Morgunblaðið - 12.12.2002, Side 26
AKUREYRI
26 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
CAMSIAD (Costumes and Masks
Stimulating Innovative Art and
Design) er heiti Evrópuverkefnis
sem Minjasafn Austurlands hefur
nýlega lokið þátttöku í.
Ungir hönnuðir, handverks- og
listamenn frá Íslandi, Búlgaríu,
Slóveníu, Slóvakíu, Þýskalandi,
Tékklandi, Írlandi, Kýpur, Eng-
landi og Skotlandi, unnu saman að
grímu- og búningahönnun út frá
hefð hverrar þjóðar. Fólkið hittist
á vinnufundum í Skotlandi og Slóv-
eníu og loks mættust allir hóparnir
nýverið í Slóvakíu til að ljúka verk-
efninu formlega og sýna afrakstur
vinnu sinnar.
Viðfangsefni CAMSIAD var að
skapa frumlega, evrópska sjálfs-
mynd í gegnum grímu- og bún-
ingahönnun út frá páskum og frjó-
semi, nútímafatnaði og einangr-
unarefni, umhverfi og nátt-
úrulegum efnum, þjóðsögum og
sögnum og hinu dýrslega innra
eðli.
Íslenski hópurinn valdi að vinna
með þjóðsöguna um selkonuna
sem fönguð var af sjómanni og
átti sjö börn í sjó og sjö á landi,
en sú saga er til í mörgum birt-
ingarformum um alla Evrópu.
Gerð var andlitsgríma í selslíki,
sem hylur aðeins hálft andlitið og
var hún unnin úr rekavið. Þá var
hannaður kjóll úr þæfðri ull og
var hann skreyttur með laxaroði
frá Sjávarleðri, jurtalituðu prjóni
og fjörusteinum. Faldur var not-
aður sem höfuðbúnaður að hætti
íslenskra kvenna fyrr á tíð og var
hann unninn úr gifsi og skreyttur
með þurrkuðum þara. Þótti ís-
lenski hópurinn skara langt fram
úr í efnisvali sínu og samsetningu.
Um grímugerðina sá Unnur
Sveinsdóttir, en faldinn gerðu
Steinrún Ótta Stefánsdóttir og El-
ísabet Agla Stefánsdóttir. Kjóllinn
var unninn af Höllu Ormarsdóttur
og Ruth Magnúsdóttur, en yfirum-
sjón alls verkefnisins var í höndum
safnstjóra Minjasafnsins, Rann-
veigar Þórhallsdóttur.
Rannveig segir að Minjasafnið
hafi notið góðs af samstarfi við
breska fyrirtækið Grampus Her-
itage and Training Ltd., sem hefur
áralanga reynslu í skipulagningu
og stjórnun Evrópuverkefna. „Það
er jákvætt fyrir okkur hér að taka
þátt í þessu,“ segir Rannveig, „því
við fáum tækifæri til að senda ungt
fólk utan í margvísleg verkefni sem
opna augu þeirra og efla víðsýni.“
CAMSIAD var fjármagnað af
Evrópusambandinu og var heild-
arkostnaður þess 12,6 milljónir
króna, en þar af var Minjasafni
Austurlands úthlutað 800 þúsund-
um króna.
Safnið mun á næsta ári taka þátt
í samevrópsku leikhúsverkefni sem
hefst á Kýpur og verður svo sett
upp í Póllandi. Safnið leitar nú
samstarfs um verkefnið við Leik-
félag Fljótsdalshéraðs, sem getið
hefur sér gott orð fyrir vandaðar
uppfærslur á leikverkum um ára-
tuga skeið.
Minjasafn í Evrópuverkefni um grímu- og búningahönnun
Í leit að frum-
legri sjálfsmynd
Ljósmynd/RÞ
Elísabet Agla Stefánsdóttir skartar
hér ullarkjól sem skreyttur er
jurtalituðu garni, laxaroði og fjöru-
steinum. Faldurinn er úr gifsi og
flúraður með þurrkuðum þara.
