Morgunblaðið - 19.11.2002, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 19.11.2002, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 51 DAGBÓK LÍKINDAFRÆÐIN koma við sögu í spili dagsins. Sagnhafi er með ÁKG10xx í trompi á móti 9x og má eng- an slag gefa á litinn. Spurn- ingin er: hvernig á að spila trompinu? Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ ÁKG ♥ 96 ♦ ÁK52 ♣8732 Suður ♠ 109 ♥ ÁKG1032 ♦ 83 ♣962 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 2 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Vestur spilar út laufkóng, síðan drottningu og gosa, sem austur tekur með ás. Laufið er sem sagt 3–3 hjá vörninni og austur spilar tígulgosa í fjórða slag. Sagn- hafi drepur og … gerir hvað? Tvær leiðir koma til greina í trompinu: Annars vegar að láta níuna rúlla yfir og hins vegar að taka fyrst á ásinn, en svína svo. „Pró- sentuleiðin“ er sú að svína níunni strax. Ástæðan er augljós: það er mun líklegra að drottningin sé eitt af fjór- um spilum í austur en ná- kvæmlega stök í vestur. Norður ♠ ÁKG ♥ 96 ♦ ÁK52 ♣8732 Vestur Austur ♠ 8432 ♠ D765 ♥ D ♥ 8754 ♦ D9764 ♦ G10 ♣KDG ♣Á105 Suður ♠ 109 ♥ ÁKG1032 ♦ 83 ♣962 Svona er lífið; hið ólíklega er ekki ómögulegt. Í þessu tilfelli gat sagn- hafi þó tekið hið ólíklega með í reikninginn – hann ræður við drottningu fjórðu í austur þó svo hann taki fyrst á hjartaásinn. Sjáum til. Segjum að báðir fylgi smátt í ásinn. Þá er farið inn í borð á tígul og hjartaníunni hleypt. Ef vestur fylgir ekki lit, trompar sagnhafi tígul, fer inn í borð á spaða og trompar aftur tígul. Suður á nú KG í trompi og einn spaða. Hann fer inn í borð á háspaða og tínir upp tromp austurs í lokin með tromp- bragði. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake SPORÐDREKI Afmælisbörn dagsins: Þú ert sjálfstæður, fram- sýnn og drífandi. Þú ert um- hyggjusamur en átt það til að vera of stjórnsamur. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Samvinna skilar oft betri ár- angri en einstaklingsfram- takið. Gefðu sjálfum þér tækifæri til að víkka út sjón- deildarhring þinn. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú hefur verið hrókur alls fagnaðar að undanförnu og ættir að taka þér frí frá fé- lagslífinu. Gefðu þér tíma til að vera einn með sjálfum þér. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú verður beðinn um að taka á þig aukna ábyrgð og munt skila því með sóma. Þú sérð nú framtíðina í bjartara ljósi en oft áður. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú þarft að láta hendur standa fram úr ermum og gæta þess að sýna þeim þakklæti sem koma þér til hjálpar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú þarft að horfa á allar hliðar þess máls, sem hvílir á þér, til að finna réttu lausnina. Útkoman mun hafa mikil og góð áhrif á líf þitt. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Stundum sjá augu betur en auga. Biddu því þann sem þú treystir best til að hjálpa þér að sjá hvar þú stendur í ákveðnu máli. