Morgunblaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 30
LISTIR
30 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
CLINT Eastwood fer bæði meðaðalhlutverkið og er leikstjórispennumyndarinnar Blood
Work, sem frumsýnd verður í dag og
byggð er á skáldsögu eftir Michael
Connelly, en Brian Helgeland skrif-
aði kvikmyndahandritið. Eastwood
leikur Terrell McCaleb, FBI-
útsendara, sem er vinsæll fréttamat-
ur en óvinsæll hjá samstarfsmönnum
sínum. Kvöld eitt er hann að rann-
saka staðinn þar sem nýjasta rað-
morðið var framið. Honum verður þá
litið á náunga í áhorfendahópi sem
hann telur vera morðingjann og
hleypur á eftir honum, en fær hjarta-
áfall áður en hann nær að ljúka verk-
inu.
Tveimur árum síðar hefur nýtt
hjarta verið grætt í hann og er hann
að gera sig kláran til að taka við fyrra
starfi þegar ókunnug kona (Wanda
De Jesus) kemur til hans og tjáir hon-
um að nýja hjartað hans sé úr systur
sinni sem fallið hafi fyrir morðingja
hendi. Hún biður McCaleb að finna
morðingja systur sinnar sem hann
samþykkir þrátt fyrir fortölur lækn-
isins síns (Anjelica Huston). Hann fer
af stað með hjálp nágranna síns
Buddys (Jeff Daniels) til að elta
morðingjann uppi.
Clint Eastwood stendur einnig að
framleiðslu myndarinnar í samvinnu
við Judie G. Hoyt, en myndin er
framleidd hjá Warner Bros. Pictures
og var filmuð m.a. í Los Angeles, San
Fernando-dalnum og á Long Beach.
Eastwood leikur Terrell McCaleb,
FBI-útsendara, sem er vinsæll
fréttamatur en óvinsæll hjá sam-
starfsmönnum sínum.
Ráðgáta
raðmorð-
ingja
Sambíóin og Háskólabíó frumsýna
Blood Work.
Leikarar: Clint Eastwood, Wanda De
Jesus, Jeff Daniels, Anjelica Huston,
Tina Lofford, P.J. Byrne, Alix Koromzay,
Beverly Leech, Mason Lucero og Paul
Rodrigues.
STÓRLEIKARINN RobinWilliams leikur aðal-hlutverkið í spennumyndinni
One Hour Photo, sem Smárabíó tek-
ur til sýninga í dag, en mynd þessi
var sýnd í Regnboganum á vegum
hins nýja kvikmyndaklúbbs 101 Bíó-
félags í októbermánuði.
Williams leikur Seymour Parrish,
hrjáða sál sem einsemdin hefur leik-
ið grátt. Eins og nafnið gefur til
kynna starfar Parrish hjá framköll-
unarþjónustu, sem er í úthverfi
bandarískrar stórborgar. Hann hef-
ur óeðlilegan áhuga á fjölskyldu
einni, sem hann hefur framkallað
fyrir árum saman. Myndin er sál-
fræðitryllir sem hlotið hefur lofsam-
lega dóma erlendra gagnrýnenda.
Auk Williams eru helstu leikarar
myndarinnar Connie Nielsen, Mich-
ael Vartan, Dylan Smith, Eriq La
Salle, Erin Daniels, Paul H. Kim og
Gary Cole. Leikstjóri og handrits-
höfundur er Mark Romanek.
Robin Williams leikur Seymour
Parrish, hrjáða sál sem einsemdin
hefur leikið grátt.
Með fjöl-
skyldu á
heilanum
Smárabíó frumsýnir One Hour Photo.
Leikarar: Robin Williams, Connie Niel-
sen, Michael Vartan, Dylan Smith, Eriq
La Salle, Erin Daniels, Paul H. Kim og
Gary Cole.
hann sé hinn eini sanni meistari dul-
argervanna.
Framleiðendur myndarinnar, sem
sögð er gamanmynd fyrir alla fjöl-
skylduna, eru Jack Giarraputo, Sid
Ganis, Alex Siskin og Barry Bern-
ardi, en þeir komu einnig að fram-
leiðslu bíómyndanna Big Daddy og
Wedding Singer. Aðalleikarinn,
Dana Carvey, sem jafnframt er
handritshöfundur myndarinnar
ásamt Harris Goldberg, bregður sér
í 36 dulargervi í myndinni og talar
fjórtán tungumál sem hin ógæfu-
sama hetja Pistachio Disguisey, sem
veit ekkert af fjölskylduleyndarmál-
inu fyrr en eftir hvarf foreldra sinna.
