Morgunblaðið - 08.11.2002, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 08.11.2002, Qupperneq 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 23 VÍSINDADAGAR – dagskrá föstudaginn 8. nóvember P R [p je e rr ] Háskóli Íslands Kl. 8:30–12:00 Opið málþing um rannsóknir í hjúkrunarfræði- deild, stofu 103 í Eirbergi. Kl. 13–17 Opið hús og kynning á starfsemi og verk- efnum Lífefna- og sameindalíf- fræðistofu læknadeildar í hús- næði stofnunarinnar, Læknagarði, Vatnsmýrarvegi 16, 5. hæð. Háskólinn í Reykjavík Rannsóknardagur Háskólans í Reykjavík. Opnir fyrirlestrar frá kl. 12–17 í þremur sölum samtímis. Allir velkomnir. Kl. 12–13 Rannsóknir á frumkvöðlastarf- semi á Íslandi – Global Entrepreneurship Monitor – Halla Tómasdóttir lektor og Guðrún Mjöll Sigurðardóttir sér- fræðingur. Margvarp á Internetinu. Dr. Gísli Hjálmtýsson prófessor. Kl. 13–14 Innri hagvöxtur og endurnýjan- legar náttúruauðlindir. Dr. Lúðvík Elíasson lektor. Sjálfvirk gerð veffyrirspurna með „merkingu“. Dr. Björn Þór Jónsson dósent. Viðvarandi upplýsingaskylda og hugtakið trúnaðarskylda. Aðalsteinn Jónasson lektor. Kl. 14–15 Verðbólguferlið á Íslandi: Frá óðaverðbólgu til verðstöðug- leika (og til baka aftur?). Dr. Þórarinn G. Pétursson lektor. Always On-verkefnið. Marta Kristín Lárusdóttir lektor. Beiting hæstaréttar á ákvæðum stjórnarskrár síðastliðin 15 ár. Jón Steinar Gunnlaugsson prófessor. Kl. 15–16 Rannsókn á stjórnunarháttum í fjölskyldufyrirtækjum saman- borið við fyrirtæki á markaði. Erla Björg Guðrúnardóttir nemi og Guðmunda Kristjánsdóttir nemi. NámUST. Ásrún Matthíasdóttir lektor. Þróun endurskoðunarvalds dómstóla á Norðurlöndum og áhrif bandarísks réttar, 1890–1955. Ragnhildur Helgadóttir lektor. Kl. 16–17 Tengsl starfsánægju og ánægju með þjónustu. Dr. Svafa Grönfeldt dósent. Úttekt á íslenskum heimasíðum. Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir nemi. „Hverjir eru það sem ekki ljúka framhaldsnámi? Hvernig er hægt að styðja nemendur í brottfallshættu?“ Björg Birgisdóttir, forstöðumaður námsráðgjafar og alþjóðatengsla, og Kristjana Stella Blöndal, að- stoðarforstöðumaður Félags- vísindastofnunar H.Í. VÍSINDADAGAR 1. – 11. nóvember 2002 – kíktu á dagskrá Vísindadaga á www.visindadagar.is BÚIÐ er að rífa hús nr. 40 við Laugaveg þar sem gleraugnaversl- unin Sjáðu og verslunin Hennar voru áður til húsa. Húsið skemmd- ist í miklum bruna fyrir skemmstu þar sem fimm íbúðir í tveimur sam- liggjandi húsum eyðilögðust. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni í Reykjavík en ekki hefur tekist að upplýsa hver kann að hafa kveikt þar í. Að sögn Karels Halldórssonar, eiganda Jarðkrafts ehf., gekk vinna við niðurrif hússins í gær mjög vel en sex vörubílar voru að störfum frá kl. átta um morguninn til kl.18 síðdegis við að flytja timbur og brotajárn á Sorpu og brotajárns- móttökuna Hringrás. Í gær var ráð- gert að vinnu við niðurrif hússins yrði lokið áður en verslanir yrðu opnaðar kl. 10. Morgunblaðið/Kristinn Laugavegur 40 á bak og burt BÆJARYFIRVÖLD í Mosfellsbæ hafa ákveðið að taka niður göngu- brú sem liggur yfir Varmá í Ull- arnesbrekkum og tengir saman tvö íþróttasvæði, íþróttasvæðið að Varmá og sparkvöll sem notaður er á sumrin. Ákvörðunin er tekin í framhaldi af því að 13 ára stúlka lenti í alvar- legu bílslysi þegar hún hljóp yfir Vesturlandsveg við Ásland og varð fyrir bíl á miðvikudagskvöld. Bæj- aryfirvöld höfðu fengið ábendingar frá íbúum í Helgafellshverfi. Að sögn Þorsteins Sigvaldasonar, deildarstjóra tæknideildar hjá Mos- fellsbæ, hafa börn úr Helgafells- hverfi sótt í að stytta sér leið og hlaupa yfir Vesturlandsveginn og þaðan yfir göngubrúna í átt að íþróttasvæðinu. Brúin sett upp að nýju að vori Í framhaldi af fundi í gær með bæjarstjóra og bæjarverkfræðingi var ákveðið að taka niður brúna til að hindra að börn stytti sér leið þarna um. Að sögn Þorsteins verður hún tekin niður að hausti og sett upp að vori. Íbúum í Helgafellshverfi er bent á gönguleið um undirgöngin við Brúarland að íþrótta- og skólasvæði svo og miðbæ. Göngubrú yfir Varmá tekin niður Mosfellsbær Bílslysið á Vesturlands- vegi í fyrrakvöld
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.