Morgunblaðið - 12.12.2002, Side 62
DAGBÓK
62 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ottó
N. Þorláksson kemur og
fer í dag. Mánafoss kem-
ur í dag. Dettifoss og
Helgafell fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Hestia og Selfoss fóru í
gær. Wilson Skaw kom í
gær.
Fréttir
Bókatíðindi 2002. Núm-
er fimmtudagsins 12.
des. er 61905.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó á
morgun kl. 14. Litli kór-
inn frá Neskirkju syng-
ur í kaffitímanum, undir
stjórn Ingu Bachmann
undirleikari Reynir Jón-
asson.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.45–10 helgi-
stund, kl. 10.15 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofa. Jólabingó
verður á morgun 13. des-
ember.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handavinna,
kl. 9–17 fótaaðgerðir, kl.
13 bókband, kl. 14–15
dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánudaga og fimmtu-
daga. Mánud.: Kl. 16
leikfimi. Fimmtud.: Kl.
13 tréskurður, kl. 14
bókasafnið, kl. 15–16
bókaspjall, kl. 17–19 æf-
ing kórs eldri borgara í
Damos.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
íkonagerð, kl. 10–13,
verslunin opin, kl. 13–16
spilað.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9 aðstoð við
böðun, kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9.30 danskennsla, kl. 14.
söngstund, hárgreiðslu-
stofan opin kl. 9–16.45
nema mánudaga.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 böð-
un, kl. 9–16.30 gler-
skurður, kl. 10 leikfimi,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–14, kl. 15.15 línu-
dans og fl., kl. 15.15
danskennsla. Söngtími
kl. 13.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerðir, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félagsstarfið Sléttuvegi
11–13. Jólafagnaður er í
dag, 12. desember, kl.
18.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Púttað í
Hraunseli kl. 10, kl.
13.30 glerskurður, opið
hús. Jólafundur eldri
borgara kl. 14.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in kl. 10–13. Morg-
unkaffi, blöðin og matur
í hádegi. Fimmtudagur:
Brids kl. 13. Brids fyrir
byrjendur kl. 19.30.
Skrifstofa félagsins er í
Faxafeni 12, sími
588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund, um-
sjón Lilja G. Hallgríms-
dóttir djákni, frá hádegi
vinnustofa opin, mynd-
listarsýning Árna Sig-
hvatssonar stendur yfir.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.55 leik-
fimi, handavinnustofan
opin, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30–15, kl.
9.30 keramik og leir-
mótun, kl. 13 ramma-
vefnaður, gler- og postu-
línsmálun, kl. 15 enska,
kl. 17 myndlist, kl. 16.15
kínversk leikfimi, kl. 20
gömlu dansarnir, kl. 21
línudans. Aðventuhátíð
verður í dag, fimmtudag-
inn 12. desember, kl. 14.
Kl. 20 gömlu dansarnir.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13 brids, kl. 13–16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum.
Jólahlaðborð verður
laugardaginn 14. des kl.
18.30, tekið á móti gest-
um með fordrykk. Dag-
skrá: Ómar Stefánsson
bæjarfulltrúi, Samkór
Kópavogs undir stjórn
Julían Hawlett, söngvari
syngur undir stjórn Jón-
asar Ingimundarsonar,
fjöldasöngur og dans.
Miðapantanir og sala í
Gullsmára fimmtudag og
föstudag í síma 564 5260
Allir velkomnir.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og keramik,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 14 félagsvist.
Jólabingóið á morgun kl.
14. Ýmsir góðir vinn-
ingar. Súkkulaði og smá-
kökur. Barnabörnin vel-
komin.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur,
kl. 10 boccia, kl. 13
handavinna, 13.30 fé-
lagsvist. Fótaaðgerðir,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmtud.: Kl. 10, aðra
hverja viku, púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 13–16.45
leir, kl. 10–11 ganga, kl.
14–15 jóga.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 alm. handavinna,
kl. 10–11 boccia, kl.13–16
kóræfing og mósaík.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, körfugerð
og morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og boccia,
kl. 13 handmennt og
spilað. Félagsvist í kvöld
kl. 20.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra, Hátúni 12, kl. 19.30
tafl.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Jólafundur í
umsjá Sveinbjargar
Arnmundsdóttur hefst
kl. 16 með kaffi. Allar
konur velkomnar.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánudaga
og fimmtudaga. Skrán-
ing kl. 12.45, spil hefst
kl. 13.
