Morgunblaðið - 12.12.2002, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 12.12.2002, Qupperneq 54
MINNINGAR 54 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ „Fundur var haldinn í þónokk- urri fjarlægð frá Jörðu. „Það er kominn tími til nýrrar fæðingar,“ sagði Engillinn við Guð almáttugan. „Þetta sérstaka barn mun þarfnast mikillar ástúðar og umönnunar. Framfarir þess munu verða hægar. Framkvæmdir þess verða ekki mjög sýnilegar. Og það mun þarfnast sérstakrar nærgætni frá öllum þeim sem það hittir þarna niðri. Það mun ekki hlaupa og hlæja og leika sér á sama hátt og hinir. Hugsanir þess munu virð- ast langt í burtu. Á margan mátt mun það ekki passa inn í þjóðfé- lagið. Það mun verða kallað fatlað. Þess vegna verðum við að gæta þess sérstaklega til hverra við sendum það. Við viljum að það verði sátt við líf sitt. Elsku góði Guð, finndu foreldra sem vilja sinna þessu örðuga verkefni fyrir þig. Það er ekki víst að þeim verði strax ljóst það aðalhlutverk sem ÖSP VIÐARSDÓTTIR ✝ Ösp Viðarsdóttirfæddist í Reykja- vík 27. júlí árið 2000. Hún lést á barna- deild Landspítalans við Hringbraut hinn 3. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar eru Anna Karen Kristjánsdótt- ir, f. 6. mars 1975, og Viðar Tómasson, f. 18. júní 1970. For- eldrar Önnu K. eru Olga Guðnadóttir, f. 27. júní 1948, og Kristján Halldórs- son, f. 17. mars 1950. Foreldrar Viðars eru Ragnheiður K. Péturs- dóttir, f. 6. febrúar 1952, og Tóm- as Sveinbjörnsson, f. 18. júlí 1948. Bræður Aspar eru Steinar, f. 3. mars 1994, og Tómas Hrói, f. 14. febrúar 1999. Útför Aspar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. þau eru beðin að leika. En með þessu barni sendu af himn- um ofan kemur sterk- ari trú og ríkulegri ást. Og brátt munu þeim verða ljós þau forréttindi sem þeim hafa verið veitt með því að sjá um og ann- ast þessa guðsgjöf. Þessi dýrmæta sál, svo bljúg og blíð er himnanna einstaka barn.“ (Höf. ók.) Pabbi, mamma og bræður. Systir. Hvar ertu? Ég var varla farinn að kynnast þér. Ég skildi varla að þú varst veik. Nú horfi ég á líkama þinn í litlu kistunni þinni. En ég veit að þú ert farin. Systir. Hvar ertu? (Bragi Skúlason.) Elsku Ösp. Nú ert þú að syngja og leika og hlaupa með hinum englabörnunum í himnaríki. Þinn bróðir Tómas Hrói. „Hann sem alltaf bíður situr við hliðina á barninu. Þú getur líka kallað hann. Hann sem aldrei sef- ur, vegna þess að hann sefur aldrei og bíður eftir öllum sem koma, þess vegna stendur hann þar sem Dimmidalur endar og Sumarslétt- an byrjar. En í fyrsta skipti sem lítið barn sefur í grasinu á Sum- arsléttunni situr hann við hlið þess og gætir þess, þótt engar hættur leynist þar. Þegar barnið vaknar, lítur hann á það og brosir. Hann strýkur því um vangann og höndin er hlý og létt eins og vængur á fiðrildi.