Morgunblaðið - 12.12.2002, Page 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TÓMAS Ingi Olrich menntamála-
ráðherra sagði í fyrirspurnartíma á
Alþingi í gær að hann hygðist beita
sér fyrir textun íslensks sjónvarps-
efnis. Sagði hann að fyrsti fundur
um textun sjónvarpsefnis yrði hald-
inn með fulltrúum Ríkisútvarpsins í
dag.
„Ég hef einsett mér að beita mér
fyrir þessu máli,“ sagði hann. Tilefni
þessara orða var fyrirspurn Kol-
brúnar Halldórsdóttur, þingmanns
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs, á Alþingi um málefni
heyrnarlausra hér á landi. Þingmað-
urinn sagði að í rúman áratug hefði
Félag heyrnarlausra unnið að bættri
réttarstöðu heyrnarlausra. Það
hefði m.a. lagt áherslu á að íslenska
táknmálið yrði viðurkennt sem móð-
urmál heyrnarlausra, sem og að
heyrnarlausir hefðu lögbundinn rétt
á túlkaþjónustu.
Ráðherra greindi m.a. frá athug-
un menntamálaráðuneytisins sem
kynnt hefði verið í ríkisstjórn í mars
árið 2000. Sú athugun hefði leitt í
ljóst að staða táknmálsins væri að
mörgu leyti sterk hér á landi. Sér-
staklega í skólakerfinu. Í kjölfar
þessarar athugunar hefði verið skip-
uð nefnd með fulltrúum mennta-
málaráðuneytisins, félagsmálaráðu-
neytisins og heilbrigðisráðuneyt-
isins. Átti nefndin að skila tillögu um
lögbundinn rétt heyrnarlausra til
túlkaþjónustu. Ráðherra sagði að sú
nefnd hefði lokið störfum í septem-
ber 2001.
„Skilaði hún af sér drögum að
frumvarpi um táknmálsþjónustu þar
sem m.a. var lagt til að réttur heyrn-
arlausra til túlkaþjónustu í atvinnu-
lífinu og í daglegu lífi skyldi lög-
bundinn.“ Ráðherra greindi frá því
að nokkur álitamál, sem tengdust
mögulegri lagasetningu til að
styrkja stöðu táknmálsins, væru þó
enn uppi. T.d. væri álitamál hver
skyldi standa straum af þeim kostn-
aði sem táknmálsþjónustu fylgdi.
„Um er að ræða álitamál sem
tengjast stöðu þessa málaflokks
milli ráðuneyta og einnig aðkomu
sveitarfélaga að þessari þjónustu.“
Ráðherra kvaðst þó ætla að beita
sér fyrir því á vettvangi ríkisstjórn-
arinnar að farið yrði í þá vinnu að
leysa þessi álitamál.
Umræða um réttindi heyrnarlausra
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Félagar í Félagi heyrnarlausra fjölmenntu á þingpallana á Alþingi í gær til
að fylgjast með umræðum um réttindi heyrnarlausra. Hér er það Tómas
Ingi Olrich menntamálaráðherra sem er í pontu.
Álitamál hver eigi
að greiða fyrir
táknmálsþjónustu
ÞINGFUNDUR hefst kl. 10.30 í
dag. Á dagskrá er umræða um 34
þingmál. M.a. verður fyrsta umræða
um skipulag ferðamála og heilbrigð-
isþjónustu.
STEFNT er að því að Alþingi fari í
jólaleyfi á morgun, föstudag. Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, segir að í
dag verði tekin fyrir þau mál sem
séu komin úr nefndum þingsins og
eigi eftir að fara til þriðju umræðu.
Ennfremur verða í dag tekin fyrir
frumvörp sem þurfi að fara til fyrstu
umræðu fyrir áramót. Gert er ráð
fyrir því að þingfundur sem hefst í
dag standi fram á kvöld. Samkvæmt
starfsáætlun þingsins er miðað við
að þingfundum verði frestað á morg-
un fram til 21. janúar nk.
Vegna alþingiskosninganna 10.
maí nk. verður vorþingið óvenju-
stutt, en skv. starfsáætlun mun það
standa til 14. mars.
