Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 49
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 49
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu
sætunum til Prag þann 28. okt. Þú bókar 2 flugsæti, en greiðir aðeins fyrir
1 og getur kynnst þessari fegurstu
borg Evrópu á einstökum kjörum.
Þú getur valið um úrval góðra hótela
í hjarta Prag og að sjálfsögðu nýtur
þú traustrar þjónustu fararstjóra
Heimsferða í Prag allan tímann.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 2.900
Verð fyrir mann, m.v. 2 í herbergi,
Parkhotel, per nótt með morgunmat.
Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Síðustu sætin
2 fyrir 1 til
Prag
frá kr. 19.250
28. október
Verð kr. 19.250
Flugsæti til Prag, út 28. okt, heim 31. okt.
31.400/2 = 15.700 + 3.550 = 19.250.
Almennt verð með sköttum.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl.
10–14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Byrj-
að á kaffisopa og kl. 10.30 er boðið upp á
skemmtigöngu um Laugardalinn eða upp-
lestur úr góðum bókum fyrir þá sem ekki
treysta sér í gönguna. Bæna- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Fólk sem býr eða starfar í
sókninni er hvatt til að koma og eiga kyrrð-
arstund í önnum dagsins. Fyrirbænum má
koma til starfsfólks kirkjunnar. Að lokinni
bænastund gefst þátttakendum kostur á
léttum hádegisverði. Opinn 12 spora fund-
ur í kvöld kl. 19.
Bústaðakirkja. TTT- æskulýðsstarf fyrir
10–12 ára kl. 17.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur málsverður að
samverustund lokinni.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Laugarneskirkja. Kl. 20 Fullorðinsfræðsla
Laugarneskirkju. Bjarni Karlsson sóknar-
prestur heldur annað erindið af tólf um við-
fangsefni lífsins í ljósi Biblíulegrar trúar.
Síðast var fjallað um þjáninguna, nú verður
talað um gleðina. Engin skráning. Þægilegt
að vera með. Gengið inn um dyr á aust-
urgafli kirkjunnar. Kl. 21 þriðjudagur með
Þorvaldi. Lofgjörðarstund þar sem Þorvald-
ur Halldórsson leiðir söng við undirleik
Gunnars Gunnarssonar, en sóknarprestur
flytur Guðs orð og bæn. Kl. 21.30 Fyrir-
bænaþjónusta við altarið í umsjá Margrétar
Scheving og bænahóps kirkjunnar.
Neskirkja. Litli kórinn – kór eldri borgara kl.
16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Allir
velkomnir. Alfa-námskeið kl. 19. Umsjón
sr. Örn Bárður Jónsson. Foreldramorgunn
miðvikudag kl. 10–12. Traustur grunnur,
hugleiðing: Sr. Örn Bárður Jónsson.Umsjón
Elínborg Lárusdóttir.
Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgunn kl.
10. Kirkjuprakkarar (7–9 ára) kl. 16. Kirkju-
starf TTT (10–12 ára) kl. 17.30.
Óháði söfnuðurinn. Tólf sporin - andlegt
ferðalag. Fyrsti sporafundur í lokuðum hóp-
um í kvöld kl. 18.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnað-
arheimilinu kl.10–12. Hittumst, kynnumst,
fræðumst. kl. 16.15–17.15 STN-starf fyrir
7–9 ára börn.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með
altarisgöngu kl.18.30. Bænaefnum má
koma til sóknarprests í viðtalstímum hans.
Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra. Hefst
kl. 11:15 með leikfimi ÍAK. Léttur máls-
verður. Helgistund í umsjá sr. Írisar Krist-
jánsdóttur. Samverustund í umsjá heima-
manna. Kaffiveitingar. KFUM & KFUK í
Digraneskirkju fyrir 10–12 ára krakka kl.
17–18:15. Fræðslusalur opinn fyrir leiki frá
16:30. Unglingakór Digraneskirkju kl. 17–
19. ALFA-námskeið kl. 19.00. Kvöldverður,
fræðsla, umræðuhópar. Kennari sr. Magn-
ús B. Björnsson. (www.digraneskirkja.is)
Fella- og Hólakirkja Fjölskyldustund kl.
10–12 í umsjón Lilju, djákna í safnaðar-
heimilinu. Stefanía guðbergsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur frá Heilsugæslunni í Efra-
Breiðholti kemur og svarar fyrirspurnum for-
eldra ungra barna. Kaffi og notalegheit þar
sem heimavinnandi foreldrar hittast í góðu
umhverfi kirkjunnar. Starf fyrir 11–12 ára
stúlkur kl. 16.30.
