Morgunblaðið - 08.11.2002, Page 34

Morgunblaðið - 08.11.2002, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. LISTAVERK ALLRA LANDSMANNA Gleymska, sofandaháttur eðaglópska? spurði Ögmundur Jón-asson, málshefjandi í utandag- skrárumræðum á Alþingi í gær um ástæður þess að ekki voru gerðar ráð- stafanir til þess við breytingu ríkis- bankanna í hlutafélög að hin miklu listaverkasöfn þeirra yrðu áfram í al- menningseigu. Það er von að spurt sé. Ólafur Örn Haraldsson alþingismað- ur vakti athygli almennings á þessu máli fyrr í vikunni, eins og full ástæða var til. Hann benti í frétt hér í blaðinu í fyrradag á að verkin 1.200, sem eru í vörzlu bankanna, væru þjóðargersemar sem bankarnir hefðu eignazt og varð- veitt sem stofnanir í eigu almennings. Það er sömuleiðis rétt, sem Ásta R. Jó- hannesdóttir benti á í umræðunum í gær, að þegar umfangsmikil listaverka- kaup bankanna hafa verið gagnrýnd, hafa mótrökin verið þau að verið væri að varðveita dýrmæt listaverk í eigu þjóðarinnar. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur Morgunblaðinu ekki tekizt að fá fram hvert matið á listaverkaeign bankanna sé. Flest bendir til að ekkert slíkt mat liggi fyrir. Var þá yfirleitt nokkur að hugsa út í listaverkasöfnin þegar bönk- unum var breytt í hlutafélög? Ef enginn veit hvers virði listaverkin eru, hvernig geta þau þá hafa verið hluti af því verð- mati, sem hefur verið lagt á bankana? Flest bendir til að nýir eigendur bank- anna fái þessar þjóðargersemar fyrir ekki neitt, í kaupbæti. Svör ráðherra ríkisstjórnarinnar í þessu máli eru ekki sannfærandi. Val- gerður Sverrisdóttir bankamálaráð- herra segist „sannfærð um að hinir nýju eigendur munu ekki láta sér detta það í hug að selja þessi listaverk úr bönkunum.“ Hvaðan kemur sú sann- færing ráðherrans? Liggja einhverjar skuldbindingar fyrir af hálfu eigenda bankanna? Sama máli gegnir um þau rök Tómasar Inga Olrich, menntamála- ráðherra, að auðvelda megi aðgengi að listaverkum bankanna með því að þau verði þar til sýnis og lánuð til safna. Hvaða tryggingar hefur menntamála- ráðherrann fyrir því að einhverjir dýr- gripanna verði ekki t.d. seldir úr landi? Enn hafa ráðherrar og aðrir, sem ábyrgð bera á hlutafélagavæðingu bankanna, ekki svarað því hvers vegna ekki kom t.d. til greina að fara sömu leið og með verðmætt frímerkjasafn Pósts og síma, sem haldið var eftir í almenn- ingseigu þegar fyrirtækinu var breytt í hlutafélag. Ólafur Örn og aðrir þingmenn urðu til þess að benda á hina augljósu lausn í þessu máli í umræðunum í gær og það gerði einnig Hannes Sigurðsson, for- stöðumaður Listasafns Akureyrar, hér í blaðinu í gær. Eigendur bankanna ættu að gefa þjóðinni listaverkin og tryggja að almenningur fái notið þeirra. Sú hugmynd Hannesar að gefa verk bankanna til listasafna á landsbyggð- inni er hreint ekki fráleit; þvílíkur safn- kostur gæti orðið mikið aðdráttarafl fyrir söfn úti á landi. Sé ekki vilji fyrir að gefa listaverkin, væri hugsanlegt að fara svipaða leið og Íslandspóstur hf. fór er hann samdi við Þjóðminjasafnið um að skrá og varðveita póstminjar í eigu fyrirtækisins, sýna þær í sölum safnsins og halda á þeim sérstaka sýn- ingu með reglulegu millibili. Rekstur ríkisbankanna er vissulega betur kominn í höndum einkaaðila en ríkisins. Um varðveizlu mikilvægs hluta af menningararfinum gegnir öðru máli. Þetta eru listaverk allra lands- manna og eiga að vera það áfram. JÁKVÆÐ ÞRÓUN VAXTA Seðlabankinn tilkynnti á miðvikudagað bankinn myndi lækka stýrivexti um 0,5%. Er þetta níunda vaxtalækkun bankans á árinu en samtals nemur lækkunin 3,8%. Í