Morgunblaðið - 08.11.2002, Side 20
ERLENT
20 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Taktu lottó í áskrift á lotto.is eða næsta sölustað
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
| Y
D
D
A
/
si
a.
is
N
M
0
7
6
4
7 • Þínar tölur eru alltaf í pottinum
• Frír útdráttur fjórum sinnum á ári
– gildir um Lottó, Víkingalottó og Jóker
• Þú styrkir gott málefni
DICK Gephardt, sem verið hefur
leiðtogi minnihluta demókrata í full-
trúadeild Bandaríkjaþings, mun
ekki sækjast eftir að gegna því emb-
ætti áfram. Kemur þetta í kjölfar
ósigurs demókrata í þingkosningun-
um vestra á þriðjudag.
Gephardt, sem er frá Missouri og
hefur verið leiðtogi demókrata í full-
trúadeildinni í átta ár, sagði er nið-
urstöður kosninganna lágu fyrir að
þær bæri einkum að rekja til stuðn-
ings við George W. Bush forseta og
þá föðurlandshyggju sem blossað
hefði upp í Bandaríkjunum eftir árás
hryðjuverkamanna á Bandaríkin 11.
september í fyrra. Hann sagði þessi
viðbrögð þjóðarinnar eðlileg.
Búist er við harðri valdabaráttu
innan Demókrataflokksins í kjölfar
ósigursins í kosningunum. Ýmsir
valdamiklir menn á borð við Gep-
hardt verði gerðir ábyrgir fyrir óför-
unum og nýir menn freisti þess að
nýta svigrúmið sem skapast hefur til
að láta til sín taka. Er þá m.a. horft
til forsetakosninganna 2004 og ef til
vill þó frekar 2008.
Gephardt
hættir
Washington. AFP.
SÉRFRÆÐINGAR reyna nú að
finna orsakir flugslyssins í Lúxem-
borg á miðvikudag þar sem 20 manns
fórust þegar Fokker-50 flugvél frá
flugfélaginu Luxair hrapaði skömmu
fyrir lendingu. „Þetta er afar flókin
rannsókn,“ sagði talsmaður lögreglu í
Lúxemborg, Vic Reuter. „Franskir
sérfræðingar aðstoða okkur við að
greina upplýsingar úr svarta kassan-
um.“ Um 70 ættingjar fórnarlamb-
anna, sem flest voru þýskir kaup-
sýslumenn, komu í gær á slysstaðinn
og lögðu blómsveiga við flakið.
Tveir komust lífs af úr slysinu, ann-
ar þeirra var flugstjóri vélarinnar og
hinn franskur ferðamaður. Þeir eru
báðir mikið slasaðir en tilkynnt var í
gær að flugstjórinn væri talinn úr lífs-
hættu og Frakkinn einnig.
Talsmaður þýsku flugumferðar-
stjórnarinnar segir að slysið sé ein
stór ráðgáta. Hann segist ekki trúa
því að þokan hafi valdið því, þó svo að
hún hafi getað haft einhver áhrif.
Hann segir að allt hafi verið í lagi um
borð nokkrum mínútum fyrir óhappið
og ekkert neyðarkall borist. Ekki sé
óalgengt að þoka sé á þessum slóðum
og flugvélar hafi lent á flugvellinum í
Lúxemborg án vandræða nokkrum
mínútum áður. Skyggnið var um 100
metrar þegar flugvélin fórst.
Enn óljóst
um orsakir
Luxair-
slyssins
Lúxemborg, Niederanven. AP, AFP.
DANSKIR björgunarmenn flytja
farþega úr annarri af tveimur
lestum sem rákust saman norður
af Kaupmannahöfn í gær með
þeim afleiðingum að kona lést og
fjórir slösuðust, að sögn dönsku
lögreglunnar. Haft var eftir
lækni að tveir væru alvarlega
slasaðir.
Áreksturinn varð á háanna-
tíma, um 17.30 að staðartíma,
skammt frá Holte-lestarstöðinni
sem er um 20 km norður af
Kaupmannahöfn. Að sögn tals-
manns dönsku járnbrautanna var
önnur lestin mannlaus og var
verið að taka hana úr notkun er
hún rakst á lest sem var full af
fólki. Ekki lá fyrir hver orsök
slyssins var.
AP
Lestar-
slys í
Danmörku
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. kl. 11-18,
lau. kl. 11-15
Húsgögn
Sérpantanir
HOUSE of Fraser er þriðja stærsta
stórverslanakeðja Bretlands og
rekur nú 52 verslanir, meðal annars
Dickens & Jones og Army & Navy,
að sögn breska útvarpsins BBC.
Skýrt var frá því í gær að Baugur-
ID hefði keypt 4,54% hlut í versl-
unarfyrirtækinu.