Kvenfélag Kópavogs
minnir á jólapakkana á
fundinum í kvöld kl. 20.
Minningarkort
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis fást á
skrifstofu endurhæfing-
ardeildar Landspítalans
í Kópavogi (fyrrverandi
Kópavogshæli), síma
560 2700 og skrifstofu
Styrktarfélags vangef-
inna, s. 551 5941 gegn
heimsendingu gíróseðils.
Landssamtökin Þroska-
hjálp. Minningarsjóður
Jóhanns Guðmunds-
sonar læknis. Tekið á
móti minningargjöfum í
síma 588 9390.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560 1300 alla virka
daga milli kl. 8 og 16. Ut-
an dagvinnutíma er tekið
á móti minningargjöfum
á deild 11-E í síma
560 1225.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu Jóns-
dóttur flugfreyju eru fá-
anleg á eftirfarandi
stöðum: Á skrifstofu
Flugfreyjufélags Ís-
lands, s. 561 4307/fax
561 4306, hjá Halldóru
Filippusdóttur, s.
557 3333 og Sigurlaugu
Halldórsdóttur, s.
552 2526.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið í Skógum
fást á eftirtöldum stöð-
um: Í Byggðasafninu hjá
Þórði Tómassyni, s.
487 8842, í Mýrdal hjá
Eyþóri Ólafssyni, Skeið-
flöt, s. 487 1299, í
Reykjavík hjá Frí-
merkjahúsinu, Laufás-
vegi 2, s. 551 1814 og hjá
Jóni Aðalsteini Jónssyni,
Geitastekk 9, s.
557 4977.
Minningarkort, Félags
eldri borgara Selfossi
eru afgreidd á skrifstof-
unni Grænumörk 5, mið-
vikudaga kl. 13–15.
Einnig hjá Guðmundi
Geir í Grænumörk 5,
sími 482 1134, og versl-
uninni Írisi í Miðgarði.
Í dag er fimmtudagur 12. desem-
ber, 346. dagur ársins 2002. Orð
dagsins: Faðir, gjör mig nú dýrlegan
hjá þér með þeirri dýrð, sem ég hafði
hjá þér, áður en heimur var til.
(Jóh. 17, 5.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 varasamar, 8 þekkja, 9
rotin, 10 guð, 11 hluta, 13
hagnaður, 15 fjárrétt, 18
vísa, 21 elska, 22 bækurn-
ar, 23 eldstæði, 24 sið-
sama.
LÓÐRÉTT:
2 spyr, 3 fiskur, 4 að-
finnsla, 5 óbeit, 6 far, 7
röskur, 12 verkur, 14
upptök, 15 harmur, 16
stríðni, 17 rannsaka, 18
uglu, 19 þátttaka, 20
beitu.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 belja, 4 gauða, 7 landi, 8 ruddi, 9 rúm, 11 alin,
13 hrín, 14 aðila, 15 farm, 17 föng, 20 fló, 22 rakki, 23
lynda, 24 annað, 25 temja.
Lóðrétt: 1 belja, 2 langi, 3 akir, 4 garm, 5 undir, 6 arinn,
10 úrill, 12 nam, 13 haf, 15 forna, 16 ríkan, 18 ösnum, 19
grafa, 20 firð, 21 ólöt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
ÞÁ ER Ár fjallanna að renna sittskeið á enda og Herðubreið,
drottning íslenskra fjalla, staðfesti
vinsældir sínar og virðingu hjá þeim
sem kusu fjallið í vinsældakosningu.
Já, Herðubreið er ekki árennilegt
fjall, var fyrst klifið árið 1908. Það
eru því rétt um fimm ár í 100 ára klif-
urafmælið og Víkverji fullyrðir að
eitthvað verður gert í tilefni þess.
Ferðafélag Íslands, Íslenski alpa-
klúbburinn og fleiri eru líklegir til að
minna á atburðinn.
