Morgunblaðið - 19.11.2002, Page 52
FÓLK Í FRÉTTUM
52 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞESSI nýjasta mynd kínverska
bardagasnillingsins og skemmti-
kraftsins Jackie Chan er eins
dæmigerð Hollywood-spennumynd
og verið getur. Og það er alveg
ljóst að sú tilraun sem Hollywood-
menn hafa verið að gera undanfarið
við að þýða Chan yfir í bandaríska
spennumyndaheiminn (sbr. Rush
Hour og Shanghai Noon), er alls
ekki að draga fram það besta í
kappanum.
Hér er það sem Chan hefur fram
að færa, þ.e. fáránleg dirfska og lip-
ur bardagahæfni sem jaðrar við hið
ómennska, vafið inn í þunglamalega
vondakallsfléttu, og unglingastjarn-
an snoppufríða Jennifer Love
Hewitt fengin Chan til halds og
trausts. Staða Chan á þessu amer-
íska spennumyndasviði verður síð-
an eiginlega hlægileg í sjálfri sér,
þó ljóst sé að honum er alltaf að
fara fram í enskunni.
En ef maður lætur af kröfum um
að sjá ómennsk áhættuatriði og
flugspörk sem ögra þyngdarlögmál-
inu, er The Tuxedo ósköp skemmti-
leg Hollywood-hasarmynd, með lág-
um einfeldningsstuðli. Þar er sótt
stíft til Bond-minnisins, þar sem að-
alsöguhetjan er siðfágaður leyni-
þjónustumaður, sem á ekki
bara bíl og penna sem búa
yfir ótrúlegum tæknilegum
eiginleikum, heldur er glæsi-
klæðnaðurinn sem hann ber
algjört leynivopn, sem færir
honum undraverða eigin-
leika. Þetta er dáldið
skemmtilegur snúningur á
Bond-hetjunni sem fremur
margar af sínum helstu
hetjudáðum í kjólfötum eftir
að hafa smyglað sér inn í
veislu hjá einhverjum spillt-
um olíufurstanum.
Þau tímamótaáhrif sem
hasarmyndin The Matrix
hafði á Hollywood láta heldur ekki
á sér standa, og eftir að Chan þarf
að bregða sér í kjólfötin göldróttu
er hann fljótlega farinn að bugta
sig og beygja í anda Matrix-ofur-
veruleikans í bland við eigin bar-
dagahæfni, sem ef til vill er eitt-
hvað farin að slappast hjá nær
fimmtugum manninum. Það má
hlæja að þessari spennumynd, en
meira hefur hún ekki fram að færa.
THE TUXEDO (SPARIFÖTIN)
Laugarásbíó, Sambíóin
Leikstjórn: Kevin Donovan. Handrit:
Michael J. Wilson og Michael Leeson.
Aðalhluterk: Jackie Chan, Jennifer Love
Hewitt, Jason Isaacs. Lengd: 97 mín.
Bandaríkin, 2002.
Heiða Jóhannsdóttir
Í umsögn um The Tuxedo með Jackie Chan
segir að myndin sé Bond-skotin og
skemmtileg Hollywood-hasarmynd.
Chan breytist í Bond
DANIR hafa löngum verið kunnir
ævintýrasagnamenn fyrir börn og
unglinga og manna snjallastir að
gera grín að sjálfum sér. Þessir
ágætu eiginleikar njóta sín vel í
Börnum systur minnar, laufléttri
mynd fyrir yngri kynslóðina sem
aðra fjölskyldumeðlimi.
Aðalpersónan er prófessor Erik
(Peter Ganzler), frægur barnasál-
fræðingur sem er nýbúinn að senda
frá sér nýja metsölubók um sérgrein
sína þegar hann þarf skyndilega að
reyna á kunnáttuna í raunveruleik-
anum. Systur hans og mági er boðið í
utanlandsferð og þá er gott að geta
gripið til Eriks frænda til að taka að
sér á meðan heimilið – og börnin
þeirra fimm!
Myndin skopast að sálfræðikenn-
ingum prófessorsins sem ganga ekki
alltaf upp í framkvæmd. Barnaskar-
inn furðulunkinn við að finna göt á
fræðunum sem þau vitna óspart í. Til
að lífga enn frekar upp á framvind-
una koma til sögunnar unglingaástir,
snobbuð nágrannakona og óvænt
ástarævintýri prófessorsins. Min
søsters børn er í vel lukkuðum ýkju-
stíl og börn sem fullorðnir leika hlut-
verkin óaðfinnanlega. Til viðbótar er
hún unaðslega stutt fyrir foreldrana
(og afana).
