Morgunblaðið - 12.12.2002, Side 37

Morgunblaðið - 12.12.2002, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 37 Óskaði út- ví að frest- þar sem ungis viku ið að fjar- innig yfir nda. o menn og að þetta ð víðáttu- fræðum. sk Veritas og hann var fljótur að átta sig á því að þetta mál var rétt upp byggt, miðað við það sem við vorum með í höndunum og það endaði með því að þeir samþykktu það. Það var farið á fulla ferð að ljúka undirbúningi og klukkan 10 á laugardagsmorgun var byrjað að kafa. Nú er unnið allan sólarhringinn og það sem af er hefur þetta gengið vel,“ segir Haukur. Aðspurður segir hann að þetta sé í fyrsta og síðasta skipti sem hann standi í stórræðum á borð við björg- un Guðrúnar Gísladóttur, sem er ef- laust stærsta björgunaraðgerð Ís- landssögunnar af þessu tagi. „Ég geri þetta aðallega skemmtunarinn- ar vegna. Það hefði sjálfsagt engum heilvitandi manni dottið þetta í hug, þetta er búinn að vera strangur gangur,“ segir Haukur og kímir. Hann segir að Norðmönnum hafi brugðið þegar þeir gerðu sér grein fyrir því að björgun skipins væri ein- staklingsframtak, að það stæði ekki stórt og reynt björgunarfélag að baki aðgerðunum. 3–4 hafa sýnt áhuga á kaupum Hugmyndin sé að selja skipið eftir að það kemur til hafnar, 3–4 aðilar hafi sýnt því áhuga, þó ekki sé neitt fast í hendi, enda þurfi skipið að koma að bryggju áður en menn geti áttað sig á ástandi þess. Um borð sé mikið af dýrmætum tækjum og bún- aði og það sé ekki útlit fyrir að skipið sé mikið skemmt. „Það má ekki gleyma því að þetta var ársgamalt skip og sennilega það fullkomnasta í flotanum. Það var í engu til sparað þegar það var keypt.“ Kostnaðurinn við björgunarað- gerðirnar er talinn vera um 200 milljónir króna. Haukur telur víst að hægt verði að fá ríflega fyrir kostn- aði fyrir skipið. Fjármögnun verk- efnisins hafi í öllum aðalatriðum gengið eftir. Hann vill ekki segja hverjir hafi fjárfest í verkefninu en segir það vera marga litla aðila. „Mönnum hefur verið boðið að taka þátt í þessu verkefni sem áhættu- fjárfestar, við höfum kappkostað að kynna þeim allt málið, hvernig á að gera þetta og menn hafa viljað láta í þetta pening á þessum forsendum.“ Hann segir að eftir að Ríkisút- varpið birti frétt um að SFT hafi tal- ið áform Íshússins „ófullkomin“ hafi einhverjir fjárfestar fælst frá verk- efninu. Haukur segir að ósannindi hafi komið fram í fréttinni, SFT hafi ekki talið áformin „ófullkomin“ held- ur „ófullnægjandi“, þ.e. að það þyrfti að útfæra eitt og annað betur, t.d. þætti er varða óstöðugleika skips- ins. Það hafi verið gert og þeim áformum sem þá lágu fyrir verði fylgt eftir að mestu leyti. Haukur segir að upphaflega hafi staðið til að skipið væri komið upp úr hafdjúpunum hinn 3. október, ým- islegt hafi komið upp á sem hafi tafið framvindu verksins. „Ævintýrið með SFT tafði okkur um hálfan mánuð. Þá höfum við tafist af öllum mögulegum og ómögulegum orsök- um. Nú síðast þegar skipin voru á leiðinni yfir hafið. Skipinu sem flutti tankana sem verða notaðir við björgunina seinkaði um tvo sólar- hringa og okkar skipi seinkaði líka vegna veðurs,“ segir Haukur. Desembermánuður sé ekki besti tími ársins til að standa í björgunar- aðgerðum af þessu tagi í N-Noregi. Í myrkri, alls konar veðri og svo ná- lægt jólum. Svæðið sé þó upplýst með kösturum, enda sé unnið þar allan sólarhringinn á vöktum. Mynd skoðuð á elliheimilinu Haukur og kona hans gera ráð fyrir að fara til Noregs á næstu dög- um og vera viðstödd þegar Guðrún Gísladóttir kemur upp úr hafdjúp- unum. Þau segjast vera farin að hlakka til að sjá skipið. „Jú, þetta er náttúrlega mjög spennandi, en ég sef alveg