Morgunblaðið - 19.11.2002, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.11.2002, Qupperneq 20
ERLENT 20 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ NORÐUR-Kóreumenn hótuðu í gær að hefja eldflaugatilraunir að nýju ef Japanir hættu ekki við að þróa eld- flaugavarnakerfi með Bandaríkja- mönnum. Sjónvarpsstöð í Norður- Kóreu dró í gær til baka staðhæfingu sem benti til þess að stjórn landsins gengist nú við því að hafa komið sér upp kjarnavopnum. Útvarp Pyongyang sagði á sunnu- dag að Norður-Kóreumenn hefðu þegar „eignast kjarnavopn og önnur öflug vopn vegna kjarnorkuhótana bandarísku heimsvaldasinnanna“, að sögn suður-kóresku fréttastofunnar Yonhap, sem fylgist með fréttaflutn- ingi í Norður-Kóreu. Margir litu á fréttina sem fyrstu staðfestingu Norður-Kóreustjórnar á því að landið hefði eignast kjarna- vopn. Hún hefur hingað til aðeins haldið því fram að hún „eigi rétt á því að eignast kjarnavopn og önnur öfl- ug vopn til að verja sig vegna hótana Bandaríkjanna“. Embættismenn í Suður-Kóreu sögðust þó efast um að stjórn Norð- ur-Kóreu hefði breytt þeirri stefnu sinni að hvorki játa því né neita að hún hafi yfir kjarnavopnum að ráða. Mismæli fréttaþular? Einn embættismannanna sagði að fréttaþulur norður-kóreska ríkis- sjónvarpins hefði ef til vill mismælt sig illilega. Hann hefði sagt á kór- esku „kajige tui-otta“, eða „hafa eignast“ eins og suður-kóreska fréttastofan þýddi setninguna, í stað „kajige tui-o-itta“, „eiga rétt á að eignast“. Eitt atkvæði hafi því ger- breytt merkingu setningarinnar. Önnur ríkisrekin sjónvarpsstöð í Norður-Kóreu birti fréttina í gær með þeirri breytingu að sagt var að Norður-Kóreumenn „ættu rétt á að eignast“ kjarnavopn. Yonhap sagði að fréttaþulnum hefði ef til vill orðið á mistök. Suður- kóreskir embættismenn sögðu að fréttin hefði aðeins verið lesin einu sinni og ekki verið flutt á aðalfrétta- tíma Útvarps Pyongyang. Enginn annar fjölmiðill í Norður-Kóreu birti fréttina. Þá sögðu embættismenn- irnir að ef stefna stjórnarinnar hefði breyst hefði hún gefið út sérstaka yf- irlýsingu um málið. Norður-kóreska dagblaðið Rod- ong Sinmun, málgagn stjórnarinnar í Pyongyang, sagði í gær að hún kynni að hefja eldflaugatilraunir að nýju ef Suður-Kóreumenn hættu ekki við að koma upp eldflauga- varnakerfi í samstarfi við Bandarík- in. Norður-Kóreumenn ollu miklu uppnámi árið 1998 þegar þeir skutu langdrægri eldflaug yfir Japan í til- raunaskyni og talið er að þeir eigi eldflaugar sem geti dregið til Hawaii og Alaska. Stjórn Norður-Kóreu til- kynnti síðar að hún hygðist hætta slíkum eldflaugatilraunum að minnsta kosti þar til á næsta ári. N-Kóreumenn hóta að hefja eldflaugatilraunir Seoul. AP, AFP. Fréttir um kjarnorkuvopn í Norður-Kóreu dregnar til baka ABDULLAH Gul, hagfræðingi og næstæðsta manni Réttlætis- og þróunarflokksins sem vann stórsigur í þingkosning- um í Tyrk- landi í byrjun mánaðarins, var um helgina falið að mynda nýja ríkis- stjórn og kynnti hann síðdegis í gær ráðherralista sinn fyrir forseta landsins. Er reiknað með því að sem for- sætisráðherra verði Gul aðeins í staðgengilshlutverki, unz ótví- ræðum leiðtoga flokksins, Rec- ep Tayyip Erdogan, hefur tek- izt að koma málum svo fyrir að hann geti teki embættið að sér. Honum er það ekki heimilt eins og er, þar sem hann var árið 1998 dæmdur fyrir að „kynda undir trúarlegu hatri“ sem úti- lokar hann frá því að mega taka sæti á þingi eða í ríkis- stjórn. Sprengt í Caracas SPRENGJA sprakk í gær við sjónvarpsstöðina Globovision í Caracas, höfuðborg Venesúela, sem