Morgunblaðið - 08.11.2002, Síða 24
AKUREYRI
24 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
skrefi framar
Herradeild Akureyri,
sími 462 3599.
Kjólföt
Smokingföt
www.islandia.is/~heilsuhorn
Ein með öllu
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Multi-vítamin og steinefnablanda
ásamt spirulínu, lecithini,
Aloe vera o.fl. fæðubótarefnum
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar hefur ákveðið
að kjör stjórnar og trúnaðarráðs fyrir næstu tvö starfsár
fari fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í samræmi
við lög félagsins og reglugerð ASÍ.
Framboðslistum skal skila til skrifstofu félagsins á
Skipagötu 14, Akureyri, eigi síðar en kl. 12.00
mánudaginn 25. nóvember 2002.
Hverjum lista skulu fylgja meðmæli 52 fullgildra félagsmanna.
Akureyri, 7. nóvember 2002,
stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar.
Sjómannafélag Eyjafjarðar
Stjórnarkjör
halda aðalfund sinn 22. nóvember á Hótel Húsavík kl. 10.00.
Dagskrá:
Samkvæmt félagslögum og rætt um
Markaðsskrifstofu Norðurlands.
Við minnum einnig á aðalfund Ferðamálasamtaka Íslands
á Hótel Húsavík sama dag kl. 13.30.
Stjórn Ferðamálasamtaka Norðurlands eystra.
Ferðamálasamtök
Norðurlands eystra
ÞRIÐJA lota í heilsuræktarátak-
inu „Fjölskyldan, saman gaman“
verður á morgun, laugardaginn
9. nóvember, og verður dag-
skráin fjölbreytt.
Í Íþróttahöllinni verður kynn-
ing á badminton frá kl. 9–11 þar
sem ókeypis leiðsögn þjálfara er í
boði. Þá verða sjúkraþjálfarar frá
Eflingu í höllinni sem og Vaxt-
arræktinni frá kl. 10 til 16 með
þrek- og þolmælingar, fræðslu og
ráðgjöf. Hjúkrunarfræðinemar
bjóða upp á blóðþrýstingsmæl-
ingar frá kl. 11 til 13 og iðju-
þjálfanemar kynna sitt fag á
sama tíma. Vaxtarræktin býður
upp á mælingar og öllum þeim
sem orðnir eru 14 ára er boðið að
prófa spinning, hnefaleika eða
fara í tækjasal frá kl. 10 til 13.
Leikfimi verður fyrir börn frá kl.
10 til 12.
Mjög góð aðsókn hefur verið að
þessu átaki og fjöldi fólks kynnt
sér hinar ýmsu íþróttagreinar
síðustu tvær helgar.
Haraldur Guðmundsson á
hestaleigunni í Stjörnugötu 1 í
Breiðholti kynnir hesta og hesta-
íþróttir frá kl. 13 til 15 og þá
verður 50% afsláttur af aðgangs-
eyri og skautaleigu í Skautahöll-
inni frá kl. 13 til 17 en þá hefst
þar kynning á ísleiknum krullu.
Fimleikaráð Akureyrar bauð for-
eldrum að koma í æfingatíma sl.
laugardag, þar sem þeir fengu að
spreyta sig á ýmsum fimleika-
áhöldum með börnum sínum.
Gaman,
saman um
helgina
Morgunblaðið/Kristján
HESTAMANNAFÉLÖGIN í Eyja-
firði annars vegar og Skagafirði hins
vegar hafa sótt um að fá að halda
Landsmót hestamanna árið 2006, auk
þess sem Skagfirðingar sækja um að
fá að halda mótið 2010. Landsmót eru
haldin á tveggja ára fresti, það var
haldið á Vindheimamelum í Skaga-
firði sl. sumar og mótið verður haldið
á Gaddstaðaflötum við Hellu árið
2004. Mótið var haldið í Reykjavík ár-
ið 2000 og á Melgerðismelum í Eyja-
firði árið 1998 og því telja Eyfirðingar
að það sé komið að þeim aftur að
halda mótið árið 2006.