rólegur yfir þessu öllu saman, ég er þannig gerður. Mér finnst þetta skemmtilegt,“ segir Haukur. Sigurður Grímsson, kvikmynda- tökumaður frá Gríms-film, er stadd- ur í Noregi á vegum Hauks og mun hann taka upp myndir af aðgerðun- um og öllum undirbúningnum. Í skoðun er að gera heimildarmynd um björgunina. „Ég ætla aðallega að hafa þetta á elliheimilinu,“ segir Haukur. ð til að ðiskipi Antonsen víkur á höfn- mmí- erða síð- búnaði til tni. nina@mbl.is ta í ró- hafi feng- þetta on vél- erkinu og . Fljót- ð und- gurður rúnu , þar sem g kima á ráðið Ás- rrverandi bæjarstjóra á Ólafsfirði, en hann sé alhliða reddari í Noregi og sjái að auki um öll samskipti við Norð- menn, norska ríkið, sveitarstjórn- ina, hafnaryfirvöld og norska fjöl- miðla. Sigurður Pétur Hafsteinsson kafari komi að öllum undirbúningi neðansjávar, en norska verktaka- fyrirtækið Riise Underwater Eng- ineering sjái um alla köfun og neðansjávarverkin. Alls komi á um fjórða tug manna að aðgerð- unum. Haukur leigði skipið Stakkanes frá Ísafirði sem er bækistöð Ís- lendinganna meðan á björgunar- aðgerðunum stendur og kom það til Noregs í síðustu viku. Sex menn eru í áhöfn skipsins. Allir hafi þeir sem að þessu komi mikla reynslu og kunnáttu á sínu sviði. „Fjölmargir höfðu samband við mig og buðu fram starfsorku sína. Ég hef þurft að vísa frá fullt af hæfileikafólki en ég var búinn að ráða alveg í þetta á fyrstu fjóru vikunum,“ segir Haukur. => !$6 $>7/ 6!96 = =:  :!= P!4 !=:  > 9   H   );!$9! K>   >=3  != 9/= !=!!$4 # H =!   !!$H =!  = $!  M :> !=> 9/=!= !!= !!$4 # .!$9! K!  9/= 9 =>  H = :!=!   =!$ =!$! 4 ,6K 9$  ALLUR innritaður farang-ur sem fer um FlugstöðLeifs Eiríkssonar verðurgegnumlýstur með nýju fullkomnu öryggis- og sprengjuleit- arkerfi frá og með 1. janúar næst- komandi. Búnaðurinn sem kostar um 210 milljónir króna var kynntur á fréttamannafundi í flugstöðinni í gær ásamt svonefndri gegnumlýs- ingarbifreið sem flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli hefur nýlega fest kaup á. Við það tækifæri undirritaði Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra endurskoðaða neyðaráætlun fyrir Keflavíkurflugvöll. Fram kom í máli Halldórs að ör- yggismál flugstöðvarinnar hefðu tekið miklum stakkaskiptum á sein- ustu árum. Fullkomnasti leitarbúnaður í heimi Kröfur um 100% sprengjuleit í lestarfarangri flugfarþega má rekja aftur til níunda áratugarins þegar komið var fyrir sprengju í tösku í lest flugvélar frá Pan American- flugfélaginu sem sprakk ofan við bæinn Lockerbee í Skotlandi. Í kjöl- far hryðjuverksins ákváðu flugmála- stjórar í samtökum flugmálastjórna 38 Evrópuríkja að 100% sprengju- leit skyldi komið á í aðildarlöndun- um ekki síðar en 1. janúar 2003. Keflavíkurflugvöllur er hlekkur í ör- yggiskeðju þessara samtaka og verður að tryggja að farangur sem fer frá vellinum sé öruggur. Öryggis- og sprengjuleitarkerfið var hannað af tæknideild Kaup- mannahafnarflugvallar. Gegnumlýs- ingarbúnaðurinn sem tekinn verður í notkun er hluti af þessu kerfi en hann kemur frá Heimann-verk- smiðjunum í Þýskalandi og er talinn sá fullkomnasti sem völ er á í heim- inum í dag. Þessi búnaður getur skoðað um 1.200 til 1.500 töskur á hverri klukkustund. Við uppsetn- ingu búnaðarins var þess gætt að hann væri samofinn innritunar- kerfinu og á notkun hans ekki að valda töfum við innritun farþega. Búnaðurinn er hálfsjálfvirkur. Er hann tengdur við gegnumlýsingar- vél sem skynjar farangur sem þarfn- ast frekari skoðunar. Þær töskur eru svo skoðaðar af öryggisstarfs- manni í fullkominni leitarvél, sem gegnumlýsir farangurinn frá tveim- ur sjónarhornum, bæði lárétt og