Morgunblaðið - 08.11.2002, Síða 68

Morgunblaðið - 08.11.2002, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Í einum grænum eru ljúffengar ostasósur, sem eru tilvaldar með öllum mat, heitar eða kaldar. Ostasósur í einum grænum NÝR samskiptasamningur Tryggingastofnunar ríkisins (TR) og Tannlæknafélags Íslands felur í sér að endurgreiðslur þeirra sem eiga rétt á þeim hækka um allt að 22% frá næstu áramót- um, þegar ný gjaldskrá heilbrigðisráðherra tek- ur gildi. Þeir sem eiga rétt á endurgreiðslum frá TR vegna kostnaðar við tannlækningar eru fyrst og fremst börn og ungmenni yngri en 18 ára og lífeyrisþegar. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er áætlað að kostnaðarauki ríkisins vegna þessa nemi á annað hundrað milljónum kr. á ári en heildarútgjöld TR vegna tannlækninga eru áætl- uð um einn milljarður kr. á þessu ári. Samningurinn kveður einnig á um að verð- lagning fyrir unnin verk tannlækna sé frjáls og ber þeim jafnframt að hafa liggjandi frammi út- drátt með helstu atriðum gjaldskrár sinnar. Verðlagning tannlækna hefur verið frjáls frá því slitnaði upp úr samningum TR og Tannlækna- félagsins fyrir fjórum árum en enginn samningur hefur verið í gildi á milli stofnunarinnar og tann- lækna frá 1998. Endurgreiðslurnar hækka misjafnlega mikið eftir gjaldskrárliðum. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir tvenns konar uppgjörsaðferðum vegna kostnaðar við þjónustu tannlækna. annars vegar að tannlæknir innheimti heildargreiðslu fyrir unnið verk af sjúklingi, sem sæki hana síðan til Tryggingastofnunar, eigi hann rétt á endur- greiðslu. Hins vegar er gert ráð fyrir að tann- læknir bjóði sjúklingi upp á að greiða sinn hluta, en sæki sjálfur endurgreiðsluhluta sjúklingsins til TR. Samskiptasamningurinn gerir einnig ráð fyrir að starfandi verði sérstök samstarfsnefnd á veg- um samningsaðila þar sem sitji sex fulltrúar, þrír frá hvorum, og er hlutverk samstarfsnefndarinn- ar að fjalla um öll þau mál er varða samskipti Tryggingastofnunar ríkisins, einstaklinganna sem í hlut eiga og tannlækna. Greiðslur vegna tann- lækninga hækka um 22% Útgjöld TR talin aukast um á annað hundrað milljónir RJÚPNAVEIÐIN í haust hefur ver- ið mjög léleg þrátt fyrir sæmilega byrjun hjá sumum veiðimönnum fyrstu dagana á veiðitímabilinu. Heyrst hefur að á gjöfulum svæðum á Vestur- og Norðurlandi sé mjög lítið að hafa. Þá hefur frést af veiði- mönnum sem hafa mátt þramma daglangt um veiðisvæðin án þess að ná fugli. Vegna gríðarlegrar ásókn- ar í Holtavörðuheiðina, vegna frið- unar á Hellisheiði, Reykjanesskaga og í Henglinum, er þar sömuleiðis lítið að hafa. Dauft á rjúpunni Morgunblaðið/Sverrir ÞRÁTT fyrir erfiða fjárhagsstöðu Raufarhafnarhrepps segjast marg- ir íbúar vera ánægðir á staðnum og vilja vera þar, hafi þeir trygga vinnu. Svo er þó ekki með alla. Íbú- um hefur fækkað um meira en 100 á tveimur árum og nokkrir þorps- búanna segjast vera á förum. Blaðamaður Morgunblaðsins fór til Raufarhafnar í gær og ræddi við Raufarhafnarbúa í framhaldi frétta af erfiðleikum í fjármálum Rauf- arhafnarhrepps. Margrét Vilhjálmsdóttir, fram- kvæmdastjóri Jökuls ehf., segir það gefa augaleið að þegar bæjarfélag sé rekið með halla ár eftir ár komi að því að peningarnir klárist. „En það er ekki annað inni í myndinni en að bjarga málunum,“ segir hún. „Og það ætti að vera hægt með smáaðhaldi í einhvern tíma; reynd- ar er vitað mál að það verður erfitt í fyrstu en fólk ætlar ekki að gefast upp. Við erum ekki mjög skuldsett sveitarfélag á íslenska vísu og ef rekstrinum verður stýrt eftir tekjum ætti þetta ekki að verða neitt vandamál næstu árin,“ bætir hún við. „Fer ekki lengra en hérna út í garðinn“ Guðmundur Valur Einarsson, starfsmaður Jökuls, hefur búið alla sína tíð á Raufarhöfn. Hann segist vera ánægður og ekki komi til mála að flytja burt. „...