Alþingi fari
í jólaleyfi
á morgun
STURLA Böðvarsson samgönguráðherra segir að
ráðuneyti hans muni fara yfir það á næstunni
hvernig staðið verði að viðræðum við kanadísk
flugmálayfirvöld um gagnkvæman loftferðasamn-
ing milli ríkjanna tveggja en slíkur samningur er
ekki fyrir hendi í dag.
Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að kan-
adíska leiguflugfélagið HMY Airways væri að
hefja vikulegt flug milli Vancouver og Calgary í
Kanada og Manchester á Englandi með viðkomu á
Keflavíkurflugvelli. Þar sem ekki er fyrir hendi
gagnkvæmur loftferðasamningur milli Íslands og
Kanada getur flugfélagið ekki tekið farþega hér á
landi í þessum millilendingum.
Steinþór Jónsson, hótelstjóri Hótels Keflavíkur
sem einnig er umboðsmaður kanadíska flugfélags-
ins hér á landi, hefur beitt sér fyrir því að teknar
verði upp viðræður milli íslenskra og kanadískra
stjórnvalda í því skyni að koma á loftferðasamn-
ingi milli landanna. Þannig gæti kanadíska flug-
félagið flutt farþega milli
Íslands og Kanada en þó mætti það ekki flytja
farþega frá Íslandi til þriðja lands, eins og Bret-
lands.
Tilbúnir í viðræður
Að sögn samgönguráðherra hafa kanadísk flug-
málayfirvöld ekki sett sig í samband við hann
varðandi slíkar viðræður. „Við Steinþór höfum
hins vegar hist og hann hefur gert mér grein fyrir
þeim viðræðum sem hann hefur átt í. Við erum að
sjálfsögðu tilbúin til að eiga einhverjar viðræður
ef það er á gagnkvæmum grundvelli en það er al-
veg ljóst að undanfarin misseri hafa Kanadamenn
ekki verið mjög viljugir til þess að auðvelda okkar
flugfélögum þeirra rekstur.“
Hann bendir á í þessu sambandi að ítrekað hafi
verið reynt að fá samninga við Kanadamenn um
fleiri ferðir á meðan flogið var til Halifax. „Flug-
leiðum var hins vegar meinað að fljúga eins oft og
þeir vildu og þess vegna gáfust þeir upp. En við
höfum mikinn áhuga á að ná samningum sem víð-
ast um þessi gagnkvæmu viðskipti þannig að við
munum fara yfir það á næstunni hvernig staðið
verður að slíkum viðræðum.“
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra um flug HMY Airways til Íslands
Áhugi á gagnkvæmum loft-
ferðasamningi við Kanada
ÚTBOÐSGÖGN fyrir
gerð jarðganga milli
Reyðarfjarðar og Fá-
skrúðsfjarðar verða
send út í næstu viku til
þeirra verktaka sem
valdir hafa verið til
þátttöku í útboði eftir
forval. Útboðsgögn
vegna jarðganga milli
Siglufjarðar og Ólafs-
fjarðar verða hins veg-
ar send verktökum í lok
febrúar, eftir opnun til-
boða í fyrri göngin.
Þetta kemur fram í
frétt frá samgöngu-
ráðuneytinu en þar
kemur fram að ákveðið
hafi verið að bjóða göng á þessum
tveimur stöðum út í tvennu lagi.
„Reiknað er með að sama hag-
kvæmni af samlegðaráhrifum beggja
verkefnanna náist með þessari til-
högun, eins og við að bjóða þau bæði
út í einu lagi. Auk þess eru ákveðnir
kostir taldir fylgja því að gera tvo
verksamninga um þessi verkefni,“
segir í tilkynningunni.
Reiknað er með að vinna við jarð-
göng milli Reyðarfjarðar og Fá-
skrúðsfjarðar hefjist
seint í apríl 2003 en
áætlað er að ganga-
gröfturinn taki u.þ.b.
eitt og hálft ár og hon-
um ljúki fyrir árslok
2004. Einu ári síðar
eiga göngin að vera
tilbúin, eða síðla árs
2005. Heildarkostnað-
ur er áætlaður um 3, 8
milljarðar.
