Morgunblaðið - 12.12.2002, Síða 23

Morgunblaðið - 12.12.2002, Síða 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 23 MINNIHLUTI bæjarstjórnar Kópavogs gagnrýnir vinnubrögð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vegna staðfest- ingar fjárhagsáætlunar 2002 sem af- greiða átti á aukafundi á þriðjudag. Gagnrýndi Samfylkingin að ekki hefðu fylgt efnahagsreikningar þeim gögnum sem bæjarfulltrúar fengu send fyrir fundinn og að ákveðið hefði verið á fundinum að fresta næsta fundi bæjarstjórnar 17. des- ember nk., þegar leggja átti fram fjárhagsáætlun næsta árs, þar til 30. desember. Í fréttatilkynningu frá Samfylkingu segir að efnahags- reikningur hljóti að teljast nauðsyn- legt gagn til að hægt sé að fjalla um fjárhagsáætlunina en honum hafi fyrst verið dreift á fundinum. Því mótmælti Samfylkingin og í bókun þeirra kom m.a. fram að fjárhags- áætlunin væri tekin fyrir seint miðað við önnur sveitarfélög og væri dæmi um „skort á vönduðum vinnubrögð- um hjá Sjálfstæðisflokki og Fram- sóknarflokki við stjórnun bæjarins.“ Samfylkingin tók ekki þátt í af- greiðslunni en henni var frestað til næsta fundar að tillögu bæjarstjóra. Sigurður Geirdal bæjarstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið ekkert óeðlilegt við að fjalla um hluta fjárhagsáætlunarinnar án þess að efnahagsreikningur lægi fyrir. En þar sem samfylkingarmenn hefðu viljað lengri tíma til að lesa gögnin hefði verið ákveðið að fresta af- greiðslunni til næsta fundar af tillits- semi við minnihlutann, eins og kem- ur fram í bókun meirihlutans. Tímafrekt að ganga frá reikningum Sagði Sigurður að sökum þess að sveitarfélög verði nú að ganga frá reikningum á nýju reikningsskila- formi hefði tekið lengri tíma en ella að leggja fjárhagsáætlun 2002 fram til staðfestingar. Sama ástæða lægi að baki því að fjárhagsáætlun 2003 yrði ekki tekin fyrir á fundi 17. des- ember eins og áður hefði verið ákveðið heldur 30. desember. „Þetta nýja form er alveg bylting á fram- setningu reikninganna. Það þarf t.d. að fara fram kerfisbundið mat á öll- um eignum bæjarins og það er nú ekki lítið mál. Svo allt hefur þetta tekið mikinn tíma,“ sagði Sigurður. Gagnrýna vinnu- brögð við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Nýtt reikningsskilaform tefur fyrir, segir Sigurður Geirdal bæjarstjóri Kópavogur MIKIL umræða hefur skapast meðal Mosfellinga á heimasíðu Mosfellsbæj- ar, www.mos.is um fjárhagsáætlun bæjarins sem lögð var fram til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi í síð- ustu viku. Barnafólk gagnrýnir að leikskóla- gjöld verða samkvæmt fjárhagsáætl- uninni hækkuð og sömuleiðis fæðis- gjöld í leikskólum um 25%. Einnig sé gert ráð fyrir að gjöld fyrir heilsdags- skóla hækki verulega og íþrótta- og tómstundastarf. „Ég trúi því ekki að megnið af hækkun gjalda í Mos- fellsbæ eigi að lenda á barnafólki og því fleiri börn sem fólk á því hærri álögur. Af hverju er verið að auka álögur barnafólks svo verulega?“ spyr einn maður inni á vefnum. Þjónustugjöld löguð að því sem þekkist í nágrannasveitarfélögum Að sögn meirihlutans er gert ráð fyrir 215 milljóna króna tekjuafgangi fyrir fjármagnsliði í stað 11 milljóna króna halla í fjárhagsáætluninni. Þetta verður gert með því að hækka útsvarsprósentu á næsta ári úr 12,65% í 12,94% og með því að laga ýmis þjónustugjöld að því sem gerist í nágrannasveitarfélögum, skv. upplýs- ingum forsvarsmanna meirihlutans. „Ástæðan er einfaldlega sú, að við erum með einhverjum hætti að reyna að auka tekjur bæjarsjóðs, sem er að okkar mati frekar illa staddur, og vilj- um þá gera það hressilega tímabund- ið, til þess að vera frekar í stakk búin síðar til þess að draga úr þessum álögum,“ segir Ragnheiður Ríkharðs- dóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, í Morgunblaðinu á þriðjudag. Fulltrúar minnihlutans hafa gagn- rýnt hækkanir og segja að niður- greiðsla skulda komi mjög illa við barnafjölskyldur. Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar verður tekin til síðari umræðu á bæj- arstjórnarfundi 18. desember nk. Barnafólk ósátt við hækkanir Mosfellsbær Mikið úrval af tískuskartgripum Laugavegi s. 511 4533 Kringlunni s. 533 4533 Smáralind s. 554 3960 TED LAPIDUS ADSL mótald • Stofngjald • Músarmotta Samtals verðmæti 18.125 kr. Aðeins 5.900 kr. Tilboð 1. Hver býður betur? Startpakkinn - allt sem til þarf ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I SS 1 94 81 11 /2 00 2 Nokia 3310 á 9.900 kr. Með 12 mánaða áskrift. Ekkert stofngjald 2.100 Venjulegt verð 14.900 kr. 9.900 kr. Tilboð 2. islandssimi.is Hringdu strax í síma 800 1111 eða komdu í verslun okkar í Kringlunni. sófasett

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.