Morgunblaðið - 12.12.2002, Page 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 31
LEIKFÉLAGIÐ Hugleikur hefur
undanfarin ár boðið upp á jóla-
skemmtun í Kaffileikhúsinu. Að
þessu sinni hefur dagskráin hlotið
yfirskriftina Klundurjól og verður
sýnt kl. 20 annað kvöld, föstudags-
kvöld og á sunnudagskvöld. Fjórir
leikþættir með jólatengdu efni
verða frumfluttir, og er þar um að
ræða þætti sem unnu til verðlauna í
jólaleikþáttasamkeppni sem félagið
efndi til nú í haust. Í þáttunum eru
jólin skoðuð frá ýmsum hliðum í
þeim spéspegli sem hugleikurum er
tamt að bregða á samtíð sína og ís-
lenska menningu.
Auk leikþáttanna verður á boð-
stólum tónlist, sem öll er úr smiðju
Hugleiks. Tónskáld, textahöfundar
og flytjendur sameinast um að skila
nýstárlegri sýn á jólin, jólasveina,
Grýlu, jólagjafafarganið og aðra
vætti sem við sögu koma í jólahald-
inu.
Klundurjól eru lokapunkturinn í
haustdagskrá Hugleiks, en félagið
hefur boðið upp á sýningar á ein-
þáttungum og örverkum í Kaffi-
leikhúsinu í haust undir yfirskrift-
inni Þetta mánaðarlega.
Miðasala er hjá Kaffileikhúsinu.Hugleikarar skoða jólin í spéspegli í Kaffileikhúsinu.
Hugleikur með Klundurjól
ELEGIA er yfirskrift danssýningar
sem Pars Pro Toto efnir til á morg-
un og laugardag í samstarfi við
Borgarleikhús, Rússíbana og slag-
verkshópinn Bendu. Þar verða sýnd
fjögur verk, sólóverkin Jói og Hrær-
ingar eftir Láru Stefnánsdóttur og
Til Láru eftir Per Jonsson, en loka-
verk sýningarinnar er Cyrano – tón-
list Hjálmars H. Ragnarssonar í lif-
andi flutningi Rússíbana og dans-
gerð Láru Stefánsdóttur.
„Á sýningunni verða þrjú sóló-
verk sem hlotið hafa nokkra viður-
kenningu og hafa verið sýnd víða er-
lendis. Okkur langaði til þess að
gefa íslenskum áhorfendum kost á
að sjá þessi verk, ekki síst sólóverk-
ið Jói sem Jóhann Freyr Björgvins-
son dansar, en það hlaut m.a. 1.
verðlaun á alþjóðlegri danskeppni í
Suttgart síðastliðið vor, og Jóhann
hlaut 2. verðlaun dansara. Pars Pro
Toto stóð fyrir áþekkri sýningu á
sama árstíma í fyrra, og þótti tilvalið
að halda uppteknum hætti,“ segir
Lára.
„Yfirskrift danssýningarinnar er
Elegia, og er hún tileinkuð minningu
tveggja vina og samstarfsmanna
okkar sem hafa kvatt þennan heim,
þeim Einars Kristjáns Einarssonar
gítarleikara og stofnanda hljóm-
sveitarinnar Rússíbana, sem lést í
maí síðastliðnum eftir glímu við
krabbamein og Per Jonsson dans-
höfundar sem tók líf sitt fyrir fáum
misserum. Þeir voru stórkostlegir
listamenn og minnumst við þeirra
með söknuði og gleði yfir því að hafa
fengið að kynnast þeim,“ segir Lára.
Eitt sólóverka sýningarinnar, Til
Láru, er eftir Per Jonsson, en það
var samið fyrir Láru Stefánsdóttur
sem dansar í verkinu. Lára segir
þar um að ræða verk sem hafði mikil
áhrif á hana sem listamann. „Verkið
var frumflutt árið 1995 og þótti
mjög framsækið enda var Per að
mörgu leyti á undan sínum samtíma.