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Eyddu ekki óþarfa orku í að hugsa um það sem gengur ekki upp. Þú þarft að leggja á ráðin um framhaldið og fara að byggja upp að nýju. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Láttu neikvæðnina ekki ná tökum á þér. Veittu því at- hygli sem gengur vel og sýndu þakklæti þitt með því að láta gott af þér leiða. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þótt aðrir sjái þig ekki í réttu ljósi eins og stendur mun verða breyting þar á þegar þú ferð að uppskera árangur erfiðis þíns. Sýndu þolinmæði. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þótt þú hafir mikið að gera máttu ekki vanrækja sjálfan þig. Mundu að þú kemur meiru í verk þegar þú ert út- hvíldur og ánægður. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Stattu með sjálfum þér og láttu í þér heyra þegar þörf krefur. Mundu þó að það hafa ekki allir sömu skoðan- ir á hlutunum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Láttu ekki draga þig inn í þrætur eða samningavið- ræður. Láttu aðra um að finna lausn á sínum málum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT SÓLSTAFIRNIR Sé ég margan sumaraftan sólina blika á vesturhafi, svífur hún þá öldur yfir og á þær ritar gyllta stafi. Oft hefir mig langað að lesa letrið gyllta á vesturhafi, en haföldurnar hafa risið handan fyrir úr djúpu kafi og sagt: mér væri ei leyft að lesa letrið gyllta á vesturhafi, því dýrari mund en dauðleg hendi dregið hefði’ upp þessa stafi. Jón Þorleifsson Morgunblaðið/Ragnhildur Þessar duglegu stúlkur, Katrín Rós Gunnarsdóttir og Auð- ur Ásta Baldursdóttir, héldu tombólu og söfnuðu kr. 4.246 til styrktar Rauða krossi Íslands. Hlutavelta Árnað heilla 85 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 19. nóv- ember, er 85 ára Emilía B. Helgadóttir, til heimilis í Seljahlíð, Hjallaseli 55, áð- ur Hólmgarði 27, Reykja- vík. 75 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 19. nóv- ember, er 75 ára Trausti Thorberg Óskarsson. Eig- inkona hans er Dóra Sigfús- dóttir. Þau eru að heiman í dag. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 0-0 8. a4 Bb7 9. d3 He8 10. Rbd2 Bf8 11. Rf1 Ra5 12. Ba2 h6 13. Re3 c5 14. Rh4 d5 15. exd5 Rxd5 16. Dh5 c4 17. dxc4 Rf4 18. Dg4 h5 19. Dg3 bxc4 20. Rf3 h4 21. Dxh4 Bxf3 22. Dxd8 Hexd8 23. gxf3 Hac8 24. Rg2 Rh3+ 25. Kf1 c3 26. bxc3 Hxc3 27. Re3 Rc6 28. Hb1 Hd7 29. Hb3 Hxb3 30. Bxb3 Rd4 31. Hd1 Hc7 32. Rd5 Hb7 Staðan kom upp á Ólymp- íuskákmótinu sem lauk fyrir skömmu í Bled í Slóveníu. Hannes Hlífar Stef- ánsson (2.566) hafði hvítt gegn fjórða stigahæsta skák- manni heims, Mich- ael Adams (2.745). 33. Hxd4! exd4 34. Kg2 Rxf2 35. Kxf2 d3 36. Ke3 dxc2 37. Bxc2 Bc5+ 38. Ke2 Hd7 39. Bb3 Hd6 40. Bc4 Kf8 41. Bd2 Hc6 42. Kd3 Hd6 43. a5 Hc6 44. h3 Hg6 45. Rc7 Hg3 46. Bd5 Hxh3 47. Rxa6 Bg1 48. Rb4 Hh4 49. a6 Ke7 50. Bg5+ og svartur gafst upp. Glæsilegur sigur hjá Hannesi sem leiddi ís- lensku karlasveitina til besta árangurs hennar á Ól- ympíumóti síðan 1996. Hún lenti í 21.–22. sæti af 135 keppnisþjóðum en árangur liðsmanna varð þessi: 1. borð Hannes Hlífar Stefáns- son 7 vinninga af 12 mögu- legum, 2. borð Helgi Áss Grétarsson 7 v. af 11, 3. borð Helgi Ólafsson 6 v. af 9. 