Peningamálum, árs- fjórðungsriti Seðlabankans, kemur fram að miðað við fyrirliggjandi spár geti vextir bankans lækkað enn frekar á næstunni, ef framvindan staðfestir þær spár. Það sé þó háð þeim fyrirvara að eftir því sem vextirnir verði lægri muni bankinn þurfa að leggja frekara mat á örvunaráhrif þeirra. Þetta sé einnig háð þeim fyrirvara að ákvarðanir um stór- iðjuframkvæmdir muni leiða til endur- mats á peningastefnunni. Íslandsbanki og Landsbanki Íslands hafa tilkynnt um vaxtalækkanir í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans. Báðir bankarnir ætla að lækka vexti á óverðtryggðum og verð- tryggðum lánum. Fyrr í vikunni kom fram í máli for- sætisráðherra, Davíðs Oddssonar, á Al- þingi að það væri umhugsunarefni fyrir bankana að huga að breytingum á verð- tryggðum innláns- og útlánsvöxtum. Undir þetta tók Birgir Ísleifur á morg- unverðarfundi Verslunarráðs Íslands í gær. Sagði hann að vaxtalækkun Seðla- bankans hefði skilað sér vel á óverð- tryggða hluta markaðarins, en hennar hefði síður orðið vart í verðtryggða hlut- anum. Síðustu tvær vaxtalækkanir hefðu þó skilað sér tiltölulega vel í lækk- un verðtryggðra vaxta. Bankarnir hefðu aftur á móti ekki lækkað verðtryggða vexti eins mikið og markaðsvextir hefðu lækkað, og að afsökun þeirra um háa markaðsvexti dygði ekki lengur. Í Peningamálum kemur fram að þótt útlánsvextir banka hafi lækkað í takt við breytingar á stýrivöxtum að undan- förnu hafa þeir ekki enn náð því stigi sem var í byrjun árs 1998, en vextir Seðlabankans eru orðnir lægri en þeir voru þá. Meðalvextir banka og spari- sjóða hækkuðu meira á vaxtahækkunar- skeiðinu en stýrivextirnir. Það er umhugsunarefni að bankar og sparisjóðir hafi hækkað vexti sína um- fram hækkanir Seðlabankans og hægt að taka undir orð forsætisráðherra og seðlabankastjóra um að tímabært sé að vextir verðtryggðra inn- og útlána lækki. Því til stuðnings er lækkun stýri- vaxta undanfarin misseri og að verð- bólga hefur verið á niðurleið. Eins hefur ávöxtunarkrafa á skuldabréfamarkaði farið lækkandi á árinu. Það ætti því að vera færi á að lækka verðtryggða vexti. Slík vaxtalækkun myndi skipta miklu fyrir flest heimili í landinu enda bæði húsbréfalán og lífeyrissjóðslán verð- tryggð sem og flest útlán bankanna. Þróun efnahagsmála hefur verið já- kvæð á Íslandi að undanförnu og von- andi eiga vaxtalækkanir eftir að ýta undir að þar verði framhald á. Svo virð- ist sem sú aðhaldssama peningastefna sem Seðlabanki Íslands hefur fylgt, og oft hefur verið gagnrýnd, sé að skila ár- angri. Árangri sem ber að fagna. R AUFARHÖFN hefur verið í fréttum undanfarið vegna erf- iðrar fjárhagsstöðu sveitarfé- lagsins og greinilegt að hinn almenni þorpsbúi tekur ástandið nærri sér. Flestir sem Morgunblaðið ræddi við í gær eru þó bjartsýnir. Guðmundur Valur Einarsson, starfsmaður frystihússins Jökuls, er fæddur og uppalinn á Raufarhöfn og hefur búið þar alla tíð, „og ég fer ekki lengra en hérna út í garðinn,“ segir hann við blaðamann í kaffistofu Jökuls, og bendir yfir höfnina í átt að kirkjugarðinum. „Ég er mjög ánægður á Raufarhöfn og fer aldrei héðan. Fjár- hagsstaða bæjarins er vissulega slæm, en hér í þessu fyrirtæki hefur verið mjög góð vinna síðan ÚA tók við. Og við heyrum ekki annað á þeim en þeir ætli sér að efla fyrirtækið frekar en hitt.