Egilsstaðir
LAUGARDAGINN 14. desember
nk. verða 100 ár liðin síðan gamla fé-
lagsheimilð við Gilið í Ólafsvík var
vígt. Af
því tilefni
verður
hátíðar-
dagskrá
með sögu-
sýningu í
Félagsheimilinu Klifi, Ólafsvík, laug-
ardaginn 14. desember kl. 19.30.
Minnst verður sögu hússins í máli og
myndum og boðið upp á veitingar.
Þetta er lokahnykkurinn í löngu af-
mælisferli sem staðið hefur yfir af og
til allt þetta ár með ýmsum hætti, s.s.
gönguferðum og íþróttamótum. Einn-
ig var haldin svokölluð „Kvöldstund í
minningu Ottós“, en Ottó A. Árnason,
sem fæddist hér, var umsjónamaður
gamla félagsheimilisins í nær 30 ár og
mikill frumkvöðull og átti þátt í mörg-
um framfaramálum í Ólafsvík, auk
þess að vera gott skáld.
Tvennir tónleikar voru haldnir í
haust af þessu tilefni, nú síðast með
Diddú og Önnu Guðnýju Guðmunds-
dóttur. Tvö skákmót voru haldin, nú
síðast með nær öllu landsliðinu í skák,
tókst það líka vel í alla staði. Einnig
komu hingað rithöfundar og lásu upp
úr nýútkomnum bókum sínum.
Síðast en ekki síst er verið að gera
minnismerki um Ottó, sem verður þar
sem gamla félagsheimilið stóð við Gil-
ið. Listamaðurinn Páll Guðmundsson
frá Húsafelli gerir minnismerkið.
Að hátíðinni standa Framfarafélag
Ólafsvíkur og flest önnur félög í Ólafs-
vík ásamt áhugafólki.
Aldar-
minning
í Ólafsvík
Ólafsvík
Í MIÐRI jólaösinni gefa skátar
og gildismeðlimir sér tíma til að
dreifa Friðarljósinu frá Betle-
hem um landið. Ljósið ber með
sér boðskap friðar og kærleika
og á því vel við um aðventuna.
Það voru þrír skátar úr Graf-
arvogi sem færðu Þorgeiri Axel,
yfirstýrimanni Brúarfoss, ljósið á
miðvikudagskvöld í síðustu viku.
Þorgeir, sem er gamall skáti,
færði ljósið svo skátum í Vest-
mannaeyjum til frekari dreif-
ingar.
Það er orðinn árviss viðburður
að gámaskip Eimskips flytji Frið-
arljósið. Í fyrra var það Dettifoss
sem kom með ljósið til Íslands í
fyrsta sinn frá Danmörku.
Til að loginn skapi ekki hættur
á ferðalögum er búið um hann í
lugt sem er í sérsmíðaðri tunnu.
Þar fær hann nægilegt súrefni
en hitar lítið út frá sér.
Í brúnni á Brúarfossi. Fúsi, Halldóra og Helga úr skátafélaginu Hamri í
Grafarvogi færa Þorgeiri Axel yfirstýrimanni Friðarljósið frá Betlehem.
Brúarfoss með
Friðarljósið til Eyja
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samstarfssamningur milli hand-
knattleiksdeildar KA og herra-
fataverslunarinnar Dressmann.
Jónas Joes Mellado, stjórn-
armaður í KA, t.h. og Jóhann
Ingi Davíðsson, verslunarstjóri
Dressmann á Akureyri, undirrit-
uðu samninginn í versluninni á
Glerártorgi. KA-menn munu
klæðast fatnaði frá Dressmann á
keppnisferðum sínum og sjást
nokkrir leikmenn félagsins í slík-
um fatnaði á myndinni.