Sjálfur lýsti Per verkinu sem tján-
ingarfullum dansi sem byggðist á
hrynjandi, tilfinningum og þrá eftir
öðrum tilverustigum. Þetta er nokk-
urs konar ferð í tíma og rúmi í leit
að leiðum inn í nýja heima. Sjálfur
var Per í mikilli leit í sínu lífi og
sinni sköpun og held ég að sum
verkin sem ég hef samið endurspegli
þau áhrif sem verk hans höfðu á
mig. Hann þjáðist af geðhvarfasýki
og sveiflaðist milli gleði og depurð-
ar. Það má ef til vill segja að ákveð-
inn tregi og angurværð einkenni
verkin á sýningunni, þó svo að það
sé alls ekki þungt yfir henni. Þetta
er sýning sem hefur stórt hjarta,“
segir Lára.
Frumsamin tónlist verksins er
eftir Hjálmar H. Ragnarsson og lif-
andi flutning annast slagverkshóp-
urinn Benda.
Dans byggður á ljóðum
Hin tvö sólóverkin á sýningunni,
Jóa og Hræringar, samdi Lára Stef-
ánsdóttir og segir hún innblásturinn
að þeim fenginn úr ljóðum eftir El-
ísabetu Jökulsdóttur. „Myndlistin
kemur einnig mjög sterkt inn í sýn-
ingarnar og hefur Ragnhildur Stef-
ánsdóttur unnið skúlptúra sérstak-
lega fyrir þessar sýningar. Í Jóa er
sviðsmyndin nokkurs konar barmur
sem verða persónunni í senn rúm og
gröf. Hræringar er mjög kvenlegt
verk, en ljóðið sem það byggist á
fjallar um konu sem bíður komu
elskhuga síns úr fjarlægu landi.
Konan fer í gegnum ákveðna sjálfs-
leit í biðinni, og má því segja að öll
sólódansverkin á sýningunni fjalli
um einhvers konar tilfinningalega
leit, og leit að nýjum víddum,“ segir
Lára. Dansari í Hræringum er
Sveinbjörg Þórhallsdóttir, en verkið
hefur ekki verið sýnt sem sólóverk
áður hér á landi. „Sveinbjörg hefur
unnið þetta mjög vel og er gaman að
sjá hvernig nýr dansari gefur verki
allt aðrar víddir með túlkun sinni.
Dansverk þróast alltaf á milli dans-
ara sem gæða þau nýju lífi,“ segir
Lára. Guðni Franzson er höfundur
tónlistar í verkunum tveimur og
leikur hann sjálfur tónlistina í þeim
ásamt Hilmari Jenssyni gítarleikara
og Matthíasi Hemstock sem leikur á
glös.
Lokaverk sýningarinnar er ný
dansgerð eftir Láru Stefánsdóttur á
Cyrano, tónlist eftir Hjálmar H.
Ragnarsson í flutningi Rússíbana úr
samnefndu leikverki sem sýnt var í
Þjóðleikhúsinu síðastliðið vor.
Rússíbanar gáfu út geisladisk með
tónlistinni sem seldist upp, en ný út-
gáfa er að koma úr framleiðslu á
næstu dögum. „Ég féll algerlega
fyrir þessari tónlist og býður hún
mjög sterklega upp á einhvers kon-
ar dansívaf í flutningi. Á sýningunni
munu Rússíbanar flytja tónlistina,
og munu nemendur úr Listdans-
skóla Íslands dansa með okkur í
verkinu. Þetta eru efnilegir dans-
arar sem eru við upphaf síns ferils
og koma inn með ferskan blæ. Það
má líka segja að slegið verði á nokk-
uð léttaristrengi svona í lok sýning-
arinnar, með þessari tónlist sem er
hreint frábær, “ segir Lára.
Dansleikhúsið Pars Pro Toto var
stofnaður árið 1986, og segir Lára
Stefánsdóttir að þar hafi alla tíð ver-
ið lögð áhersla á tengsl dans, lifandi
tónlistar og myndlistar. Sýningin
Elegía endurspeglar þessar
áherslur en þar kemur fram fjöl-
breyttur hópur listamanna. „Sýn-
ingarnar verða á Nýja sviðinu í
Borgarleikhúsinu, og tekur sá salur
aðeins 200 manns. Þetta mun skapa
mikla nálægð milli flytjenda og
áhorfenda,“ segir Lára að lokum.
Elegía verður haldin á Nýja sviði
Borgarleikhússins og hefjast báðar
sýningar kl. 20.
Með stórt hjarta
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Úr verðlaunadansverkinu „Jói“ eftir Láru Stefánsdóttur.