Að sögn BBC hefur House of
Fraser í hyggju að opna sex nýjar
deildaskiptar stórverslanir í Bret-
landi á næstu fjórum árum. Í mars
var skýrt frá því að fyrirtækið hygð-
ist verja 50 milljónum punda, and-
virði 6,8 milljarða króna, í viðgerðir
og endurbætur á um það bil tólf
stórverslunum á næstu fimm árum.
House of Fraser tilkynnti í sept-
ember að taprekstur fyrirtækisins á
fyrri helmingi ársins hefði aukist í
2,7 milljónir punda (andvirði 367
milljóna króna) í ár úr 1,5 milljónum
punda (200 milljónum króna) á
sama tíma í fyrra. Allur hagnaður
fyrirtækisins myndast á síðari
helmingi ársins, einkum fyrir jól.
Ennfremur var skýrt frá því að
dregið hefði úr söluaukningu versl-
anakeðjunnar „búð fyrir búð“ á
fyrri helmingi ársins, en salan jókst
þá um 3,7%. Fyrirtækið sagði að
salan „búð fyrir búð“ hefði aðeins
aukist um 2% fyrstu átta vikurnar á
síðari helmingi ársins.
Ákveðið var í júní að loka þremur
verslunum House of Fraser í Skot-
landi. Stórverslunum fyrirtækisins í
Aberdeen og Dundee verður lokað í
janúar og verslun í Perth var lokað í
september.
Telja að áætlanirnar standist
Stjórnendur fyrirtækisins sögð-
ust gera ráð fyrir því að áætlanir
þeirra um 26 milljóna punda (3,5
milljarða króna) hagnað fyrir skatta
á öllu árinu myndu standast. Blaðið
Evening Standard hafði hins vegar
eftir Iain McDonald, sérfræðingi við
greiningardeild Numis Securities,
að miðað við afkomutölurnar á fyrri
helmingi ársins væri búist við því að
hagnaðurinn fyrir skatta yrði 23,7
milljónir punda (3,2 milljarðar
króna) á öllu árinu. McDonald sagði
að salan hefði ekki aukist meira en
raun bar vitni á fyrri helmingi árs-
ins þótt verslanir House of Fraser
hefðu þá verið með stóra útsölu þar
sem veittur var 20% afsláttur af öll-
um vörum.
Að sögn Evening Standard telja
nokkrir breskir sérfræðingar að
House of Fraser hafi notað of mikið
af hagnaði sínum í fjárfestingar í
nýjum verslunum en aðrir eru
þeirrar skoðunar að John Coleman,
aðalframkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins, hafi staðið vel að stækkun versl-
anakeðjunnar.
BBC hafði eftir John Coleman 24.
september að fyrirtækið hygðist
gera verslanakeðjuna að stærsta
smásala merkjavöru í Bretlandi
með metnaðarfullum áformum um
endurbætur á verslunum sínum og
fjölgun verslana.
3,5 milljarða hagnaður
Hagnaður House of Fraser jókst
verulega á síðasta ári. Hagnaðurinn
fyrir skatta nam þá 25,6 milljónum
punda (andvirði 3,5 milljarða króna)
en var 17,8 milljónir punda (2,4
milljarðar króna) árið áður. Hagn-
aðurinn í fyrra var sá mesti frá
árinu 1998.
Breska blaðið The Guardian hafði
eftir David Adams, fjármálastjóra
House of Fraser, í september að
verslanakeðjan hefði verið nálægt
Þriðja stærsta stór-
verslanakeðja Bretlands
House of Fraser rekur nú alls
fimmtíu og tvær verslanir
samkomulagi við verslunarfyrir-
tækið Allders um samruna þeirra
fyrir þremur árum. Orðrómur var á
kreiki í september um að viðræð-
urnar hefðu verið hafnar að nýju en
Adams neitaði því.
The Guardian skýrði ennfremur
frá því 26. október að stjórnendur
House of Fraser hefðu kannað þann
möguleika að taka fyrirtækið af
hlutabréfamarkaðnum í þrjú ár
vegna þess að þeir teldu að verð-
mæti fyrirtækisins væri vanmetið.
Ef fyrirtækið yrði tekið af markaðn-
um fengi það meira frelsi til að hag-
ræða og breyta samsetningu versl-
ana sinna í því skyni að auka
hagnaðinn.
Að sögn The Guardian var House
of Fraser móðurfyrirtæki Harrods-
verslunarinnar í Lundúnum þegar
Mohamed Al Fayed, umdeildur
kaupsýslumaður, eignaðist Harrods
árið 1985. Al Fayed eignaðist versl-
unina í gegnum aðild sína að
Lonhro, viðskiptaveldi kaupsýslu-
mannsins Tiny Rowlands, og þau
kaup voru mjög umdeild á sínum
tíma. Rowland var ekki sáttur við
málalokin og hóf herferð gegn
Fayed og beitti blaðinu Observer í
því sambandi, en það var í eigu
hans.
MOGGABÚÐIN
mbl.is