Danskt fyrir sjónir
MIN SØSTERS BØRN
(BÖRN SYSTUR MINNAR)
Regnboginn
½
Leikstjóri: Tomas Villum Jensen. Handrit:
Michael Asmussen o.fl. Aðalleikendur:
Peter Ganzler, Wencke Barfoed, Niels Ol-
sen, Lotte Merete Andersen, Neel Røn-
holt, Birthe Neuman. 73 mín. Sandrews
Metronome. Danmörk 2001.
Sæbjörn Valdimarsson
Dönsk kvikmyndahátíð
MONA þarf á dagdraumum að
halda. Hún er nákvæmur bókhaldari í
auglýsingafyrirtækinu Avanti í Kaup-
mannahöfn. Yfirmaðurinn er veru-
leikafirrtur kókaín-sniffandi gaur
sem krefur Monu um kraftaverk í
bókahaldinu, vinnufélagarnir eru
ágætir, en besta vinkona hennar er
öldruð kona á neðri hæðinni. Þetta er
ekki nóg fyrir unga konu, og því lætur
hún sig dreyma um ungan mann, sem
maður veit ekki hvort er til. En einn
dag er Mona tekin sem gísl í bank-
anum, og einn ræningjanna fellur fyr-
ir henni.
Auglýst var að Monas Verden væri
með íslenskum texta. En það brást
því miður og eyðilagði þónokkuð fyrir
mér skemmtunina, sem er mjög
hvimleitt. Þótt ég hafi langoftast skil-
ið hvað var að gerast og getað hlegið
að skemmtilegum myndrænum uppá-
komum, missti ég býsna oft af brönd-
urunum sem Danirnir fyrir aftan mig
hlógu svo innilega að. Einnig var ég
ekki með samskipti Monu og yfir-
mannsins á hreinu og skildi því ekki
uppgjörið í endann, svo hápunktur
myndarinnar fór fyrir ofan garð og
neðan hjá mér. En það sem ég gat
haft gaman af var hin bráðskemmti-
lega leikkona Sidse Babett sem leikur
Monu. Sumir þekkja hana úr Den
eneste ene og Mifunes sidste sang, en
hún er sérstaklega heillandi og góð
grínleikkona. Ástfangna ræningjann
leikur svo Thomas Bo Larsen sem Ís-
lendingar þekkja einnig að góðu úr
Festen, Riget II, Edderkoppen, Taxa
o.s.frv. en hann er mjög sannfærandi
sem vafasamur umboðsmaður klám-
leikara.
Þetta er rómantísk gamanmynd,
með frekar ýktum persónum og oft
býsna klikkuðum húmor. Nokkrir
skemmtilegir sprettir í frásögn, kvik-
myndatöku og klippingu. Ágætasta
afþreying fyrir áhugafólk um fína
danska leikara eða þá sem vilja
dreyma smá með Monu.
MONAS VERDEN
(HEIMUR MONU)
Regnboginn
Leikstjórn: Jonas Elmer. Handrit: Nikolaj
Peyk. Kvikmyndataka: Morten Søborg.
Aðalhlutverk: Sidse Babett Knudsen,
Thomas Bo Larsen, Mads Mikkelsen og
Jesper Asholt. DK. 95 mín. Nordisk Film
2001.
Hildur Loftsdóttir
MAÐUR skilur vel hvað Anja og
Viktor eru að ganga í gegnum. Þau
eru ungt kærustupar, búin að vera
saman í tvö ár þegar Anja flytur inn í
miðbæ Kaupmannahafnar með vin-
konu sinni og fær vinnu í myndveri.
Viktor grípur til sinna ráða til að vera
nærri henni, en hún virðist ekkert
sérlega ánægð með það.
Margar ungar turtildúfurnar upp-
lifa í sambandi að vera að fara fram úr
hinu í þroska eða hugsunarhætti og
það gerist þegar Anja fær spennandi
reynslu og tilboð í vinnunni. Mörg at-
riði myndarinnar sem tæpa á þessu
eru áhrifarík og standa aðalleikararn-
ir ungu sig mjög vel, og þá sérstak-
lega Robert Hansen sem leikur Vikt-
or. Anja og Viktor eru trúverðug, en
aðrar persónur eru heldur klisju-
kenndar, flatar og stundum bara
bjánalegar.
Myndin er mjög fyrirsjáanleg að
öllu leyti. Eftir að myndin byrjar get-
ur hvaða vanur bíófari sagt sér hvað
gerist og ... það gerist! Þar af leiðandi
myndast lítil spenna og hápunktur
myndarinnar fellur heldur flatur.
