Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 41
✝ Anna Hjálmars-dóttir fæddist í
Reykjavík 2. júní
1927. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans, Landa-
koti, föstudaginn 11.
október síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Kristín
Ingimarsdóttir, ætt-
uð úr Eyjafirði, f.
26. ágúst 1895, d. 3.
september 1984, og
Hjálmar Þórður
Jónsson, frá Stokks-
eyri, f. 26. mars
1905, d. 2. sept. 1977. Systkini
Önnu eru Aðalsteinn, f. 7. nóv-
ember 1930, og Guðbjörg Jóna,
f. 23. nóvember 1939.
Börn Önnu með unnusta sín-
um og sambýlismanni, Leifi Jón-
assyni frá Ísafirði, eru tvö: 1)
Kristín, f. 1. desember 1944, gift
Einari H. Esrasyni, þau eiga
fjögur börn og eru þrjú á lífi.
Þau eiga þrjú barnabörn. 2)
Gunnar, f. 7. nóvember 1946.
Gunnar var ættleiddur af hjón-
um á Dalvík, þeim Rannveigu
Stefánsdóttur og Stefáni Hall-
grímssyni, og ólst þar upp. Anna
og Leifur slitu samvistir.
Hinn 5. júní 1948 giftist Anna
Árna Sigurgeirssyni frá Eyrar-
landi í Eyjafirði, f. 27. mars
1925, d. 12. febrúar 1973. Árni
gekk Kristínu dóttur Önnu í föð-
urstað og ættleiddi hana. Anna
og Árni eignuðust fjögur börn:
1) Stúlka, andvana
fædd 1949, 2) Ein-
ar, f. 26. júní 1950,
kvæntur Ástu
Bjarnadóttur, þau
eiga þrjár dætur og
þrjú barnabörn, 3)
Sigurgeir, f. 25.
apríl 1956, kvæntur
Marnhild H.
Kambsenni, þau
eignuðust þrjú börn
og eru tvö á lífi og
eitt barnabarn, 4)
Jón Örn, f. 4. mars
1964, kvæntur Jónu
L. Arnardóttur, þau
eiga saman tvær dætur. Jón Örn
á tvær dætur frá fyrri sambúð.
Anna giftist 6. október 1974
Baldvini Magnússyni, f. í Með-
allandi í V-Skaftafellssýslu 20.
febrúar 1923, d. 24. maí 1998.
Anna ólst upp í foreldrahús-
um í Reykjavík og að loknu
skyldunámi stundaði hún ýmis
störf við léttan iðnað og fleira.
Þau Árni bjuggu í fyrstu á Ak-
ureyri, en árið 1955 fluttist fjöl-
skyldan til Reykjavíkur. Anna
og Baldvin bjuggu allan sinn bú-
skap í Árbæjarhverfi í Reykja-
vík og þar störfuðu þau bæði,
hann hjá Skeljungi við bensín-
afgreiðslu o.fl., hún við bað-
vörslu í Árbæjarskóla frá 1973
þar til hún lét af störfum fyrir
aldurs sakir haustið 1997.
Útför Önnu verður gerð frá
Árbæjarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku amma, eftir allt sem á
undan er gengið er hvíldin loks
komin. Ég á þér svo margt að
þakka en þó mest er það fyrir
hann Baldvin afa. Þetta er einnig
til minningar um hann.
Það eru ófáir dagarnir sem ég
var hjá ykkur sem barn og ég held
að þá hafi ég verið stoltasta stelp-
an í Rofabænum. Það átti enginn
eins stórkostlega ömmu og afa.
Ömmu sem þerraði tárin af hvarmi
barna í Árbæjarskóla, afa sem um-
kringdur var börnum í hvert skipti
sem hann fór út á lóð að vinna. Ég
er heppin að hafa haft ykkur í lífi
mínu og fyrir það ég þakka.
Styrkur þinn, amma, er mér
hvatning og ef ég eignast á minni
lífsleið þinn hálfa styrk verð ég
mjög öflug kona.
Er gleði í sársaukanum, amma?
Á ég að þakka fyrir að geta fundið
til? Ef sorgin á að vera jöfn
gleðinni, sem sem þú gafst þeim
eru voru nærri þér, þá verður hún
að vera sár.
Takk fyrir allt.
Margrét Ýr.
Það er komið að kveðjustund.
Elsku Anna vinkona er látin 75
ára. Margar minningar renna í
gegnum huga minn. Við höfum
verið samferða í 30 ár. Anna kom
til starfa við Íþróttahús Árbæj-
arskóla árið 1972 og lét af störfum
70 ára. Við töluðum oft um hvað
það væri þegar fólk staldraði svo
lengi við á sama stað, við höfðum
báðar gaman að því að vinna með
börnum, svo er það frábæra sam-
starfsfólkið okkar sem við höfðum
svo gott samstarf við, Halldóra,
Ingunn, Sigurbergurog Erla, að
öðrum ólöstuðum. Það ríkti ein-
stakt andrúmsloft á litlu kaffistof-
unni okkar, jafnt á gleði- og sorg-
arstundum. Það var gott að vera
nálægt Önnu, hún hafði víðtæka
þekkingu á öllum sviðum og miðl-
aði henni á látlausan hátt með
innilegu viðmóti sínu. Hún var
góður vinur.
Anna var mikill náttúruunnandi
hafði gaman að ferðast innan sem
utan lands, þau Baldvin fóru með
tjaldvagninn út um allt land og
höfðu mikla ánægju af.
Hvað er bak við fjallið? Þessi
spurning þvælist gjarnan fyrir
barninu og þótt vit og þroski auk-
ist með árunum halda svipaðar
spurningar áfram að áreita okkur.
