Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 27
„EF að eitthvað á að ganga vel,
gerðu það þá bara sjálfur.“ Þessa
ágætu setningu hafa félagar í leik-
hópnum Hugleik gert að sínum ein-
kunnarorðum nú þegar þeir ráðast í
uppsetningu á nokkrum einþáttung-
um þar sem höfundar, leikstjórar,
leikarar jafnt sem aðrir sem að sýn-
ingunum standa koma allir úr röðum
félagsmanna í Hugleik. Þeir Hug-
leikarar hafa tekið Kaffileikhúsið á
leigu tvö kvöld í mánuði fram að jól-
um og undir titilinum „Þetta mán-
aðarlega“ frumsýna þeir nokkra ein-
þáttunga saman á einni sýningu – og
er hver sýning aðeins sýnd tvisvar
(og ef marka má frumsýningu munu
eflaust færri áhorfendur komast að
en vilja).
Fyrstu verkin voru frumsýnd á
mánudag í liðinni viku og voru sýndir
saman fjórir stuttir einþáttungar og
einn lengri eftir samtals fjóra höf-
unda. Fyrstu tvö verkin voru eftir
Fríðu Bonnie Andersen, fyrst ein-
leikurinn Um ástina, þar sem Jón E.
Guðmundsson lék undir stjórn Þor-
geirs Tryggvasonar, og síðan ein-
þáttungurinn Ég elska þessa þögn,
þar sem Jóhann Hauksson, Einar
Þór Einarsson og Jón Örn Bergsson
léku undir stjórn Sævars Sigurgeirs-
sonar. Leikstjórarnir, þeir Þorgeir
og Sævar, eru aðdáendum Hugleiks
vel kunnir sem tveir af höfundar-
þríeyki sem saman hefur skrifað
einkar skemmtileg leikverk á borð
við Bíbí og blakan og Höfuðið af
skömminni (sá þriðji er Ármann
Guðmundsson). Þorgeir hefur einnig
mikla reynslu í leikstjórn, en hann
hefur leikstýrt hjá ýmsum áhuga-
leikfélögum á undanförnum árum.
Einþáttungarnir tveir eftir Fríðu
Bonnie Andersen voru báðir stuttir
og fremur einfaldir, í raun og veru
var um stutta „brandara“ að ræða í
báðum tilvikum – afar ólíka þó.
Fyrra verkið, Um ástina, var vel
skrifað eintal sem Jón E. Guðmunds-
son flutti með ágætum og voru enda-
lokin óvænt og snjöll. Síðara verkið,
Ég elska þessa þögn, var á hinn bóg-
inn hvorki fugl né fiskur og getur
varla talist góður brandari heldur.
Greinilegt var þó að bæði leikarar og
áhorfendur skemmtu sér ágætlega
meðan á leiknum stóð.
Sambekkingar, eftir Þórunni Guð-
mundsdóttur, lýsir þremur einstak-
lingum sem hittast af tilviljun og
ræða saman um stund og var per-
sónusköpun allra þriggja skýr og
skemmtileg hjá þeim Sigurði H.
Pálssyni, Þorbjörgu Björnsdóttur og
Hrefnu Friðriksdóttur. Síðasta
verkið fyrir hlé, Þú segir ekki, eftir
Hrefnu Friðriksdóttur, var sniðugur
leikur með tungumálið og þann mis-
skilning sem upp getur risið á milli
tveggja persóna sem tala ólíkt
tungumál, þótt báðir tali „íslensku“.