gagnrýnt hefur stjórnar- hætti Hugo Chavez forseta. Þrír bílar eyðilögðust í spreng- ingunni en ekkert tjón varð á fólki. Árásin jók á áhyggjur fólks af vaxandi lögleysu- ástandi í Caracas í kjölfar þess að Chavez fyrirskipaði að her- inn tæki yfir stjórn lögreglunn- ar í borginni. Vinsældir Chav- ez, sem er fyrrverandi foringi í fallhlífasveitum hersins, hafa hrapað síðan hann var kjörinn til forseta árið 1998 og endur- kjörinn til sex ára árið 2000. Kútsjma rek- ur stjórnina LEONÍD Kútsjma, forseti Úkraínu, rak um helgina alla ríkisstjórn landsins. Kútsjma hefur á undanförnum árum sætt ásökunum um spillingu og misbeitingu valds. Ákvörðun hans um að skipa Victor Yan- ukovich, sem í hlutverki hér- aðsstjóra í Donetsk hefur getið sér orðstír fyrir að vera harður í horn að taka, í stað Anatoly Kinakh í embætti forsætisráð- herra er álitin tilraun af hans hálfu til að styrkja á ný tök sín á stjórnartaumunum. Svíar kjósi um evru FLOKKSRÁÐ sænska Jafnað- armannaflokksins samþykkti um helgina að mælast til þess að á næsta ári verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um að- ild landsins að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu, þ.e. hvort Svíar vilji taka upp evr- una í stað krónunnar. Til að af þessu verði þarf þingið að af- greiða sams konar samþykkt. Þar sem aðeins tveir smáflokk- ar eru fyrirfram á móti eru miklar líkur á að slík samþykkt líti brátt dagsins ljós. „Mér er létt,“ sagði Göran Persson, for- sætisráðherra og flokksleiðtogi jafnaðarmanna eftir afgreiðslu málsins í flokksstjórninni; „stuðningur við þjóðarat- kvæðagreiðslu er mjög skýr“. STUTT Gul mynd- ar stjórn Abdullah Gul MAÐURINN með ljáinn var ekki á ferð í Rómarborg á Ítalíu í gær heldur er þessi mynd af borgar- starfsmanni sem er í þann mund að opna frárennslislögn fyrir framan Colosseum með skóflu, með það að markmiði að hleypa miklu magni regnvatns þar niður. Mikil flóð af völdum rigninga hafa leikið stór landsvæði á Ítalíu grátt undanfarna daga og rekja menn a.m.k. tvö dauðsföll til vatnavaxtanna. Reuters Maðurinn með ljáinn kominn á stjá? ÞÚSUNDIR íranskra námsmanna tóku þátt í mótmælaaðgerðum í mið- borg Teheran í gær en þeir krefjast þess að málfrelsi verði aukið í land- inu. Harðlínumenn hleyptu mót- mælafundi stúdentanna hins vegar upp og kom til nokkurra átaka á lóð háskólans í Teheran. Að minnsta kosti fimm þúsund námsmenn tóku þátt í mótmælaað- gerðunum í gær og hafa þær ekki verið fjölmennari frá því að stúdent- ar hófu að lýsa andstöðu sinni við dauðadóm sem nýverið var felldur yfir umbótasinnuðum kennara, Hashem Aghajari, fyrir rétti í Teher- an. Aghajari hafði látið í ljósi opinber- lega efasemdir um réttmæti valda klerkastjórnarinnar í Íran og var fyr- ir vikið dæmdur fyrir guðlast. Nokkrir námsmenn urðu fyrir smávægilegum meiðslum þegar ísl- amskir harðlínumenn komu að í gær og hleyptu mótmælafundi þeirra upp. Hneppti lögreglan a.m.k. 15 manns í varðhald eftir róstusaman dag. Khameini skipar dómurum að endurskoða ákvörðun sína Ali Khameini erkiklerkur brást við þeirri óánægju, sem ríkir með dóm- inn yfir Aghajari, en þá fyrirskipaði hann dómurum að endurskoða ákvörðun sína. Einn af leiðtogum námsmanna sagði inngrip Khameinis hins vegar ekki ganga nægilega langt. „Vanda- málið er ekki aðeins þessi dauðadóm- ur yfir Hashem Aghajari heldur mál- frelsi og frelsi [til athafna] almennt,“ sagði Abdollah Momeni, forystumað- ur í námsmannahreyfingunni. Fjölmenn mótmæli námsmanna í Íran Teheran. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.