Morgunblaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 43
Auglýsendur!
Jó l i n 2002
30. nóvember
Pantið fyrir kl. 12
föstudaginn 15. nóvember!
Pantið tímanlega þar sem uppselt
hefur verið í jólablaðauka fyrri ára.
Allir nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
í síma 569 1111 eða augl@mbl.is
Jólablaðaukinn
fylgir Morgunblaðinu
laugardaginn 30. nóvember.
Heimsmeistarinn!
blandarinn,
sá öflugasti og
ímynd þess besta!
Fæst í ýmsum litum. Verð
frá kr. 11.970 stgr.
Gullverðlaunahafar íslenska
landsliðsins í matreiðslu
nota eingöngu KitchenAid
blandara og hrærivélar.
Gerðu líka kröfur
- veldu KitchenAid!
VIÐ sem þekkjum Ástu Ragn-
heiði Jóhannesdóttur, þingmann
Reykvíkinga, vitum hvílíkur dugn-
aðarforkur hún er í
starfi og óþreytandi
að berjast fyrir
hagsmunum al-
mennings og þá
ekki síst þeirra sem
af einhverjum
ástæðum hafa farið
halloka í lífsbaráttunni. Hún hefur
aðstoðað fjölda fólks við að ná
fram rétti sínum og barist fyrir
fjölmörgum réttlætismálum.
Fáir þingmenn hafa staðið jafn-
dyggan vörð um velferðarkerfið
og Ásta Ragnheiður. Hún hefur
barist ötullega fyrir ótal framfara-
málum og réttindum fólksins í
landinu í heilbrigðis- og trygg-
ingamálum, enda nýtur hún þar
yfirburðaþekkingar sinnar á þeim
málaflokkum. Við megum alls ekki
við því að missa þessa baráttu- og
hugsjónakonu af þingi.
Nú höfum við tækifæri til að
tryggja að Ásta Ragnheiður haldi
áfram að standa vörð um velferð,
réttindi og hagsmuni almennings.
Tökum þátt í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar laugardaginn 9. nóv-
ember og tryggjum Ástu Ragn-
heiði 3. sætið. Það munar um
hvern og einn. Atkvæði þitt getur
ráðið úrslitum.
Tryggjum Ástu
Ragnheiði
þriðja sætið
Reynir Wium vörubílstjóri skrifar:
ÞAÐ er óneitanlega freistandi að
meta stjórnmálamenn út frá hug-
takinu ótti, einkum vegna þess að
óttinn er það afl sem hindrar sam-
vinnu, framfarir og
þróun. Viljaleysi nú-
verandi rík-
isstjórnar við að
„kanna“ kosti ESB-
aðildar hlýtur hver
heilvita maður að
líta á sem óttann við
að tapa völdum; ótta heimaln-
ingsins við að utan heimahaganna
sé aðeins að finna tröll og forynjur.
Bryndís Hlöðversdóttir þjáist ekki
af slíkum ótta. Hún þorir að horf-
ast í augu við það að heimurinn
þróast og breytist hvort sem okkur
Íslendingum líkar betur eða verr
og það er undir okkur sjálfum
komið hvort, og á hvern hátt, við
viljum taka þátt í þeim breytingum.
Hún er órög við þá framtíðarsýn að
eiga samvinnu við aðrar þjóðir um
velferð Íslands og allrar Evrópu.
Hún er nógu víðsýn til þess að vilja
skoða möguleikana í slíkri sam-
vinnu um leið og hún gerir sér
grein fyrir þeim verðmætum sem
við þurfum að vernda. Kjósum
Bryndísi í 2. sæti.
Bryndís er
óttalaus
Anna Borgþórsdóttir skrifar:
ÁSGEIR Friðgeirsson er einn
þeirra sem láta verkin tala. Hann
var formaður í Breiðabliki um fimm
ára skeið og vann þar af kostgæfni
að málefnum félagsins. Einkum kom
hann að farsælli
lausn á skuldavanda
félagsins, frágangi á
æfingasvæði félags-
ins í Smáranum auk
þess sem hann
ásamt góðum fé-
lögum ýtti úr vör
hugmyndum um byggingu Fífunnar,
sem er fyrsta knatthúsið á höf-
uðborgarsvæðinu. Með tilkomu Fíf-
unnar hefur öll aðstaða til knatt-
spyrnu- og frjálsíþróttaiðkunnar
aukist til mikilla muna. Mun húsið
vafalaust efla meistarflokka íþrótta-
félaganna í Kópavogi og auka enn
frekar á áhuga og iðjusemi þeirra
sem yngri eru. Ég styð Ásgeir til
þingsetu. Hann er góður talsmaður
íþrótta og er málafylgjumaður sem
lætur verkin tala.
Styðjum Ásgeir
Hákon Sverrisson, fyrirliði meistaraflokks
karla í knattspyrnu í Breiðabliki, skrifar:
Í PRÓFKJÖRI Samfylking-
arinnar í Suðvesturkjördæminu eru
margir hæfir einstaklingar. Þar eru
þrjár konur, hver annarri fram-
bærilegri. Konur hafa hlotið gott
brautargengi hjá
Samfylkingunni. Sú
staða má ekki breyt-
ast. Umræðan um
matvöruverð hér á
landi er góður vitn-
isburður um eina
þessara ágætu
kvenna, Rannveigu Guðmunds-
dóttur, sem með mikilli vinnu og
rökfestu hefur átt þar stóran þátt.
Umhyggja Rannveigar fyrir vel-
ferð fjölskyldunnar er flestum kunn.
Áralöng reynsla hennar af þeim
málaflokki er mikilsverð nú þegar
vegið er að velferð fjölskyldunnar á
margvíslegan hátt, t.d. með óhag-
kvæmri skattastefnu ríkisstjórn-
arinnar. Vaxandi félagsleg vandamál
fjölskyldna má oft rekja til erfiðra
aðstæðna á heimilum. Þá reynir á.
