Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 62
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 63
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Félagi ís-
lenskra heimilslækna „vegna furðu-
legs fréttaflutnings heilbrigðisráðu-
neytisins í Útvarpinu“:
„Það vekur furðu Félags íslenskra
heimilislækna (FÍH) að sama daginn
og heilsugæslulæknar í Keflavík láta
af störfum að loknum löglegum upp-
sagnarfresti sjái aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra, Elsa Friðfinns-
dóttir, ástæðu til að vega að starfs-
heiðri heimilislækna með vafasöm-
um fréttaflutningi í hádegisfréttum
Ríkisútvarpsins í gær, fimmtudag-
inn 31. október.
Í útvarpsfréttinni segir að sam-
kvæmt nýjum útreikningum heil-
brigðisráðuneytsins kosti „úrskurð-
ur kjaranefndar vegna
heimilislækna 400 milljónir króna“
og að „kostnaðurinn dreifist á 200
lækna og þýðir að meðaltali um 2
milljóna króna launahækkun á hvern
lækni á ári“. Heimildarmaðurinn
lætur ekki þar við sitja heldur er haft
eftir honum að „ráðuneytið fyllyrði
ennfremur að enginn lækki í launum
eins og talsmenn lækna haldi fram“.
Ekki ríður smekkleysan við ein-
teyming, heldur er haft eftir heimild-
armanninum í sömu frétt „að þeir
læknar sem hækki mest hækka um
60% og fá um 1.300 þúsund á mánuði
sem eru tvöföld laun forsætisráð-
herra“. Hvers vegna þarf heilbrigð-
isráðuneytið að draga forsætisráð-
herra inn í tilburði sína til að sverta
ímynd heimilislækna?
FÍH hefur þegar lýst yfir að félag-
ið dragi í efa fullyrðingar ráðuneyt-
isins um áhrif úrskurðarins á launa-
kjör heimilislækna. Útreikningar
FÍH stangast verulega á við útreikn-
inga ráðuneytsins. FÍH vill endur-
taka að stjórn þess lýsir fullri ábyrgð
á hendur stjórnvöldum vegna þeirr-
ar stöðu sem upp er komin og ítrekar
enn einu sinni að eina lausnin felst í
því að heimilislæknum verði búin
sömu starfs- og launakjör og aðrir
sérmenntaðir læknar í landinu njóta.
Þetta er ekki launabarátta, þetta er
réttindabarátta. Heimilislæknar
óska aðeins eftir því að njóta jafn-
ræðis við aðra lækna.
Heimilislæknar óska nú eftir því
að fá vinnufrið fyrir stöðugu áreiti
heilbrigðisráðuneytisins til þess að
geta sinnt þeirri frumskyldu sinni að
sinna þörfum og væntingum lands-
manna. Það gengur ekki lengur að
heilsugæslu- og heimilislæknar
neyðist til að eyða svo miklum tíma í
réttlætisbaráttu þegar þeir þurfa og
verða að sinna skjólstæðingum sín-
um, sem eru þjóðin sem byggir þetta
land.“
Yfirlýsing frá Félagi
ísl. heimilislækna
Á ALÞINGI var samþykkt 10. mars
1999 þingsályktunartillaga þar sem
umhverfisráðherra var falið að kanna
stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Ríkis-
stjórnin samþykkti á fundi sínum
hinn 26. september 2000 að tillögu
umhverfisráðherra að stefna að því
að stofna Vatnajökulsþjóðgarð sem
tæki til jökulhettunnar á árinu 2002,
alþjóðlegu ári fjalla.
Til að fylgja eftir ákvörðun ríkis-
stjórnar var skipuð nefnd hinn 14.
febrúar sl. sem hefur nú skilað nið-
urstöðum sínum til ráðherra. Leggur
nefndin til að stofnaður verði sem
fyrst þjóðgarður sem markist af jaðri
Vatnajökuls en nái að auki til núver-
andi Skaftafellsþjóðgarðs og hins
friðlýsta náttúruvættis við Lakagíga.
Á Vatnajökli er staða eignarrétt-
armála sums staðar óljós. Þannig hef-
ur óbyggðanefnd nú landssvæði í
Sveitarfélaginu Hornafirði (Austur-
Skaftafellssýslu) til meðferðar, en
landeigendur í sveitarfélaginu hafa í
nokkrum tilfellum lýst kröfum í land
sem nær upp fyrir jökuljaðar. Er
vonast til að úrskurður óbyggða-
nefndar liggi fyrir síðar í vetur.