Þá segir í fréttinni að
miðað sé við að gerð
jarðganga milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar
hefjist árið 2004, um
svipað leyti og ganga-
greftri lýkur fyrir aust-
an. Áætlað er að göngin milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar verði tilbúin
árið 2008 og að heildarkostnaður
verði um 6,8 milljarðar á núverandi
verðlagi.
Ráðist í minna
verkefnið fyrst
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra segir ástæðu þess að göngin
fyrir austan eru tekin á undan vera
þá að þar sé um minna verk að ræða
þannig að sú fjárfesting komist fyrr í
gagnið. Þá sé vegurinn fyrir Vatt-
arnesskriðurnar ákaflega slæmur.
„Það hefði þurft að fara í mjög um-
fangsmiklar endurbætur á þessum
vegi, bæði fyrir Vattarnesskriðurnar
og um Sléttuströndina þannig að
framkvæmdum við Reyðarfjarðar-
göngin er hraðað til að þurfa ekki að
fara í endurbyggingu vegarins.“
Þá segir hann að með göngum fyr-
ir austan sé atvinnusvæðið þar
stækkað með því að tengja saman
Fjarðarbyggðina og Suðurfirðina
sem sé hagstætt með tilliti til fyr-
irhugaðra stóriðjuframkvæmda fyr-
ir austan.
Inntur eftir því hvers vegna verk-
in eru boðin út í tvennu lagi segir
Sturla að það sé talið heppilegt að
vera með tvo verksamninga. Að auki
hafi útboðsgögn vegna Siglufjarðar-
ganganna ekki verið tilbúin þar sem
nauðsynlegt var að fara betur yfir
ýmsa þætti sem m.a. tengdust snjó-
flóðavörnum.
„Frekar en að bíða eftir því vildum
við gera þetta svona og Vegagerðin
metur það þannig að sú hagkvæmni
sem svona stórt verk gefur tilefni til
náist eftir sem áður.“
Jarðgöng fyrir austan
boðin út í næstu viku
Útboðsgögn vegna Siglufjarðarganga send út í febrúar
Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra.
MARGT var um manninn í Íþrótta-
miðstöðinni á Djúpavogi þegar ný
innisundlaug var vígð nú í byrjun
desember.
Dagskráin hófst með ávarpi
Björns Hafþórs Guðmundssonar
sveitarstjóra en meðal annarra
dagskrárliða var frumflutningur á
nýju tónverki sem ber heitið
„Vatnið“. Höfundur tónverksins er
Svavar Sigurðsson, skólastjóri
tónskólans á Djúpavogi.
Séra Sjöfn Jóhannesdóttir vígði
hina nýju byggingu og að lokinni
blessun stungu sér til sunds Ólafur
Áki Ragnarsson, fyrrverandi
sveitarstjóri Djúpavogs, og Björn
Hafþór Guðmundsson, núverandi
sveitarstjóri. Daginn eftir var
bæjarbúum boðið frítt í sund og
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Ný sundlaug á Djúpavogi
Djúpavogi. Morgunblaðið.
mættu um 150 gestir í laugina.
Nýja sundlaugin er 16,67 m að
lengd og 10,50 m að breidd. Auk
þess er sérstök varmalaug og tveir
heitir pottar í húsinu. Þess má
vænta að þessi mikilvægi áfangi í
bættri þjónustu sveitarfélagsins
við íbúana muni hafa jákvæð áhrif
á mannlíf í Djúpavogshreppi svo
og á ferðaþjónustuna á svæðinu.
STEFÁN Kristjánsson gerði
jafntefli við Indverjann P.
Phoobalan í fjórðu umferð á
heimsmeistaramóti unglinga, 20
ára og yngri, sem fram fer í Goa
á Indlandi. Stefán hefur nú 2½
vinning. Hann hefur ekki tapað
skák á mótinu.
Davíð Kjartansson tapaði
hins vegar fyrir hinum spænska
Manuel Perez Candelario og
hefur 1½ vinning. Bretinn Luke
McShane er efstur á mótinu
með 4 vinninga. McShane er Ís-
lendingum að góðu kunnur, en
hann er í skáksveit Hróksins.
Fimmta og sjötta umferð
verða tefldar í dag.
Enn tap-
laus á HM
unglinga