Morgunblaðið - 08.11.2002, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 08.11.2002, Qupperneq 61
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 61 Veisla í Vesturporti! ..ef ykkur langar til að eiga stund þar sem þið getið velst um af hlátri, ekki missa af þessari leiksýn- ingu... (SA, Mbl.) fös 8. nóv. kl. 21 örfá sæti lau. 9. nóv. kl. 23.30 fim. 14. nóv. kl. 21.00 lau. 16. nóv. kl. 23.30 Ósóttar pantanir seldar tveimur dögum fyrir sýningu Vesturport, Vesturgata 18 Miðasala í Loftkastalanum, Sími 552 3000 loftkastali@simnet.is www.senan.is TÓNLISTARMAÐURINN Ívar Örn Kolbeinsson er ekki nema nítján ára en hefur nú fengið heimsdreifingu á tónlist sinni. Gerist það í gegnum sjónvarpsauglýsingu ilmvatnsfram- leiðandans Kenneth Cole sem fer í dreifingu um heim allan, en auglýs- ingin sjálf var unnin af ljósmynd- urunum og kvikmyndagerðarmönn- unum Einari Snorra Einarssyni, og Eiði Snorra Eysteinssyni hálfbróður Ívars Arnar, en þeir hafa starfað saman í Bandaríkjunum í nokkur ár við auglýsinga- og myndbandagerð. Ívar Örn fékk greiddar 1,6 milljónir kr. fyrir framlag sitt til auglýsing- arinnar. Ívar bjó í New York í fimm ár en flutti heim á nýjan leik skömmu eftir 11. september. Tíma sinn nýtti hann m.a. til tónlistariðkunnar en upp- runalega fór hann til að heimsækja hálfbróður sinn Eið Snorra. – Hvernig kom þetta nú til Ívar? „Eiður og Einar voru að vinna auglýsinguna fyrir fyrirtækið og höfðu samband við mig, þar sem þá vantaði tónlist.“ – Hvernig tónlist er þetta? „Þetta lag er svona „electronica“ (rafræna), mjög melódískt og með kröftugum takti. Það fylgir þó ekki viðteknum hugmyndum um auglýs- ingatónlist. Það þurfti að berjast svolítið fyrir því.“ – Hefur þú gefið eitthvað út ? „Eitt lag hefur komið á safndiski frá lítilli útgáfu í Brooklyn sem heit- ir „Little Fury Things“ (The No- _Compression Compilation, haustið 2001).“ – Hvaða þýðingu hefur þessi aug- lýsing fyrir þig sem tónlistarmann? „Mér finnst auðvitað geðveikt að þetta sé komið inn á heimili um allan heim – lag sem ég gerði í Miðtúni, Hvolsvelli (hlær). Mér finnst líka frá- bært að koma smáfegurð inn í aug- lýsingabransann sem mér finnst virkilega ógeðslegur og asnalegur.“ Dreift um all- an heim Íslendingur seldi lag í ilmvatnsauglýsingu Ívar Örn er kampakátur yfir árangrinum. BJÖRN Brynjúlfur Björnsson, formaður félags kvikmyndagerðar- manna, segir að fjöldi verka, sem tilnefnd eru til Edduverðlaunanna í ár, enduspegli gróskuna í kvik- myndagerð á Íslandi. „Þetta sýnir að það er gróska á mörgum svið- um. Það er enginn vafi á því, þótt sum svið kvikmyndagerðarinnar séu heldur vanþroskuð hjá okkur,“ segir Björn og nefnir þá sérstak- lega leikið sjónvarpsefni. „Við er- um eftirbátar annarra þjóða hvað það varðar.“ Björn er aftur á móti ánægður með stöðu heimildarmyndagerðar hérlendis. „Það er mikil uppsveifla í henni enda erum við til dæmis með fimm tilnefningar þar eins og í sjónvarpsþáttunum sem mikil framleiðsla er á hér innanlands. Leikna sjónvarpsefnið er töluvert dýrara efni,“ segir hann. Hann bendir á að sjónvarpsstöðvar hér á landi sýni fátt í eins miklu magni og leikið sjónvarpsefni. „Það er bara allt erlent.“ Björn segir erfitt að nefna ein- hver einstök verk sem hann sakni í tilnefningunum en er ánægður með framkvæmd valsins. Hann bendir á að margar valnefndir sjái um tilnefningarnar og telur að það sé til bóta. „Við höfum áður verið með eina stóra valnefnd. Núna er- um við með sjö þriggja manna val- nefndir sem velja í þessa fjórtán flokka. Sérhæfingin er því meiri. Ég held að þetta sé betra kerfi en við vorum með áður og við náum frekar fram því sem best er gert á hverju sviði,“ segir hann. Ánægður með sérflokk stuttmynda Björn er ánægður með að stutt- myndir verði í sérflokki í fyrsta sinn og sömuleiðis tónlistarmynd- bönd. Hann segir breytingarnar merki um að engin hræðsla sé við að þróa hátíðina og bæta hana. „Sem dæmi um þessa þróun er að tvenn fagverðlaun verði veitt í stað einna áður,“ segir hann. „Það er miklu skemmtilegra fyrirkomu- lag á þessu. Við erum að leita eftir því að finna þessu betri farveg á allan hátt. Auðvitað þróast þetta og við erum alveg ófeimin við það.“ Hann segir að enginn vafi leiki á því að afhending Edduverð- launanna, sem nú eru veitt í fjórða sinn og verður athöfnin í beinni út- sendingu í Ríkissjónvarpinu frá Þjóðleikhúsinu á sunnudagskvöld, marki hátíðisdag fyrir kvikmynda- gerðarfólk. „Bæði er þetta uppskeruhátíð þar sem menn taka við verðlaunum fyrir þau verk, sem vel eru unnin. Svo er þetta nokkurs konar árshátíð í leiðinni. Fólk fer í sparifötin og hittist í leiðinni,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson. Edduverðlaunin verða veitt á sunnudags- kvöldið. Inga Rún Sigurðardóttir ræddi við Björn Brynjúlf Björnsson um hátíðina og stöðu kvikmynda- gerðar á Íslandi. Morgunblaðið/Kristinn ingarun@mbl.is Björn Brynjúlfur kynnti tilnefningarnar til Edduverðlaunanna í síðustu viku. Uppsveifla og gróska
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.