
Það er nýtt silfurlitt Moon-
goose-fjallahjól. Einnig var
tekið þaðan hlaupahjól sem
er merkt að neðan Hrafn.
Einnig tapaðist ný sandgolf-
kylfa á golfvellinum og hún
hefur ekki skilað sér. Ef við
erum svo heppin að einhver
hafi tekið þetta í sína vörslu
og viti ekki hvert á að skila
þessum munum, þá vinsam-
lega hafið samband við Haf-
dísi í síma 821 3655.
Perluarmband
tapaðist
PERLUARMBAND með
gylltum lás tapaðist fyrir
stuttu, sennilega í Garðabæ.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 554 1313.
Dýrahald
Kanína óskast
KANÍNA og búr óskast á
gott heimili. Einnig kven-
kyns naggrís. Vinsamlegast
hafið samband í síma
867 0797.
Pjakkur er týndur
PJAKKUR er fimm mán-
aða bröndóttur kettlingur.
Hann hvarf frá Hjálmholti
miðvikudaginn 16. október
sl. Hann er inniköttur og
hans er sárt saknað. Pjakk-
ur er ómerktur. Ef einhver
hefur orðið hans var eða veit
hvar hann er niðurkominn,
vinsamlegast hafið samband
við Heiðu Kristínu í síma
581 3304, 849 0992 eða
868 6614.
Vala er týnd
KISAN okkar hún Vala fór
að heiman miðvikudags-
morguninn 16. október sl.
frá Goðheimum og hefur
ekki sést síðan. Hún er svört
með hvítan smekk og hosur.
Vala er með bleika ól og 2
bjöllur sem heyrist vel í.
Hún er einnig eyrnamerkt.
Vala er 1⁄4 síamsköttur og
mjálmar því hressilega svo
það ætti að heyrast í henni
sé hún lokuð einhvers stað-
ar inni. Þeir sem verða
hennar varir eru vinsamleg-
ast beðnir að hafa samband í
síma 581 2037 eða 691 2806.
Það þarf varla að taka fram
að hennar er sárt saknað.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Ísland í bítið