Morgunblaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 18
ERLENT 18 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                                         !  "    #$$#  % " &   #$$' () " *$  + ,     -   *$$ " #$$$   -   $$ " '$$ .    / !  0   1 2 3 $3 4   )#) %%%%     52   """""""""" BREZKUR bankamaður, sem mannræningjar héldu í gíslingu í fjalllendi Georgíu í fjóra mán- uði við illan kost, hélt heim á leið í gær, daginn eftir að hon- um tókst að flýja úr prísund- inni. Maðurinn, sem heitir Pet- er Shaw, hafði starfað sem bankastjóri búnaðarbanka Georgíu og var rænt 17. júní í sumar og haldið föngnum í Pankisi-dalnum suður af Tétsn- íu, þar sem georgíski stjórnar- herinn hefur átt erfitt upp- dráttar og skæruliðar Tétsena og aðrir útlagar kváðu vaða uppi. Shaw sagði að sér hefði tekizt að flýja er þeir sem rændu hon- um voru í þann mund að flytja hann upp á fjallstind þar sem þeir hugðust skjóta hann. Rán- ið á Shaw hafði kallað alþjóð- legan þrýsting yfir stjórnvöld í Tbilisi, einkum af hálfu Evr- ópusambandsins sem hótaði því að frysta milljóna dala þróun- araðstoð sæju þau ekki til þess að bankastjórinn yrði leystur úr haldi. Georgía vill í NATO EDÚARD Shevardnadze, for- seti Georgíu, tilkynnti á mið- vikudag að á leiðtogafundi Atl- antshafsbandalagsins í Prag síðar í þessum mánuði mundu fulltrúar landsins leggja fram formlega umsókn um aðild þess að bandalaginu. Shevardnadze sagði að talsmenn NATO hefðu samþykkt að taka aðildarum- sókn Georgíumanna til athug- unar á leiðtogafundinum, sem fer fram dagana 21.–22. nóvem- ber. Aðalverkefni fundarins verður að ákveða næstu stækk- unarlotu bandalagsins, en reiknað er með því að í þessari lotu verði sjö Austur-Evrópu- ríkjum boðin aðild, Eistlandi Lettlandi, Litháen, Slóvakíu, Slóveníu, Rúmeníu og Búlgar- íu. Japanir á hvalveiðar FIMM japönsk hvalveiðiskip láta í dag úr höfn í Shimonoseki í fimm mánaða hvalveiðitúr til hafsvæða í grennd við Suður- skautslandið, þar sem til stend- ur að veiða 400 hrefnur. Greindu japönsk yfirvöld frá þessu í gær. Þetta verður sex- tándi slíki hvalveiðitúr Japana á Suðurskautsmið en hann er lið- ur í vísindaveiðaáætlun þeirra. Ný stjórn í Lettlandi LETTNESKA þingið staðfesti í gær í embætti nýja ríkisstjórn landsins, sem er skipuð miðju- og hægriflokkum. Fyrir henni fer Einars Repse, sem er ungur fyrrverandi seðlabankastjóri landsins. Nýi forsætisráð- herrann hefur heitið því að upp- ræta spillingu í landinu, sem ætlar sér að ganga í Evrópu- sambandið árið 2004. Í nafni þess að gera stjórnkerfið opn- ara og lýðræðislegra lýsti Repse því yfir að allir fundir ríkisstjórnar hans yrðu opnir fyrir blaðamönnum. Fjórir flokkar standa að stjórninni og ráða þeir yfir 55 sætum af þeim 100 sem á þjóðþinginu eru. STUTT Brezkur gísl frjáls á ný SÆNSKA leyniþjónustan, Säpo, handtók í gær þrjá menn, sem grunaðir eru um að hafa stundað iðnaðarnjósnir hjá stórfyrirtæk- inu Ericsson, framleiðanda ýmiss konar fjarskiptabúnaðar. Sagt er, að einn mannanna hafi komið skjölum frá hinum tveimur í hendur erlendri leyniþjónustu, og fundust í fórum þeirra skjöl, tilbúin til sendingar. Eru menn- irnir núverandi og fyrrverandi starfsmenn fyrirtækisins. Tals- maður þess sagði í gær, að með snöggum viðbrögðum hefði tekist að koma í veg fyrir mikinn skaða. Njósnað hjá Ericsson Stokkhólmi. AFP. HASHEM Aghajari, þekktur um- bótasinnaður háskólaprófessor, var í gær dæmd- ur til dauða í Ír- an, eftir að hann var sakfelldur fyrir að móðga Spámanninn og setja fyrirvara við harðlínutúlk- un klerkastjórn- arinnar í landinu á íslamskri trú. Greindi verjandi hans, Saleh Nikbakht, frá þessu í gær. Sagði Nikbakht dómstólinn, í Hamedan í vesturhluta landsins, ennfremur hafa dæmt Aghajari, sem er náinn samherji Mohamm- ads Khatami forseta og forystu- maður í helzta flokki umbótasinna, til að sæta 74 svipuhöggum, 10 ára kennslubanni og útlegð í þremur afskekktum bæjum í Íran í þrjú ár. Dómstólar í Íran kváðu oft fella slíka margfalda dóma í mál- um þar sem þeir vilja setja for- dæmi sem sé öðrum víti til varn- aðar. Aghajari, sem er prófessor í sögu við