Morgunblaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN 38 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ N ú eru prófkjör stjórnmálaflokk- anna yfirvofandi, með öllum þeim greina- og frétta- flaumi sem þeim tilheyrir. Eins og við vitum eru þau liður í lýð- ræðinu, sem virðist vera óum- deilt fyrirkomulag hér á landi eins og annars staðar í hinum vestræna heimi. Menn eru al- mennt sammála um að best sé að „lýðurinn“ ráði málum sínum sjálfur, með því að kjósa sér handhafa ríkisvaldsins; oftast á fjögurra ára fresti. Það kann að vera rétt, en málið er hins vegar ekki svo einfalt. Lýðræði er ef til vill öfugnefni við núverandi skip- an mála. Ástæðuna er að finna í því valdi sem stjórn- málamenn búa yfir. Ógn- arvald rík- isins er mikið. Það getur svipt menn eigum sínum, sett þá í fangelsi og skipað þeim að gera hitt og þetta. Það setur sér regl- ur sjálft um viðurlög við misbeit- ingu valdsins. Ríkisvaldið er byggt á svolítið furðulegri forsendu; nefnilega þeirri að við þurfum að velja okkur leiðtoga. Hlutverk leiðtog- anna, sem oftast vilja vel og eru hið vænsta fólk, er að hafa vit fyrir okkur og setja reglur um hitt og þetta. Þessir æðstuprest- ar ákveða hvað við megum setja ofan í okkur. Þeir gera okkur erfiðara að kaupa dísilbíla en bensínbíla. Þeir ákveða hverjir megi flytja til landsins. Þeir banna okkur að flytja inn ódýr matvæli. Þeir reka heilbrigð- iskerfið með áætlunarbúskap og biðröðum og banna okkur að borga fyrir betri þjónustu ef við viljum. Þeir leyfa okkur ekki að skemmta okkur eins og við kjós- um sjálf. Stjórnmál snúast um boð og bönn, en fyrst og fremst er rík- isvaldinu beitt til að færa pen- inga úr einum vasa í annan. Kannski er þó réttara að segja úr mörgum vösum í marga aðra vasa; stundum í sama vasann aftur! Við erum neydd til að greiða nærri helming launa okk- ar í „sameiginlegan sjóð“ sem stjórnmálamenn ráðstafa að vild. Þessari skipan mála fylgir auðvitað sá galli að fyrirmennin þurfa að sæta mjög takmarkaðri ábyrgð, tapist þessir fjármunir. Þau mega tefla að vild með pen- ingana okkar. Til dæmis geta þau veitt ríkisábyrgðir fyrir milljarða á milljarða ofan. Ef illa fer þurfa hinir háu herrar ekki að borga. Nei, í versta falli verða þeir ekki endurkjörnir í næstu kosningum. Á ráði lýðræðisins er annar en um leið nátengdur ljóður. Á enskuskotnu máli heitir hann lobbíismi. Fulltrúar hinna ýmsu sérhagsmunahópa herja á rík- isvaldið með óskir um alls kyns fyrirgreiðslu, oftast á kostnað annarra. Sumir framleiðendur vilja að tollar séu lagðir á er- lenda framleiðslu. Flestar stéttir vilja svokölluð lögvernduð starfs- heiti, til að takmarka heilbrigða samkeppni. Menningarfrömuðir vilja framlög úr ríkissjóði til að stunda störf sín (sem hlýtur að þýða að fáir hafi nægan áhuga á þeim til að greiða fyrir). Hið góða fólk sem við veljum til að beita ríkisvaldinu gegn okkur á erfitt með að standast þrýsting þessara hópa. Hags- munir þeirra eru áþreifanlegri en hinir dreifðu hagsmunir skattgreiðenda. Tíu krónur úr vasa hvers skattgreiðanda eru ágætis ársstyrkur fyrir einn æðri listamann. Hvaða talsmaður almennings ætti að stíga fram á sjónarsviðið fyrir tíu krónur? Ef einhver vogar sér er hann í þokkabót oftast úthrópaður sem andstæðingur æðri lista, eða eft- ir atvikum þess málefnis sem styrkt er. Í þessu felst sóun. Ef skatt- greiðandinn fengi að halda þess- um tíu krónum er líklegt að hann myndi verja þeim á skyn- samlegri máta en þinggreifarnir. Tíkallarnir safnast saman og verða að nærri helmingi tekna launamannsins. Hann hefði sjálf- ur hag af því að ráðstafa þessum peningum á skynsamlegan hátt. Hann gæti fjárfest á hlutabréfa- markaðinum, í fyrirtæki sem hann teldi líklegt að myndi skila arði í framtíðinni með því að framleiða eitthvað sem fólk vildi kaupa. Hann gæti sparað til elli- áranna. Í öllu