Reynsla, þroski og kraftur er það
veganesti sem nauðsynlegt er að
hafa í farteskinu til að ná árangri um
heildstæða og farsæla fjöl-
skyldustefnu.
Ég hvet Samfylkingarfólk til að
tryggja Rannveigu glæsilega kosn-
ingu.
Áfram Rannveig!
Sigrún Benediktsdóttir lögfræðingur
skrifar:
Á SÍÐUSTU árum hefur ríkis-
stjórnin lækkað tekjuskatt ein-
staklinga í áföngum úr 41,93% í
38,78%. Skatthlutfallið væri orðið
enn lægra hjá skattgreiðendum í
Reykjavík ef R-listinn hefði ekki
hækkað útsvarið á borgarbúa en
útsvarið er innheimt sem hluti
tekjuskatts. Þessar skattalækkanir
ríkisstjórnarinnar mættu harðri
andspyrnu af hálfu þingmanna
Samfylkingarinnar og jafnvel eftir
að þær höfðu komið til fram-
kvæmda hamaðist verðandi for-
maður Samfylkingarinnar gegn
þeim. Í viðtali við Stöð 2 í apríl
1999 sagði Össur Skarphéðinsson
það hafa verið „mistök hjá rík-
isstjórninni að lækka skatta á ein-
staklinga yfir línuna“. Svipuð um-
mæli má finna í viðtali við
Morgunblaðið í sama mánuði.
Liðsmenn stjórnarandstöðunnar
hafa einnig gagnrýnt lækkun á
eignarskatti einstaklinga og kallað
hana „dekur við hátekjumenn“
þótt ljóst sé að margt fólk, ekki
síst eldra fólk sem vill búa áfram í
eigin húsnæði en hefur lágar
tekjur, nýtur góðs af.
En það er ekki nóg með að Sam-
fylkingin hafi lagst gegn skatta-
lækkunum ríkisstjórnarinnar á
einstaklinga. Hún lagði einnig til
ýmsar skattahækkanir í málefna-
skrá sinni fyrir síðustu kosningar.
Meðal þess sem þar gat að líta var
tillaga um að hækka skatta á bens-
ín svo um munaði.
Í málefnaskránni var einnig til-
laga um að hækka fjármagnstekju-
skatt úr 10% í 40%. Þessi hækkun
myndi fyrst og fremst draga úr
sparnaði í þjóðfélaginu. Hún
myndi einnig hafa afdrifaríkar af-
leiðingar fyrir leigumarkaðinn því
hækka þyrfti leigu verulega til að
mæta aukinni skattlagningu.
Myndarlegar skattalækkanir á
fyrirtæki á undanförnum árum
hafa skotið traustari stoðum undir
atvinnulífið. Því hefur fylgt mesta
kaupmáttaraukning síðari ára.
Þessi grunnur er mikilvægur fyrir
frekari lækkanir á tekjuskatti ein-
staklinga.
Það skýtur því skökku við að
þingmenn Samfylkingarinnar komi
nú hver af öðrum og reyni að afla
sér atkvæða í prófkjöri hennar
með því að gagnrýna háa skatta á
einstaklinga. Jóhanna Sigurðar-
dóttir fer þar fremst í flokki en
hún er einmitt sá þingmaður Sam-
fylkingarinnar sem hvað lengstan
feril á í baráttunni gegn skatta-
lækkunum. Samfylkingarmenn
geta ekki talist trúverðugir tals-
menn lægri skatta, hvorki gagn-
vart einstaklingum né fyrirtækj-
um. Reynslan sýnir að úr þeirri átt
er miklu fremur von á hærri álög-
um og auknum útgjöldum hins op-
inbera.
Samfylking
um hærri skatta!
Eftir Birgi
Ármannsson
Höfundur er aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs og
sækist eftir 6. sæti í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík.
„Samfylk-
ingarmenn
geta ekki
talist trú-
verðugir
talsmenn lægri skatta.“
Á NÆSTUNNI verður haldið
prófkjör Samfylkingarinnar í Suð-
urkjördæmi, sem er víðfeðmt og
fagurt. Mikið af hæfu og góðu
fólki keppir um sæti á listanum.
Sigríður Jóhann-
esdóttir er ein
þeirra. Hún hefur
sýnt það og sannað
að hún er fylgin sér
og hefur ríka rétt-
lætistilfinningu.
Hún hefur barist
fyrir jöfnuði og mannúðarsjón-
armiðum í anda jafnaðarstefn-
unnar og verið sterk í þeim mál-
um sem koma okkur öllum við, s.s.
atvinnumálum, heilbrigðismálum,
menntamálum og skattamálum.
Hún hefur sterkan bakgrunn bæði
í menntun og reynslu, m.a. verið
við nám bæði í Danmörku og
Rússlandi. Hún var farsæll kenn-
ari við einn af grunnskólum
Reykjanesbæjar í 25 ár áður en
hún var kosin á þing. Hún hefur
gegnt ýmsum mikilvægum trún-
aðarstörfum í Norræna félaginu
og í Kennarasambandi Íslands.
Hún hefur góða yfirsýn yfir þau
mál sem eru í brennidepli hverju
sinni og er fljót að sjá það sem
betur má fara í samfélaginu. Við
þurfum á heiðarlegum þingmanni
eins og Sigríði að halda og því
hvet ég flokkssystkin mín til að
kjósa Sigríði í eitt af þremur efstu
sætum listans hinn 9. nóvember
næstkomandi.
Styðjum Sigríði
Jóhannesdóttur
til sigurs
Ketill G. Jósefsson skrifar:
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111