Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 63
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 63
EINSTÆÐ móðir gengur fram
fyrir skjöldu og segir sögu sína.
Hinn 27. nóvember sl. segir Viktoría
Jónsdóttir sögu í DV (bls. 2) sem
vekur spurningar. Hvernig getur fé-
lagsmálaþjónusta viðkomandi sveit-
arfélags horft framhjá því að hjálpa
einstæðum mæðrum um húsnæði,
leikskólapláss fyrir barn eða börn
viðkomandi kvenna svo þær geti
stundað vinnu ef heilsa þeirra leyfir?
Hvernig má það vera í okkar marg-
rómuðu velmegun að ekki sé hægt að
sinna nauðþurftum þessara kvenna?
Viktoría Jónsdóttir segir að hún
borgi 70.000 krónur á mánuði fyrir
húsnæði, svo þarf að fæða og klæða
fjölskylduna. Hvað kostar það? Hver
á vinna fyrir heimilinu þegar ekki
fæst leikskólpláss fyrir barnið eða
pössun? Það má fara mörgum og ýt-
arlegri orðum um þennan málaflokk.
En hvað gerir hæstvirt ríkisstjórn?
Flóttamönnum boðið hingað
Það sem vakti athygli við lestur
greinar Viktoríu var að við hlið henn-
ar er mynd af hæstvirtum félags-
málaráðherra Páli Péturssyni og
fyrirsögn á greininni sem myndin er
í: „Flóttamönnum boðið hingað“.
Síðan segir: „Ríkisstjórnarfundur,
sem haldinn var í gær, 26. nóvember
2002, samþykkti að bjóða 20 til 25
flóttamönnum frá gömlu Júgóslavíu
hingað til lands á næsta ári.“ Það
hefur viðgengist í nokkur ár að
flóttafólki sé boðin landvist hér á
landi. Þetta sýnir þá hlýju og um-
hyggju sem ríkisstjórn Íslands og fé-
lagsmálaráðherra bera fyrir hrjáðu
fólki úti í heimi. Hæstvirt ríkisstjórn
og hæstvirtur félagsmálaráðherra
Páll Pétursson, er ekki sanngjarnt
að jafnmargar einstæðar mæður og
feður fái sömu fyrirgreiðslu úr rík-
issjóði og flóttafólk sem boðið er til
landsins? Hæstvirt ríkisstjórn og fé-
lagsmálaráðherra, Páll Pétursson,
þessir einstæðu foreldrar eru á flótta
frá einni stofnun til annarrar í leit að
hjálp. „Þetta fólk er flóttafólk!“
Hæstvirtir ráðherrar í ríkisstjórn Ís-
lands. Er ekki kominn tími til að þér
opnið hjörtu yðar og pyngju fyrir ís-
lensku flóttafólki?
Á köldum klaka!
Eftir Sigurð Magnússon
Höfundur er fv. yfirrafmagnseft-
irlitsmaður.
„ … er ekki
sanngjarnt
að jafn-
margar ein-
stæðar
mæður og feður fái
sömu fyrirgreiðslu úr
ríkissjóði og flóttafólk
sem boðið er til lands-
ins?“
www.avon.is
Snyrtivöruverslun
opin allan sólarhringinn
Mörkinni 3, sími 568 7477
www.virka.is
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og laugard. frá kl. 10-14
Gjafabréf
til saumakonunnar
nýtist vel þar sem
efnaúrvalið er mikið
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111