falli væri hann að fara með eigin peninga. Hann þyrfti sjálfur að súpa seyðið af óskynsamlegri fjárfestingu og nyti ágóðans af skynsemi sinni. Einstaklingurinn er máttlaus, þegar fjármunum hans er ráð- stafað með þessum hætti, þ.e. í gegnum ríkisvaldið. Það stoðar lítið fyrir einn kjósanda að kjósa frambjóðanda sem vill e.t.v. að fólk fái að halda peningunum í eigin vasa. Einstaklingurinn er ofurseldur kerfinu. Fólk er sífellt að taka ákvarðanir fyrir hann og hann getur sér enga björg veitt. Þar að auki er afar ólíklegt að nokkur sjái sér hag í að bjóða sig fram með niðurskurð ríkis- útgjalda á stefnuskránni. Lýð- ræðið er leikvöllur sérhagsmuna og þeirra sem vilja útþenslu rík- isins. Til að ná eyrum fjöldans þarf að eyða milljónum króna í auglýsingar. Það þarf enginn að efast um að sérhagsmunahóp- arnir flykkist á kjörstað. Við höfum þannig skapað víta- hring. Lausnin á þessum vanda er að takmarka vald stjórnmála- mannanna. Þannig væru ókostir lýðræðisins lágmarkaðir, því þótt það sé ekki fullkomið er það besta lausnin. Án þess væri of- beldi eina leiðin til að skipta um valdhafa, en lýðræði sér til þess að menn sjá sér ekki hag í að beita valdi til að ná sínu fram. Til þess að takmarka rík- isvaldið þarf að stjórna því. Ein- hver þarf m.ö.o. að bjóða sig fram með þá stefnu að leggja starf sitt niður, eða því sem næst. Til þess þarf fjármuni. Til þess þarf að ná eyrum hins al- menna Íslendings, sem vinnur baki brotnu til að tryggja sér og sínum sómasamlegt líf, en fær ekki að njóta ávinningsins nema að hálfu leyti. Það er hægara sagt en gert. Lýðræðis- hugsjónin Ógnarvald ríkisins er mikið. Það getur svipt menn eigum sínum, sett þá í fang- elsi og skipað þeim að gera hitt og þetta. Það setur sér reglur sjálft um viðurlög við misbeitingu valdsins. VIÐHORF Eftir Ívar Pál Jónsson ivarpall@mbl.is Prófkjör Prófkjör stjórnmálaflokkanna vegna þingkosninganna í maímánuði nk. fara fram í vetur. Af því tilefni birtir Morgunblaðið greinar fram- bjóðenda og stuðningsmanna. Þær er einnig hægt að nálgast undir liðnum prófkjör á forsíðu mbl.is. Á ALÞINGI hef ég mikið unnið að málefnum ungs fólks og barna- fjölskyldna. Í tíð minni sem félags- málaráðherra komust á miklar um- bætur í húsnæðismálum. Þar má nefna uppbyggingu nokkurra þús- unda félagslegra eignar- og leigu- íbúða á höfuðborgarsvæðinu, m.a. með kaupleigukerfinu, svo og að komið var á húsaleigubótum. Mikil uppbygging námsmannaíbúða átti sér stað á þessum tíma með hag- stæðum lánskjörum sem tryggðu lága leigu námsmanna. Auk þess var komið á húsbréfakerfinu þar sem fólk fær lánafyrirgreiðslu með stuttum fyrirvara. Það kerfi leysti af hólmi hið svokallaða biðraða- kerfi þar sem fólk þurfti að bíða í marga mánuði og jafnvel ár eftir lánum. Brýnasta verkefni í hús- næðismálum nú er endurreisn á félagslegu húsnæði þar sem í for- gangi væri uppbygging leiguíbúða á hóflegum kjörum, m.a. fyrir námsmenn og lágtekjufólk. Málefni barnafjölskyldna og námsmanna Málefni barna hef ég sett í for- gang, bæði sem ráðherra á sínum tíma og sem þingmaður. Þar má nefna stofnun embættis Umboðs- manns barna, úrbætur í barna- verndarmálum og umönnunarbæt- ur fyrir foreldra fatlaðra og langveikra barna. Jafnframt varð bylting í aðstöðu fatlaðra barna um allt land með nýrri löggjöf um málefni fatlaðra og stofnun Fram- kvæmdasjóðs fatlaðra. Barnabæt- ur voru einnig auknar verulega en þær hafa nú verið skertar talsvert. Nú eru aðeins greiddar ótekju- tengdar barnabætur með börnum að sjö ára aldri en fyrir 1995 voru þær greiddar með börnum að sex- tán ára aldri. Á síðasta Alþingi náði ég svo fram tillögu um heildarstefnumót- un í málefnum barna og unglinga þar sem ríkisstjórninni var falið að undirbúa heildstæða og sam- ræmda opinbera stefnu í málefn- um þeirra. Markmið stefnumótun- arinnar er að tryggja hag og