Hvað er bak við tjaldið sem skil-
ur á milli lífs og dauða? Dauðinn
er okkur alltaf sama ráðgátan og
við erum alltaf jafnilla undir það
búin að mæta honum. En hann
kemur oft sem langþráður vinur
þegar jarðvistin er orðin óbærileg
vegna sjúkleika. Ég veit að þér líð-
ur vel núna og vel hefur verið tek-
ið á móti þér.
Við í íþróttahúsinu þökkum þér
samveruna á liðnum árum.
Fjölskyldu Önnu vottum við
okkar dýpstu samúð.
Megi guð blessa Önnu okkar.
Rut Þorsteinsdóttir.
ANNA
HJÁLMARSDÓTTIR
Elsku afi. Margar
minningar koma upp í
hugann þegar við
hugsum til þín. Það
fyrsta er það þegar þú
settist niður með okkur og kenndir
okkur að lesa. Einnig þegar þú og
amma kennduð okkur að spila á spil
og líka margar vísur. Við minnumst
þess ekki að þú hafir nokkurntíma
skammað okkur heldur reyndir þú
að leiðbeina okkur.
Þrátt fyrir þína langvarandi fötl-
un í fótum, gastu keyrt og voru
margir bíltúrar farnir með ykkur
ömmu og var þá yfirleitt farið inn í
sveit. Vegna þessarar fötlunar
þurftir þú að nota hækjur og þegar
þú og amma fluttuð í Breiðablik
fórst þú að nota hjólastól. Á meðan
önnur börn læra að ganga í göngu-
grind, lærði Ægir að ganga við
hækjurnar þínar, þar sem hann
stóð á milli hæknanna og hélt sitt
hvorum megin í þær á meðan þú
gekkst.
Við munum varla eftir þér öðru-
vísi en með harmonikkuna og þú
spilaðir fyrir okkur og alla aðra
sem komu í heimsókn þar á meðal
forsetann. Það var alltaf gott að
koma í heimsókn í Breiðablik eftir
að þið fluttuð úr Naustahvammi.
GUÐNI
ÞORLEIFSSON
✝ Guðni Þorleifs-son fæddist í
Naustahvammi í
Norðfirði 4. okt.
1914. Hann lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu í Neskaupstað
10. október síðastlið-
inn og var útför hans
gerð frá Norðfjarð-
arkirkju 19. október.
Hjá ykkur var okkar
athvarf eftir að skóla
lauk á daginn og við
biðum eftir tónskóla
og sundæfingum. Þið
voruð alltaf svo góð við
okkur þegar við kom-
um, gáfuð okkur að
borða í hádeginu og
þegar við komum á
öðrum tímum fengum
við mola eða eitthvað
annað góðgæti. Segja
má að þótt þið amma
hafið flutt út í Breiða-
blik höfum við samt
búið hjá ykkur.
Elsku afi, takk fyrir allt sem þú
hefur kennt okkur. Það er gott að
vita að þú ert komin til ömmu og
vonandi átt þú eftir að spila á harm-
onikkuna fyrir hana og fleiri. Þú átt
alltaf eftir að vera í huga okkar og
fallegar minningar verða í hjarta
okkar. Við þökkum þér samfylgdina
á liðnum árum og megi Guð blessa
minningu þína.
Þín barnabörn,
Laufey, Þórfríður Soffía og
Ægir Guðjón Þórarinsbörn.
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
Erfidrykkjur
Heimalöguð kaffihlaðborð
Grand Hótel Reykjavík
Sími 514 8000
við Nýbýlaveg, Kópavogi
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
INGIBJÖRG GUÐRÚN BJARNADÓTTIR,
frá Flatey á Breiðafirði,
Sundstræti 26, Ísafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði föstu-
daginn 11. október.
Útförin fór fram í kyrrþey laugardaginn
19. október að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð.
Héðinn Valdimarsson,
Birgir Valdimarsson, María Erla Eiríksdóttir,
Birna Valdimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær systir okkar,
GUÐBJÖRG JÓNA HELGADÓTTIR ÓLSEN,
Ørvadsvej 23,
Árósum, Danmörku,
lést á heimili sínu föstudaginn 18. október
síðastliðinn.
Hafdís Helga Helgadóttir,
Kristín Helgadóttir,
Hulda Elvý Helgadóttir,
Ómar Þór Helgason,
Helgi Helgason.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GÍSLI ÓLAFSSON,
Glæsibæ 4,
Reykjavík,
lést á Landspítala Fossvogi sunnudaginn
20. október.
Aðalheiður Sigurjónsdóttir,
Margrét Gísladóttir, Haukur Halldórsson,
Grettir Gíslason, Sigríður Magnúsdóttir,
Guðrún Kristín Antonsdóttir,
barnabörn og langafabörn.
Ástkær eiginkona mín og móðir,
ODDNÝ DÓRA HALLDÓRSDÓTTIR,
Heiðarbóli 9,
Keflavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 19. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristján Kristinsson,
Þorsteinn Kristjánsson.
Elskuleg móðir okkar og systir,
MARGRÉT BLÖNDAL MCALEER,
Shalimar,
Flórída,
lést föstudaginn 11. október.
Útförin hefur farið fram.
James Brandon McAleer,
Bridget Schlabach,
Sveinbjörn Blöndal
og fjölskyldur.
Okkar ástkæri
DANÍEL S. LÁRUSSON,
Óðinsgötu 8,
Reykjavík,
lést í Búdapest mánudaginn 21. október.
Dóróthea Magnúsdóttir,
Árný Daníelsdóttir, Hörður Harðarson,
Brynja Daníelsdóttir,
Knútur Rafn Ármann, Helena Hermundardóttir
og barnabörn.