Perry Andelin Blake er að þreyta
frumraun sína sem leikstjóri, en hef-
ur fram til þessa verið í hlutverki
leikmyndahönnuðar og starfað m.a.
með Adam Sandler við bíómynd-
irnar Mr. Deeds, Little Nicky, Big
Daddy, The Waterboy, The Wedd-
ing Singer og Billy Madison.
PISTACHIO Disguisey er góð-hjartaður ítalskur þjónn, semvinnur á veitingastaðnum
Frabbrizio sem er í eigu föður hans.
Þjónninn ungi finnur hjá sér óvið-
ráðanlega hvöt til að skopstæla við-
skiptavinina og breytir ásýnd sinni
með því að klæðast dulargervum af
ýmsum toga. Þessir eiginleikar, sem
honum virðast vera í blóð bornir,
hafa nefnilega fylgt Disguisey-
fjölskyldunni um langa hríð enda
hafa forfeðurnir allir verið miklir
meistarar í dulargervum og hafa
þeir getað dulbúið sig sem hver sem
er með því að nýta sér hina miklu
Energico-orku. Þessir miklu hæfi-
leikar verða til þess að óvinurinn og
glæpamaðurinn Devlin Bowman
rænir foreldrum Pistachios og nú
reynir á hæfileika hans til að leita
óvininn uppi og freista þess að frelsa
foreldrana. Hann nýtur óvæntrar
leiðsagnar afa síns og þarf nú að
sanna það fyrir sér og öðrum að
Dana Carvey bregður sér í 36 dul-
argervi í myndinni og talar fjórtán
tungumál sem hin ógæfusama hetja
Pistachio Disguisey.
Meistarar
dular-
gervanna
Smárabíó og Borgarbíó, Akureyri,
frumsýna The Master of Disguise.
Leikarar: Dana Carvey, Jennifer Esp-
osito, Mark Devine, Erick Avari, James
Brolin, Bo Derek, Harold Gould, Robert
Machray, Edie McClurg og Brandon
Molale.
GAMANLEIKARINN vinsæliJackie Chan fer með aðal-hlutverkið í gamanmyndinni
The Tuxedo, sem fjallar um Jimmy
Tong, fyrrum leigubílstjóra, sem orð-
inn er einkabílstjóri milljarðamær-
ingsins og glaumgosans Clarks Devl-
in, sem leikinn er af Jason Isaack.
Jimmy kemst að því að það er aðeins
ein regla, sem hann verður að hafa í
heiðri í sínu mikilvæga embætti og
það er að fara aldrei í samkvæmisföt
húsbónda síns. Hann stenst þó ekki
mátið þegar húsbóndinn lendir á
sjúkrahúsi. Um leið og hann smokrar
sér í fötin kemur í ljós að þau búa yfir
óvæntum töfrum því hann verður
samstundis hugrakkt hraustmenni og
mikill slagsmálagarpur. Fötin og
hæfileikarnir, sem fylgja þeim, flækja
ökuþórinn inn í heim njósna og ódæð-
isverka þar sem hættur leynast við
hvert fótmál. Enginn er til hjálpar
nema stúlkan Des Blaines, sem
Jennifer Love Hewitt leikur, en hún
er einnig nýgræðingur í myrkviðum
undirheimanna. Jackie
Chan þykir ótrúlega fimur
og hefur gjarnan verið kall-
aður „hin lifandi kvik-
myndabrella“, en það var
spennumyndin Rumble in
the Bronx (1996) sem kom
Chan á kortið í Hollywood
þar sem hann hefur leikið
síðan í mörgum vinsælum
myndum, t.d. Rush Hour
(1998) og Shanghai Noon
(2000). Það hefur tekið
Jackie Chan um 20 ár að
verða einn af ástsælustu
gaman- og hasarleikurum
samtímans. Lengi vel var
hann óþekktur utan heima-
landsins, Hong Kong, þar
sem hann varð stórstjarna í
yfir þrjátíu myndum, sem
þóttu sýna m.a. leikni hans í aust-
urlenskum bardagaíþróttum og ótví-
ræða gamanleikhæfileika.
Handrit myndarinnar skrifuðu
Phil Morris og Matt Manfredi, en
leikstjóri er Kevin Dowling.
Það hefur tekið Jackie Chan um 20 ár að
verða einn af ástsælustu gaman- og hasar-
leikurum samtímans.
Sambíóin í Reykjavík og á Akureyri og
Laugarásbíó frumsýna The Tuxedo.