Tabiat-eModarres-há- skóla í Teheran, var handtekinn í ágúst eftir lokað réttarhald yfir honum í Hamedan, en þar í bæ hélt hann ræðu í júnímánuði síð- astliðnum þar sem hann lýsti efa- semdum um réttmæti þess að klerkastjórnin einokaði alla túlkun á kóraninum. „Dómurinn er ekkert nema skellur fyrir þjóðarhagsmuni Ír- ans,“ sagði Nikbakht. Dauðadómur í Íran Harðlínumenn beita dómstólum gegn þekktum umbótasinna Hashem Aghajari ÚFAR risu með Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, og Benjamin Netanyahu utanríkisráðherra í gær, daginn eftir að sá síðarnefndi tók við embættinu. Sharon lofaði að styggja ekki Bandaríkjastjórn með því að leggja til atlögu við Yass- er Arafat, leiðtoga Palestínumanna, til að koma honum frá völdum en Netanyahu var fljótur að lýsa því yfir að ef stríð hæf- ist í Írak gæfist kjörið tækifæri til að reka Arafat í útlegð. Netanyahu sagði ennfremur að friðartillögum Bandaríkjastjórnar yrði slegið á frest vegna hugsanlegra árása Bandaríkjahers á Írak. „Frið- artillögur Bandaríkjanna eru ekki á dagskrá sem stendur,“ hafði útvarp ísraelska hersins eftir Netanyahu, sem hyggst bjóða sig fram gegn Shar- on í leiðtogakjöri Likud-flokksins. Sharon hefur látið í ljósi miklar efa- semdir um friðaráætlun Bandaríkj- anna, Sameinuðu þjóðanna, Evrópu- sambandsins og Rússlands, en hún byggist að miklu leyti á tillögum Bandaríkjastjórnar. Samkvæmt áætluninni eiga Ísraelar að fara af svæðum sem þeir hertóku eftir að uppreisn Palestínumanna hófst fyrir tveimur árum og gert er ráð fyrir því að Palestínumenn stofni bráðabirgða- ríki á næsta ári. Ljúka á samninga- viðræðum um landamæri ríkisins ekki síðar en árið 2005. Netanyahu hefur hvatt til þess að Ísraelar hafni stofnun Palestínuríkis en Sharon hefur fallist á meginhug- myndir George W. Bush Bandaríkja- forseta um slíkt ríki. Forsætisráð- herrann hefur sett skilyrði fyrir stofnun ríkisins en gætt þess að þau stangist ekki á við stefnu Bush. Deilt um leiðtogakjör og efnahagsmál Fjölmiðlar í Ísrael segja að mikillar spennu gæti nú þegar í stjórninni milli Sharons og Netanyahus og dag- blaðið Haaretz segir að aðrir forystu- menn Likud óttist að orðahnipping- arnar skaði flokkinn í þingkosningunum 28. janúar. Deilt er einnig um hvenær leiðtoga- kjörið eigi að fara fram. Sharon vill að það verði sem fyrst til að hann geti fært sér í nyt mikið fylgi sem hann nýtur um þessar mundir samkvæmt skoðanakönnunum, en Netanyahu vill meiri tíma til að skipuleggja baráttu sína. Netanyahu gagnrýndi ennfremur efnahagsstefnu Sharons í viðtali við The Jerusalem Post í gær og hét því að yfirvinna fjármálakreppuna í land- inu kæmist hann til valda. „Af síðustu fjórum forsætisráðherrum er ég sá eini sem hefur skilið við landið í betra ástandi en það var þegar ég tók við völdunum,“ sagði hann. „Mín ríkis- stjórn verður stjórn lausna,“ bætti hann við og talaði eins og hann væri að taka við embætti forsætisráðherra. Reuters Hjúkrunarfólk með palestínska skólastúlku í borginni Nablus á Vest- urbakkanum á miðvikudag. Ísraelsher skaut táragasi á svæðinu. Sharon og Netanyahu þegar teknir að þrátta Jerúsalem. AFP. Benjamin Netanyahu JOHN Ashcroft, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að leyniskytturnar, sem grunaðar eru um að hafa myrt 10 manns á Washington-svæðinu og sært þrjá, yrðu báðar fyrst dregnar fyrir rétt í Virginíuríki og gætu báðir menn- irnir, John Allen Muhammed og John Lee Malvo, sem er 17 ára, átt dauðadóm yfir höfði sér. Þeir eru einnig grunaðir um morð annars staðar í Bandaríkjunum. Mestar líkur eru á að mennirnir hljóti dauðadóma ef réttað verður yfir þeim í Virginíu, þar sem aftök- ur með banvænni sprautu eru heimilar á unglingum. Þrjú af tíu morðum sem þeir frömdu voru í út- hverfum Washingtonborgar í Virg- iníuríki. „Við teljum að fyrst beri að sækja þá til saka í því lögsagnar- umdæmi þar sem afdráttarlaus- ustu lögin eru, staðreyndirnar eru afdráttarlausastar og sem víðtæk- astir möguleikar á refsingu,“ sagði Ashcroft á fréttamannafundi. Leyniskytturnar fyrst fyrir rétt í Virginíu Washington. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.