Morgunblaðið - 19.11.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.11.2002, Blaðsíða 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 15 SAMKEPPNI um gerð viðskiptaáætlana, Ný- sköpun 2003, sem ber yfirskriftina þjóðarátak um nýsköpun, var formlega hleypt af stokk- unum í gær. Markmið átaksins er að örva ný- sköpun og frumkvöðlastarfsemi í íslensku at- vinnulífi til að stuðla að auknum hagvexti og bættum lífskjörum. Að samkeppninni standa Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, KPMG, Háskólinn í Reykjavík, Morgunblaðið, Íslandsbanki og Byggðastofn- un, en tveir þeir síðastnefndu hafa ekki komið að keppninni áður. Auk þess eru Síminn, Eim- skip, Samherji og Nýherji stuðningsaðilar keppninnar. Samkeppni um gerð viðskipta- áætlana er nú haldin í fjórða skipti og er skila- frestur til 31. maí 2003, en úrslit verða kynnt í september það ár. Aukin fjölbreytni í atvinnulífinu Í fréttatilkynningu frá aðstandendum sam- keppninnar segir að þjóðarátak um nýsköpun sé m.a. ætlað að stuðla að markvissum vinnu- brögðum við virkjun nýrra hugmynda í at- vinnulífinu og laða fram áhugaverð verkefni. Nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi í atvinnulífi hafi mikil áhrif á hagvöxt og þar með lífskjör almennings. Samkvæmt niðurstöðum nýlegrar rann- sóknar sé starfsemi frumkvöðla umtalsvert meiri á Íslandi en í öðrum Evrópuríkjum. Án efa sé góð útkoma Íslands meðal annars að þakka markvissri viðleitni fyrirtækja og stofn- ana hér til að örva nýsköpun með verkefnum á borð við þjóðarátakið sem nú sé efnt til. Aðstandendur átaksins telja mikilvægt að haldið verði áfram á sömu braut til að stuðla að aukinni fjölbreytni í atvinnulífi landsins og bæta stöðu þess í ört vaxandi alþjóðlegri sam- keppni. Viðskiptaáætlun eða hugmyndalýsing Samkeppnin að þessu sinni er viðameiri en áður. Allir sem skrá sig til keppni fá leiðbein- ingahefti og Excel-líkan sem KPMG hefur smíðað. Einnig fylgir með gögnum sérstakur CD-diskur með fyrirlestrum og öðrum gögn- um. Keppnin er nú með tvennum hætti. Annars vegar er hægt að senda inn fullbúna viðskipta- áætlun upp á u.þ.b. 20–25 síður, en hins vegar er nýjung, því hægt er að leggja fram hug- myndalýsingu. Hún þarf þó að uppfylla ákveð- in skilyrði hvað varðar innihald og lengd, en hún skal vera 5–7 síður. Allir sem senda inn fullnægjandi viðskipta- áætlun keppa um peningaverðlaun þar sem fyrsti vinningur er 1 milljón krónur, að við- bættri ráðgjöf hjá KPMG, en önnur verðlaun eru 500 þúsund. Þar að auki eru veitt fimm eitt hundrað þúsund króna hvatningarverðlaun. Auk þess taka allir sem senda viðskiptaáætlun sjálfkrafa þátt í Evrópukeppni um viðskipta- hugmyndir. Sérstök aðaldómnefnd velur sig- urvegara í keppninni og fulltrúa Íslands í Evr- ópukeppni. Fullgildar viðskiptaáætlanir verða lesnar og metnar af sérfræðingum og fær hver áætlun ít- arlega umsögn. Hugmyndalýsing getur ekki unnið til verð- launa í aðalkeppninni en hún fer hins vegar í hóp þeirra sem koma til álita við val á fulltrú- um Íslands í Evrópukeppni. Einnig fá hug- myndalýsingar stutta umsögn. Fram kom á kynningarfundi aðstandenda Nýsköpunar 2003 í gær að stefnt er að mikilli og útbreiddri þátttöku og að starfsmenn átaks- ins muni halda námskeið víða um land til að kynna það. Gísli Benediktsson, sérfræðingur þróunar- sviðs Nýsköpunarsjóðs, sagði að reynt verði að höfða sérstaklega til starfandi fyrirtækja, sem t.d. hyggjast hasla sér völl á nýju sviði með þróun nýrrar vöru eða þjónustu, eða með því að hefja sókn inn á nýja markaði. Hann sagði að árangurinn af þeim keppnum sem haldnar hafi verið til þessa sé ótvíræður. Mörg störf hafi skapast hjá fyrirtækjum víða um land. Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, sagði á kynningarfundinum að tengsl séu á milli nýsköpunar og hagvaxtar. Sérfræðingar víða um heim telji að fjórir þætt- ir skipti höfuðmáli fyrir frumkvöðlastarfsmi, þ.e. reglugerðarumhverfið í viðkomandi landi, menningin, menntunarstigið og aðgengi að áhættufjármagni. Í því sambandi sé athyglis- vert að rannsóknir sýni að einungis rúm 9% áhættufjármagns til frumkvöðlastarfsemi hér á landi komi frá fjárfestingafyrirtækjum. Af- gangurinn komi frá einstaklingunum sjálfum og aðstandendum þeirra. Þetta hlutfall sé tölu- vert lægra hér en víða annars staðar. Engu að síður hafi nýleg alþjóðleg rannsókn á frum- kvöðlastarfsemi á vegum Global Entre- preneurship Monitor, GEM, sem náði til 37 landa, leitt í ljós að Ísland sé ofarlega á blaði þegar kemur að nýsköpun. Samkeppni um gerð viðskiptaáætlana var fyrst haldin hér á landi árið 1999 og aftur á næstu tveimur árum þar á eftir. Í fyrstu sam- keppninni skráðu 700 manns sig til keppni, 650 í keppninni árið eftir og 580 í keppninni árið 2001. Fjöldi viðskiptaáætlana sem bárust inn í fyrstu keppninni var 85, árið eftir bárust 35 áætlanir en 109 áætlunum var skilað inn í síð- ustu keppni. Dómnefnd Nýsköpunar 2003 skipa: Hörður Sigurgestsson formaður, Brynjólfur Bjarna- son, forstjóri Símans, Guðfinna S. Bjarnadótt- ir, rektor Háskólans í Reykjavík, Hildur Pet- ersen, Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, og Lárus Ásgeirsson, framkvæmdastjóri hjá Marel. Þjóðarátak um Nýsköpun 2003 – samkeppni um gerð viðskiptaáætlana hleypt af stokkunum Markmiðið að auka hagvöxt Morgunblaðið/Kristinn Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, Halldór S. Magnússon, forstöðu- maður fyrirtækjasviðs Íslandsbanka, Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, og Gísli Benediktsson hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins kynntu samkeppnina í gær. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S TO Y 19 39 3 1 1/ 20 02 LEXUS N†B†LAVEGI 6 SÍMI 570 5400 WWW.LEXUS.IS SÁLIN OG SINFÓ SÁLIN HANS JÓNS MÍNS ME‹ SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS S á l i n h a n s J ó n s m í n s m e › S i n f ó n í u h l j ó m s v e i t Í s l a n d s 2 1 . o g 2 2 . n ó v . k l . 1 9 . 3 0 o g 2 3 . n ó v . k l . 1 7 . 0 0 í H á s k ó l a b í ó i . IS200 LEXUS STYRKIR SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.