“ (Eyvind Skeie úr „Sum- arlandinu“.) Ævin hennar Aspar var ekki löng, en fyrir okkur sem stóðum að henni, spannaði hún víddir. Ösp var yndislega falleg og góð lítil stúlka sem útgeislaði eingöngu kærleika og sakleysi. Augun hennar voru djúp og blá og óendanleiki Guðdómsins spegl- aðist í þeim. Ösp var eina ömmu- og afa- stelpan og hún var alltaf í sínu fín- asta pússi, í kjólum með spennur og fínerí í hárinu. Hrein unun á að horfa. Kertið hennar brann ekki lengi, en á meðan það lifði lýsti það upp tilveru allra þeirra sem komu í ná- munda við hana og fengu að kynn- ast henni. Hún var sakleysið eins og Guð hafði hugsað sér það. Ösp kallaði einungis fram kær- leiksríkar tilfinningar hjá okkur öllum sem nutum samvista við hana. Nú þegar hún er farin á vit almættisins, þá sitjum við eftir og reynum að muna aðeins það góða sem hún gaf okkur, í stað þess að einblína á sorgina. Elsku Viðar, Anna Karen, Tóm- as Hrói og Steinar, Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Einhvern tímann þegar sárasta sorgin er liðin hjá munum við ein- ungis góðu stundirnar sem þessi litli yndislegi sakleysingi gaf okk- ur. Við látum sólina skína á minn- inguna um hana Ösp á hverjum degi sem Guð á eftir að gefa okk- ur. Í Guðs friði, Amma Ragnheiður, afi Tómas, afi Pétur, Sig- urður og Anna Lára. Elsku litla Öspin okkar. Við kveðjum þig í dag, nú er andinn þinn frjáls. Þú ert komin á stað þar sem þú getur hlaupið, hoppað og leikið þér í græna flauelskjóln- um þínum. Andi þinn og öll þín mörgu svipbrigði lifa í hjarta okk- ar allra sem fengum að kynnast þér. Allt þitt líf var kraftaverk frá byrjun. Í upphafi bjuggumst við ekki við því að fá að hafa þig svona lengi. Vissulega vaknaði vonin í brjósti okkar því þú varst svo dug- leg í veikindum þínum. Óvissan var erfið, að vita aldrei hvenær stund- in væri runnin upp. Alltaf náðir þú þér eftir veikindin og trú okkar á líf þitt óx með hverri viku, með hverjum mánuði. En nú er stundin runnin upp og við erum þakklát fyrir hvert augnablik. Þakklát fyr- ir þau forréttindi að fá að hafa þig svo lengi, miklu lengur en við gát- um vonað. Litla Öspin okkar, þú gerðir sál okkar ríkari. Drottinn vaki yfir þér. Hér þótt lífið endi, rís það upp í Drottins hendi. Megi ljós og friður fylgja þér í ást og söknuði. Þinn kærleiki var gjöf sem gleymist ekki. Jesú sagði: „Ég lifi og þér munuð lifa.“ Sofðu rótt. Kveðja frá ömmu og afa á Akureyri. Blunda þú nú barnið mitt, bráðum kemur nótt. Óli Lokbrá læðist inn létt og ofurhljótt. En yfir þér englar vaka, þeir elska sinn litla vin. Og gullvængjum blítt þeir blaka við blikandi stjörnuskin. Óli Lokbrá leiðir þig létt um draumsins svið, heillar yfir barnsins brá blíðan nætur frið. (Jakob Valdimar Hafstein.) Elsku Anna Karen, Viðar og fjölskylda. Við vottum okkar inni- legustu samúð. Guð geymi litlu, ljúfu Ösp með fallegu bláu augun og löngu augnhárin sín. Blessuð sé minning hennar. Starfsfólk skammtímavist- unar, Álfalandi 6. Elsku Ösp mín, þó að samveru- stundirnar hafi verið stuttar voru Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓRUNN ÞORKELSDÓTTIR, Droplaugarstöðum v. Snorrabraut, lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 30. nóvember. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Inga Ólafsdóttir, Hannes Sigurðsson, Svava Aldís Ólafsdóttir, Birgir Karlsson, Sigurdís Ólafsdóttir, Friðrik Ólafsson, ömmu- og langömmubörn. Okkar ástkæri KRISTÓFER MATTHEW CHALLENDER, Strandgötu 49, Hafnarfirði, er látinn. Fyrir hönd aðstandenda, Erla María Erlendsdóttir, Embla Challender. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES GUÐMUNDSSON, Kelduhvammi 7, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 13. desember kl. 13.30. Birgir Jóhannesson, Kristín Svavarsdóttir, Kristinn Jóhannesson, Guðrún Ásmundsdóttir, Sverrir Jóhannesson, Elín Pálsdóttir, Selma Jóhannesdóttir, Gunnar Sumarliðason, afabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, amma og langamma, SIGRÚN JÓNSDÓTTIR, Arahólum 2, Reykjavík, lést á Sólvangi mánudaginn 9. desember. Jóna, Gunnhildur og Birna Guðjónsdætur og aðrir aðstandendur. Elskulegur sonur minn, bróðir og mágur, JÓN HARALDUR ÓLAFSSON frá Ytra-Hvarfi, til heimilis á Karlsrauðatorgi 12, Dalvík, sem lést fimmtudaginn 5. desember, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 14. desember kl. 13.30. Jarðsett verður á Völlum. Ólafur Tryggvason, Ævar Hjartarson, Freydís Laxdal, Kristín Ólafsdóttir, Jóhann Ólafsson, Herdís A. Geirsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KLEMENS SÆMUNDSSON, Hólagötu 4, Vogum, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 10. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Kristmannsdóttir. Látin er Gyða Ólafs- dóttir. Gyða byrjaði starf hjá Pennanum í Hafnarstræti 18 aðeins 19 ára gömul, en þá var ég undirrituð verslunarstjóri. Það er svo margt gott og fallegt hægt að segja um Gyðu. Það var bæði gaman og gott að vinna með henni og stundvísari stúlku hef ég aldrei unn- ið með, að öðrum ólöstuðum, sama hvort mætt var á morgnana eða úr matartíma. Þú gast alltaf treyst á Gyðu. Ung að árum eignaðist hún dótturina Guðrúnu, sem er hjúkr- unarfræðingur, og síðan dótturina Nönnu, sem er fötluð. Nanna missir mikið að missa sína góðu mömmu, en systir hennar er henni mjög góð. Einnig hefur Halldór seinni maður Gyðu reynst henni sem besti faðir. GYÐA ÓLAFSDÓTTIR ✝ Gyða Ólafsdóttirfæddist á Akra- nesi 7. júlí 1946. Hún lést á Landspítala í Fossvogi 20. nóvem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Kópavogs- kirkju 29. nóvember. Þau missa öll mikið, því Gyða var sterk og átti marga góða eigin- leika. Hún var frábær starfskraftur og kunni sitt fag. Hún kunni það að koma fram við við- skiptavininn og þjón- usta hann eftir bestu getu, enda átti hún marga kúnna sem völdu bara Gyðu. Hún gerði sér far um að kynnast vörunni og var alltaf til í að leita fyrir kúnnann, ef eitthvað sérstakt vantaði. Meðan við Gyða unnum saman kom það upp að við réðum okkur í sumarfríum sem matráðskonur í eldhúsbílana hjá Úlfari Jakobsen, sem þá rak ferðaþjónustu. Hafði hann þá eldhúsbíla sem fylgdu rútu- bílunum eftir. Í þeim var útbúinn matur fyrir ferðamennina. Með þessu kynntist ég mörgum stöðum, sem ég hafði aldrei komið á áður og hitti margt fólk af erlendum upp- runa, sem stundum héldust tengsl við áfram. Gyða lét af störfum hjá Pennan- um árið 2002. Við höfðum alla tíð unnið saman frá árinu 1965 þar til ég hætti 1998. Fyrst í Hafnarstræti 18 og síðar í Hallarmúla 2. Ég þakka Gyðu allar þær stundir sem við unnum saman. Þó að við værum báðar skapmiklar var sam- starfið mjög gott og enginn ágrein- ingur okkar í milli. Farðu í friði, Gyða mín, og Guð gefi fólkinu þínu, aldraðri móður, eiginmanni, bróður og dætrum og litlu Gyðu, sólargeislanum þínum, fagrar minningar. Inga. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hef- ur borist. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að síma- númer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálks- entimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.