Morgunblaðið - 19.11.2002, Side 23

Morgunblaðið - 19.11.2002, Side 23
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 23 STARFSFÓLK bæklunardeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fagnaði 20 ára afmæli deildarinnar sl. föstudag og bauð af því tilefni til afmælisveislu í kennslustofu spít- alans. Þangað mættu starfsmenn annarra deilda og gestir utan úr bæ og þáðu veitingar og eru þeir hér að bragða á afmælistertu sem boðið var upp á í tilefni 20 ára afmælis bæklunardeildar. Í þeim hópi voru Halldór Baldursson fyrrverandi yf- irlæknir deildarinnar til tíu ára og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Anna Lilja Filipsdóttir deildarstjóri bæklunar- og augndeildar ávarpaði viðstadda og Júlíus Gestsson forstöðulæknir bæklunar- og slysadeildar kynnti starfsemi bæklunardeildar. Þá var afmælisrit bæklunardeildar, „Vörð- uð leið til betri heilsu“ kynnt en það er gefið út í tilefni afmælisins. Þema blaðsins er; „Forvarnir og meðferð við beinbrotum af völdum beinþynningar“ og er fjallað um málið frá ýmsum sjónarhornum í blaðinu. Blaðið mun liggja frammi á heilsugæslustöðvum og heilbrigð- isstofnunum. Morgunblaðið/Kristján Bæklunardeild FSA 20 ára Laufey Pálsdóttir heldur sýningu á Háskólabókasafninu á Ak- ureyri í nóvember og desember 2002. Hún sýnir myndir sem unnar eru í olíu á bólstraðan striga. Laufey (fædd 1965) naut tilsagnar í Myndlistaskóla Akureyrar, þá aðeins 16 ára gömul, en þaðan lá leið hennar til Reykjavíkur í MHÍ. Eftir útskrift úr málaradeild 1989 hefur Laufey kennt börnum myndlist, haldið kvöldnámskeið, átt í samstarfi við ýmsa listamenn og farið erlendis í náms- og kynn- isferðir. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar, meðal annars á Sólon Íslandus 1999 – 2000. Bókasafn Háskólans á Akureyri er opið frá 8:00 - 18:00 alla virka daga og 12:00 - 15:00 á laug- ardögum. Í DAG Rósa Eggertsdóttir sérfræðingur og Dagný Birnisdóttir kennari halda fyrirlestur á vegum kennaradeildar Háskólans á Akureyri í dag, þriðju- daginn 19. nóvember, kl. 16.15 í Þingvallastræti 23. Fyrirlesturinn nefnist Læsi til framtíðar. Sagt verður frá vetrarlöngu þróun- arverkefni Lundarskóla 2001–2002; Læsi til framtíðar, en það beindist að því að auka lesskilning allra nem- enda skólans í 1. til 10. bekk. Nem- endum var kennt að beita tveimur sérstökum aðferðum við lestur. Framfarir reyndust marktækar í öll- um árgöngum skólans. Trúðurinn Skralli hefur opnað heima- síðu á slóðinni www.mmedia.is/skralli og er þar að finna margvíslegt efni. Trúðurinn Skralli stefnir nú óðfluga í að verða þrítugur, en lætur þó engan bilbug á sér finna. Á heimasíðunni er m.a. Krakkahorn og þar er fram- haldssaga sem fjallar um ævintýri trúðsins og birtist einn nýr kafli á viku á síðunni. Þá er gerð grein fyrir Skralla og persónunni á bak við hann, en sá heitir Aðalsteinn Bergdal og er leikari. Auk þess er fróðleikur af ýmsu tagi á síðunni og fjallað er um Hrísey, heimkynni Skralla. Á NÆSTUNNI FYRSTA hverfisnefndin á Ak- ureyri var stofnuð á Oddeyri nýlega. Um 50 manns mættu á stofnfundinn þar sem urðu líf- leg skoðanaskipti, samkvæmt því sem fram kemur á heima- síðu bæjarins. Kristján Þór Júlíusson bæj- arstjóri stýrði fundinum og hóf hann með stuttri kynningu á þeirri hugmynd um íbúalýð- ræði sem býr að baki stofnun hverfisnefnda. Þá fjallaði Bjarni Reykjalín, deildarstjóri umhverfisdeildar, um skipu- lagsmál á Oddeyri í fortíð og framtíð. Fjörlegar umræður spunn- ust meðal fundarmanna um umferðarmál, græn svæði og fleira viðvíkjandi Oddeyri, en undir lok fundar var fyrsta hverfisnefndin á Akureyri, hverfisnefnd Oddeyrar, kjörin. Í henni sitja Hallgrímur Skaptason, Hjalti Jóhannes- son, Jón Einar Jóhannsson, Katrín Björg Ríkarðsdóttir og Sólveig Jóhannsdóttir. Vara- menn eru Hólmar Svansson, Jón