Morgunblaðið - 08.11.2002, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.11.2002, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ UMBOÐSMAÐUR Alþingis af- greiddi á síðasta ári 303 mál en 69 mál voru óafgreidd í árslok. Á síð- asta ári voru skráð 248 ný mál sem var nokkur fjölgun frá árinu 2000 þegar 232 erindi bárust embættinu. Umboðsmaður, Tryggvi Gunnars- son, tók þar af upp tvö mál á síð- asta ári að eigin frumkvæði. Þetta er meðal þess sem lesa má í skýrslu umboðsmanns sem kynnt var á Al- þingi í gær. Í skýrslunni eru m.a. birtar nið- urstöður könnunar sem umboðs- maður lét gera á því hve langur tími leið á árunum 2000 og 2001 frá því að hann sendi stjórnvöldum ein- stök bréf og fyrirspurnir og þar til að svör þeirra bárust. Könnunin tók til alls 313 bréfa sem umboðs- maður sendi 72 stjórnvöldum á um- ræddu tímabili. Af þessum 313 bréfum fóru 158 til ráðuneytanna, 86 til stofnana, 41 til nefnda og 28 til sveitarfélaga. Samkvæmt könnuninni liðu meira en þrír mánuðir í 17,6% til- fella að umboðsmanni var svarað og meira en hálft ár leið í 8,3% tilvika. Lengstur var svartíminn hjá stofn- unum eða meira en hálft ár í 11,6% tilvika. Niðurstöðurnar sjást nánar á meðfylgjandi töflu en þar má sjá að í 45,4% tilfella var bréfum um- boðsmanns svarað innan 30 daga. Vonast umboðsmaður til þess að þessar upplýsingar verði stjórn- völdum hvatning til að bregðast skjótar við fyrirspurnum sínum. Umboðsmaður minnir í skýrslu sinni á þá stefnumörkun sína að skila niðurstöðu í málum eigi síðar en hálfu ári frá því að þau berast honum. Það sé þó háð því hvernig stjórnvöld bregðist við fyrirspurn- um sínum. Hann segir að fram til þessa hafi því almennt ekki verið fylgt eftir af hálfu embættisins að setja stjórnvöldum frest til að senda umbeðin gögn eða skýringar þrátt fyrir heimildir til þess í lögum um umboðsmann. Hefur umboðs- maður nú ákveðið að fylgja eftir áð- urnefndri stefnumörkun með því að setja stjórnvöldum slíka fresti. Flest mál tengd dómsmálaráðuneytinu Í skýrslu umboðsmanns er einnig að finna sundurliðun á málunum 248 sem tekin voru fyrir á síðasta ári eftir stjórnvöldum. Langflest tengdust dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu og undirstofnunum þess, eða 77, næstflest voru vegna fjár- málaráðuneytisins og undirstofn- ana þess, eða 36. Þá tengdist 31 mál heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu, 24 mál sveitarfélögunum og 19 menntamálaráðuneytinu. Við- fangsefni þessara 248 mála voru flest vegna tafa hjá stjórnvöldum á afgreiðslu máls, eða 44 erindi. Málsmeðferð og starfshættir stjórnsýslunnar voru tilefni 26 mála og 23 voru vegna fangelsismála. Vegna áðurnefndrar könnunar umboðsmanns kemur fram í skýrslu hans að bréfaskiptin árin 2000 og 2001 voru flest til dóms- málaráðuneytisins. Þar var 62% er- inda umboðsmanns svarað innan 30 daga og 83% þeirra hafði verið svarað innan tveggja mánaða. Hjá tveimur ráðuneytum, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og samgönguráðuneytinu, liðu hins vegar meira en þrír mánuðir þar til svar barst við 45% fyrirspurna um- boðsmanns. Þá er í skýrslunni birt yfirlit yfir viðbrögð stjórnvalda við sérstökum tilmælum umboðsmanns sem hann setti fram í álitum síðasta árs. Af 303 málum sem voru afgreidd beindi umboðsmaður sérstökum til- mælum til stjórnvalda í 43 þeirra þar sem farið var fram á að mál yrðu tekin til meðferðar að nýju. Af þessum 43 álitum var orðið við til- mælum umboðsmanns í 26 þeirra, í níu málum var ekki leitað á ný til stjórnvalds, sex mál eru enn til meðferðar en í tveimur var ekki farið að tilmælum umboðsmanns. Tengjast bæði þau mál dómsmála- ráðuneytinu. Umboðsmaður Alþingis gerði könnun á viðbragðstíma stjórnvalda við erindum sínum Meira en þrír mánuðir liðu í 17,6% tilfella                                  !  !! "   ! !   !!   "  # !! # " #  " #      !  $%  & '    '    '"    "'    (   ) *  +       TIL snarpra orðaskipta kom í upp- hafi þingfundar á Alþingi í gær eftir að Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, gerði að umtals- efni staðhæfingar fjögurra vísinda- manna – sem unnu að rannsóknum á umhverfisáhrifum Norðlingaöldu- veitu á Þjórsárver – um að niður- stöður þeirra hefðu verið „skertar og bjagaðar“ til að hægt yrði að ná hagstæðu mati á umhverfisáhrifun- um. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- ráðherra velti því m.a. fyrir sér í umræðunni hvort hugsanlegt væri að vísindamenn, sem væru yfirlýstir andstæðingar framkvæmdanna í Þjórsárverum, gætu átt erfitt með að skilja á milli pólitískra skoðana sinna og vísinda. Þessi ummæli Val- gerðar féllu í grýttan jarðveg stjórnarandstæðinga. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyf- ingarinnar –græns framboðs, hvatti ráðherra til að draga þessi ummæli sín til baka. Það gerði ráðherra ekki heldur ítrekaði þau í lok umræðunn- ar. „Ég kasta því fram sem mögu- leika að vísindamenn sem eru yf- irlýstir andstæðingar,“ sagði hún, „eigi hugsanlega erfitt með að greina á milli þess sem er pólitík og þess sem er vísindi.“ Össur Skarphéðinsson hóf um- ræðuna eins og fyrr sagði. „Nú hef- ur það gerst,“ sagði hann, „að fjórir mikils metnir vísindamenn hafa komið fram opinberlega og haldið því fram að niðurstöður þeirra, nið- urstöður rannsókna, hafi verið skertar og bjagaðar svo stappar nærri fölsun.“ Það hafi verið gert að sögn Össurar til að ná fram hag- stæðu mati á umhverfisáhrifum „og þar með auðvelda Landsvirkjun að fá fram samþykki við Norðlinga- ölduveitu“. Síðan sagði Össur: „Þetta mál er þeim mun alvarlegra þar sem ljóst er að hér er um að ræða vísindamenn sem eru þekktir fyrir vandvirkni og heiðarleg vinnu- brögð.“ Össur spurði ráðherra hvort ekki væri rétt að kanna sannleiksgildi þessara staðhæfinga og það áður en settur umhverfisráðherra, Jón Krisjánsson, kvæði upp endanlegan úrskurð í kærum á úrskurði Skipu- lagsstofnunar um mat á umhverfis- áhrifum framkvæmda við Norð- lingaölduveitu. Hægt er að gera athugasemdir við matsskýrsluna Iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, svaraði ekki fyrir- spurn Össurar en minnti á að fram- kvæmdaaðilinn, Landsvirkjun, bæri ábyrgð á matsskýrslunni en hægt væri að gera athugasemdir við hana við Skipulagsstofnun. Síðan tæki kæruferillinn við. Nokkrir þingmenn tóku þátt í umræðunni, þeirra á meðal Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylking- arinnar. Hann spurði iðnaðarráð- herra hvort hún hefði reynt að hafa áhrif á Landsvirkjun í þessu máli, þ.e. í þeim tilgangi að ná fram hag- stæðri niðurstöðu á umhverfismati. Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði spurn- inguna hins vegar fráleita. Undir það tók iðnaðarráðherra. Það væri hlægilegt að halda því fram að hún stjórnaði málinu úr ráðuneytinu. Morgunblaðið/Kristinn Björn Bjarnason, Jónas Hallgrímsson og Hjálmar Árnason hlýða á umræður í gær. Snörp orðaskipti um rann- sókn á umhverfisáhrifum SIGRÍÐUR Jóhannesdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, hefur ásamt nokkrum öðrum samflokks- mönnum sínum lagt fram á Alþingi frumvarp til laga sem miðar að því að gera grundvallarbreytingar á Lánasjóði íslenskra námsmanna. Með frumvarpinu er lagt til að námslán verði að hluta til hreinn styrkur til námsmannsins. Þannig er lagt til að þegar námsmaður hef- ur lokið lokaprófum á tilskildum tíma eða framvísað vottorði um lög- mætar tafir á námi muni 30% af upphæðinni sem hann hefur tekið að láni breytast í óendurkræfan styrk. Styrkurinn yrði hvorki tekjutengd- ur né skattlagður. „Þá er lögð til sú meginbreyting að námslán verði vaxtalaus eins og var áður en nú- gildandi lög tóku gildi,“ segir m.a. í greinargerð frumvarpsins. Aukin- heldur er m.a. lagt til að endur- greiðsluhlutfall námslána verði breytt úr 4,75% í 3,75% í því skyni að gera greiðslubyrði afborgana við- ráðanlegri að því er fram kemur í greinargerð. Frumvarp Sigríðar Jóhannesdóttur Námslán verði að hluta til styrkur TÓMAS Ingi Olrich mennta- málaráðherra sagði í fyrirspurn- artíma á Alþingi í vikunni að ekki væri svigrúm til þess í fjár- lagatillögum ráðuneytisins fyrir fjárlög næsta árs að gera ráð fyrir stofnun framhaldsskóla á Snæfellsnesi. Sveitarfélögum á Snæfellsnesi hefði verið gerð grein fyrir því sl. sumar. Kom þetta fram í svari ráð- herra við fyrirspurn Jóns Bjarnasonar, þingmanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Jón sagði m.a. að það væri blóðtaka fyrir hvert byggðarlag að senda allt ungt fólk burt til menntunar frá sextán ára aldri. Því hefðu Snæfellingar gert sér grein fyrir og af þeim sökum sóst eftir því við menntamála- ráðuneytið á undanförnum árum að fá að stofna framhaldsskóla á norðanverðu Snæfellsnesi. Spurði Jón menntamálaráðherra hvað liði ákvörðun um stofnun nýs framhaldsskóla á norðan- verðu Snæfellsnesi. Menntamálaráðherra greindi frá því að viðræður hefðu staðið milli ráðuneytisins og sveitarfé- laga á Snæfellsnesi undanfarin tvö til þrjú ár um stofnun og rekstur framhaldsskóla á norð- anverðu Snæfellsnesi. „Síðastliðið vor lágu fyrir allar upplýsingar og tillögur um stofnun framhaldsskóla Snæfell- inga og heimamenn höfðu und- irbúið málið vel. Það var komið á ákvörðunarstig,“ sagði ráðherra og hélt áfram. „Hins vegar hafa málefni framhaldsskóla á lands- byggðinni almennt og sérstak- lega málefni verkmenntunar verið til umfjöllunar í ráðuneyt- inu að undanförnu. Það er ljóst að einkum smærri framhaldsskólar eiga við tals- verða erfiðleika að stríða og samkeppnisstaða þeirra er þröng.“ Verkmenntun á undir högg að sækja á landsbyggðinni Ráðherra sagði að verkmennt- un á landsbyggðinni ætti undir högg að sækja vegna lítillar að- sóknar sem ylli því að námshóp- ar væru mjög litlir og óhag- kvæmir. „Við þessar aðstæður ákvað ég við undirbúning fjárlagagerð- ar að leggja áherslu á að tryggja stöðu starfandi framhaldsskóla einkum hvað varðar verkmennt- unina. Af því leiðir að ekki var svigrúm til þess í fjárlagatillög- um ráðuneytisins fyrir árið 2003 að stofna framhaldsskóla á Snæ- fellsnesi.“ Í lok umræðunnar sagði Jón Bjarnason m.a. að svör ráðherra væru dapurleg. Ekki svigrúm fyr- ir framhaldsskóla á Snæfellsnesi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.