Morgunblaðið - 19.11.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.11.2002, Blaðsíða 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 13 DEILDARFORSETI læknadeildar Háskóla Íslands segir fráleitt að fjöldatakmarkanir í heilbrigðisdeild- um skólans séu tilkomnar vegna þess að heilbrigðisstéttir vilji takmarka nýliðun í viðkomandi greinum. Þessu var haldið fram á Alþingi á miðviku- dag og mátti lesa frásögn af því í Morgunblaðinu í fyrradag. Hjálmar Árnason gagnrýndi þá harðlega fjöldatakmarkanir sem hann sagði að væru við lýði í fimm greinum í HÍ, þ.e. í læknisfræði, hjúkrunarfræði, tannlækningum, sjúkraþjálfun og lögfræði. Hjálmar spurði hvers vegna þessar fimm deildir beittu fjöldatakmörkunum sem þekktust ekki í öðrum greinum. „Getur verið að með fjöldatakmörk- unum séu viðkomandi stéttir að skammta sjálfum sér aðeins brýn- ustu nýliðun,“ sagði Hjálmar. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk- ingarinnar, kvaðst honum algjörlega sammála og sagði fjöldatakmarkanir ekki í takt við tímann. Takmarkaðir möguleikar Þessu hafnar Reynir Tómas Geirs- son, deildarforseti læknadeildar HÍ, algjörlega. „Það er verið að ýja að því að ekki séu menntaðir fleiri læknar vegna þess að starfandi læknar vilji sitja einir að kjötkötlunum og deila með sér þeim tekjum sem hægt er að hafa af lækningum. Væntanlega á þetta einnig við um aðrar stéttir sem þarna eru nefndar. Þetta er einfald- lega ekki rétt,“ segir hann. Hann segist engin dæmi þekkja um að læknar hafi beitt þrýstingi til að tak- marka aðgang að læknadeildinni. „Það sem fyrst og fremst takmarkar aðgang að læknadeildinni er að deild- in hefur takmarkaða möguleika á verklegri kennslu,“ segir hann. Í öðru lagi hafi verið reiknað út hversu marga lækna þurfi að útskrifa á hverju ári. Lengi vel var áætlað að 36 læknar væri nægjanlegt. Talan hafi síðan hækkað upp í 40 og á næsta ári hefja 48 læknanemar nám á öðru ári. Miðað við höfðatölu útskrifist fleiri læknar árlega á Íslandi en í nokkru öðru vestrænu landi. Og þó að lækna vanti í heilsugæsluna og ýmsar sér- greinar séu fleiri læknar á Íslandi, miðað við mannfjölda, en víðast hvar annars staðar. „Ef við menntuðum fleiri lækna færi fjármagnið í að mennta fólk sem yrði að finna sér störf erlendis,“ segir Reynir. Slíkt sé ásættanlegt í einhverjum mæli en hann minnir á að læknanám sé dýrt og væntanlega vilji landsmenn að fjármagnið sem renni til menntunar lækna nýtist hér á landi. Aðgangur að svo dýru námi hljóti ávallt að vera takmarkaður. „Ég veit ekki um nein dæmi þess að læknaskólar, nokkurs staðar í heiminum, beiti ekki fjölda- takmörkunum,“ segir Reynir. Leituðu ekki eftir upplýsingum Þá verði menn að gera sér grein fyrir því að til þess að hægt sé að út- skrifa fleiri verði ríkið að leggja fram meira fjármagn. Þetta eigi ekki síst við um hjúkrunarfræðina. Reynir segir að sér sé kunnugt um að stjórn- endur hjúkrunarfræðideildar vilji gjarnan útskrifa fleiri en til þess skorti fé. „Mér er ekki kunnugt um að þessir tveir þingmenn hafi leitað sér upplýsinga um ástæður fyrir fjöldatakmörkunum áður en þeir sögðu þetta hjá mér eða öðrum deild- arforsetum í heilbrigðisvísindadeild- unum. Við hefðum nú getað sagt þeim eitthvað um það, hvers vegna fjöldatakmörkunum er beitt,“ segir hann. Forseti læknadeildar HÍ um gagnrýni á fjöldatakmarkanir Þingmennirnir hefðu mátt leita sér upplýsinga MEÐALFJÖLDI atvinnulausra var um 10,9% meiri í október en í sept- ember og tvöfaldaðist frá október í fyrra. Síðustu 10 ár hefur atvinnu- leysi aukist um 5,6% frá september til október og er árstíðarsveiflan nú mun meiri en meðaltalssveifan síðustu 10 ár. Atvinnuleysið er nú alls staðar meira en í október í fyrra og er aukn- ingin hlutfallslega mest á Suðurnesj- um. Atvinnuleysi kvenna eykst um 8,7% frá því í september sl. og at- vinnuleysi karla eykst um 13,3%. Alls var 81.101 skráður atvinnu- leysisdagur á landinu öllu í október sem jafngildir því að um 3.525 manns hafi að meðaltali verið atvinnulausir í mánuðinum, að því er fram kemur á vef Vinnumálastofnunar um atvinnu- ástand á landinu í október. Tölurnar samsvara 2,5% af áætlun Þjóðhags- stofnunar um mannafla á vinnumark- aði í október 2002. Segir þar að líklegt sé að atvinnuleysi í nóvember aukist og verði á bilinu 2,7% til 3,0%. Atvinnuástandið versnar iðulega í nóvember miðað við október sam- kvæmt upplýsingum frá Vinnumála- stofnun. Undanfarin 10 ár hefur at- vinnuleysið aukist að meðaltali um 9,5% frá október til nóvember. At- vinnuleysið var 1,5% í nóvember í fyrra. Atvinnuleysið á landsbyggðinni eykst um 19% milli mánaða. Atvinnu- leysið er nú 1,9% af mannafla á lands- byggðinni en var 1,6% í september sl. Þar af jókst atvinnuleysi karla hlut- fallslega úr 1,2% í 1,4% og atvinnu- leysi kvenna úr 2,2% í 2,6%. Atvinnu- leysið á landsbyggðinni var 1,1% í október í fyrra. Í lok mánaðarins voru samtals 4.080 manns á atvinnuleysisskrá á landinu, þar af 1.973 karlar og 2.107 konur. Atvinnulausum í lok október fjölgaði um 497 miðað við mánuðinn á undan, þar af konum um 211 og körl- um um 286. Á höfuðborgarsvæðinu var meðalfjöldi atvinnulausra í októ- ber 2.506 eða 2,8% af áætluðum mannafla en var 2,6% í september. Atvinnuleysi jókst um 7,9% milli mán- aða og að meðaltali eru nú 71% at- vinnulausra á landinu öllu á svæðinu. Yfirlit Vinnumálastofnunar um atvinnuástand í október Atvinnuleysi eykst alls staðar                            !" # $"  %"   
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.