Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 47
NÝLEGA afhentu konur frá kvennadeild Reykjavík-
urdeildar Rauða kross Íslands fæðingardeildinni fæð-
ingarrúm fyrir tæplega eina milljón króna. Rúmið var
mjög kærkomin gjöf fyrir deildina þar sem að eldri
rúm eru farin að gefa sig vegna mikillar notkunar, seg-
ir í fréttatilkynningu. Kvennadeild RKÍ hefur gefið
fæðingardeildinni margar góðar gjafir og með þessu
bætist enn ein við. Á myndinni sjást stjórnarkonur og
Hulda Ó. Perry formaður afhenda Guðrúnu G. Egg-
ertsdóttur yfirljósmóður rúmið.
Gjöf til fæðingardeildar Landspítala
HELGIN var annasöm
og í mörgu að snúast
hjá lögreglumönnum.
Auk stórbrunans á
Laugavegi voru 18 innbrot tilkynnt,
19 þjófnaðir og 26 sinnum um
eignaspjöll. Þar var í flestum til-
fellum um að ræða rúðubrot.
Um helgina var tilkynnt um 37
umferðaróhöpp. Afskipti voru höfð
af 20 ökumönnum vegna notkunar á
farsímum án þess að hafa hand-
frjálsan búnað. Þá voru 16 öku-
menn kærðir fyrir of hraðan akstur
og 4 voru kærðir fyrir ölvun við
akstur.
Umferðarslys varð á Miklubraut
við Grensásveg um kl. 15 á föstu-
dag. Tveimur bifreiðum var ekið
vestur Miklubraut og var annarri
bifreiðinni sveigt í veg fyrir hina
með þeim afleiðingum að báðar bif-
reiðarnar fóru upp á umferðareyju
og rifu niður grindverk á um 20 m
kafla, önnur bifreiðin fór síðan yfir
akbrautina, fyrir umferð og endaði
þar utan vegar. Báðir ökumennirnir
voru fluttir á slysadeild í sjúkra-
bifreið en meiðsl þeirra voru ekki
talin alvarleg. Fjarlægja varð bif-
reiðarnar með kranabifreið.
Stal bíl af bílasölu
Á föstudag um kl. 18 varð starfs-
maður bílasölu í austurborginni var
við að númerslausri bifreið var ekið
út af lóð sölunnar. Veitti hann bif-
reiðinni eftirför og tókst að króa
hana af skammt frá. Lögreglan
handtók þar ökumanninn sem hafði
tekið bifreiðina ófrjálsri hendi og er
hann einnig grunaður um ölvun.
Hann var vistaður í fangageymslu.
Maður var handtekinn á veitinga-
stað um kl. 4 aðfaranótt laugar-
dags, grunaður um að hafa fíkniefni
í fórum sínum. Síðan fundust á hon-
um ætluð fíkniefni og var hann vist-
aður í fangageymslu.
Laust fyrir hádegi á laugardag
var tilkynnt um að maður væri að
fara inn í bíla í austurborginni.
Fékkst nokkuð góð lýsing af honum
og var hann handtekinn nokkru síð-
ar. Var maðurinn í annarlegu
ástandi og á honum fundust fíkni-
efni og einnig GSM-sími sem hann
hafði stolið úr einni af þeim bifreið-
um sem hann fór inn í. Maðurinn
var vistaður í fangageymslu.
Alvarlegur húsbruni var aðfara-
nótt sunnudags er tvö hús brunnu
við Laugaveg ásamt viðbyggingum.
Tilkynnt var um eldinn kl. 23.52 og
var slökkviliðið komið á staðinn um
fjórum mínútum síðar. Mikill eldur
var í viðbyggingu við hús nr. 40 við
Laugaveg. Vel gekk að rýma þær
íbúðir sem taldar voru í hættu. Allt
tiltækt lið slökkviliðsins var kallað
út. Þá var fjölmennt lið lögreglu-
manna að störfum á brunavett-
vangi. Einnig voru kallaðir til að-
stoðar nokkrir björgunarsveitar-
menn. Mjög erfiðlega gekk að ráða
niðurlögum eldsins og var slökkvi-
starfi ekki lokið fyrr en um hádegi á
sunnudag.
Úr dagbók lögreglunnar 18. til 21. október
Mörg verkefni auk stór-
brunans á Laugavegi
FJÖGUR ungmenni hafa verið valin
til þátttöku fyrir hönd Íslands í verk-
efninu Norrænt lýðræði í brenni-
depli sem fulltrúar Norðurlandanna
í fókus standa fyrir í Reykjavík,
Kaupmannahöfn, Osló, Stokkhólmi
og Helsinki.
Það eru þau Inga Þórey Óskars-
dóttir og Bergur Þ. Gunnþórsson frá
Menntaskólanum í Reykjavík, Ög-
mundur Hrafn Magnússon frá
Menntaskólanum við Sund og Helga
Lára Hauksdóttir frá Verslunar-
skóla Íslands.
Alls taka 23 norrænir framhalds-
skólanemar þátt í verkefninu. Þeir
munu heimsækja þingin og ýmsar
stofnanir sem eiga að standa vörð
um lýðræði landanna, hlusta á fyr-
irlestra, taka þátt í námskeiðum og
heimsækja fjölmiðla. Ferðin hefst í
Osló á morgun, miðvikudag. Síðan
verður haldið til Stokkhólms á föstu-
dag og á laugardagskvöldið taka þau
ferju yfir til Helsinki. Í Helsinki mun
hluti af hópnum mynda ritstjórn og
senda út fréttir af hátíðarþingi
Norðurlandaráðs á vefslóðinni
www.odin.dk/demokrati.
Norrænt
lýðræði í
brennidepli
JÓLAKORT MS-félagsins eru
komin út. Að þessu sinni er mynd-
in á þeim vatnslitamynd sem heitir
„Vetrarsól“ og er eftir Erlu Sig-
urðardóttur.
Jólakortasalan er árleg tekju-
lind félagsins og rennur ágóðinn til
uppbyggingar á því starfi sem MS-
félagið stendur fyrir.
Jólakortin eru til afgreiðslu á
skrifstofu MS félagsins að Sléttu-
vegi 5, í Reykjavík og eru seld 10
saman í pakka á eitt þúsund krón-
ur pakkinn. Hægt er að panta í
gegn um tölvupóst, anna@msfe-
lag.is.
Jólakort MS-
félagsins
komið út
LANDSSAMTÖK hjartasjúklinga
eru með jólakort til sölu fyrir jólin til
tekjuöflunar eins og undanfarin ár.
Jólakortin eru með misjöfnum
myndum frá ári til árs og eru 5 kort í
pakka og kosta 400 kr. Jólakortin
fást á skrifstofu LHS í Síðumúla 6 í
Reykjavík og hjá aðildarfélögunum
úti á landi.
Jólakortasala Landssamtakanna
hefur verið ein besta fjáröflunarleið
samtakanna til þessa, segir í frétta-
tilkynningu.
Jólakort LHS
komið út