Leikarar: Jackie Chan, Jennifer Love
Hewitt, Debi Mazar, Peter Stormare,
James Brolin og Jason Isaacs.
Töframáttur sparigallans
LEIKFÉLAG Fljótsdalshéraðs
frumsýnir í kvöld verkið Þrek og tár
eftir Ólaf Hauk Símonarson. Verkið
var fyrst sviðsett í Reykjavík árið
1995 og hefur notið mikilla vinsælda.
Í samtali við Odd Bjarna Þorkels-
son leikstjóra kom fram að þetta er
45. verkefni leikfélagsins, en það var
stofnað árið 1966. Oddur Bjarni lýsir
verkinu sem fjölskyldualbúmi: „Við
fylgjumst með lífi fjölskyldu á eins
árs tímabili.“ Sonurinn Davíð kemur
frá Ameríku og sér skyldulið sitt í
nokkuð nýju ljósi. Innan fjölskyld-
unnar ríkir togstreita og ást og af-
brýði marka djúp spor í samskiptum
fólks.
Þrek og tár varð mjög vinsælt á
fjölunum í Reykjavík og Oddur
Bjarni segir velgengni þess ekki síst
helgast af skemmtilegri tónlist.
„Verkið er mjög litað af dægurlögum
áranna í kringum 1960,“ segir hann.
„Þetta er skemmtilegt leikrit því það
einkennist af snörpum svipmyndum í
mjög margslunginni atburðarás. Það
er líka kjöt á beinunum. Húmor og
drama. Þér stendur ekki á sama um
þetta fólk. Það er ekki sérstakar
hetjur, öllu heldur eru þessar mann-
eskjur fólk sem við þekkjum og finn-
um hljómgrunn í.“
Aðalleikarar verksins eru Einar
Rafn Haraldsson, Hálfdán Helgason,
Sigurlaug Gunnarsdóttir, Freyja
Kristjánsdóttir og Vígþór Sjafnar
Zophoníasson, en ríflega 40 manns
koma að sýningunni. Um ljós sér
Guðmundur Steingrímsson og tón-
listarstjóri er Jón Kristófer Arnar-
son. Gerð búninga er í höndum Krist-
rúnar Jónsdóttur og sviðsmynd var
unnin af Ingibjörgu Jóhannesdóttur
og Jóni Gunnari Axelssyni.
Oddur Bjarni hóf sinn leikstjórn-
arferil fyrir 7 árum. Hann nam leik-
stjórn í Bristol Old Vic og útskrifaðist
fyrir ári síðan. Hann hlaut við út-
skrift verðlaun fyrir framúrskarandi
árangur í náminu. Af öðrum verkefn-
um Odds Bjarna má nefna að nýlega
setti hann Óþelló Shakespeares upp
með breskum leikhópi á Kýpur.
Næstu verkefni Odds eru uppfærsla
barnaleikrits í Mosfellssveit og að-
stoðarleikstjórn í Borgarleikhúsinu.
Leikritið Þrek og tár verður sem
fyrr segir frumsýnt í Valaskjálf á Eg-
ilsstöðum í kvöld og hefst sýningin kl.
20.30. Sýningar verða alls 9 talsins.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Hér fer aðalpersónan Davíð í bað við fótskör kátra fraukna.
Snarpar svip-
myndir á sviði
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
ANNA Gunnlaugsdóttir opnar sýn-
inguna Andlit daganna kl. 15 í dag,
laugardag, í Galleríi Glámi, Lauga-
vegi 26, gengið inn frá Grettisgötu.
Á sýningunni eru 365 verk, unnin
annars vegar með akrýllitum, fín-
muldu gleri og kísildufti, á mashon-
ít, og hins vegar pastelmyndir á
pappír.
Andlit daganna er verkefni þar
sem hver dagur er túlkaður í formi
einnar andlitsmyndar. Anna vann
að verkunum á sýningunni í eitt ár,
frá 1. nóv. 2001 til 31.okt. 2002.
Þetta er tíunda einkasýning
Önnu, en hún hefur einnig tekið
þátt í ýmsum samsýningum, þar á
meðal samsýningunni „smaa form-
atter af format“ sem stendur nú yf-
ir í Billedstedet í Danmörku, en þar
sýna 50 listamenn frá sex löndum.
Sýningunni lýkur 24. nóvember.
Hún verður opin virka daga kl. 11–
18 og 14–17.
Upplýsingar um Önnu Gunnlaugs
má finna á www.vortex.is/agunn/.
Anna Gunnlaugsdóttir hefur skapað eitt andlit fyrir hvern dag ársins.
Andlit fyrir hvern dag ársins