Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
E
D
D
1
91
40
10
/2
00
2
Fróðleg,
fyndin
og ögrandi
• Af hverju geta karlar bara gert eitt í einu?
• Af hverju þurfa konur svo oft að ræða málin?
• Af hverju ættu karlar aldrei að ljúga að konum?
• Af hverju eru svo fáar konur flugmenn?
• Af hverju káfa karlar en konur ekki?
BOEING 757-200-þota Flugleiða féll
um 4.000 fet (um 1.200 metra) þegar
hún var að hækka flugið úr um
30.000 feta hæð skammt suður af
Baltimore í Bandaríkjunum á laug-
ardagskvöld.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugleiðum varð bilun í loftinntaki til
þess að truflun varð í sjálfstýringu
vélarinnar og af þeim sökum lækkaði
hún skyndilega flugið. Flugmennirn-
ir náðu stjórn á vélinni og lentu
henni um hálftíma síðar í Baltimore
sem var næsti flugvöllur. Guðjón
Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Flugleiða, segir að flugvirkjar hafi
fundið bilun í loftinntakinu sem ligg-
ur utan á skrokki vélarinnar. Hann
vill að öðru leyti ekki tjá sig um
tæknilegar hliðar málsins og segir að
slíkt sé óábyrgt á meðan málið sé í
rannsókn.
191 farþegi um borð
Atvikið átti sér stað um klukkan
20.30 að staðartíma eða um klukkan
0.30 að íslenskum tíma. Boeing 757-
þotan sem ber einkennisstafina TF-
FII, var í áætlunarflugi frá Orlando
til Keflavíkur með 191 farþega. Þeim
var komið fyrir í hótelum í Baltimore
og boðin áfallahjálp á sunnudag.
Spurður um hvort farþegarnir hafi
fengið nægar upplýsingar og aðstoð
þegar komið var til Baltimore segir
Guðjón Arngrímsson að eflaust megi
alltaf gera betur. Í ljósi aðstæðna
hafi starfsfólk Flugleiða á hinn bóg-
inn staðið sig vel. Hafa verði í huga
að atvikið varð seint á laugardags-
kvöldi og því var enginn af starfs-
mönnum Flugleiða í Baltimore á
vakt og hann minnir á að aðeins hafi
liðið hálftími frá því atvikið varð þar
til flugvélin var lent. Svo vel hafi
viljað til að hægt var að lenda í
Baltimore þar sem Flugleiðir eru
með starfsemi og hafi stöðvarstjóri
þar því getað aðstoðað farþegana
eftir því sem kostur var.
Áætlanir röskuðust
Gert var við bilunina í Baltimore
og eftir reynsluflug var henni flogið
til Íslands í fyrrakvöld. Talsverð
röskun varð á flugáætlun Flugleiða
vegna þessa og varð að fella niður
flug til og frá Amsterdam á sunnu-
dag. Ferðir mörg hundruð farþega
röskuðust að meira eða minna leyti
og er ljóst að tjón Flugleiða nemur
milljónum.
Rannsókn á atvikinu er í höndum
rannsóknarnefndar flugslysa í
Bandaríkjunum sem hefur óskað eft-
ir aðstoð frá íslensku rannsóknar-
nefndinni. Þormóður Þormóðsson,
framkvæmdastjóri rannsóknar-
nefndar flugslysa, fór í gærkvöldi til
Bandaríkjanna með gögn úr flugrita
vélarinnar sem afritar gögn frá
stjórntækjum.
Boeing 757-200-þota Flugleiða féll um 4.000 fet yfir Bandaríkjunum
Bilun í loftinntaki truflaði
sjálfstýringu vélarinnar
Morgunblaðið/Baldur Sveinsson
„MÉR varð um og ó og
kalla ég þó ekki allt
ömmu mína. Ég sá að
það var hreinlega
skelfing í andlitum
sumra farþega og ég
held að þeir sem ekki
eru mjög kaldir eða
svalir í flugi hafi feng-
ið nokkurt áfall,“ seg-
ir Jón Ragnarsson
rallkappi, sem var í
Flugleiðavélinni sem
féll um fjögur þúsund
fet og neyddist til að
lenda í Baltimore um
helgina.