Kjartan Helgason, formaður
Hestamannafélagsins Léttis á Akur-
eyri, sagði það lífsspursmál fyrir fé-
lögin í Eyjafirði og fyrir frekari upp-
byggingu á Melgerðismelum, að
mótið 2006 færi þar fram. Hinrik Már
Jónsson, formaður Stíganda í Skaga-
firði, sagði það einnig lífsspursmál
fyrir félögin í Skagafirði og fyrir frek-
ari uppbyggingu á Vindheimamelum
að mótið færi fram þar. Hestamanna-
félögin Funi og Léttir njóta stuðnings
sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar og
forráðamanna Akureyrarbæjar við
umsókn sína. Auk þess hefur stjórn
Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og
Þingeyinga lýst yfir stuðningi við um-
sóknina en stjórnin leggur áherslu á
að áfam verði haldið á þeirri braut að
halda landsmót sem víðast á landinu,
á þeim stöðum sem hafa nægilega
góða aðstöðu til slíks mótahalds.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hef-
ur þegar samþykkt að veita Funa og
Létti fjárstyrk að upphæð 8 milljónir
króna til undirbúnings verði lands-
mótið á Melgerðismelum.
Sveitarfélagið Skagafjörður og
Akrahreppur standa að umsókn
hestamannafélaganna þriggja í
Skagafirði, Stíganda, Léttfeta og
Svaða, um að fá að halda mótin 2006
og 2010. Þetta sýnir vel hversu mikil
áhersla er hjá þessum aðilum að fá að
halda landsmótið. Hér er líka um gíf-
urlega stórt mál að ræða og þá ekki
síst fjárhagslega, þar sem margfeldis-
áhrifin eru gríðarleg. Gera má ráð
fyrir að 7–10 þúsund manns séu á
svæðinu meðan á mótinu stendur.
Kostaði gríðarlega baráttu
að fá landsmótið 1998
Gunnar Egilsson, formaður Funa í
Eyjafjarðarsveit, sagði það hafa kost-
að gríðarlega baráttu að fá landsmót-
ið á Melgerðismela árið 1998. Eyfirð-
ingar reyndu að fá landsmótið 1994 en
eftir að því var hafnað á sínum tíma,
sögðu félögin í Eyjafirði, Hringur,
Léttir og Funi sig úr Landssambandi
hestamanna. Gunnar sagði að lands-
mótið á Melgerðismelum hefði tekist
mjög vel, þrátt fyrir að hrossainflú-
ensa og leiðindaveður hefðu vissulega
sett strik í reikninginn. Fyrir mótið
var ráðist í gríðarlega uppbyggingu á
svæðinu, fyrir á fimmta tug milljóna
króna, fyrir utan mikla sjálfboða-
vinnu og til að hægt verði að halda
þeirri uppbyggingu áfram, sé nauð-
synlegt að landsmótinu 2006 verði
valinn þar staður. „Þarna verður úti-
vistarparadís í framtíðinni og það
Bæði Eyfirðingar og Skagfirðingar vilja halda Landsmót hestamanna 2006
Eyfirðingar
telja að röðin sé
komin að þeim
Morgunblaðið/Ásdís
Baldvin Ari Guðlaugsson á gæðingnum Galsa frá Sauðárkróki á landsmóti
hestamanna sem fram fór á Melgerðismelum í Eyjafirði árið 1998.
vantar aðeins punktinn yfir i-ið í upp-
byggingu svæðisins,“ sagði Kjartan.