Meira um klifurafmæli. Á næsta
ári eru 50 ár liðin frá fyrstu upp-
göngu á Everest og viðbúið er að
stemmningin í Grunnbúðum næsta
vor verði hátíðleg. Sumir leiðangrar
hljóta að hafa pantað uppgönguleyfi
á afmælisárinu með margra ára fyr-
irvara. Þá má gera ráð fyrir að leið-
angrarnir biðji veðurguðina um gott
uppgönguveður 29. maí, daginn sem
Hillary og Tenzing komust upp. Sá
sem kemst á tindinn þann dag mun
aldrei gleyma þeirri lífsreynslu. Svo
er spurning hvort metnaðurinn
hleypi mönnum ekki út í að reyna
standa á tindinum kl. 11.30 eins og
Hillary og Tenzing gerðu. Í ævisögu
sinni, View From The Summit, segist
Hillary hafa ætlað að fagna afrekinu
með því að taka í höndina á Tenzing,
svona að hætti engilsaxneskra. „En
þetta nægði ekki Tenzing sem fleygði
sér á mig með miklu faðmlagi og ég
faðmaði hann á móti,“ segir Hillary.
Þeir vörðu fimmtán mínútum á tind-
inum og héldu síðan niður. Þarna tók
Hillary eina frægustu ljósmynd 20.
aldarinnar, af Tenzing. En það er
engin mynd til af Hillary á tindinum.
Tenzing var ekki með myndavél og
Hillary viðurkennir að hann hafi ekki
látið sér til hugar koma að fara að
skipuleggja myndatökur af sjálfum
sér. Honum var meira í mun að taka
ljósmyndir til sönnunar afrekinu.
Ekki hégómaskapnum fyrir að fara
hjá manninum. Og hann var víst bara
ljúfmennskan sjálf þegar blaðakona
af Morgunblaðinu hringdi í hann í til-
efni af fyrstu uppgöngu Íslendinga
1997. Hinn 29. maí 1953 breytti lífi
Hillarys eins og nærri má geta. Sjálf-
sagt er sömu sögu að segja af Íslend-
ingunum fjórum sem hafa komist á
toppinn, þeim Birni Ólafssyni, Einari
Stefánssyni, Hallgrími Magnússyni
og síðan Haraldi Erni Ólafssyni. Það
má satt vera að Everest breyti lífi
fólks. Bandaríski blaðamaðurinn Jon
Krakauer, sem komst upp 1996, og
niður aftur við illan leik, ætlar aldrei
þangað aftur, enda dó fjöldi manna
sem með honum voru. Þetta fékk svo
mikið á hann að hann varð að reykja
maríjúana þegar hann kom til Kat-
mandú og fékk grátkast uppi á hót-
elherbergi vegna harmleiksins. Aðrir
eru hins vegar alltaf á Everest eins
og landi hans Ed Viesturs sem hefur
margoft farið upp og komið jafnoft
lifandi til baka. Sérpinn Babu, sem
var með Íslendingunum 1997, var þó
hagvanastur allra, hafði farið tíu
sinnum á tindinn en dó í það ellefta í
fyrra.
Þess má geta að 50 ára klifuraf-
mæli tveggja Ítala sem komust fyrst-
ir á tind K2, næsthæsta fjalls heims,
er á þarnæsta ári. Hættulegra fjall er
vandfundið og það hefur heimt
ískyggilega mörg mannslíf en er mik-
ið aðdráttarafl fyrir ofurhuga. Það
kemur að því að Íslendingur leggur
til atlögu. Það getur bara ekki annað
verið. Framsækni íslenskra fjall-
göngumanna á liðnum árum er aug-
ljóst merki um þróun í þá átt.
Lúalegar aðfarir
Í FURUGERÐI 1 þar sem
ég bý er meðalaldur vist-
manna um 85 ár og meiri-
hlutinn notar göngugrind-
ur. Nú á að fara að flækja
þessu fólki í rútum um allan
bæ í handavinnu vegna
þess að leggja á niður
handavinnuna á staðnum.
Finnst mér þetta lúaleg-
ar aðfarir að okkur, við
borgum okkar skatta, okk-
ar leigu og flest okkar
borga allt sem fyrir okkur
er gert. Við erum engir
þurfalingar og það er sví-
virða hvernig farið er með
eldri borgara.
Íbúi í Furugerði 1.
Fyrirspurn
ÞAÐ flýgur fyrir að staða
Lífeyrissjóðs Framsýnar
sé afar veik um þessar
mundir og sé svo er mér
spurn: Hver er að leika sér
að peningunum mínum?