4. borð Þröstur Þórhallsson 5 ½ v. af 11 1. Varamaður Stefán Kristjánsson 4 v. af 8, 2. varamaður Jón Garðar Viðarsson 2 ½ v. af 5. Hvítur á leik. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Íslandsmót í parasveitakeppni Íslandsmót í parasveitakeppni verður haldið helgina 23.–24. nóvem- ber í Síðumúla 37. Fyrirkomulag verður með sama sniði og undanfarin ár. Spilaðar eru 7 umferðir með 16 spila leikjum og raðað í umferðir með Monrad-fyrirkomulagi. Spila- mennska hefst kl. 11.00 báða dagana. Keppnisstjóri er Björgvin Már. Skráning er hafin í s. 587 9360 eða á www.bridge.is. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Félag eldri borgara í Hafnarfirði Eldri borgarar í Hafnarfirði spila brids-tvímenning í Hraunseli, Flata- hrauni 3, tvisvar í viku, þ.e. á þriðju- dögum og föstudögum. Mæting kl. 13:30. Spilað var 12. nóv., þá urðu úrslit þessi: Ásgeir Sölvason – Guðmundur Ólafsson 132 Jóna Kristinsdóttir – Sveinn Jensson 127 Sófus Berthelsen – Ólafur Kristjánsson 123 Hans Linnet – Ragnar Jónasson 122 15. nóv. Árni Bjarnason – Guðvarður Guðm. 107 Ásgeir Sölvason – Guðmundur Ólafsson 90 Jón Ó. Bjarnason – Jón R. Guðmundsson 88 Sigurlína Ágústsd. – Guðm. Guðmundss. 97 Nýliðabrids á fimmtudögum Fimmtudaginn 14. nóv. mættu 9 pör til leiks. Úrslit urðu þessi: Jón Jóhannsson–Sigurbjörn Haralds 83 Guðni Harðarson–Hrafnhildur Konráðsd. 83 Eiríkur Eiðsson–Þórir Jóhannsson 80 Stefán Stefánsson–Kristján Nielsen 74 Davíð Freyr Oddsson–Einar Hólmsteins. 71 Næsta spilakvöld er fimmtudag- urinn 21. nóv. Spilað er í Síðumúla 37, 3. hæð. Sigurbjörn keppnisstjóri tekur vel á móti öllum og aðstoðar við að finna meðspilara.       Jú, þú ert kominn í sam- band við eldhúsið. Nú gef ég þér samband við yf- irkokkinn. Smælki YOGA Ný námskeið hefjast 25. nóvember. Kennari er Arnhildur S. Magnúsdóttir sem m.a. byggir námskeiðin á sinni eigin reynslu. Tilgangur námskeiðsins er að takast á við daglegt líf að nýju með aðstoð yoga, styrkja sig líkamlega og andlega auk þess að sættast við líkamann. Námskeiðin verða haldin í sal Lífssýnar, Bolholti 4, 4. hæð til vinstri. fyrir alla sem eru að ganga í gegnum eða hafa lokið krabbameinsmeðferð Skráning og upplýsingar eru hjá Arnhildi í síma 895 5848. Samkvæmiskjólar Bankastræti 11 • sími 551 3930 Pantaðu jólamynda- tökuna tímanlega Gerðu verðsamanburð. Hjá okkur eru allar myndirnar sem þú færð í myndatökunni stækkaðar og fullunnar. Innifalið í myndatökunni: 12 stækkanir 13x18 cm, 2 stækkanir 20x25 cm og ein stækkun 30x40 cm í ramma. Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207. www.ljosmynd.is Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020. Passamyndatökur alla virka daga. Lára Margrét áfram í 5. sæti Kynntu flér stefnumálin á www.laramargret.is e›a hringdu í síma 551 3339 og 861 3298 Hef opnað AUGNLÆKNASTOFU á Hverfisgötu 76, 101 Reykjavík. Tímapantanir alla virka daga kl. 9–15 í síma 568 0070. Harpa Hauksdóttir AUGNLÆKNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.