lóð- rétt. Skv. upplýsingum forsvarsmanna flugstöðvarinnar er þessi vél með fyrstu vélum sinnar tegundar í heim- inum sem settar hafa verið upp. Sérhönnuð gegnumlýsingar- bifreið kostaði 23 milljónir Jóhann R. Benediktsson, sýslu- maður á Keflavíkurflugvelli, og yf- irmenn Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssyni fylgdu utanríkisráðherra og fréttamönnum um flugstöðina í gær og kynntu nýja öryggisbúnaðinn og hina nýju gegn- umlýsingarbifreið Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli. Bifreiðin er af gerðinni Mercedes-Benz 814 og var kaupverð hennar um 23 milljónir kr. Í bifreiðinni er búnaður sem gerir kleift að skoða hluti í vöru- og póst- sendingum upp að ákveðinni há- marksstærð. Fullkominn búnaður er í gegnum- lýsingarvélinni sem gerir skoðunar- manni kleift að skoða myndir sem birtast á skjánum á ýmsa vegu. „Með kaupunum á bifreiðinni verða yfirvöld á flugvellinum betur í stakk búin til að framfylgja þjóðrétt- arlegum skuldbindingum á sviði flugverndar og hægt verður að skoða vöru- og póstsendingar sem sendar eru frá landinu en krafa er um að slíkar sendingar sæti ákveð- inni skoðun áður en þær eru settar um borð í loftför. Tilkoma bifreiðarinnar gefur og tollgæslunni aukin færi á að skoða betur þær hraðsendingar sem koma til landsins. Bæði er fíkniefnaeftirlit eflt með komu bifreiðarinnar og hægt er með auðveldum hætti að staðreyna hvort innihald vörusend- inga sé í samræmi við vörulýsingu, sem skiptir augljóslega miklu við tollákvörðun. Þá er rétt að minna á að vegna legu Keflavíkurflugvallar hafa flugvélar á leið yfir Atlantshafið þurft að lenda hér vegna neyðar- ástands um borð eins og dæmin sanna. Brýnt er af þeim sökum að yf- irvöld hafi yfir að ráða fullkomnum búnaði þegar slíka vá ber að hönd- um,“ segir í frétt um hinn nýja búnað sem fréttamönnum var afhent í gær. Áætlun vegna sýklavopna Í gær var einnig undirrituð endur- skoðuð neyðaráætlun fyrir Keflavík- urflugvöll. Efni neyðaráætlunarinnar er trúnaðarmál en fram kom í máli Jó- hanns R. Benediktssonar að í henni væri m.a. að finna viðbrögð vegna sprenjuhótana og leiðbeiningar og viðbragðsáætlun vegna hugsanlegr- ar beitingar sýklavopna. Innritunarborð endurnýjuð Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á undanförnum mánuðum. Auk hins nýja gegnumlýsingarbúnaðar og breytinga sem gerðar hafa verið á húsnæði vegna notkunar hans, hefur nær allur búnaður vegna innritunar farþega verið endurnýjaður. Hafa innritunarborð verið endurnýjuð í heildstætt innritunarkerfi og hefur flugstöðin yfir 25 innritunarborðum að ráða. Settar hafa verið upp nýjar far- angursvogir við innritunarborðin, ný farangursbönd og nýr stjórnbúnað- ur af fullkomnustu gerð sem stjórn- ar og flokkar farangurinn inn á böndin sem liggja inn í gegnumlýs- ingarvélarnar. Nýtt öryggis- og sprengjuleitarkerfi vegna far- angurs tekið í notkun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Getur skoðað 1.200 til 1.500 tösk- ur á klukkustund Morgunblaðið/Sverrir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra undirritaði nýja neyðaráætlun fyrir Keflavíkurflugvöll á fréttamanna- fundi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gær. Halldór flutti einnig ávarp á fundinum. Á myndinni má einnig sjá Jó- hann R. Benediktsson, sýslumann á Keflavíkurflugvelli, og Björn Inga Knútsson flugvallarstjóra. Morgunblaðið/Sverrir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Björn Ingi Knútsson flugvall- arstjóri fylgjast með þegar farangur fer í gegnum skoðunarbúnað í hinni nýju Mercedes-Benz-gegnumlýsingarbifreið flugmálastjórnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.