Morgunblaðið - 08.11.2002, Síða 5

Morgunblaðið - 08.11.2002, Síða 5
Við „afnemum“ virðisaukaskatt af barnafötum! www.hagkaup.is DV, m iðviku d. 6. n óv. 20 02 Virðisaukaskattur er 24,5% á barnafatnaði Það er baráttumál Hagkaupa að íslenskar verslanir búi við sömu skilyrði og erlendar. Víða erlendis er lægri eða enginn virðisaukaskattur lagður á barnafatnað og hafa verslanir í þeim löndum því samkeppnisforskot á íslenskar verslanir. Hagkaup fagna þingsályktunartillögu Páls Magnússonar þingmanns um afnám virðisaukaskatts af barnafötum. Með því verður dregið úr skattlagningu á fjölskyldufólk með ung börn, þann hóp sem stendur undir stærstum hluta af tekjuskatti einstaklinga. Hagkaup vilja sýna fjölskyldufólki með börn hvað þessi mikilvæga tillaga þýðir fyrir útgjöld íslenskra heimila með því að lækka verð á barnafatnaði sem nemur álögðum virðisaukaskatti dagana 8. og 9. nóvember. Þessa daga getur þú keypt öll barnaföt á verði án virðisaukaskatts. Komdu og sjáðu hve hagkvæm íslensk verslun getur verið ef hún býr við sömu skilyrði og sú erlenda. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður sinn virðisaukaskatt af þessari sölu. Verðlækkunin er alfarið á kostnað Hagkaupa. Gildir aðeins föstudaginn 8. og laugardaginn 9. nóvember.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.