Hvaða sérreglur varð-
andi íbúðalánaveð gilda hjá
Framsýn?
Er starfhæft eftirlit í
landinu með starfsemi líf-
eyrissjóða?
Ólafur Lárusson,
félagi í Eflingu.
Dónaskapur
á Popp Tíví
MIÐVIKUDAGINN 4.
desember sl. var ég að
flakka á milli stöðva og datt
inná Popp Tíví korter fyrir
10 og sá þar brúðuþátt sem
ég lagði hlustir við. Þarna
var sýnt símtal milli konu
og manns og þvílíkt og ann-
að eins. Grófur talandi og
klám var alls ráðandi í því
sem brúðurnar vildu gera
hvor annarri; svo gróft að
það verður ekki haft eftir
hér. Mér var brugðið enda
með börn og unglinga sem
eiga það til að horfa á þessa
stöð og því er mér spurn?
Ef það er nauðsynlegt að
hafa dónaskap og vitleysu
má hún þá ekki vera síðar á
dagskrá þegar áhorfenda-
hópurinn er vonandi eldri.
Það sem er svo umhugsun-
arvert er afhverju þetta
þarf að vera á dagskrá á
poppstöð sem höfðar til
krakka? Er þessi blessaður
nútími orðinn þannig að allt
þarf að vera gróft og ljótt,
klámþættir, poppsöngkon-
ur margar sem klæðast
eins og vændiskonur og líf-
ið frekar dapurt. A.m.k. er
ljóst að Travolta og Olivia
Newton John hefðu ekki
„meikað“ það á Popp Tíví
eða uppfyllt óskir stjórn-
enda þar.
Með von um að stjórn-
endur þessarar stöðvar átti
sig á því að í þeirra áhorf-
endahópi eru krakkar sem
svona klámþættir eiga ekki
erindi til.
Móðir – á besta aldri.
Tapað/fundið
Tvíburakerra
í óskilum
TVÍBURAKERRA af teg-
undinni Hauck fannst ná-
lægt 10–11 í Grímsbæ í
Fossvogi. Upplýsingar í
síma 896 9692.
Peningar í óskilum
SÁ SEM týndi peningum í
verslun í Smáralind sl.
sunnudag hafi samband í
síma 554 1106.
Karlmannsskór
teknir í misgripum
KARLMANNSSKÓR voru
teknir í misgripum í Domus
Medica sl. mánudag. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 587 210.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
UM daginn spurði mað-
ur eftir nýlegri íslenskri
plötu í versluninni Japís
við Laugaveg. Enginn í
afgreiðslunni kannaðist
við að hún væri til sölu í
búðinni. Leið nú og
beið.
Loks kom versl-
unarstjórinn og bað
manninn að fylgja sér.
Gengu þeir niður tröpp-
ur og út í horn í næsta
herbergi fyrir aftan.
Verslunarstjórinn leitaði
í ómerktum plötustandi.
Og viti menn, þarna var
platan vandlega falin
bakvið aðra. Maðurinn
spurði af hverju hún
væri höfð þarna úti í
horni en ekki frammi
með íslensku plötunum.
Verslunarstjórinn svar-
aði að diskarnir sem
væri verið að „moka“ út
úr búðinni væru hafðir
frammi. Hinn spurði
hvort ekki væri ástæða
til að hafa diska sem
ekki allir þekktu þar
sem þeir sæjust og
merkja standinn ein-
hvern veginn. Nei, stjór-
anum fannst það
ástæðulaust, þessi plata
væri best geymd þarna
því enginn þekkti hana
hvort sem væri.
Sem sagt, þær plötur
sem allir þekkja eiga að
vera þar sem allir sjá
þær. Þær plötur sem fá-
ir þekkja eiga að vera
þar sem fáir sjá og þær
plötur sem enginn þekk-
ir eiga að vera þar sem
enginn sér. Það er eng-
in þörf á að kynna það
sem enginn þekkir. Hitt
sem allir þekkja, það
þarf hins vegar að
kynna vel.
Sá sem þetta skrifar
er ekki enn kominn til
botns í þeirri hunda-
lógík sem þessi kaup-
mennska er byggð á.
Hafnfirðingur
í búðarferð.
Hundalógík Japísmanna