Samningur KA
og Dressmann
FRAMKVÆMDARÁÐ Akureyrar-
bæjar hefur samþykkt að leggja til
við bæjarstjórn að á árinu 2003
verði hafin gjaldtaka fyrir móttöku
úrgangs frá fyrirtækjum á urðunar-
stað á Glerárdal. Markmiðið með
gjaldtökunni er m.a. að minnka það
magn sem kemur til urðunar. Að
sögn Ármanns Jóhannessonar
sviðsstjóra tækni- og umhverfis-
sviðs er ráðgert að hefja gjaldtök-
una 1. apríl 2003 og eru áætlaðar
tekjur af henni 23 milljónir króna á
árinu.
Á síðasta fundi framkvæmdaráðs
var lögð fram tillaga um að gjald-
flokkar fyrir móttöku sorps frá fyr-
irtækjum verði þrír. Fyrir almenn-
an úrgang greiði fyrirtæki 2,25
krónur pr. kg, fyrir slátur- og fisk-
úrgang 3,50 krónur og fyrir timbur
1,50 krónur. Fyrstu 9 mánuði þessa
árs var úrgangur frá fyrirtækjum á
Akureyri 10.000 tonn, þar af al-
mennur úrgangur rúm 8.700 tonn,
slátur- og fiskúrgangur 1.000 tonn
og timbur um 250 tonn. Fyrstu 10
mánuði ársins var heimilissorp frá
Akureyringum 3.900 tonn.
Jakob Björnsson formaður fram-
kvæmdaráðs sagði að ýmsar ástæð-
ur lægju að baki þessari gjaldtöku,
m.a. síauknar kröfur um bætta með-
ferð á úrgangi. Hann sagði að gjald-
takan ætti einnig að verða mönnum
hvatning til þess að draga úr magni
úrgangs. Jakob sagði að í smíðum
væri löggjöf þar sem gert væri ráð
fyrir gjaldtöku fyrir meðhöndlun
sorps í þeim tilgangi að bæta með-
ferð og minnka magnið.
Jakob sagði að fyrir lægi að nýr
urðunarstaður í Eyjafirði yrði sveit-
arfélögunum dýr, enda væru kröf-
urnar alltaf að aukast og því væri
ekki um annað að ræða en að allir
tækju þátt í þeim kostnaði. Hann
nefndi að heimilin á Akureyri væru
að borga um 28 milljónir króna í
sorphirðugjald á þessu ári.
Fyrirtæki á Akureyri greiða 23 milljónir
króna á næsta ári fyrir móttöku úrgangs
Markmiðið að
minnka það
magn sem kem-
ur til urðunar
Hljómsveitin Hundur í óskilum
verður með útgáfutónleika í Ket-
ilhúsinu í kvöld, fimmtudagskvöldið
12. desember kl. 20.30. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.000.
Í DAG
ATVINNUÞRÓUNARFÉLAG
Eyjafjarðar, AFE, hefur ásamt
þremur verktökum á Akureyri unnið
að stofnun félags sem ætlunin er að
verði undanfari að stóru verktaka-
fyrirtæki á Eyjafjarðarsvæðinu.
Þetta kemur fram á netmiðlinum
local.is.
Þar kemur fram hjá Magnúsi Þór
Ásgeirssyni starfsmanni AFE, að til-
gangurinn sé að sameina krafta
verktaka á svæðinu þannig að þeir
verði betur í stakk búnir til að taka
þátt í stærri útboðum. Magnús Þór
sagði að hvatinn að stofnun hins nýja
félags séu fyrirhugaðar álvers- og
virkjunarframkvæmdir á Austur-
landi en væntanlegt félag muni einn-
ig horfa til stærri verkefna á öllu
landinu. Í undirbúningshópi að
stofnun hins nýja félag eru Baldvin
Valdimarsson frá Slippstöðinni,
Davíð Hafsteinsson frá Rafeyri, og
Sveinn Heiðar Jónsson sem rekur
byggingarfyrirtæki á Akureyri í eig-
in nafni. Í hópnum eru einnig starfs-
menn Atvinnuþróunarfélagsins og
Eiður Guðmundsson hjá Hönnun á
Akureyri hefur veitt hópnum ráð-
gjöf. Stefnt er að því að félagið verði
stofnað fljótlega á nýju ári.
Stórt verktakafyrir-
tæki í burðarliðnum