Ingi Cæsarsson og Ragn- heiður Jakobsdóttir. Fyrsta hverfis- nefndin stofnuð Fyrsta ljóðakvöld vetrarins á Sig- urhæðum – Húsi skáldsins verður miðvikudagskvöldið 20. nóvember, húsið verður opnað kl. 20, en dag- skráin hefst hálfri stundu síðar. Dagskráin ber heitið „landið er lifandi … “ og þar mun for- stöðumaður hússins, Erlingur Sig- urðarson, spjalla um nokkur önd- vegisskáld sem settu svip sinn á nýliðna öld og bera niður í kveð- skap þeirra. Á eftir gefst færi á fyrirspurnum, athugasemdum og samræðum. Heitt verður á könn- unni og allir velkomnir, segir í frétt frá Húsi skáldsins. Á MORGUN TÆPLEGA tvítug stúlka var flutt á slysadeild eftir að hún varð fyrir bif- reið á Kaupvangsstræti á Akureyri í gærmorgun. Meiðsl hennar voru ekki alvarleg. Ökumaður sem var að aka fram úr annarri bifreið um helgina var einnig fluttur á slysadeild, en hann missti vald á bílnum með þeim afleiðingum að hún hafnaði á ljósastaur. Maður- inn slasaðist ekki alvarlega, en bif- reiðin var flutt á brott með drátt- arbifreið. Lögregla stöðvaði för manns sem tók aðvörunarplaststaur fyrir gang- andi vegfarendur í miðbæ Akureyr- ar og við eftirgrennslan kom annar slíkur í ljós. Kvaðst maðurinn hafa ætlað staurunum að skreyta her- bergi sitt. Þrír ferðamenn voru stöðvaðir við þá iðju sína að taka sængurföt af hót- eli sem þeir gistu á í bænum um helgina. Töldu þeir að myndavél hefði verið stolið af sér og ætluðu að jafna stuldinn með sængurfötunum. Starfsmenn stöðvuðu mennina og kvöddu lögregu til. Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna þjófnaðar úr verslun í bænum. Einn viðskiptavinurinn hafði þá pantað franskar kartöflur í búðinni en borðað þær þar inni og hent pok- anum utan af þeim áður en komið var að afgreiðslukassanum. Tilkynnt var um þjófnað á bensíni úr bílageymslu við Hjallalund og kvað sá er tilkynnti um stuldinn að eldsneyti af bíl sínum hefði horfið þrívegis á skömmum tíma, alls um 50 lítrar í hvert skipti. Í dagbók lögreglu kemur einnig fram að umferðaróhöpp urðu 12 tals- ins í vikunni, þar af var fólk flutt á slysadeild úr 5 þeirra. Þá voru 6 kærðir fyrir of hraðan akstur, 2 fíkniefnamál komu upp, 3 innbrot til- kynnt og 10 þjófnaðir. Umferðaróhöpp og þjófnaðir GUÐMUNDUR Gíslason tryggði sér titilinn Akureyrarmeistari í at- skák um helgina eftir hörkukeppni við Halldór B. Halldórsson. Þeir Guðmundur og Halldór voru einu taplausu keppendurnir en Guð- mundur hafði sigur að lokum með 6 vinninga úr 7 umferðum. Halldór varð annar með 5½ vinning en jafnir í þriðja sæti urðu þeir Þór Valtýsson og Björn Ívar Karlsson með 4½ vinning. Þór hafði svo betur eftir stigaútreikning. Jón Birkir Jónsson bar sigur úr býtum eftir einvígi við Davíð Arn- arson á hausthraðskákmóti sem efnt var til um helgina. Nóvemberhraðskákmót Skák- félags Akureyrar fer fram á fimmtu- dagskvöld, 21. nóvember, og hefst það kl. 20. Guðmund- ur Akur- eyrarmeist- ari í atskák w w w .d es ig n. is © 20 02 Síðumúla 34 (Fellsmúlamegin) Sími 588 7332 Opið: Mán. - föst. 9-18, lau. 10-14 Við látum verðin tala! Handlaug í borð. 56x47 cm. Verð frá kr. 8.950,- stgr. Handlaug á vegg. 34x45 cm. Verð frá kr. 3.950,- stgr. kr kr kr kr krkr kr kr kr Stálvaskur. 46x48 cm. Verð frá kr. 7.350,- stgr. Verð sett með öllu kr. 43.800,- stgr Innbyggingar WC Stálvaskur. 62x44 cm. Verð frá kr. 11.900,- stgr. Stálvaskar eitt hólf + borð. Verð frá kr. 8.450,- stgr. Wc með festingum og harðri setu. Tvöföld skolun. Stútur í vegg eða gólf. Verð frá kr. 16.950,- stgr. Einnarhandar blöndunartæki f. handlaug m. lyftit. Kr. 4.690,- stgr Einnarhandar blöndunartæki f. bað m. sturtusetti Kr. 5.900,- stgr Einnarhandar blöndunartæki f. eldhús Kr. 5.900,- stgr Handlaug með fæti. 55x43 cm. Verð kr. 9.450,- stgr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.