ég fer ekki lengra en hérna út í garðinn,“ segir hann við blaðamann í kaffistofu Jökuls, og bendir yfir höfnina í átt að kirkjugarðinum. „Eftir því sem maður heyrir er allt á hausnum en ég get svo sem ekkert fullyrt um það. En ég segi að þetta hafi allt saman byrjað þegar kvótakerfið var sett á,“ segir Einar Jóhannesson, starfsmaður hjá SR- mjöli. „Þegar kvóti fer af svona stað kemur ekkert í staðinn. Þá er svona staður búinn að vera,“ segir hann. „Og húskofarnir eru verðlausir,“ segir Gestur Þorsteinsson, vinnu- félagi Einars, en hann hefur ákveð- ið að flytja til Suðurnesja. „Já, hér hefur orðið fólksfækkun og hún á eftir að verða meiri,“ segir Gestur. Bergur Þórðarson myndlist- armaður og kennari fluttist til Raufarhafnar fyrir rúmu ári ásamt eiginkonu og dóttur. Hann segir yndislegt að búa á Raufarhöfn. „Hér fær maður frið til að vinna og skólastarfið hefur gengið mjög vel.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Strákar og stelpur koma saman einu sinni í viku á fótboltaæfingu á Raufarhöfn. Slík æfing var í gær. Raufarhafnarbúar ætla ekki að gefast upp  Bjartsýni/34–35 ÁKVÖRÐUN bandarískra heil- brigðisyfirvalda um að stöðva hluta af viðamikilli rannsókn á heilsufari kvenna á breytingaskeiði virðist hafa vakið ugg meðal kvenna hér á landi. Rannsóknin var stöðvuð eftir að í ljós kom að neikvæð áhrif voru meiri en jákvæð af samfelldri, sam- settri hormónameðferð við hjarta- og æðasjúkdómum, heilaáföllum og brjóstakrabbameini. Íslenskir kvensjúkdómalæknar eru sammála um að ekki sé ástæða til að grípa til afgerandi aðgerða og banna hormónameðferðir en að ástæða sé til að endurskoða lengd meðferð- arinnar. Bent er á að flestar konur taki hormón vegna erfiðra ein- kenna og fylgikvilla á breytinga- skeiði en ekki til að vinna gegn öldrun eða viðhalda eilífum æsku- blóma. Konur uggandi Hormónameðferð  Konur á krossgötum/B4 HÆSTIRÉTTUR ómerkti í gær sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem handtekinn var vegna gruns um ölvunarakstur á Vestur- landsvegi fyrir um ári. Maður- inn sagðist ekki hafa verið ölv- aður við aksturinn heldur hefði hann drukkið úr fernu með áfengisblönduðum sveskju- graut eftir að lögregla handtók hann Lögreglumennirnir sem handtóku manninn sögðu að ekki hefði farið milli mála að maðurinn var ölvaður, af hon- um var áfengislykt, framburð- ur hans ruglingslegur, málfar óskýrt og sjáöldur útvíkkuð. Skemmdi þvagsýni Manninum tókst að skemma þvagsýni með því að stinga sýn- isglasinu ofan í klósettskálina en niðurstöður blóðrannsóknar sýndu að áfengi í blóði hans var 2,23 prómill. Ekkert sýni var tekið af sveskjugrautnum. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ekkert hefði komið fram sem útilokaði að sveskjugrauturinn hefði ver- ið blandaður með áfengi og ekkert í málinu gerði það að verkum að hafna yrði fram- burði mannsins að hann hefði drukkið áfengi úr fernunni eftir að hann var handtekinn. Var maðurinn því sýknaður. Hæstiréttur kemst á hinn bóginn að þeirri niðurstöðu að slíkar líkur séu á að mat hér- aðsdómara á sönnunargildi framburðar fyrir dómi og öðr- um sönnunargögnum sé rangt, að óhjákvæmilegt sé að ómerkja dóminn og vísa honum á ný til héraðsdóms. Kvaðst hafa drukkið áfengan graut ♦ ♦ ♦ 13 ÁRA gömul stúlka, sem ekið var á á Vesturlandsvegi í fyrrakvöld, liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Land- spítala – háskólasjúkrahúss. Stúlkan hefur gengist undir skurðaðgerðir en hún hlaut alvarlega höfuðáverka við slysið og er henni haldið sofandi í önd- unarvél. Tíu ára gömul stúlka, sem varð fyr- ir bifreið á gatnamótum Kringlumýr- arbrautar og Miklubrautar á þriðju- dag, er á batavegi, að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild. Stúlkunni haldið sofandi í öndunarvél

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.