velferð barna á öllum sviðum en á grundvelli hennar á síðan að gera fimm ára framkvæmdaáætlun í samráði við opinberar stofnanir og félagasamtök sem vinna að mál- efnum barna og unglinga. Auk þess var samþykkt tillaga um auk- inn rétt foreldra vegna veikinda barna en samkvæmt henni á að leggja fram tillögur þar að lútandi á yfirstandandi Alþingi. Loks vil ég nefna að á þessu þingi hef ég lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um tekjuskatt og eign- arskatt þess efnis að heimilt verði að draga vexti og verðbætur af námslánum frá skattskyldum tekjum. Mér þætti afar vænt um stuðn- ing þinn í prófkjöri Samfylking- arinnar nk. laugardag, 9. nóvem- ber, en þar sækist ég eftir að leiða annað Reykjavíkurkjördæmið í komandi alþingiskosningum. Aðgerðir í þágu ungs fólks Eftir Jóhönnu Sigurðardóttur „Málefni barna hef ég sett í for- gang.“ Höfundur er alþingismaður. ÍSLAND er smáríki sem á vel- sæld sína undir frelsi í alþjóða- viðskiptum og friði í heiminum. Niðurfelling tollmúra víða um heim gerir íslenskar útflutnings- vörur vænlegri kost fyrir neytend- ur á erlendum mörkuðum. Að sama skapi hafa íslenskir neyt- endur hagnast á að dregið sé úr hömlum á innflutningi og innflutn- ingstollar lækkaðir. Á síðustu áratugum hefur mark- visst verið unnið að því að auka viðskiptafrelsi. Á það bæði við hér- lendis sem í öðrum iðnþróuðum ríkjum. Til marks um þetta má nefna sífellt viðameiri GATT- samninga og samning EFTA og Evrópusambandsins um evrópska efnahagssvæðið sem lagði grunn að sameiginlegum innri markaði milli þeirra landa sem aðilar eru að þessum samningum. Þó ber enn á því að ríki telji það þjóna hags- munum sínum að setja á sérstaka verndartolla. Nýlegt dæmi er stefna Bandaríkjastjórnar að skattleggja innflutt stál til að vernda innlenda stálframleiðslu. Evrópusambandið hefur svarað með refsiaðgerðum gagnvart bandarískum innflutningi. Á alþjóðavettvangi eigum við Ís- lendingar að skipa okkur í lið með þeim sem berjast fyrir frelsi í al- þjóðaviðskiptum. Jafnframt ætti barátta fyrir friði og lýðræðisleg- um umbótum í heiminum að vera kjörorð Íslendinga í alþjóðlegum samskiptum. Smáríkjum farnast ekki vel í heimi óöryggis og þvingana. Við þannig aðstæður er það sá sterki sem ræður. Við höfum lagt okkar að mörk- um til að viðhalda friði í Evrópu með aðildinni að Atlantshafs- bandalaginu. Nú standa yfir viða- miklar breytingar á samsetningu og aðferðafræði bandalagsins. Á þessum breytingatímum verðum við að halda vöku okkar. Þá verðum við að fylgjast grannt með þróun mála innan Evr- ópusambandsins bæði hvað varðar stækkun þess, sameiginlega pen- ingastefnu, þróun í átt til meiri áhrifa stórþjóða og uppbyggingar sjálfstæðs Evrópuhers. Enn er margt á huldu um hvernig Evr- ópusambandið þróast á allra næstu árum. Það er ábyrgðarlaust að mæla skýlaust með því við kjós- endur að hagsmunum okkar verði best borgið með að sækja strax um aðild að Evrópusambandinu. Sjálfstæði Íslands kom ekki fyr- irhafnarlaust. Fyrir því börðust hugsjónamenn eins og Jón Sig- urðsson sem var jafnframt tals- maður frelsis í viðskiptum. Það var sannfæring þessara Íslendinga að sjálfstæði þjóðarinnar myndi færa fólki lýðræði og betri efnahagsleg kjör. Þetta hefur gengið eftir. Það væri glapræði að fórna sjálfstæð- inu fyrir draum um sameinaða Evrópu sem geti boðið Bandaríkj- unum birginn. Því síður þjónar það lýðræðinu að ákvarðanataka færist frá fólkinu til skriffinna í Brussel. Í þágu frelsis, friðar og lýðræðisumbóta Eftir Stefaníu Óskarsdóttur „Það er ábyrgð- arlaust að mæla ský- laust með því við kjósendur að hagsmunum okkar verði best borgið með að sækja strax um aðild að Evrópusambandinu.“ Höfundur er stjórnmálafræðingur og varaþingmaður, gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. DILBERT mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.