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borg-
ara kl. 13.30–16. Helgistund, handavinna,
spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf eitt-
hvað gott með kaffinu. Æskulýðsfélag fyrir
unglinga í 8. bekk í Rimaskóla kl. 20–22.
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10.
bekk í Grafarvogskirkju kl. 20–22.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er í Hjalla-
kirkju kl. 9.15–10.30. Umsjón: Sigurjón
Árni Eyjólfsson. Bæna- og kyrrðarstund
kl.18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag kl.
10–12 í safnaðarheimilinu Borgum.
Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús
milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall. Æskulýðs-
fundur fyrir 13 ára unglinga kl. 20.
Óháði söfnuðurinn.
Fríkirkjan í Reykjavík Kyrrðarstund klukk-
an 12 Í kapellu kirkjunnar á Laufásvegi 13
annari hæð. Sérstök áhersla er lögð á bæn
og íhugun. Koma má bænarefnum á fram-
færi áður en bænastund hefst eða með því
að hringja í síma 552 7270 Allir velkomnir
til þátttöku.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara í
safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13–16 á
vegum kirkjunnar. Spilað og spjallað. Helgi-
stund kl. 16. Fjölbreytt æskulýðsstarf fyrir
9–12 ára stúlkur í safnaðarheimilinu Kirkju-
hvoli kl. 17.30–18.30 í umsjón KFUK.
Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára
börn í dag kl. 17.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn frá kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7–9
ára börn kl. 16.30–18. Æskulýðsstarf 8.
og 9. bekkur kl. 20–22.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15
Kirkjuprakkara, 6–8 ára krakkar í kirkjunni.
Vináttudagur. Sr. Þorvaldur Víðisson og
leiðtogarnir.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúningur í
Kirkjulundi kl. 4.30-15.10, 8.B í Holtaskóla
og 8. I.M. í Myllubakka. Kl. 15.15-15.55,
8.A í Holtaskóla og 8. B í Myllubakkaskóla.
Áfallahjálp og sorgarvinna í minni sal Kirkju-
lundar kl. 20.30
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Hveragerðiskirkja. Foreldramorgnar þriðju-
dagsmorgna kl. 10–11.30.
Borgarneskirkja. TTT tíu–tólf ára starf alla
þriðjudagakl. 17–18. Helgistund í kirkjunni
sömu daga kl. 18.15–21.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl.
13.40.
Krossinn. Almenn samkoma kl.20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
KEFAS, Vatnsendabletti 601. Bænastund
kl. 20.30. Allir velkomnir.
Aðaldeild KFUK. Enginn fundur í kvöld.
Sameiginlegur fundur með KFUM á fimmtu-
dag. Þar fjallar dr. Salvör Nordal siðfræð-
ingur um friðhelgi einkalífsins. Árni Gunn-
arsson syngur einsöng. Sr. Guðlaug Helga
Ásgeirsdóttir flytur hugleiðingu. Félagar úr
deildunum á Akranesi og í Keflavík koma í
heimsókn. Konur og karlar verið velkomin
og takið með ykkur gesti.
Safnaðarstarf
BRÉF TIL BLAÐSINS
NÚ ÞEGAR stjórnmálamenn fara
að finna sér mál er þeir halda að dugi
sér best til framdráttar í kosning-
unum í vor er öllu tjaldað til. Ekki
eru allir vandir að virðingu sinni um
hvað þeir haldi að muni duga sér
best. Nú hafa tveir flokkar, Samfylk-
ingin og Framsóknarflokkurinn,
gengið lengra en aðrir í hugmyndum
sínum að inngöngu í ESB. Samfylk-
ingin hefur það sem næst á stefnu-
skrá sinni hvað sem tautar. Það er
alveg sama hvaðan koma fréttir frá
ESB um að bandalagið sé ekki til
viðræðu um stefnubreytingu í sjáv-
arútvegsmálum sambandsins, samt
berja þessir flokkar hausnum við
steininn. Þeir reyna að blekkja með
alls konar látbrögðum kjósendur og
telja þeim trú um að sambandið sé
tilbúið að bjóða okkur sérkjör, þó
kannski sé það tilbúið að semja um
einhverja hungurlús á meðan verið
er að veiða okkur með okkar verð-
mætu fiskimið undir stjórn þeirra í
Brussel.