“ Tvö ungmenni sem starfa hjá Jökli eru á för- um úr bæjarfélaginu innan skamms, annað þó líklega bara tímabundið. „Ég er að fara til Bandaríkjanna sem au-pair en kem örugglega aftur. Það er gott að vera hérna,“ segir Erna Ragnarsdóttir, 18 ára. „Það er auðvitað leiðinlegt hvernig komið er af því að sveitarfélagið var eitt það ríkasta á landinu fyrir þremur árum og fólk veltir því mikið fyrir sér hvernig svona lagað geti gerst. Það er slæmt að svona miklir peningar skyldu tapast; sveitarfélög eiga ekki að kaupa hlutabréf,“ segir hún. Foreldrar Ernu eru þegar farnir frá Raufarhöfn. „Pabbi er sjómaður og fékk ekki pláss hér. Hann þurfti því að fara og mamma fór auðvitað líka, það voru ótrúlega margir sem fluttu burt héðan í fyrra.“ Fækkað um meira en 100 á einu ári Tölurnar tala sínu máli; 1. desember 1998 bjuggu 407 manns á Raufarhöfn en 1. desember í fyrra voru íbúar komnir niður í 296. „Það er alveg hrikalegt hvað margir eru farn- ir,“ segir Aron Þorbergssson, 16 ára. „Það er eig- inlega enga vinnu að hafa í bænum nema í Jökli og það er auðvitað mjög slæmt fyrir bæinn ef fólk getur ekki séð fyrir fjölskyldum sínum. Þá er ekki annað að gera en fara. Og ég fer í maí,“ segir hann. Fjölskyldan fer öll, foreldrar hans og tvö systkini. „Við förum suður. Pabbi hefur enga vinna hérna og er núna að vinna á Þórshöfn.“ Ar- on segir fréttir af fjárhagsstöðu bæjarins nið- urdrepandi. „Margir vilja vera hér áfram, en það er bara ekki hægt ef fólk hefur ekki vinnu.“ Erla Guðmundsdóttir og Berglind Frið- bergsdóttir starfa báðar í versluninni Urð, einu matvöruversluninni á Raufarhöfn. „Við lítum björtum augum á framtíðina og trúum því að þetta bjargist,“ segir Erla. „Það sem okkur vantar er að fá nóga loðnu; þá koma peningar í kassann og þá erum við í góðum málum.“ Vandamálið er að loðnan hefur brugð- ist. Hvað ef svo verður áfram? „Ja, þá erum við auðvitað í slæmri stöðu,“ segir hún. Erla er innfædd og hefur alla tíð búið á Rauf- arhöfn. „Vandamálin eru til þess að sigrast á þeim,“ segir hún og bætir við með áherslu: „Hér ætla ég að vera áfram. Ég fer að minnsta kosti síðust úr þorpinu ef allir flytja burt.“ Berglind segir að vissulega hafi það verið ákveðið áfall að fá fregnir af bágri fjárhags- stöðu sveitarfélagsins. „En það þýðir ekkert að leggjast í þunglyndi. Hér er ekki allsherjar at- vinnuleysi, en að vísu bara dagvinna í frystihús- inu og bara dagvinna í verksmiðjunni fyrir örfáa menn.“ Erla bætir því við að í þorpinu sé góður skóli, leikskóli, gott íþróttahús, öflugt ungmennafélag og tónlistarskóli. „Hér þarf því engum að leiðast. Það er nóg félagslíf á Rauf- arhöfn,“ segir hún. Líf og fjör á fótboltaæfingu Það var einmitt líf og fjör í íþróttahúsinu þegar blaðamaður leit þar við síðdegis. Hópur barna á aldrinum 6–16 ára var á fótboltaæfingu undir stjórn Bjarna Ómars Haraldssonar kenn- ara. „Það eru 34 af 52 börnum í grunnskólanum sem æfa fótbolta,“ upplýsir hann blaðamann, og það vekur athygli að strákar og stelpur æfa saman. Krakkar á aldrinum 6–11 ára æfa alltaf saman og 12–16 ára, en einu sinni í viku kemur allur hópurinn saman og slík æfing var einmitt á dagskrá í gær. Og þar, eins og annars staðar í heiminum þar sem bolta er sparkað, hlupu þeir um Beckham, Owen, Rivaldo og Ronaldo, eða a.m.k. pjakkar í peysum merktum heimsstjörn- unum. Og í gær bjó hópurinn sig af krafti undir mót sem fram fer á Raufarhöfn á morgun, þeg- ar Þórshafnarbúar og Öxfirðingar koma í heim- sókn. Margrét Vilhelmsdóttir, framkvæmdastjóri Jökuls ehf., hefur búið í þrjú ár á Raufarhöfn Bjartsýni á R Það var heldur þungbúið á Melrakkasléttunni í gær. Lífið gekk þó sinn vanagang á Raufarhöfn þegar Skapti Hallgrímsson ræddi við nokkra þorpsbúa í framhaldi frétta af erfiðleikum í fjármálum Rauf- arhafnarhrepps. Fólk segist ánægt á staðnum og vill vera þar ef það hefur trygga atvinnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.