Morgunblaðið - 12.12.2002, Page 16
Donaldson
í fjármála-
eftirlitið
GEORGE W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, útnefndi á
þriðjudag William H. Donald-
son, liðlega sjötugan banka-
mann, nýjan yfirmann banda-
ríska fjármálaeftirlitsins.
Donaldson hét því í gær að
taka mjög hart á öllu misferli í
bandarískum fyrirtækjum og
ráðlagði um leið öllum í fjár-
málalífinu að fara að hysja upp
um sig buxurnar. Bush kvaðst
binda miklar vonir við Donaldson en hann tekur
við af Harvey Pitt, sem sagði af sér í síðasta mán-
uði. Stóðu þá á honum öll spjót enda talinn allt of
tengdur þeim vettvangi, sem hann átti að hafa
eftirlit með.
Öldungadeild Bandaríkjaþings á eftir að fjalla
um útnefningu Donaldsons en henni er almennt
vel tekið. Er hann sagður heiðarlegur en harður í
horn að taka fyrir utan að búa yfir mikilli þekk-
ingu á rekstri fyrirtækja og fjármálastofnana.
Washington. AFP.
William H.
Donaldson
ERLENT
16 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRESKIR og franskir sjómenn ollu í
gær miklu uppnámi á Ermarsundi
er þeir mótmæltu þeirri fyrirætlan
framkvæmdastjórnar ESB að skera
aflaheimildir vegna veiða á þorski,
ýsu og öðrum stofnum um allt að
80%. Þeir óttast um störf þúsunda
sjómanna.
Á annan tug fiskiskipa lokaði
höfnunum í Boulogne-sur-Mer, Cal-
ais og Dunkirk í Frakklandi og
komu þannig í veg fyrir ferðir ferju-
skipa milli Bretlands og Frakklands,
sem og ferðir annarra skipa til og
frá þessum höfnum. Má á myndinni
sjá hvar franskir togarar varna ferj-
unum í Calais leið í gær.
Sjómenn í Ostend og Zeebrugge í
Belgíu stóðu einnig fyrir sambæri-
legum aðgerðum. Þá höfðu um
fimmtíu fiskiskip lagt frá höfninni í
Boulogne-sur-Mer í því augnamiði
að trufla umferð um Ermarsundið,
sem er afar fjölfarið.
Í Norðaustur-Englandi sigldu um
30 togarar – en vonast hafði verið
eftir þátttöku um 200 skipa – upp
Tyne-ána og létu heyrast hátt í
þokulúðrum sínum, auk sem þeir
skutu á loft blysum til að vekja at-
hygli á málstað sínum. Reuters
Breskir og
franskir sjómenn
mótmæla
Framkvæmdastjórn ESB samþykkir kvótatillögur
Þorskveiðikvóti
skertur um 79%
Brussel. AFP.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins
(ESB) samþykkti formlega í gær fyrir sitt leyti til-
lögu sem gerir ráð fyrir að leyfilegur veiðikvóti á
þorski og ýmsum öðrum fisktegundum verði skor-
inn verulega niður á ESB-svæðinu. Tillagan verð-
ur lögð fyrir landbúnaðar- og sjávarútvegsráð-
herrafund sambandsins sem haldinn verður á
mánudag.
Franz Fischler, yfirmaður landbúnaðarmála í
framkvæmdastjórninni, varaði við því að ef ráð-
herrarnir næðu ekki samkomulagi á fundi sínum í
næstu viku þá myndi framkvæmdastjórnin draga
tillögu sína til baka og fyrirskipa algert bann við
veiðum á tilteknum fisktegundum.
„Við stöndum frammi fyrir erfiðu en einföldu
vali,“ sagði Fischler í yfirlýsingu, sem hann sendi
frá sér. „Við getum annaðhvort gert okkar besta til
að tryggja framtíð fiskiðnaðarins, með því að taka
ákvarðanir sem óumdeilanlega munu reynast sárs-
aukafullar til skamms tíma litið, eða við getum
skotið ákvörðun á frest enn á ný og þá óhjákvæmi-
lega staðið frammi fyrir því um síðir að fiskistofnar
þurrkist út einn af öðrum, með öllum þeim afleið-
ingum sem það myndi hafa fyrir þennan geira.“
Kvóti vegna veiða á þorski er skorinn niður um
79% skv. tillögunni en vísindamenn hafa varað við
því að hætta væri á því að allur þorskur yrði upp-
urinn ef ekki yrði gripið í taumana.
dásemdir og dekur
Langar þig að gefa
www.icehotel.is • sími 5050 910
Gjafabréf á
Icelandair
hótelin
er gjöfin!
Flughótel Keflavík
Hótel Selfoss
Hótel Flúðir
Hótel Rangá
Hótel Hérað
Hótel Kirkjubæjarklaustur
Hótel Loftleiðir
Hótel Esja
ZERO
PLUS
ww
w.
for
va
l.is
TILFINNINGAÞRUNGIN afsök-
unarbeiðni Cherie, eiginkonu
Tonys Blairs, forsætisráðherra
Bretlands, virtist í gær ekki hafa
megnað að draga úr áhuga
breskra fjölmiðla á meintum
blekkingum hennar. Eiginmaður
hennar hvatti hins vegar fjölmiðla
til að finna sér önnur umfjöll-
unarefni og kvaðst „stoltur“ af
konu sinni.