Það er alveg sama þó ónefndur
framsóknarmaður, sem ekki þorir að
setja nafnið sitt undir bréf til mín,
sendi mér fleiri svona bréf, ég kvika
ekki frá því að þessir tveir áður-
nefndu flokkar eru tilbúnir að afsala
sér landhelginni til höfðingjanna í
Brussel, hvort sem það er tíu árum
seinna eða fyrr. Hverjir hafa nær út-
rýmt öllum fiski í Eystrasalti, Katte-
gat, Norðursjó, á Bretlandsmiðum,
við Svíþjóð, miðum Þjóðverja og
Frakka? Þrátt fyrir hávær mótmæli
þeirra fiskveiðiþjóða sem eiga um-
rædda „landhelgi“ að sjálfsögðu eru
þetta þær þjóðir sem eru í ESB og
eira engu meðan bein fæst úr sjó. Ég
skrifaði fyrir einu ári eða svo grein í
Morgunblaðið sem hafði yfirskrift-
ina „Til hvers var þá barist“. Ég
stend við það að hetjur okkar frá
landhelgisstríðunum eiga svo sann-
arlega skilið annað en að við afsölum
sjálfstæði okkar í fiskveiðum til
Brussel.Við sem byggjum hina ein-
stöku eyju Ísland og mælumst nær
ríkasta þjóð veraldar eigum að eiga
gott samband við sem flestar þjóðir
en við megum aldrei stofna sjálf-
stæði okkar í voða. Við höfum enga
vinnu fyrir þjóðir ESB en með inn-
göngu okkar í sambandið væri þeim
þjóðum leyfilegt að ganga að vinnu
hér eins og okkur hjá þeim. Gallinn
er bara sá að atvinnuleysi í löndum
ESB er allt að 20%.
Margir af hörðustu stuðnings-
mönnum þess að ganga í sambandið
hafa vitnað í samning er Malta gerði
við ESB. Malta fær að halda land-
helgi sinni í nokkur ár en síðan flyst
stjórn fiskveiða Möltu til Brussel. Ís-
lendingar ætla að byggja þetta land
og lifa á fiski sem öðru miklu lengur
en í tíu til tuttugu ár.
Ég veit ekki hvort almenningur
gerir sér nægilega grein fyrir því
hvað við eigum mikið undir fiskveið-
unum, gjaldeyristekjur okkar af
sjávarútvegi eru núna rúmlega
hundrað milljarðar. Auk þess er
þetta stærsti atvinnuvegur okkar og
dreifður um allar byggðir landsins.
Að Halldór Ásgrímsson hafi aldrei
talað um að við athuguðum aðild að
ESB, eins og huldumaður framsókn-
ar skrifar til mín, er þvæla, þetta vita
allir þeir sem fylgjast með fjölmiðl-
um. Ég hef ekki lagt það í vana minn
að deila við menn sem þora ekki að
gefa upp nafn sitt og mun ekki
bregða út af þeirri reglu.
KARL ORMSSON,
fv. deildarfulltrúi.
Berjumst fyrir sjálfstæði
okkar í fiskveiðum sem öðru
Frá Karli Ormssyni:
ER ÉG gluggaði í Morgunblaðið
þann 17. okt. síðastliðinn sá ég grein
þar sem umboðsmaður barna gagn-
rýnir ummæli Péturs H. Blöndal um
að setja eigi í barnalög að barn skuli
hlýða foreldrum sínum. Ég er sam-
mála því að varla sé ástæða til þess að
setja það í barnalög meðan það er svo
margt annað í lögum og reglugerðum
sem er misnotað. Staðreyndin er sú
að meðlög eru greidd með 12–13 þús.
börnum á Íslandi sem þýðir að börn
sem alast upp hjá öðru kynforeldri
hafa trúlega sama fjölda.
Því miður þá verða oft miklar deil-
ur við aðskilnað foreldra um um-
gengni barna við það foreldri er ekki
fer með forsjá. Sameiginleg forsjá
breytir engu í þvílíkum tilvikum þar
sem sá aðili ræður er hefur lögheimli
barns hjá sér.
Þegar mál þróast þannig kemur til
kasta þeirra er úrskurða um umgegni
barns við foreldri sitt. Sýslumanns-
embættin sjá um að úrskurða og hafa
hefðir myndast hjá þeim aðilum.
Flestir þekkja þessar hefðir, önnur
hver helgi, ákveðinn hluti sumarfría,
aðrir hverjir páskar en aldrei yfir
jólahátíðina.