Jón segir að farið
hafi verið í loftið tíu mínútur yfir
sjö frá Orlando. „En um kl. 8.30
snarbreyttist allt í einu hljóðið í
hreyflunum og vélin tók að hristast
endanna á milli og alls ekki eins og
þegar vélar hoppa í ókyrrð heldur
sveiflaðst nefið og stélið til hliðar
auk þess sem vélin hristist öll og
djöflaðist til og tók dýfur. Ég er nú
frekar vanur að fljúga, hef flogið
mikið með Ómari bróður mínum í
litlum rellum sem hafa svo sem
stundum hoppað til. En þarna fann
ég um leið að eitthvað var ekki
eðlilegt, það var greinilega eitt-
hvað stjórnlaust á
ferðinni og sú spurn-
ing hvarflaði að manni
hvar þetta myndi
hreinlega enda. Þeir
segja að vélin hafi fall-
ið fjögur þúsund fet
og ég ímynda mér að
þetta hafi staðið yfir í
tvær til þrjá mínútur.“
Jón segir að síðan
hafi flugmaðurinn náð
tökum á vélinni og
flogið henni hand-
virkt. „Hann ruggaði
henni aðeins til og ég
fann að hann var ein-
faldlega að prófa
hana. Síðan kom hann og tilkynnti
eftir dálítið langan tíma, fannst
mér, að það hefði orðið bilun í
stjórntækjum og að hann myndi
fljúga inn til Baltimore og lenda
þar og leita eftir viðgerð. Fólki var
gríðarlega brugðið meðan á þessu
stóð og greinilegt að þaðhugsaði:
verðum við komin alveg niður áður
en hann nær tökum á vélinni? Þetta
var virkilega erfitt.“
Aðspurður segir Jón að farþeg-
unum hafi ekki þótt nógu vel tekið
á móti þeim í Baltimore. „Þótt ég
vilji allt gott segja um Flugleiðir þá
var það svo að þegar við komumst
loks inn í flugstöðina í Baltimore
þá tók stöðvarstjóri Flugleiða á
móti okkur í flugstöðinni í Balti-
more og okkur fannst hann gera
mest lítið fyrir okkur. Eftir langa
bið tilkynnti hann okkur að það
kæmu rútur og færu með okkur á
þrjú hótel. Það var ekki rætt við
okkur um eitt né neitt.“
Jón segir að hóparnir hafi síðan
dreifst á hótelin þrjú. „Það var
svona eftir hendinni hvort einhver
í hverjum hópi tók af skarið og tók
að sér stjórnina. Í mínum hópi var
það norskur blaðamaður sem tók
að sér alla stjórn á hópnum sem fór
á Holiday Inn. Hann sá um að
tékka okkur inn og ákvað á eigin
spýtur að það yrði fundur kl. 9 um
morguninn og að hann yrði þá bú-
inn að afla upplýsinga frá Flug-
leiðum.“
Jón tekur fram að ekki megi
dæma Flugleiðir í heild. „En stöðv-
arstjóri Flugleiða á flugvellinum í
Baltimore tilkynnti sínum yfir-
mönnum ekki strax um þetta; ekki
æðsta manni á svæðinu, sem er í
Baltimore, fyrr en kl. 9 næsta
morgun og ekki næstæðsta yfir-
manni fyrr en kl. 10 þótt sá hafi
verið á skrifstofunni frá kl. 7 um
morguninn. En ég tek fram að þá
fór líka af stað gríðarlega fín vinna
hjá Flugleiðum. Þá komu æðstu
menn Flugleiða á hótelin og skipu-
lögðu allt saman og allt gekk eins
og í sögu. Þannig að það voru fyrst
og fremst boðleiðir stöðvarstjórans
á flugvellinum í Baltimore sem
greinilega voru ekki í lagi.“
Skelfing í andlitum farþega
Jón Ragnarsson
MINNINGARATHÖFN um Her-
mann Pálsson, fyrrverandi prófess-
or, var haldin í Háteigskirkju í gær
að viðstöddu fjölmenni. Sr. Arngrím-
ur Jónsson flutti minningarræðuna.
Hermann Pálsson lést af völdum
slyss í Búlgaríu hinn 11. ágúst sl.
Hann var kvaddur í Edinborg 28.
ágúst sl. að viðstöddu í fjölmenni. Í
Edinborg kenndi Hermann íslensk
fræði um árabil, fyrst sem lektor við
Edinborgarháskóla en síðar sem pró-
fessor. Hann var einnig heiðursdokt-
or við Háskóla Íslands. Eftir hann
liggja fjölmörg rit um íslensk fræði.
Morgunblaðið/Kristinn
Hermanns Pálssonar minnst
FLEIRI atkvæði en frá Svíum
höfðu sérstaka þýðingu fyrir
Íslendinga þegar innganga
þeirra í Alþjóðahvalveiðiráðið
að nýju var samþykkt á fundi
ráðsins í Cambrigde á Eng-
landi í byrjun vikunnar.
Kínverjar greiddu atkvæði
með inngöngunni, sem er
reyndar í anda fyrri stuðnings
þeirra við málstað Íslendinga í
hvalveiðimálum, en þeir höfðu
hins vegar ekki ætlað sér að
mæta á fundinn. Það var fyrir
tilstilli íslenska sendiráðsins í
Kína sem þeir mættu og sendu
fulltrúa sinn úr sendiráðinu í
London.
Stefán Ásmundsson, formað-
ur íslensku sendinefndarinnar
á fundi Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins, sagði atkvæði Kínverja
vissulega hafa verið mikilvægt
og aðstoð sendiráðs Íslands í
Kína verið vel þegin.
Einungis átti að ræða
frumbyggjakvóta
Hann sagði Kínverjana ekki
hafa ætlað að mæta sökum þess
að ráðið var upphaflega kallað
saman til fundar til að fjalla um
frumbyggjakvóta í Austur-
Rússlandi og Alaska. Kínverjar
sátu hjá í atkvæðagreiðslu um
málið á síðasta ársfundi ráðsins
og sagði Stefán þá ekki hafa
ætlað sér að senda fulltrúa alla
leiðina frá Kína til Cambridge.
„Þegar við ákváðum að láta
reyna á okkar mál á fundinum
báðum við Kínverjana um að
endurskoða afstöðu sína og
senda mann á fundinn. Við viss-
um um þeirra stuðning við okk-
ur áður. Íslenska sendiráðið í
Kína stóð sig mjög vel í að
koma þessum skilaboðum
áfram,“ sagði Stefán.
Eins og áður hefur komið
fram, var það að lokum atkvæði
Svía sem tryggði Íslendingum
setu í ráðinu.
Mikilvægt atkvæði
Kínverja hjá Al-
þjóðahvalveiðiráðinu
Mættu fyr-
ir tilstilli
sendiráðs-
ins í Kína