Tónlistarnotkunin í myndinni er
bæði ófrumleg og metnaðarlaus, þar
sem vinsælustu bandarísku lögunum
er hent inn, auk nokkurra annarra
slagara sem á gegnsæjan máta eiga
að túlka hugarástand persónanna.
Dönskum krökkum hefur áreiðan-
lega fundist þetta ágæt mynd, þar
sem þau þekkja sig í persónunum og
sumir í aðstæðunum. Íslenskir ung-
lingar sem vilja æfa sig í dönskuskiln-
ingi fyrir jólaprófin ættu kannski að
skella sér á þessa mynd, en aðrir ættu
að sjá eitthvað annað.
ANJA OG VIKTOR
Regnboginn
Leikstjóri: Charlotte Sachs Bostrup.
Handrit: Søren Frellesen. Kvikmynda-
taka: Jørgen Johansson. Aðalhlutverk:
Robert Hansen, Sofie Lassen-Kahlke,
Joachim Jessen og Peter Gantzler. 90
mín. DAN. 2001.
Hildur Loftsdóttir
"Grettissaga er stórkostleg leikhúsupplifun."
S.S og L.P. Rás 2
Grettissaga saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu
lau 23. nóv kl. 20, nokkur sæti, föst 29. nóv, kl. 20, laus sæti
Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur
þri. 19. nóv, uppselt, mið 20. nóv, uppselt, föst 22.nóv AUKASÝNING, nokkur sæti,
sun 24. nóv, uppselt, þri 26. nóv, uppselt, mið 27. nóv, örfá sæti, sun 1. des, uppselt,
mið 4. des, nokkur sæti, fim 5. des, laus sæti,
Sýningarnar á Sellófon hefjast kl 21.00
Stóra svið
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
fö 22/11 kl 20, su 1/12 kl. 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Lau 23/11 kl 20 ATH: Kvöldsýning,
Su 24/11 kl 14
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fim 21. nóv kl 20 - AUKASÝNING
Fö 29. nóv kl 20 - AUKASÝNING
Fi 5. des kl 20 - AUKASÝNING
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Lau 30/11 kl 20
SÍÐASTA SÝNING
15:15 TÓNLEIKAR
Lau 23/11 Sveinn L. Björnsson, Lárus Grímsson og
Guðni Franzson. CAPUT
Nýja sviðið
Þriðja hæðin
Litla svið
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
HERPINGUR e. Auði Haralds og
HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason
í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA
Lau 23/11 kl 20
SUSHI NÁMSKEIÐ
með Sigurði og Snorra Birgi
Í kvöld kl. 20
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
fi 28/11 kl. 20
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
FRUMSÝNING mi 20/11 kl 17.30 UPPSELT
Su 24/11 kl 20
Ath. breyttan sýningartíma
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
fim 21/11, fö 22/11,
Veisla í Vesturporti!
..ef ykkur langar til að eiga stund
þar sem þið getið velst um af
hlátri, ekki missa af þessari leiksýn-
ingu... (SA, Mbl.)
fös. 22. nóv. kl. 21.00
lau. 23. nóv. kl. 21.00
Vesturport, Vesturgata 18
Miðasala í Loftkastalanum,
Sími 552 3000
loftkastalinn@simnet.is
www.senan.is
Hin smyrjandi jómfrú
sýnt í Iðnó
2. sýn. 20. nóv. kl. 20
3. sýn. 24. nóv. kl. 20
4. sýn. 1. des. kl. 15
5. sýn. 1. des. kl. 20
Léttur kvöldverður innifalinn
Miðasala í síma 562 9700
Myndverk í eigu Matthíasar Johannessen
23. nóvember: Viltu lesa fyrir mig?
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
Munið gjafakortin!
Fim. 21/11 kl. 21 Örfá sæti
Fös. 22/11 kl. 21 Örfá sæti
Lau. 23/11 kl. 21 Örfá sæti
Fös. 29/11 kl. 21 Uppselt
Lau. 30/11 kl. 21 Nokkur sæti
Fim. 5/12 kl. 21 Nokkur sæti
Fös. 6/12 kl. 21 50. sýning - Uppselt
Fös. 13/12 kl. 21
8. sýn. sun 24. nóv. kl. 14 örfá sæti
9. sýn. sun. 1. des. kl. 14 laus sæti
10. sýn. lau. 7. des. kl. 14. laus
sæti
11. sýn. sun. 8. des kl. 14. laus sæti