Að mínu áliti gerir þessi tímaskort-
ur og úthlutun tíma foreldrinu gríð-
arlega erfitt fyrir að vera hluti af
uppeldinu. Einungis er um frítíma að
ræða þar sem erfitt er um vik að
halda þeim daglegu reglum sem börn
þurfa á að halda. Fyrir foreldra sem
búa á sama svæði væri auðvelt að
hafa skiptinguna jafnari þannig að
báðir foreldrar tækju þátt í alvöru
lífsins og barnið fengi réttar fyrir-
myndir af báðum foreldrum sínum og
um leið hlutverki beggja kynja.
Ekki held ég að mikil breyting hafi
orðið á síðustu áratugum því ennþá
eru konur með forsjá eða lögheimili
barns hjá sér í 93% tilvika. Hér á höf-
uðborgarsvæðinu starfa einungis
konur við úrskurði umgengnisréttar
hjá sýslumannsembættinu og ef kært
er til dómsmálaráðuneytis (sam-
kvæmt mínum upplýsingum) þá
starfa þar líka einungis konur (jafn-
réttisstefna sveitarfélaga og ríkis í
hnotskurn).
Ég vil taka það fram að engin lög
segja til um lágmarksumgengni
barns við foreldri sitt og hafa úr-
skurðaraðilar algjört vald yfir því hve
mikil umgegni fer fram og hvernig
henni er háttað. Þetta er ótrúlegt
vald fyrir löglærða manneskju sem
hefur enga uppeldismenntun eða
jafnvel reynslu af börnum enda geta
úrskurðir verið jafn misjafnir og þeir
eru margir. Eitt er þó sameiginlegt
með öllum úrskurðum, það tekur
embættið ávallt marga mánuði að
kveða þá upp.
Mín skoðun er sú að ef betra jafn-
vægis yrði gætt væri það stórt jafn-
réttisskref fyrir konur sem myndi
færa þeim aukið svigrúm á vinnu-
markaði. Vinnuveitendur þyrftu að
reikna með karlmönnum heima þeg-
ar börnin veiktust og tækju frí til að
fara á foreldrafundi og þess háttar.
Hvað er betra í baráttunni um jöfn
laun kynjanna?
Að lokum vil ég hvetja alla karl-
menn til þess að taka virkari þátt í
uppeldi og daglegu lífi barna sinna,
karlmaður er jafn mikilvægur fyrir
börnin og konur.
Enda ég þetta á orðum umboðs-
manns barna til Péturs H. Blöndal:
Þetta minnir mann bara á viðhorf til
barna á síðustu öld og jafnvel enn aft-
ar.
OTTÓ SVERRISSON,
Þrastarási 75, Hafnarfirði.
Umgengni barna
við forsjárlausa
foreldra
Frá Ottó Sverrissyni: SEGJUM sem svo að ég eigi stóran
garð og mig langaði að byggja þar
stórt hótel. Ég veit að ég fæ
kannski ekki byggingarleyfi fyrir
slíku. En ég er nógu frek og byrja
samt á framkvæmdunum. Væntan-
lega kemur þá einhverntíma ein-
hver sem gerir athugasemdir við
þetta og krefst að framkvæmdunum
verði hætt og það sem komið er
verði fjarlægt. Þá segir ég að þetta
hafi nú þegar kostað mig offjár og
ég verði að klára dæmið svo ég fari
ekki á hausinn.
Nú spyr ég: þekkir einhver dæmi
um slíkt? Ó, já, þetta er einmitt
núna að gerast á okkar blessaða
landi. Fyrirtæki sem kallar sig
Landsvirjun er í stórframkvæmdum
á Austurlandi án þess að það sé bú-
ið að gefa út endanlegt leyfi. Þarna
virðist vera allt klappað og klárt
bak við tjöldin, réttu mennirnir á
réttum stöðum nudda saman lófum í
von um skjótfenginn gróða. Og lík-
lega er þörf á því að hafa hraðan á.
Það er stutt í næstu kosningar, ál-
verðið er stöðugt að hrapa og stór-
iðjuloftbólan má ekki springa of
snemma.
Með lögum skal land byggja, en
hér gilda önnur lögmál: Jón er
greinilega ekki séra Jón, sumir eru
jafnari en aðrir og ef lögbrot eru
framin í nógu stórum stíl þá fá þau
að viðgangast.
ÚRSÚLA JÜNEMANN,
Arnartanga 43, Mosf.
Með lögum
skal land
byggja
Frá Úrsúlu Jünemann:
Rósar eðal línan
Dag, nætur, raka, maski,
nuddolíur og lotion.
Þumalína Skólavörðustíg 41