Cherie Blair sagði á miðviku-
dag að hún harmaði að málið,
sem breskir fjölmiðlar nefna
„Cheriegate“, hefði skaðað eig-
inmann hennar og ríkisstjórnina,
sem hann fer fyrir. Cherie Blair
var oftlega gráti næst í ávarpi
sínu er hún freistaði þess að
skýra mál sitt.
Hún viðurkenndi að það hefðu
verið mistök að leita ráðgjafar
hjá Ástrala nokkrum, Peter Fost-
er að nafni, en hann hefur verið
dæmdur fyrir svik m.a. í
tengslum við megrunarkúra.
Foster, sem er unnusti náinnar
vin- og aðstoðarkonu Cherie
Blair, hjálpaði forsætisráð-
herrafrúnni við kaup á nokkrum
íbúðum. Í fyrstu könnuðust starfs-
menn skrifstofu eiginkonu for-
sætisráðherrans ekki við að hún
hefði leitað liðsinnis Fosters og
var birt yfirlýsing í þá veru. Síðar
neyddust undirsátar Cherie til að
viðurkenna að sú hefði verið
raunin. Hafa breskir fjölmiðlar
vænt hana um að hafa vísvitandi
beitt blekkingum í máli þessu.
Cherie Blair sagði á miðviku-
dag að hún væri önnum kafin
kona og með mörg járn í eldinum.
Hugsa þyrfti um bú og börn auk
þess sem störfin og verkefnin
yrðu seint upp talin. Af þeim sök-
um yrðu henni á mistök sem öðru
venjulegu fólki. „Ég er engin of-
urkona, mig óraði ekki fyrir því
að hann [þ.e. Foster] myndi koma
mér í þau vandræði sem ég glími
nú við,“ sagði hún í ávarpi sínu
og virtist iðulega gráti næst.
„Þaulhugsuð orð“
Bresk blöð brugðust í gær við
þessum ummælum frúarinnar að
mestu í samræmi við þá pólitísku
stefnu sem þau fylgja. Blöð
hlynnt Blair-stjórninni voru al-
mennt heldur vinsamleg en hið
hægri sinnaða Daily Mail, sem
fyrst fjölmiðla skýrði frá „Cher-
iegate“, taldi að um ósmekklega
sýningu hefði verið að ræða.
„Pólitískt leikhús …þaulhugsuð
orð til að ná til milljóna
kvenna … yfirlýsing hennar tók
ekki á fjölmörgum spurningum,“
sagði m.a. í forsíðufrétt blaðsins.
Meira að segja Daily Mirror, sem
almennt þykir heldur vinsamlegt í
garð Blair-hjónanna, var tor-
tryggið. Spurt var í fyrirsögn
hvort gráturinn hefði verið settur
á svið. „Cherie grætur vegna
barna sinna, atvinnu og mann-
úðarstarfa – en var um að ræða
frekari tilbúning til að bjarga
henni úr klípunni eða raunveru-
lega iðrun?“ spurði blaðið.
Eiginmaður hennar sagði í
sjónvarpsviðtali í gær að tíma-
bært væri að mál þetta yrði látið
niður falla. Fjölmiðlar þyrftu að
finna sér nýtt umfjöllunarefni.
„Þetta hefur verið skelfilegt tíma-
bil,“ sagði forsætisráðherra Bret-
lands. Hann kvaðst stoltur af eig-
inkonu sinni og sagðist ekki
kannast við þær lýsingar sem
sumir fjölmiðlar hefðu dregið upp
af persónu hennar og framgöngu.
Heiðarleiki hennar væri aðdáun-
arverður sem og vönduð persónu-
gerð.
Vænd um „pólitíska leiksýningu“
Breskir fjölmiðlar margir fullir efasemda um afsökunarbeiðni Cherie Blair
AP
Cherie Blair var gráti næst þegar
hún ávarpaði breska fjölmiðla.
London. AFP.
Vopnaskýrsla Íraka
„Óheppilega“
staðið að málum
New York, Bagdad. AFP.
KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, telur það „óheppilegt“ að erindrekar Banda-
ríkjanna skyldu taka vopnaskýrslu Íraka trausta-
taki fyrst er hún barst í höfuðstöðvar Sameinuðu
þjóðanna í New York á sunnudag.
Bandaríkjastjórn tók að sér upp á sitt eindæmi að
deila út skýrslunni en það er mat manna á þeim bæ
að aðeins þau ríki, sem eiga fastafulltrúa í örygg-
isráði SÞ, skuli fá óheftan aðgang að skýrslunni.
Takmarka þurfi aðgang annarra að mikilvægum
kjarnorkuleyndarmálum í skýrslunni.
Annan sagði á þriðjudag að ákvörðun um að tak-
marka aðgang hefði ekki endilega verið röng en
hann kvaðst telja að vitlaust hefði verið staðið að
málum. „Ég vona að svona lagað gerist ekki aftur,“
sagði hann.
Írakar héldu hins vegar áfram í gær að gagnrýna
framferði Bandaríkjamanna og sagði Salem Qub-
aissi, þingmaður á íraska þinginu, að markmið
þeirra hefði sjálfsagt verið að falsa efni skýrslunnar
til að hafa uppi á afsökun til að geta ráðist á Írak.
♦ ♦ ♦