Niðurstaða óbyggðanefndar mun
ráða jöðrum þjóðgarðsins í Austur-
Skaftafellssýslu og verður hún höfð
til hliðsjónar í viðræðum við hugsan-
lega landeigendur á öðrum svæðum
Vatnajökuls.
Á meðan beðið er úrskurðar
óbyggðanefndar hefur umhverfisráð-
herra ákveðið að skipa tólf manna
nefnd til að vera Náttúruvernd rík-
isins og ráðuneytinu til ráðgjafar við
undirbúning að stofnun þjóðgarðsins.
Nefndin verður skipuð einum fulltrúa
frá hverju hinna sjö sveitarfélaga
sem liggja að Vatnajökli og einum frá
hverjum eftirtalinna aðila: Ferða-
málasamtökum Suðurlands, Ferða-
málasamtökum Austurlands, Ferða-
málasamtökum Norðurlands eystra,
umhverfisverndarsamtökum og
Náttúruvernd ríkisins, sem færi með
formennsku í nefndinni. Verður
Náttúruvernd ríkisins í samráði við
ráðgjafarnefndina og aðra hags-
munaaðila falið að undirbúa reglu-
gerð um þjóðgarðinn og vinna að
undirbúningi málsins í samræmi við
stefnumörkun fyrri nefndar, svo sem
að gera tillögur um staðsetningu
þjóðgarðsmiðstöðva, segir í fréttatil-
kynningu frá umhverfisráðuneytinu.
Undirbúningur að stofnun
þjóðgarðs á Vatnajökli
TILKYNNT hafa verið úrslit í
fyrri hluta Stærðfræðikeppni
framhaldsskólanema 2002–2003,
sem fram fór þriðjudaginn 15.
október. Var um tuttugu efstu
nemendum í hvorum aldursflokki
boðið af því tilefni upp á kaffi og
kökur í Skólabæ.
Lárus H. Bjarnason, rektor
Menntaskólans við Hamrahlíð, til-
kynnti úrslitin og Hrafnkell
Kárason, starfsmaður hjá Kaup-
þingi, var með nokkur hvatning-
arorð til nemenda en Kaupþing
hefur staðið undir kostnaði við
keppnina undanfarið ásamt Ís-
lenskri erfðagreiningu.
Á efra stigi var efstur Eyvind-
ur Ari Pálsson, Menntaskólanum
í Reykjavík, í 2. sæti var Þor-
björn Guðmundsson, einnig úr
Menntaskólanum í Reykjavík og í
3. sæti Grétar Amazeen, Mennta-
skólanum í Reykjavík. Á neðra
stigi varð efstur Höskuldur P.
Halldórsson, Menntaskólanum í
Reykjavík, í 2. sæti Örn Stef-
ánsson og í 3. sæti María Helga
Guðmundsdóttir, bæði úr Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. Þremur
efstu nemendum af hvoru stigi
voru afhent bókaverðlaun. Þá var
á grundvelli úrslitanna valið
fimm manna lið til að keppa í
Eystrasaltskeppninni í stærðfræði
sem fram fer í Tartu, Eistlandi,
dagana 31. október til 4. nóv-
ember.
Liðið skipa Eyvindur Ari Páls-
son, Þorbjörn Guðmundsson,
Grétar Amazeen, Ásgeir Alexand-
ersson og Höskuldur P. Hall-
dórsson.
Eistlandsfarar: Frá vinstri: Ásgeir Alexandersson, Höskuldur P. Hall-
dórsson, Eyvindur Ari Pálsson, Grétar Amazeen og Þorbjörn Guðmundsson.
Sigurveg-
arar í stærð-
fræðikeppni
framhalds-
skóla
OD
DI
H
F
- I
98
42
Afmælisþakkir
Mínar innilegustu þakkir færi ég öllum þeim
sem heimsóttu mig, sendu mér símskeyti, færðu
mér blóm og gjafir og glöddu mig á 90 ára af-
mæli mínu þann 24. október síðastliðinn.
Sérstakar þakkir færi ég konum í kvenfélaginu
Hörpu og öllum öðrum sem gerðu mér daginn
ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Hrauni, Tálknafirði.