Eftir hlé var síðan leikið lengsta
verkið, Í húsinu, eftir Sigrúnu Ósk-
arsdóttur, sem var einn höfunda
rómaðrar Hugleikssýningar sem
nefndist Sálir Jónanna og sýnd var
fyrir fáeinum árum í Möguleikhús-
inu. Þetta verk var satt að segja bæði
bráðskemmtilegt og athyglisvert og
væri gaman ef höfundur þróaði það
áfram í leikrit í fullri lengd. Hér er
um að ræða lýsingu á nokkrum ein-
staklingum sem búa undir sama þaki
og hafa allir sína sögu að segja (verk-
ið er í raun saman sett af nokkrum
eintölum). Persónulýsingar höfund-
ar eru bæði trúverðugar og forvitni-
legar og textinn vel skrifaður, húm-
orískur og hnitmiðaður. Hér er sagt
frá sveitastúlkunni Kapítólu sem
eignaðist barn í lausaleik unglingur
að aldri, flutti til Ameríku giftist þar
og eignaðist fleiri börn, flutti aftur
heim til Íslands með sínum ágæta
manni sem fór að vinna í fiskvinnslu
en þoldi illa íslenska slorið. Þá er
sagt frá Pétri föður hennar á tíræð-
isaldri og nágrannahjónunum,
Sveini og Guðrúnu. Áhorfendur fá
góða innsýn inn í líf og karakter
hverrar persónu og óvænt tengsl
þeirra á milli. Helga Sveinsdóttir og
Jónína Björgvinsdóttir skiptu hlut-
verki Kapítólu á milli sín og nutu sín
báðar vel þótt leikstíll þeirra væri
ólíkur. Gísli Björn Heimisson var
skemmtilegur í hlutverki Péturs
gamla sem saknar látinnar eigin-
konu sinnar og sveitarinnar. Sigurð-
ur H. Pálsson túlkaði sjómanninn
Svein með sóma, en hann á í hálf-
gerðri tilfinningakreppu útaf dular-
fullu bréfi sem honum hefur borist
frá Ameríku frá ungum manni sem
kveðst vera sonur hans (og Kapít-
ólu). Fríða Bonnie Andersen var ein-
faldlega frábær í hlutverki hinnar
heimavinnandi eiginkonu hans, Guð-
rúnar, sem er allt í öllu, mikil vel-
gjörðarmanneskja og hjálparhella í
þorpssamfélaginu. Utan um þessa
skemmtilegu heild halda þær Sess-
elja Traustadóttir og Hafdís Hans-
dóttir og geta verið stoltar af.
Óhætt er að fullyrða að fáum mun
leiðast á „Hinu mánaðarlega“ hjá
Hugleik á komandi mánuðum, því
þótt verkin séu kannski ekki öll full-
mótuð listaverk, leikurinn ef til vill
ekki alltaf hnökralaus og textinn
komist ekki alltaf óbrenglaður til
skila, þá er leikgleðin því meiri og
slíkt smitar auðveldlega frá sér út til
áhorfenda.
Hugleikarar skemmta
sér og öðrum
LEIKLIST
Hugleikur
Um ástina og Ég elska þessa þögn, eftir
Fríðu Bonnie Andersen. Sambekkingar,
eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Þú segir
ekki, eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Í húsinu,
eftir Sigrúnu Óskarsdóttur. Leikstjórar:
Þorgeir Tryggvason, Sævar Sigurgeirs-
son, Fríða Bonnie Andersen, Sesselja
Traustadóttir og Hafdís Hansdóttir. Leik-
arar: Jón E. Guðmundsson, Jóhann
Hauksson, Einar Þór Einarsson, Jón Örn
Bergsson, Sigurður H. Pálsson, Þorbjörg
Björnsdóttir, Hrefna Friðriksdóttir, Hrafn-
hildur Brynjólfsdóttir, Þórunn Harðar-
dóttir, Helga Sveinsdóttir, Jónína Björg-
vinsdóttir, Gísli Björn Heimisson og Fríða
Bonnie Andersen. Leikmynd Í húsinu:
Hanna Hallgrímsdóttir og Jón E. Guð-
mundsson. Lýsing: Gunnar Gunnarsson.
Kaffileikhúsið 14. október
ÞETTA MÁNAÐARLEGA
Soffía Auður Birgisdóttir
Nýr lífsstíll
Skráðu þig í Broste klúbbinn - bergis.is