Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 21
ONLY NOMINATION IS NOMINATION
…til a› fullkomna
augnabliki›
kringlan/leifsstö›
sími 588 7230
Jólaleikur Leonard
w w w . l e o n a r d . i s
eru mestu útflytjendur eldflauga og
eldflaugatækni í heiminum,“ sagði
hann. „Þeir hafa útvegað mörgum
ríkjum tækni og vopn sem geta tor-
tímt hundruðum þúsunda manna.“
Bandarískir embættismenn voru
hins vegar varfærnir í yfirlýsingum
sínum um eldflaugakaup Jemena.
Scott McClellan, talsmaður Banda-
ríkjaforseta, sagði að Jemenar væru
„vinir og samstarfsmenn í baráttunni
gegn hryðjuverkastarfsemi“.
„Gróðrarstía al-Qaeda“
Osama bin Laden, leiðtogi al-
Qaeda, á ættir að rekja til Jemens
sem hefur verið lýst sem „gróðrar-
stíu“ al-Qaeda og annarra íslamskra
öfgasamtaka. Talið er að margir liðs-
manna al-Qaeda séu í felum í Jemen.
Forseti landsins hefur gripið til ým-
issa aðgerða í baráttunni gegn
hryðjuverkastarfsemi frá árásunum í
Bandaríkjunum 11. september í
fyrra, meðal annars komið á opinberu
eftirliti með íslömskum skólum sem
hafa verið sakaðir um að ala á hatri á
Bandaríkjunum og Vesturlöndum.
Hundruðum útlendinga, sem grun-
aðir eru um að tengjast vopnuðum
öfgahreyfingum, hefur verið vísað úr
landi og yfirvöld hafa handtekið
hundruð herskárra múslíma. Banda-
ríkjamenn hafa einnig fengið að grípa
til aðgerða gegn al-Qaeda í Jemen.
Mannlaus flugvél bandarísku leyni-
þjónustunnar CIA skaut flugskeyti á
bíl í Jemen í nóvember og varð sex al-
Qaeda-liðum að bana, meðal annars
helsta bandamanni bin Ladens í Jem-
en.
Talið er að al-Qaeda hafi staðið fyr-
ir sprengjuárás á bandaríska her-
skipið USS Cole í Jemen í október
2000. Sautján bandarískir sjóliðar
biðu bana í tilræðinu.
Reuters
Fimmtán Scud-eldflaugar fundust undir sementspokum í lest norður-
kóreska skipsins So San í Arabíuflóa, nálægt Jemen.