Landsþing Landssambands hesta-
mannafélaga hefst í Reykjavík í dag,
föstudag. Þar mun þetta mál vafa-
laust verða til umræðu en ákvörðunar
um næsta mótsstað er ekki að vænta
fyrr en í byrjun næsta árs. Fyrir
landsþinginu liggur tillaga frá stjórn
LH um reglur um undirbúning og
framkvæmd Landsmóta LH. Þar
kemur m.a. fram að landsmót skuli
haldin annað hvert ár og stjórn LH
velji og ákveði landsmótsstað hverju
sinni að höfðu samráði við rekstrar-
aðila. Ákvörðun um mótsstað skuli
liggja fyrir þremur árum fyrir það
mót sem um ræðir. Við staðarval skuli
stjórn LH hafa til hliðsjónar fjárhags-
lega hagkvæmni svo og yfirsýn á fé-
lagslegt réttlæti.
Tillaga stjórnar LH hefur ekki enn
verið afgreidd en þeir Kjartan, for-
maður Léttis, og Gunnar, formaður
Funa, telja fjárhagslegt og ekki síður
félagslegt réttlæti í því að mótið 2006
verði haldið næst á Melgerðismelum.
Mótinu hafi verið skipt á milli Suður-
lands og Norðurlands í gegnum tíðina
og þeir telja það alls ekki sjálfgefið að
mótið norðanlands fari alltaf fram í
Skagafirði.
Ekki markaður fyrir nema
tvö mótssvæði á landinu
Hinrik Már sagði að málið snerist
ekki um að hverjir væru næstir í röð-
inni, heldur hvort þessi svæði lifa eða
deyja. „Svæðin eru þung í rekstri og
það er okkar mat að það sé ekki
markaður fyrir nema tvö mótssvæði á
landinu í mesta lagi. En okkar um-
sókn er ekki sett fram til höfuðs Ey-
firðingum. Við erum með þessu að
reyna fá eitthvað út úr þeirri fjárfest-
ingu sem lagt hefur verið í og um leið
að styrkja sveitarfélagið. Þá teljum
við nauðsynlegt að skipuleggja þessi
mót lengra fram í tímann. Þannig
verða sveitarfélögin viljugri til að
taka þátt í uppbyggingunni.“
Hinrik Már sagði það sína skoðun
að leggja þyrfti kalt mat á það hvaða
tveir staðir þættu bestir fyrir lands-
mót og menn yrðu að una þeirri nið-
urstöðu. „Við þurfum að losna út úr
þessari tilfinningasemi og hreppapóli-
tík,“ sagði Hinrik Már.
Sigfús Helgason, fyrrverandi for-
maður Léttis og núverandi stjórnar-
maður í LH, sækist eftir endurkjöri á
þinginu um helgina. Kjartan sagði
Sigfús hafa unnið mjög gott starf fyr-
ir hestamenn og að nauðsynlegt væri
fyrir landsbyggðarfélögin að eiga full-
trúa í stjórn samtakanna.
VÍSINDADAGUR verður haldinn
í húsnæði Háskólans á Akureyri á
Sólborg á laugardag, 9. nóvember
og stendur frá kl. 13 til 17. Boðið
verður upp á fjölbreytta dagskrá
fyrir alla fjölskylduna, m.a. fjölda
erinda sem tengjast daglegu lífi,
forvitnilegar tilraunir á sviði jarð-
vísinda, efna- og eðlisfræði, lifandi
sjávarverur, varðveittar lífverur í
smásjá og víðsjá auk vísindasmiðju
fyrir yngstu kynslóðina.
Fyrirlestrar fræðimanna verða
fluttir í stofu K202, en meðal er-
inda má nefna að fjallað verður um
tengsl taugastarfsemi við daglega
iðju, mun á því að kenna drengjum
og stúlkum, rannsóknasamfélag
fyrir börn, þróun og breytingar á
vinnumarkaði, rannsóknir á tilfinn-
ingum, samgöngubætur, reynslu
bráðahjúkrunarfræðinga af hjúkr-
un fjölskyldna og samanburð á út-
gerðarmynstri fiskiskipa miðað við
mismunandi fiskveiðistjórnunar-
kerfi.
Vísindadagur
í Háskólanum